Dagur - 27.11.1991, Side 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 27. nóvember 1991
Fréttir
Heilbrigðisþjónustan á landsbyggðinni:
Sjúkrahúsin nýtast sem dvalarstofiianir
- yfir 70% innlagðra á 14 sjúkrahúsum yfir sjötugt
Mjög fáar aðgerðir eru fram-
kvæmdar á mörgum sjúkra-
húsum á landsbyggöinni á
hverju ári og á sumum þeirra
fara engar aðgerðir fram tímun-
um saman. Ástæður þess liggja
að einhverju leyti í því að full-
komnara sjúkrahús er á næsta
leiti og sjúklingar er þarfnast
aðgerða því sendir þangað sem
aðstæður eru betri til að takast
á við vanda þeirra. Samkvæmt
skýrslum landlæknis voru eng-
ar aðgerðir framkvæmdar á
fimm af sjúkrahúsum landsins
á árinu 1989 og á bilinu ein til
60 aðgerðir voru framkvæmd-
ar á nokkrum öðrum sjúkra-
húsum. Þessar upplýsingar
koma fram í umfjöllun um
heilsugæsluna í októbertölu-
blaði tímaritsins Frjálsrar
verslunar.
Frá því að ný lög voru sett um
heilbrigðisþjónustuna 1973 hefur
orðið mikil uppbygging heilsu-
gæslustöðva og sjúkrahúsa á
landsbyggðinni. Heilsugæslustöð
er nú í flestum byggðarlögum og
23 sjúkrahús eru starfandi í land-
inu að stóru og sérhæfðu sjúkra-
húsunum í Reykjavík og á Akur-
eyri meðtöldum. Dvalarheimil-
um fyrir aldraða hefur einnig
fjölgað mikið og á mörgum stöð-
um eru slík heimili starfandi við
hlið sjúkra- og heilsugæslustofn-
ana. Sjúkrahúsin gegna einnig
hlutverki dvalarheimila á lands-
byggðinni ef litið er til fjölda
aðgerða sem framkvæmdar eru á
mörgum þeirra og hlutfalli fólks
yfir sjötugu sem þar hefur dvalið.
Á árinu 1989 var hlutfal! inn-
lagðra 70 ára og eldri yfir 70% á
14 sjúkrahúsum á landsbyggð-
inni. Á fimm þessara sjúkrahúsa
var engin aðgerð skráð á sama
ári og á fjórum þeirra til viðbótar
voru skráðar aðgerðir undir eitt
hundrað. Flestar aðgerðir utan
Reykjavíkur voru framkvæmdar
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri eða alls 2601 á árinu 1989. Þá
voru 458 aðgerðir framkvæmdar
á sjúkrahúsinu á Neskaupstað,
334 á Selfossi, 260 á Húsavík, 246
á Sauðárkróki og 148 á ísafirði.
Framangreindar tölur benda til
þess að sjúkrahúsin á lands-
byggðinni séu nýtt að verulegum
hluta sem dvalarstofnanir fyrir
eldri borgara og þjóni því hlut-
verki er elli- og hjúkrunarheimili
og opin heilsuvernd í heimahús-
um gætu annast. ÞI
Flestar aðgerðir utan Reykjavíkur voru framkvæmdar á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri, eða aíls 2601 á árinu 1989.
Heilsugæslustöðin á Akureyri:
„Andstaða við öD áform um aukna gjaldtöku“
segir í ályktun læknaráðs stöðvarinnar
„Læknaráð Heilsugæslustöðv-
arinnar á Akureyri lýsir ein-
dreginni andstöðu við öll
áform um aukna gjaldtöku fyr-
ir heilsuvernd á heilsugæslu-
stöðvum. Heilsuvernd, sem
nær til allra án tillits til efna-
hags og búsetu,“ segir í álykt-
un er send var nýverið Sighvati
Björgvinssyni, heilbrigðisráð-
herra.
Fram kemur í ályktun lækna-
ráðsins, að ein af grundvallar-
forsendum árangursríkra for-
varna sé að til þeirra náist sem
eru í áhættuhópum. Gjald fyrir
heilsuvernd myndi stórlega tor-
velda slíkt og væri þannig frá-
hvarf frá þeirri yfirlýstu stefnu
heilbrigðisyfirvalda og Alþingis
Akureyri:
Þórarmn B. Jónsson
kjörræðismaður Finna
að leggja beri aukna áherslu á
forvarnir.
Þá hvetur læknaráð Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri til,
að gjaldtöku fyrir aðra þjónustu
á heilsugæslustöðvum verði mjög
í hóf stillt. Hátt gjald gæti tafið
fyrir því, að læknis sé leitað í
tíma. Það myndi auka ásókn í
símaþjónustu og stuðla að
ómarkvissari læknisméðferð og
auka eftirsókn eftir annarri heil-
brigðisþjónustu, sem reynst gæti
þjóðfélaginu mun dýrari og óhag-
kvæmari. ój
Söfnun fyrir nýrnavél handa Finni Eydal:
35 þúsund frá starfs-
mönnum Pósts og síma
Góð viðbrögð eru þegar komin
í söfnun þeirri sem Zonta-
klúbburinn Þórunn hyrna á
Akureyri hefur hrint af stað
þar sem safnað verður fyrir
nýrnavél handa Finni Eydal,
tónlistarkennara og klarinettu-
leikara á Akureyri. Einstakl-
ingar hafa sent inn framlög í
söfnunina og þegar hefur eitt
fyrirtæki á Akureyri sent inn
35 þúsund krónur eftir söfnun
meðal starfsmanna.
Það var starfsfólk Pósts og
síma á Akureyri sem afhenti
Zontaklúbbnum þessa peninga á
dögunum. Konný Kristjánsdótt-
ir, formaður klúbbsins, sagði
þetta framtak starfsfólksins góða
vítamínsprautu í upphafi söfn-
unarinnar og sýna hug fólks til
málefnisins. Þá nefndi hún einnig
sem dæmi að á dögunum hafi
borist ávísun frá eldri konu í
Reykjavík og orðsending með
þar sem hún sagði að í gegnum
árin hafi þau hjón Helena og
Finnur skemmt sér og nú fengi
hún loks kærkomið tækifæri til að
þakka fyrir það.
Konný segir að leitað hafi ver-
ið til félagasamtaka um framlög í
söfnunina og einnig til fyrirtækja.
Hápunktur söfnunarinnar á
Akureyri verða ágóðatónleikar
sem haldnir verða í Sjallanum þ.
6. desember en kvöldið áður
verða sams konar tónleikar í
Hápunktur söfnunar fyrir nýrnavél
fyrir Finn Eydal verða ágóðatón-
leikar í Reykjavík 5. desember og 6.
desember á Akureyri.
Reykjavík. Þeim sem leggja vilja
söfnuninni lið er bent á reikning
nr. 4040 í Sparisjóði Akureyrar.
JÓH.
Verkalýðsfélagið Hvöt:
Greiðir víxil vegna Út-
gerðarfélags V-Húnvetninga
Skiptum í þrotabúi Fiskmars
hf. í Ólafsfiröi lauk á föstudag.
Þá var á haldinn skiptafundur
þar sem samþykkt var frum-
varp að úthlutunargerð.
Ekkert fékkst upp í almennar
kröfur í búið.
Að sögn Kjartans Þorkelsson-
ar, skiptaráðanda í Ólafsfirði,
leysti Sparisjóður Ólafsfjarðar til
sín eignir og lausafé, þ.e. fram-
leiðslutækin sjálf, en Sparisjóð-
urinn átti 1. veðrétt í þessum
tækjum fyrir 12 milljónir. Bæjar-
Utanríkisráðherra Finnlands
hefur útnefnt Þórin B.
Jónsson, umboðsmann Sjóvá-
Almennra á Akureyri, kjör-
ræðismann Finna á Akureyri
með Norðurland sem
umdæmi.
Hákan Branders, sendiherra
Finnlands á íslandi, gaf út skip-
unarbréf Þórarins í embætti sl.
fimmtudag og Jón Baldvin
Hannibalsson, utanríkisráð-
herra, gaf út viðurkenningarbréf
til Þórarins.
Friðrik Þorvaldsson hefur ver-
ið ræðismaður Finna á Akureyri
frá árinu 1975, en hann óskaði
eftir lausn frá embætti. óþh
sjóður Ólafsfjarðar átti 2. veðrétt
í tækjunum fyrir 8 milljónir.
Sparisjóðurinn leysti tækin til sín
samkvæmt mati fyrir um 8 millj-
ónir króna, að meðtöldum virðis-
aukaskatti.
Kjartan segir að aðrar eignir
búsins hafi verið litlar. Samþykkt
hafi verið ein forgangskrafa, þ.e.
lífeyrissjóðskrafa að upphæð
um 100 þúsund krónur, sem
var greidd. Einnig fékkst fyrir
skiptakostnaði en ekkert kom
upp í almennar kröfur. JÓH
Verkalýðsfélagið Hvöt á
Hvammstanga er um þessar
mundir að greiða þriggja og
hálfrar milljón króna víxil
vegna Utgerðarfélags V.-Hún-
vetninga. Félagið fór fram á að
Hvammstangahreppur greiddi
helming upphæðarinnar, en
erindinu var hafnað.
„Okkur þykir að sjálfsögðu
slæmt að hreppurinn skuli ekki
vilja taka þátt í að greiða þennan
víxil, þar sem Hvammstanga-
hreppur var aðili að Útgerðarfé-
laginu þó hann fríi sig af öllu
núna. Annars var það meira
formsins vegna sem við sendum
þetta bréf til hreppsins, heldur en
við byggjumst við að fá nokkuð
út úr því,“ segir Jón Haukdal
Kristjánsson, formaður Hvatar.
Útgerðarfélag V.-Húnvetninga
var stofnað fyrir um fjórum árum
og gerði bátinn Geisla HU út á
rækju og fisk. Stofnaðilar félags-
ins voru auk Hvatar og Hvamms-
tangahrepps: Kaupfélag V.-Hún-
vetninga og nokkrir einstakling-
ar. Að sögn Jóns gekk dæmið
ekki upp og fyrir nokkru var
Geislinn seldur. Ekki hefur verið
farið fram á að félagið verði lýst
gjaldþrota og segir Jón það ekki
ætlunina, heldur sé verið að
greiða skuldir þess.
„Auðvitað er þetta nokkuð
stór biti fyrir Verkalýðsfélagið,
að greiða þennan víxil sem er til
kominn vegna launagreiðslna, en
þessu verður bjargað einhvern'
veginn," segir Jón. SBG
Hótel Húsavík:
Hagnaður 1,7 milljómr
- fyrstu níu mánuði ársins
Hagnaður af rekstri Hótel
Húsavíkur eftir afskriftir og
fjármagnsgjöld nemur rúmlega
1,7 milljónum frá áramótum til
30. sept. sl. Þetta kemur fram í
níu mánaða milliuppgjöri sem
var lagt fram á stjórnarfundi
hótelsins sl. sunnudag. Allt
árið í fyrra nam hagnaður
hótelsins tæplega 2,3 milijón-
um. Stjórnin telur fyrirsjáan-
legt að tæplega verði sama
velta í ár og í fyrra.
Langtímaskuldir hótelsins
nema 1,2 milljónum en skamm-
tímaskuldir 11 milljónum. Veltu-
fjármunir nema tæplega 11,3
milljónum þannig að veltufjár-
hlutfall er 1.02, en í árslok í fyrra
var veltufjárhlutfall 0.58. Eignir
hótelsins eru metnar á 66,7 millj-
ónir og er eiginfjárstaða því mjög
góð. Fyrstu níu mánuði ársins
námu laun og launatengd gjöld
sem hótelið greiddi 18,3 milljón-
um. IM
Þrotabú Fiskmars hf. í Ólafsfirði:
Skiptum í búinu lokið