Dagur - 20.04.1991, Blaðsíða 19

Dagur - 20.04.1991, Blaðsíða 19
Laugardagur 20. apríl 1991 - DAGUR - 19 poppsíðan Á tónleikum með Todmobile: Góð sending að sunnan Umsjónarmaður Poppsíðunnar var ekki hár í loftinu þegar hann fór að venja komur sínar reglu- lega í Nýja bíó og þótti honum það langt fram eftir aldri vera mikil upplifun að koma inn í hinn volduga sal bíósins. Eftir að húsnæðið sem Nýja bíó var í var opnað á ný sem skemmtistaðurinn 1929 í mars síðastliðnum er ekki laust við að þessar gömlu bíóminningar sæki á mann í hvert skipti sem komið er þar inn. En minningar um liðna tíð hörfa þó fljótlega fyrir líðandi stund og sú var sannarlega raun- in þegar umsjónarmaður lagði leið sína í 1929 á tónleika Todmobile á fimmtudeginum í síðustu viku. Það er engin tilviljun að menn séu að hæla Todmobile í hástert því a.m.k. fyrir mér þá sönnuðu þessir tónleikar að þau þre- menningar, Andrea, Eyþór og Þorvaldur sem skipa hljómsveit- ina eiga það fyllilega skilið. En þau þrjú voru ekki ein, enda ekki þess megnug að spila á öll hljóð- færi sem til þurfti. Með þeim voru þeir félagar úr Stjórninni Eiður Arnarsson bassaleikari og Einar Bragi Bragason saxafón og flautuleikari, Atli Örvarsson á hljómborð og svo Mezzoforte- maðurinn Gunnlaugur Briem á trommum. Er skemmst frá því að segja að það var með ólíkindum hversu vel þau öll sjö náðu sam- an og til marks um það sérstak- lega þá var samspil þeirra Gunn- laugs og Eiðs svo þétt að „þeir voru alveg negldir saman“ eins og einn fróður maður komst að orði á tónleikunum. Þá var ekkert sparað til að gera tónleikana sem tilkomumesta. í salnum eru kom- in hin bestu tæki auk mikils Ijósa- búnaðar og reykvéla og spilaði þetta allt vel saman að ógleymdu því að hljómburðurinn, sem er lykilatriði því ekki er nóg að hafa góðar græjur, er mjög góður í húsinu. Á efnisskránni voru velflest lögin af plötunum tveimur sem Todmobile, hefur sent frá sér, Betra en nokkuð annað og Todmobile, en auk þess var eitt nýtt lag með. Stemmningin var ekki ýkja mikil til að byrja með en fór batnandi eftir því sem lengra leið á tónleikanna og voru hinir u.þ.b. 400 áhorfendur/heyrendur vel með á nótunum. Ef hægt er að nefna einhverja galla þá var það helst sú stað- reynd að stundum var flutningur- inn hreinlega of fágaöur, þannig að sum lögin hljómuðu næsta líkt því sem þau gera á plötu, en sem betur fer skemmdi þetta ekki heildarmynd tónleikanna. Var þetta í annað sinn sem Todmobile heimsækir Akureyri á skömmum tíma, en hljómsveitin kom fram á opnum dögum í VMA, en því miður missti umsjónarmaður slysalega af henni þar. Þegar á heildina er litið má segja að Todmobile hafi verið sending af sunnan eins og þær gerast bestar og vonandi veröur framhald á. Meðfylgjandi myndir tók Golli og tala þær sínu máli. Myndir: Golh Umsjón: Magnús Geir Guðmundsson Forðumst verðbólgu, kjósum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.