Dagur - 27.11.1991, Side 1
74. árgangur Akureyri, miðvikudagur 27. nóvember 1991 226. töliiblað
Vel í fö | klæddur •turn frá ukrnharot lenrabudin
T | HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397
Það getur verið þreytandi þegar blikkbeljurnar fara fyrirvaralaust í „verkfall“. Þessi bíll valdi fremur óheppilegan
stað, á mótum Hafnarstrætis og Kaupvangsstrætis á Akureyri, til þess að „fara í frí“. Mynd: Golli
Viðræður um nýjan aðalkjarasamning:
Vilji til að semja fyrir áramót
- segir framkvæmdastjóri VMSS
í vikunni var fyrsti fundur undir-
nefnda aðila vinnumarkaðar-
ins, sem munu fara í saumana
á fjórum þáttum til undirbún-
ings að gerð nýs aðalkjara-
samnings. Nefndirnar fjalla
um vexti og skatta, fjárlögin,
atvinnumál og þjónustugjöld.
Ætlunin er að nefndirnar Ijúki
sinni vinnu fyrir lok næstu
viku.
í hverri nefnd eiga sæti þrír
fulltrúar Alþýðusambandsins,
einn frá Vinnuveitendasamband-
inu og einn frá Vinnumálasam-
bandi samvinnufélaganna.
Hjörtur Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Vinnumálasam-
bandsins, segir að menn séu sam-
mála um að það sé lífsspursmál að
Margra ára tap Slippstöðvarinnar hefur gengið verulega á eigið fé fyrirtækisins:
ná niður vöxtunum og gera verði
þá kröfu að ríkið hækki ekki þjón-
ustugjöld.
Hjörtur sagði að töluverður
þrýstingur væri orðinn á gerð nýs
aðalkjarasamnings fyrir áramót.
„Ég taldi að ekki yrði samið fyrr
en seint í janúar, en nú virðist
mér vera ákveðin stemmning fyr-
ir því að Ijúka þessu fyrir áramót.
Það er enginn vandi að semja ef
menn ætla sér það,“ segir
Hjörtur. óþh
Átak hf. á Sauðárkróki:
Góð viðbrögð
fyrirtækja
Leitað til eigenda um leiðir til endurfjármögnunar
- samvinna höfð við Landsbankann um sölu á hlutabréfum í ÚA
Endurfjármögnun Slippstöðv-
arinnar hf. á Akureyri stendur
nú fyrir dyrum. Fyrirsjáanlegt
er um 170 miiljóna króna tap á
þessu ári sem að stærstum
hluta á skýringar í því tapi sem
stöðin verður fyrir af nýsmíða-
verkefnum þeim sem hún hef-
ur verið með síðustu ár. Hlut-
hafar í stöðinni hafa nú til
skoðupar leiðir til endurfjár-
mögnunar á fyrirtækinu sem
nauðsynleg er þar sem gengið
hefur verulega á eigið fé stöðv-
arinnar á síðustu árum. Þá hef-
ur stjórn Slippstöðvarinnar
tekið ákvörðun um að selja
hlut hennar í Útgerðarfélagi
Akureyringa og létta með því
skuldabyrði fyrirtækisins en í
dag er markaðsverð þessara
Hvammstangi:
Undirbúningur atvinnuþróunarfélags
Undirbúningsnefnd sem unnið
hefur að könnun á grundvelli
fyrir stofnun atvinnuþróunar-
félags í V.-Hún. fundaði á
Hvammstanga sl. mánudag.
Akveðið var að boða til undir-
búningsstofnfundar miðviku-
daginn þann 4. des.
Að sögn Bjarna Þórs Einars-
sonar, sveitarstjóra og eins
nefndarmanna, hafa komið
jákvæð svör frá fyrirtækjum á
svæðinu varðandi þátttöku í
félaginu.
„Það eina sem hefur tafið okk-
ur dálítið er að Byggðastofnun
treysti sér ekki til að segja hvað
hún gæti gert, á þeirri forsendu
Blönduós:
Sex íýrirspurair um þjónustuna
Blönduósbær auglýsti fyrir
nokkru eftir aðilum sem gætu
hugsað sér að setja upp þjón-
ustufyrirtæki á Blönduósi.
Auglýst var sérstaklega eftir
tækni-og verkfræðiþjónustu og
bókhaldsþjónustu. Fyrirspurn-
ir eru farnar að berast til
bæjaryfirvalda.
„Búið er að leggja inn einar
sex fyrirspurnir og væntanlega
munu hefjast viðræður við þá
aðila fljótlega,“ segir Ófeigur
Gestsson, bæjarstjóri á Blöndu-
ósi.
Að sögn Ófeigs eru þeir sex
aðilar sem lagt hafa inn fyrir-
spurnir bæði af tækni- og bók-
haldssviðinu og bæði frá höfuð-
borgarsvæðinu og landsbyggð-
inni. Hann segist ekki vita
nákvæmlega hvernig ferillinn
verði, en reikna megi með að
rætt verði við þá aðila á Blöndu-
ósi sem gætu komið til með að
notfæra sér þessa þjónustu sam-
hliða viðræðum við hina áhuga-
sömu þjónustuaðila. SBG
að ekki er búið að samþykkja
fjárlög. Við vitum samt að þar á
bæ eru menn tilbúnir til að taka
þátt í þessu og það nákvæmlega á
þann hátt sem við stillum dæminu
upp,“ segir Bjarni Þór.
Bjarni segir að reiknað sé með
að á fundinum þann fjórða verði
ákveðið að stofna félagið, en síð-
an gefist verðandi hluthöfum ein-
hver tími til að skrifa sig fyrir
hlutafé. Búið er að semja upp-
kast að stofnsamningi og sam-
þykktum fyrir félagið og verður
það Jagt fyrir fundarmenn að
sögn Bjarna, en félagið á að taka
við af Átaksverkefni V.-Hún.
sem lýkur um næstu áramót.
SBG
Leikfélag Skagastrandar:
Árni Blandon leikstýrir
„Það hefur verið deyfð yfir
þessu hjá okkur undanfarið og
t.d. var ekkert sett upp í
fyrra,“ segir Steindór Haralds-
son, varaformaður Leikfélags
Skagastrandar, en ætlunin hjá
félaginu er að setja upp söng-
leik eftir áramótin.
Leikfélagið er búið að ráða
Árna Blandon sem leikstjóra, en
að sögn Steindórs er ekki alveg
búið að koma sér saman um
hvert verkefnið verði, þó sé ljóst
að það verði eitthvert söngverk.
Steindór segir að karlleikara
vanti tilfinnanlega í félagið.
Að sögn Steindórs var búið að
skipuleggja leiknámskeið hjá
félaginu um síðustu helgi og búið
að fá Þráin Karlsson, leikara, til
að leiðbeina. Á leiðinni til
Skagastrandar lenti hann út af og
rifbeinsbrotnaði svo ekkert varð
af námskeiðinu.
„Við erum ákveðin í að byrja
upp úr tíunda janúar að æfa, en
hvert stykkið verður, kemur bara
í ljós,“ segir Steindór. SBG
hlutabréfa rúmar 100 milljónir
króna.
Slippstöðin hefur tapað um-
talsverðum fjármunum á smíði
nýsmíðaskipsins B-70 sem og
smíði Þórunnar Sveinsdóttur
VE. Tapið á B-70 nemur í heild
um 180 milljónuin króna en þar
er um að ræða tap á síðustu
þremur árum sem afskrifað er í
ár.
Sem kunnugt er var B-70 selt
til Vestmannaeyja fyrr í haust og
skömmu síðar tók stjórn Slipp-
stöðvarinar ákvörðun um fækkun
starfsmanna um 30%. í fram-
haldi af þessari aðgerð var unnin
skýrsla til hluthafa Slippstöðvar-
innar um endurfjármögnun fyrir-
tækins.
„Nú þarf að endurfjármagna
stöðina og byggja hana upp með
breyttum áherslum. Nú ætla
menn ekki að leggja áherslu á
nýsmíðar enda er búið að sýna
sig að við höfum stórtapað á
þeim nýsmíðaverkum sem við
höfum verið með undanfarið.
Þess vegna einbeita menn sér nú
að viðgerðarverkefnum og því
ákváðum við að fækka starfs-
mönnum sem nam þeim fjölda
sem þurfti í nýsmíðarnar," segir
Hólmsteinn Hólmsteinsson,
stjórnarformaður Slippstöðvar-
innar.
Stærstu hluthafar í Slippstöð-
inni eru ríkissjóður og Akureyr-
arbær. Hólmsteinn segir að hlut-
hafarnir skoði nú gögn um stöðu
fyrirtækisins og síðan muni
stjórnarmenn ræða við þá um
hvað gera skuli því Slippstöðin
þurfi á endurfjármögnun að
halda. Aðspurður segir hann of
snemmt að segja til um hve lang-
an tíma hluthafar taki sér til að
skoða leiðir í endurfjármögnun
stöðvarinnar en því fyrr sem
niðurstaða liggi fyrir, því betra.
Hólmsteinn segir að hlutabréf-
in í ÚA verði seld ef viðunandi
verð fæst fyrir þessi bréf. Hann
segir að samvinna verði höfð við
Landsbankann um þessa sölu en
þessum fjármunum verði varið til
að létta skuldum af stöðinni. JÓH
„Okkur hafa borist nokkrar
fyrirspurnir frá stærri sem
smærri fyrirtækjum. Lítið er
samt hægt segja um málið að
svo stöddu, annað en við-
brögðin eru góð og við munum
að öllum líkindum auglýsa
fljótlega aftur,“ segir Jón
Asmundsson, starfsmaður
Átaks hf.
Átak hf., átaksverkefnið á
Sauðárkróki, auglýsti fyrir
nokkru eftir fyrirtækjum sem
hefðu áhuga á að selja, leigja eða
flytja starfsemi sína til Sauðár-
króks. Jón segir að fyrirspurnir
hafi borist frá fyrirtækjum með
hugmyndir um að flytja starfsemi
sína sem og söluhugmyndir.
Hann segir að lítið sé samt farið
að vinna í málinu enda þarna á
ferðinni hlutir sem gerast ekki
einn, tveir og þrír.
„Þetta eru hlutir sem verður að
skoða mjög nákvæmlega og sér-
staklega suma þessara mögu-
leika. Því má reikna með tölu-
verðum tíma þangað til eitthvað
fer aö komast af stað, en þó gæti
verið að eitt þessara atriða dytti
inn innan tíðar,“ segir Jón. SBG
Hótel Húsavík:
Nýr hótel-
stjóri ráðinn
Benedikta Sigríður Steingríms-
dóttir hefur verið ráðin hótel-
stjóri á Hótel Húsavík, í stað
Fjólu Stefánsdóttur sem sagt
hefur starfi sínu lausu frá nk.
áramótum.
Ráðning Benediktu var ákveð-
in á fundi stjórnar hótelsins sl.
sunnudag og mun hún taka við
stöðunni í febrúar á næsta ári.
Benedikta flytur frá Hvolsvelli
til Húsavíkur, ásamt eiginmanni
og tveimur börnum. Hún er upp-
alin á Húsavík og starfaði þar
sem launafulltrúi á sjúkrahúsinu
á árum áður. Á undanförnum
árum hefur hún m.a. starfað við
stjórnunarstörf, að sögn Brynjars
Sigtryggssonar, stjórnarformanns
Hótels Húsavíkur. IM