Dagur - 20.04.1991, Blaðsíða 24
Ragnar Steinbergsson, formaður yfirkjörstjórnar í Norðurlandskjördæmi eystra, glaðhlakkalegur með kjörseðil
kjördæmisins. Endanlcg úrslit í kjördæminu gætu legið fyrir um kl. 03 í nótt. Mynd: Golli
Asborgin landar 100
körum af saltfiski
Ásborgin frá Hrísey kom til
heimahafnar í gærmorgun eftir
rúmlega hálfs mánaðar veiði-
ferð. Veiðar voru stundaðar að
mestu fyrir Suðausturlandi, á
Hrollaugseyjasvæðinu og
heppnuðust vel. Aflinn var
verkaður í salt um borð.
Að sögn Jóhanns Sigurðssonar
hjá Borg sf. í Hrísey, en
Borg gera Ásborgina út, var
haldið til veiða á annan í
páskum. Nú nítjan dögum síðar
er verið að landa um 100 körum
af söltuðum fiski, sem er um 100
tonn úr sjó, óslægt. Ásborgin er
350 lesta skip og í áhöfn eru 14
karlar. Skipstjóri er Brynjólfur
Oddsson frá Dalvík. ój
Viðurkenning EBE á Sæplastkerum:
„Eykur möimum bjartsýni“
- segir Pétur Reimarsson, framkvæmdastjóri
Kosningar til Alþingis í dag:
Fyrstu tölur væntanlegar fljót-
Iega eflir að kjörstaðir loka
- 9,1% kjósenda hafa rétt til að kjósa í fyrsta sinn
Kosningar fara fram í dag til
Alþingis íslendinga. AIIs hafa
tæplega 183 þúsund manns rétt
til að greiða atkvæði, 91.200
karlar og 91.500 konur. í kosn-
ingunum árið 1987 voru 171
þúsund manns á kjörskrá og er
fjölgun kjósenda því um
11.500 manns milli kosninga,
eða 6,7%. Þeir sem nú hafa í
fyrsta skipti rétt til að greiða
atkvæði í kosningum til
Alþingis eru tæplega 16.700
eða 9,1% kjósenda. Kjósa skal
í dag 63 þingmenn, þ.e. 50
kjördæmakjörna þingmenn,
12 landskjörna þingmenn og
að auki gengur eitt þingsæti
undir nafninu „flakkarinn“ en
ómögulegt er að segja hvar
það lendir.
Ein þeirra breytinga sem gerð
var á kosningalögum á nýaf-
stöðnu þingi var sú að kjósendum
ber nú skylda til að sýna per-
sónuskilríki þegar þeir koma á
kjörstað. Þá mun kjörfundur
aðeins standa til kl. 22 í kvöld,
þar sem hann stendur lengst, en
áður voru kjörstaðir opnir til kl.
23. Þessi breyting hefur það í för
með sér að fyrstu tölur verða
kunnar fyrr en áður.
Ragnar Steinbergsson, for-
maður yfirkjörstjórnar í Norður-
landskjördæmi eystra, sagði í
samtali við blaðið að talningar-
Akureyri:
Ölvunarakstur
I fyrrinótt stöðvaði lögregl-
an á Akureyri ökumann sem
grunaður var um ölvun við
akstur, auk þess sem hann
ók yfír gatnamót á rauðu
Ijósi.
Að öðru leyti var nóttin
fremur róleg hjá lögreglunni
og kosningaskjálfti bæjarbúa
innan ramma laga og velsæm-
is, ef hann hefur gert vart við
sig á annað borð. SS
menn muni taka til starfa um kl.
19 í kvöld og vænta megi fyrstu
talna úr kjördæminu um kl. 22,
eða í þann mund er kjörstaðir
loka. Ragnar sagði að talning-
unni ætti að vera lokið um kl. 03
í nótt en það muni þó ráðast
nokkuð af því hvenær kosningu
Ijúki í þeim kjördeildum kjör-
dæmisins sem fjærst eru talning-
arstað, þ.e. kjördeildum í Norð-
ur-Þingeyjarsýslu.
Halldór Jónsson, formaður
yfirkjörstjórnar í Norðurlands-
kjördæmi vestra, sagði að þar séu
í dag, kjördag, er gert ráð fyrir
norðan átt og éljagangi á
Norðurlandi. Ekki verður
hvasst og élin að mestu á
annesjum, sérstaklega austan
til, og færð á ekki að spillast
þannig að öllum ætti að vera
óhætt að skella sér á kjörstað.
Hjá Veðurstofu íslands feng-
ust þær upplýsingar að horfurnar
væru fremur kuldalegar um helg-
ina, næturfrost og hiti nálægt
Frá áramótum hefur verið
slátrað 180 tonnum af físki hjá
fískeldisfyrirtækinu Silfur-
stjörnunni hf. í Öxarfiröi.
Bæði er um að ræða lax og
bleikju.
Björn Benediktsson, stjórnar-
formaður Silfurstjörnunnar hf.,
segist vera ánægður með hvernig
til hafi tekist með slátrun hjá
fyrirtækinu. í áætlunum um
framleiðslu á þessu ári hafi verið
gert ráð fyrir að slátrað yrði 400
allir tilbúnir í slaginn og í start-
holunum fyrir kosningarnar.
Hann sagðist reikna með að
flokkun atkvæða muni hefjast á
níunda tímanum og fyrstu tölur
verði tilkynntar um kl. 22. Hall-
dór vildi engu spá um lok talning-
ar, sagði það að nokkru ráðast af
fjölda utankjörfundaratkvæða og
því hvort einhver óvænt mál
komi upp er tefji fyrir kosningu
og talningu.
Á bls. 2 er að finna yfirlit yfir
kosninguna í þéttbýlisstöðum á
Norðurlandi. JÓH
frostmarki yfir daginn á Norður-
landi. Bærilegt kosningaveður
ætti þó að verða í dag hvað færð-
ina snertir því ekki er búist við að
hún spillist.
Á sunnudag mun norðan áttin
ganga niður og síðdegis verður
komið hægviðri, þótt eitthvað
gæti borið á éljagangi austast.
Á mánudag fáum við væntan-
lega hægviðri, bjart og fallegt
veður en nokkuð svalt. Síðan er
gert ráð fyrir hlýnandi veðri, sól
tonnum af fiski, þannig að áætl-
anir sýndust ætla að standast.
Eins og fram hefur komið selur
Silfurstjarnan töluvert á Frakk-
landsmarkað. Björn segir þau
viðskipti hafa gengið vel og lofa
góðu um fran^haldið.
Töluvert er um sölu á bleikju
frá fyrirtækinu til hérlendra veit-
ingastaða. Björn segir þetta
ánægjulega viðurkenningu á
góðri framleiðslu Silfurstjörn-
unnar. óþh
Pétur Reimarsson, fram-
kvæmdastjóri Sæplasts hf. á
Dalvík, segir ekki Ijóst hvort
viðurkenning sú sem fram-
leiðsla fyrirtækisins hefur feng-
ið innan Efnahagsbandalags
Evrópu muni skila sér í aukn-
um útflutningi til landa innan
þess. Hins vegar auki þessi
viðurkenning mönnum bjart-
sýni um nýja markaði innan
EBE.
Eins og fram hefur komið hafa
fiskikerin frá Sæplasti hf. hlotið
viðurkenningu innan Efnahags-
bandalags Evrópu. Þau þykja
henta vel til geymslu á t.d. síld og
kola og auka gæði aflans. í Ijósi
þeirrar niðurstöðu gefst útgerð-
araðilum innan EBE kostur á að
sækja um styrk úr sérstökum
sjóði til þess að fjármagna kaup á
Sæplastkerum.
Pétur segist vita til þess að nú
þegar hafi útgerðir lagt fram
umsóknir um kaup á kerum, en
og sumaryl, en margt getur þó
breyst þegar spáð er þetta langt
fram í tímann. SS
Vegagerðin hefur leitað eftir
tilboðum í uppbyggingu á
tveimur vegarköflum á Skaga-
fjarðarvegi í Lýtingsstaðhreppi
í sumar. Vegurinn sem um
ræðir er frá Mælifellsá þar sem
uppbyggingu lauk í fyrra og
fram fyrir brúna yfir Svartá við
Mælifell.
Þennan kafla á að styrkja og
hækka um 60-80 cm. og eykst við
það burðarþol vegarins og hann
verður lagður malarslitlagi.
Einnig á að byggja upp og styrkja
rúmlega kílómeters kafla við
bæinn Tunguháls. Sá vegarkafli
hefur oft verið slæmur vegna
síðan eigi eftir að koma í ljós
hverju þær skili í pöntunum á
framleiðslu fyrirtækisins. „Við
fengum pantanir í fyrra frá
útgerðaraðilum innan Efnahags-
bandalagsins og sömuleiðis á
þessu ári. Við vitum líka að fram-
halda verður á því í ár, en ekki í
hversu miklum mæli. Almennt
séð eykur þessi viðurkenning
okkar möguleika á markaðnum
og gerir mann frekar bjartsýnan á
að auka útflutninginn,“ sagði
Pétur. óþh
Útgerðarfélag
Akureyringa:
Býður 1600 Wut-
höfum að kynna
sér starfsemina
Hluthafar í Útgerðarfélagi
Akureyringa hf. eru nú 1600
talsins og fjölgaði þeim um 850
í fyrra þegar hlutafé fyrirtækis-
ins var aukið um 100 milljónir
króna að nafnvirði.
Hluthöfum í fyrirtækinu er
boðið að kynna sér starfsemi
Útgerðarfélagsins föstudaginn 3.
maí nk., sama dag og aðalfundur
fyrirtækisins verður haldinn.
Á dagskrá aðalfundar ÚA eru
auk venjulegra aðalfundarstarfa
lagabreytingar og útgáfa jöfn-
unarhlutabréfa. óþh
aurbleytu á vorin þegar klaki er
að fara úr jörð. Framkvæmdum
við þessa vegarkafla skal vera
lokið í haust.
Vegagerðin hefur einnig boðið
út uppbyggingu vegarkafla á
Vatnsnesi. Kaflinn sem um ræðir
er vestan á Vatnsnesinu skammt
utan við Hvammstanga eða frá
Kárastöðum og hálfa leið að
Ánastöðum. Kaflann á að byggja
upp og leggja malarslitlagi.
Einnig verður vegarstæðinu
breytt lítils háttar oj> girðingar
færðar frá veginum. Utboðsfrest-
ur þessara verka rennur út í lok
apríl. kg
Kosningaveðrið norðanlands:
Norðanátt og éljagangur
- færð á þó ekki að spillast
Silfurstjarnan hf. í Öxarfirði:
180 toimurn slátrað frá áramótum
Norðurland vestra:
Vegabætur í Lýt-
ingsstaðahreppi
- vegurinn hækkaður og styrktur