Dagur - 27.11.1991, Síða 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 27. nóvember 1991
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1100 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 100 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÓRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Að alast upp í þjóð-
félagi áfengistísku
Meirihluti þeirra sem slitið hafa barnsskónum
neytir áfengis, flestir í hófi en aðrir í óhófi. Margir
verða drykkjusýki að bráð, en sýnt hefur verið fram
á að sá sjúkdómur leiðir til geðveiki eða dauða
nema gripið sé inn í þróunina og viðkomandi hætti
að drekka. Þrátt fyrir að langflestir þekki dæmi um
hörmulegar afleiðingar ofdrykkju, ekki bara fyrir
alkóhólistann heldur einnig maka, börn eða aðra
aðstandendur, og þótt enginn óski börnum sínum
slíkrar framtíðar þá tröllríður áfengistískan húsum
í þjóðfélagi voru: Áfengi er fínt, það skal lofað á
mannamótum, það er sannur gleðigjafi og jafn-
framt slökunarlyf og sálusorgari. Það skal prýða
hillur í híbýlum manna og vera til taks, kalt og
svalandi, í ísskápnum.
Við leggjum áherslu á að fá sérfróða menn í skól-
ana til að fræða börn okkar um hættuna af fíkniefn-
um en ekki er jafn vinsælt að kalla til fyrirlesara
sem fara ofan í saumana á áfengismálunum. Nei,
við náum okkur í bjór úr ísskápnum, setjumst fyrir
framan sjónvarpið og spyrjum unglinginn á heimil-
inu hvort hann hafi fengið einhverja fræðslu um
fíkniefni í skólanum. Þannig hefur áfengistískan
brenglað annars heilbrigða skynsemi.
í dag er Bindindisdagur fjölskyldunnar. Að hon-
um standa mörg bindindissinnuð samtök á land-
inu undir forystu Stórstúku íslands. Tilgangurinn
með þessu framtaki er að vekja foreldra til
umhugsunar um ábyrgt uppeldi barna sinna, vekja
athygli á forvarnarstarfi og hvetja til þess og
styrkja vímulausa ímynd fjölskyldunnar. En hvers
vegna bindindisdagur fjölskyldunnar? Ingjaldur
Arnþórsson, ráðgjafi hjá Norðurlandsdeild SÁÁ,
svarar þeirri spurningu í grein sem birtist í blaðinu
í dag:
„í mínum huga er bindindisdagur fjölskyldunnar
fyrst og fremst táknrænn fyrir þá skoðun að allir
aðilar innan fjölskyldunnar verði að vera sam-
kvæmir sjálfum sér. Það er alveg tilgangslaust fyrir
okkur, sem fullorðin eigum að teljast, að segja
börnum okkar að áfengi sé vanabindandi, róandi
lyf sem þau eigi að forðast, á sama tíma og við ger-
um það spennandi fyrir þau að fá að sleikja
froðuna ofan af bjórglasinu eins og þau væru að
sleikja rjóma af þeyturum. Það verður að vera eitt-
hvert samhengi á milli orða og athafna. “
Ástæða er til að hugleiða þessi orð og þá stað-
reynd sem tölur frá Vogi sýna að æ fleiri unglingar
þurfa á meðferð að halda vegna ofneyslu áfengis
og/eða annarra fíkniefna. Bindindisdagur fjöl-
skyldunnar er því ekki hjóm eitt, hann gefur fólki
færi á að staldra við og líta í eigin barm, en athöfn
verður að fylgja orðum. Reynslan sýnir að þess er
vissulega þörf. SS
AVARP
í tilefni af Bindindisdegi fjölskyldunnar
/ dag, miðvikudaginn 27. nóvember
1991, gangast mörg bindindissinnuð fé-
lagasamtök víða um land undir forystu
Stórstúku íslands fyrir BINDINDIS-
DEGI FJÖLSKYLDUNNAR.
Afegintilgangur dagsins er að:
VEKJA foreldra til umhugsunar um
ábyrgt uppeldi barna sinna.
VEKJA athygli á forvarnarstarfi og
hvetja til þess.
STYRKJA vímulausa ímynd
fjölskyldunnar.
VEKJA fólk til umhugsunar um þær
hættur sem eru samfara áfengisneyslu.
Hé r er um þarft framtak að ræða. Það er
von okkar að sem flestir leggi sitt af
mörkum til að ná markmiðum dagsins -
að hann megi verða að: Raunverulegum
BINDINDISDEGI FJÖLSKYLDUNNAR
Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands
Ólafur Ólafsson landlæknir
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra
Ólafur Skúlason biskup
Bindindísdagur
fjölskyldunnar
Stórstúka íslands stendur fyrir
bindindisdegi fjölskyldunnar í
dag, miðvikudaginn 27. nóv-
ember.
Til hvers bindindisdag
fjölskyldunnar?
í mínum huga er bindindisdagur
fjölskyldunnar fyrst og fremst
táknrænn fyrir þá skoðun að allir
aðilar innan fjölskyldunnar verði
að vera samkvæmir sjálfum sér.
Það er alveg tilgangslaust fyrir
okkur, sem fullorðin eigum að
teljast, að segja börnum okkar að
áfengi sé vanabindandi, róandi
lyf sem þau eigi að forðast, á
sama tíma og við gerum það
spennandi fyrir þau að fá að
sleikja froðuna ofan af bjórglas-
inu eins og þau væru að sleikja
rjóma af þeyturum. Það verður
að vera eitthvert samhengi á milli
orða og athafna.
„Börnin veröa ekki vör
við neitt“
Skynjun barna á umhverfi sínu er
miklu næmari en fullorðinna. Til
dæmis virðumst við sem eldri
erum eiga í erfiðleikum með að
finna að eitthvað „liggi í loftinu“,
fyrr en það er komið á það stig að
vera orðið mjög áberandi. Við
komum kannski inn í herbergi
þar sem fólk er fyrir, skrafandi,
og þegar við göngum inn um
dyrnar verður snögglega dauða-
þögn, þá fyrst skynjum við
kannski að það „liggur eitthvað í
Ioftinu“. Á þessu stigi er það orð-
ið mjög áberandi. Barn aftur á
móti sem er 36 tíma gamalt,
skynjar t.d. skapgerðarbreyting-
ar hjá móður sinni þótt það skilji
ekki talmálið, og börn undir
skólaaldri átta sig mikið betur á
því hvernig okkur Iíður með því
að fylgjast með framkomu okkar
og hegðun heldur en að hlusta á
það hvað við segjum. Ég heyrði
barn einu sinni segja frá því að
það vissi alltaf með löngum fyrir-
vara hvenær mamma þess færi að
drekka, því um það bil viku áður
færi hún að nota varalit sem hún
annars aldrei gerði og svo færi
hún að tala hraðar. Á þennan
hátt sjá börn og skynja umhverfi
sitt öðruvísi en við sem eldri
erum.
Vímulaus æska, hvað?
Ég fagna bindindisdegi fjölskyld-
unnar vegna þess að þar eru allir
fjölskyldumeðlimir gerðir sam-
ábyrgir. Við sjáum líka hvað það
er hallærislegt að segja börnum
okkar að gera ekki eins og við
gerum. Það er sí og æ verið að
biðja mig um að fræða ungling-
ana í skólunum um hættuna af
fíkniefnum, en sjaldan um hætt-
una af bjórnum, jafnvel þótt allir
Ingjaldur Arnþórsson.
viti að það er í gegnuni bjór-
neyslu sem önnur áfengisneysla
þróast og síðan þaðan í gegnum
hugsanlega í önnur efni.
Eg vildi óska að þetta breyttist
einhvern tímann í þá veru að ég
fengi að tala við foreldra ung-
linga á grunnskólaaldri um áfeng-
isneyslu og fordæmisgildi. Einu
sinni stofnuðu meira að segja for-
eldrar foreldrasamtökin Vímu-
laus æska, til að reyna að stuðla
að auknu bindindi unglinga. Gott
og vel, en ég held að nær væri að
unglingar stofnuðu unglinga-
samtökin Vímulaus heimili eða
Vímulausir foreldrar. Það hljóta
að teljast eðlileg mannréttindi og
krafa hvers unglings og barns að
eiga foreldra sem eru allsgáðir
hvenær sem þau þurfa á þeim að
halda og að áfengisneysla á heim-
ilum þeirra sé í algjöru lágmarki.
Þökk sé stúkunni
Alveg frá því fyrir síðustu alda-
mót hefur Stúkan verið einn virk-
asti vettvangur bindindisfólks og
árangur af starfi Stúkunnar verið
mikill alla tíð. í kringum 1950
fóru Bandaríkjamenn að með-
höndla alkóhólista sem sjúklinga
og árið 1977 var S.Á.Á. stofnað
og í framhaldi af því gangsett sér-
hæfð meðferð fyrir alkohólista
hér á landi.
í framhaldi af þessu er eins og
það verði einhver breyting á
virkni Stúkunnar út á við. í stað-
inn fyrir samstarf allra þeirra
aðila sem vilja veg bindindis sem
mestan, myndaðist einhvers kon-
ar veggur milli Stúkunnar og
þessarar nýju meðhöndlunar, því
miður. Ég vona að við, sem boð-
um bindindi sem einu færu leið-
ina til heilbrigðis, berum gæfu til
þess að standa saman í auknum
mæli í framtíðinni, í stað þess að
halla hver á annan.
Ég vil að lokuin fagna frum-
kvæði Stúkunnar um þennan
bindindisdag fjölskyldunnar, og
óska landsmönnum öllurn til
hamingju með daginn.
Ingjaldur Arnþórsson.
Höfundur cr ráðgjafi.
(Hcimildir: Vi föráldrar, nr. 3, mars 1988).
„Það er alveg tilgangslaust fyrir okkur, sem fullorðin eigum að teljast, að
segja börnum okkar að áfengi sé vanabindandi, róandi lyf sem þau eigi að
forðast, á sama tíma og við gerum það spennandi fyrir þau...,“ segir Ingjald-
ur m.a. í grein sinni. Teikning: Brian Pilkington, úr ritinu „Okkar á milli").