Dagur - 22.12.1990, Blaðsíða 20
Laugardagur til lukku:
Viraiingspottamir
óvenju stórir í dag
Þrefaldur vinningur verður
bæði hjá Islenskri getspá og
íslenskum getraunum í dag og
því til mikils að vinna.
Hjá íslenskri getspá fengust
þær upplýsingar að búist væri við
að lottópotturinn færi í um 15
Presthólahreppur og
ÖxarQarðarhreppur:
Kosið um sam-
einingu í dag
I dag verður kosið um það
hvort Presthólahreppur og
Oxarfjarðarhreppur sameinast
í eitt sveitarfélag sem mun ein-
faldlega nefnast Öxarfjarðar-
hreppur. Að sögn oddvitanna í
báðum hreppunum er samein-
ing vænlegur kostur og ávinn-
ingurinn mikill, sérstaklega
fyrir Presthólahrepp.
Laugardagurinn 22. desember
var ákveðinn kosningadagur og
munu íbúar í hreppunum ganga
að kjörborðinu í Lundarskóla í
Öxarfirði og grunnskólanuni á
Kópaskeri kl. 13-16 í dag.
Verði sameiningin samþykkt
munu hreppsnefndirnar í Prest-
hólahreppi og Öxarfjarðarhreppi
bjóða fram sameiginlegan lista og
komi fram mótframboð verður
efnt til kosninga innan mánaðar.
í lok janúar ætti málið að
verða til lykta leitt og þá kemur í
Ijós hverjir skipa hreppsnefnd
hins sameinaða Öxarfjarðar-
hrepps, ef sameiningin verður
samþykkt í kosningunum. SS
Rjúpnaveiðin:
Tíminn að
renna út
Rjúpnaveiðitímabilinu lýkur í
dag. Veiðimenn eru sammála
um að rjúpnastofninn sé með
lakasta móti en því til viðbótar
hefur veðurfarið í haust sett
mjög strik í reikninginn hjá
veiðimönnum.
Við upphaf tímabilsins var
nokkur snjór á Norðurlandi og
fyrstu dagana gekk vönum veiði-
mönnum þokkalega. Eftir það
tók snjó upp og síðan hefur vart
sett niður snjó og því hefur rjúp-
an hörfað frá hefðbundnum
veiðilendum. Þeir sem hafa fyrir
sið að borða rjúpur um jól hafa
því sannarlega þurft að leggja
nokkuð á sig til að verða sér út
um steikina. JÓH
Næsta blað kemur út föstudag-
inn 28. desember. Auglýsend-
ur sem vilja koma auglýsing-
um í það blað, þurfa að skila
inn handritum fyrir kl. 11.00,
fimmtudaginn 27. desember.
milljónir króna, sem er með því
allra mesta til þessa. Potturinn
gekk ekki út um síðustu helgi og
færðust því rúmar 6,3 milljónir
króna yfir á þessa helgi.
Getraunapotturinn verður
einnig með stærra móti í dag. í
gærmorgun var potturinn kominn
í um eina milljón króna og mesta
salan eftir. Getspakir menn hjá
íslenskum getraunum voru ekki
fáanlegir til að spá fyrir um
hversu stór potturinn yrði þegar
upp yrði staðið í dag, en töldu að
upphæðin gæti orðið umtalsverð.
Að venju er bein útsending í
sjónvarpinu í dag frá Englandi.
Að þessu sinni leiða saman hesta
sína Liverpool og Southampton
óþh
,Ef ég œtti eina ósk...
Mynd: Golli
66
Hvít jól á Norðurlandi
„Fegursta
vetrarveður
- segir Ásdís Auðuns-
dóttir, veðurfræðingur
„Norðlendingar fá hvít jól.
Spákortið, sem ég hef, nær allt
til jóladags. Það er sem fyrr,
Norðlendingar þurfa ekki að
kvarta. Veðurguðirnir leika
við ykkur. Fegursta vetrarveð-
ur verður fyrir norðan,“ sagði
Asdís Auðunsdóttir, veður-
fræðingur.
Veðurfræðingurinn lofar Norð-
lendingum björtu veðri allt fram
á jóladag. Attin verður hæg og
suðvestlæg, frost á bilinu 3-7 stig.
„A jóladag. gengur hann í norð-
vestlæga átt með éljum og frostið
eykst, verður svipað og það hefur
verið síðustu dagana," sagði
Ásdís, veðurfræðingur. ój
Akureyrin EA 10 til heimahafnar með bilað togspil:
Aflaverðmæti togarans 677 milljómr
Akureyrin EA 10 kom til heima-
hafnar snemma í gærmorgun
fyrr en ráðgert var. Spil skips-
ins bilaði og því var leitað
hafnar. Akureyrin EA hélt upp-
teknum hætti og fékk meira
fyrir afla sinn en aðrir sam-
bærilegir togarar. Afli Akur-
eyrarinnar á þessu ári verður
um 6.000 tonn að verðmæti
677 miljónir króna.
Akureyrin EA aflaði í fyrra
rúmra 6.200 tonna að verðmæti
510 milljónir króna og eykur því
aflaverðmætið um tæpan þriðj-
ung. Aukningin í verðmætum er
því umtalsverð, þegar tekið er til-
lit til samdráttar, í afla.
„Já, skipið er komið til hafnar
með bilað spil. Við erum búnir
að finna þá varahluti sem vantar
til að koma spilinu í lag. Flugvél
verður send til Kaupmannahafn-
ar til að sækja varahlutina og
unnið verður að viðgerð á næstu
dögum. Viðgerðarmenn fást allt-
af þegar mikið liggur við þrátt
fyrir að stórhátíð sé að ganga í
garð. Lífsbjörgin gengur fyrir,"
sagði Þorsteinn Már Baldvins-
son, framkvæmdastjóri Samherja
hf. á Akureyri. ój
Húsavík:
Atvúinuástand í haust betra en í fyrra
....... ...... . . V
Um helmingi færri atvinnu-
leysisdagar voru skráðir hjá
Húsvíkingum í nóvember en í
sama mánuði í fyrra. „Það er
samt allt of mikið atvinnuleysi
og ég vara við bjartsýni. Það er
ekkert sem bendir til að
atvinnumálin verði með öðrum
hætti í vetur en var í fyrra og
atvinnumálin eru ekki leyst,“
sagði Ágúst Óskarsson hjá
Vinnumiðlun Húsavíkur.
f desember hafa 63 Húsvíking-
ar komið inn á atvinnuleysisskrá
en ekki eru þeir þó allir stöðugt
án atvinnu, suma hefur vantað
vinnu einhverja daga fyrri hluta
mánaðarins og aðra aftur síðustu
dagana. Síðasta dag nóvember-
mánaðar voru 33 Húsvíkingar á
atvinnuleysisskrá og í nóvember
voru alls skráðir 640 atvinnuleys-
isdagar. Síðasta dag nóvember-
mánaðar í fyrra voru 50 Húsvík-
ingar á atvinnuleysisskrá og í
þeim mánuði voru atvinnuleysis-
dagar á Húsavík alls 1294.
„Þrátt fyrir þessar tölur vara ég
við allri bjartsýni. Veðrið í
nóvember og meiri framkvæmdir
á vegum Húsavíkurbæjar hjálp-
uðu til. Unglingarnir hafa líka
verið duglegri við að koma sér
bara hreinlega í burtu, t.d. hafa
11 menn héðan verið við vinnu í
Vestmannaeyjum síðan í haust.
Þessir menn búa hér áfram og
vilja vinna hér, en bara það að
þeir skyldu leita annað eftir
vinnu, framkvæmdir bæjarins
og aukin vinna í byggingariðnaði
hefur hjálpað til að minnka
atvinnuleysið. Það er engin lausn
fyrir þessa byggð hér þó að það
komi góðviðriskaffi, eitthvað sé
byggt af opinberum byggingum
og menn drífi sig í burtu," sagði
Ágúst. IM
Þorláksmessa dagur skötuáts:
„Skatan verður að
•66
Þráðlausir símar ekki öruggir:
Óvelkomnir hlustendur
Þcgar ný tækni heldur inn-
reið sína kemur oft í ljós aö
það er margt skrýtiö í kýr-
hausnum. Þetta á greinilega
við um þráölausa síma eins og
heimilisfaðir í Innhænum á
Akureyri hefur fengið að
reyna.
„Ég keypti mér þráðlaust
tæki til að setja í vögguna hjá
barninu og svo getum við hjón-
in fylgst með í gegnum annað
tæki hvort barnið fer að gráta.
Það kom hins vegar strax í Ijós
að tækið nemur líka þráðlausa
síma í hverfinu án þess að ég fái
við nokkuð ráðið,“ sagði faðir-
inn.
Hann kemst ekki hjá því aö
hlusta á samræöur nágrannanna
þegar kvcikt er á tækinu.
Reyndar heyrir hann bara í öðr-
um viömælandanum þegar
samtal fer fram gegnum þráð-
lausan síma og skiljanlega
finnst honurn hvimleitt og óvið-
eigandi að stunda þessar óvið-
ráöanlegu hleranir. Það er grát-
ur barnsins sem hann er að fiska
eftir, ekki einkasamtöl ná-
granna.
„Mér finnst allt í lagi að
benda þeini sem nota þráðlausa
síma í Innbænunt á þá stað-
reynd að það geta verið óvel-
komnir hlustendur að samtali
þeirra," sagöi faðirinn. SS
miga í munm
segir Gunnar Skjóldal, fiskkaupmaður
„Kæst skata vinnur stöðugt á
sem aðalréttur Akureyringa á
Þorláksmessu,“ sagði Gunnar
Skjóldal í Fiskbúðinni við
Strandgötu á Akureyri, þegar
hann var spurður um skötuát
bæjarbúa.
Að sögn Gunnars breiðist þessi
vestfirski siður æ meir út. I fyrra
var reiknað með að neyslan á
Akureyri væri um eitt tonn, en í
ár reikna fisksalar og aðrir mat-
vörukaupmenn með að magnið
tvöfaldist. „Skatan verður að
vera vel migin þ.e. hún verður að
míga í munni sem merkir að hún
verður að vera lostæti. Nái menn
að tárfella við skötuátið þá er
hún best. Fólk sækist eftir sköt-
unni að vestan og í ár eru gæðin í
hámarki,
Skjóldal.