Dagur - 27.11.1991, Síða 11
MiftviknHaniir 27. nóvember 1991 — DAGUR — 11
Laugar í Reykjadal:
Tríóið Skólastjórar og
frænka hreppstjórans
Samkvæmt tóbaksvarnalögum er óheimilt
að reykja ó rakarastofum, hórgreiðslustofum
og snyrtistofum!
Plastmodel
TfUtL
- líflegt tónlistarlíf og 60 nemendur í tónlistarskóla
Leikfangamarkaöurinn
Hafnarstræti 96
| Sími 27744
í
O:
£
[Jí^
Veistu aó þriöja hver fjölskylda í land-
inu á um sárt að binda af völdum
áfengisneyslu einhvers eöa einhverra
í fjölskyldunni?
Veistu aö áfengisneysla hefur aukist
um 17-20% með tilkomu bjórsins?
Veistu hve mörg börn og unglingar
verða aö öllum lí,kindum fórnarlömb
áfengis næstu árin?
Er ekki tímabært aö staldra viö og at-
huga sinn gang, barnanna vegna?
Bindindisdagur fjölskyldunnar — ekki
bara í dag.
Samstarfsnefnd um Bindindisdag fjölskyldunnar.
Vantar þig hljómsveit? Ein lítil
með öllu, það er að segja
fámenn en tölvuvædd, er til í
að bregða sér af bæ og spila
fyrir Norðlendinga. Sökum
fámennisins er hljómsveitin
ódýr en hún heitir þó engu
smánafni. Fullu nafni kallast
hún: Skólastjórar og frænka
hreppstjórans, en hversdags er
hún bara kölluð: Tríóið
frænku hreppsstjórans.
Hljómsveitina skipa: Ólafur
Arngrímsson, skólastjóri grunn-
skólans á Laugum, Björn Þórar-
insson, skólastjóri Tónlistarskól-
ans á Laugum og Sigríður Birna
Guðjónsdóttir, kennari við tón-
listarskólann og frænka Jóns Jón-
assonar, hreppstjóra á Þverá í
Verk eftir
Brahms og
Mendelssohn
í dag kl. 12.05 verður Björn
Steinar Sólbergsson, organisti
Akureyrarkirkju, með orgel-
tónleika í Akureyrarkirkju í
tilefni af 30 ára vígsluafmæli
orgels kirkjunnar.
A efnisskránni eru tveir sálm-
forleikir eftir J. Brahms; O Gott,
du frommer Gott og Es ist ein
Ros entsprungen og sónata nr. 6 í
d-mpll eftir F. Mendelssohn.
Brahms samdi 11 sálmforleiki
fyrir orgel. Þeir eru með því síð-
asta sem hann samdi og sameina
snilli hans í kontrapunkt og næmi
fyrir laglínum.
Mendelssohn er tónskáld frá
rómantíska tímabilinu. Sónata
nr. 6 í d-moll er ein af 6 sónötum
sem hann samdi fyrir orgel.
rríóið frænka hreppstjórans, frá vinstri: Ólafur, Sigríður (með köttinn
Manna) og Björn.
Laxárdal. Hljómsveitarmeðlimir
eru allvel ættaðir úr öðrum
hljómsveitum. Ólafur var liðs-
maður hljómsveitarinnar Heima-
bruggs á Borgarfirði eystra,
Björn og Sigríður voru í Kaktus,
og Björn var einnig með Mánum
á Selfossi á sínum tíma.
Hljómsveitin Skólastjórar og
frænka hreppstjórans tók til
starfa um síðustu áramót. Hljóm-
sveitin lék aðallega á þorrablót-
um í fyrravetur, en er þó til með
að leika á hvaða balli sem er, og
er eiginlega til í hvað sem er, að
sögn hljómsveitarmeðlima. Síð-
an í haust hefur hljómsveitin æft
jafnt gömlu dansana sem rokk,
og einnig gömlu góðu lögin. Og
ef þig vantar svona hljómsveit þá
er pantanasíminn 43104 eða
43167. Sigríður og Björn sögðu í
samtali við Dag að þeim líkaði
vel að spila fyrir Norðlendinga. í
vetur hefði verið sérstaklega
ánægjulegt að spila á þorrablóti í
Laxárdal og á þorrablóti á Kópa-
skeri. Þar hefði fólkið verið svo
létt í skapi, ákveðið að skemmta
sér og glatt.
Að sögn Björns er líflegt tón-
listarlíf að Laugum. í tónlistar-
skólanum eru 60 nemendur og
gott samstarf er við grunnskól-
ann, en þar stunda 36 nemendur
nám. Nemendur úr framhalds-
skólanum og fólk úr sveitinni
stundar einnig nám við tónlistar-
skólann. Kór er starfræktur á
vegum skólans og tók hann þátt í
kóramóti barnakóra á Akureyri í
vor. IM
VANDAÐARI
MODEL
PARÍS HF
TÓBAKSVARNANEFND
Oi
pH£'sG,
. ft í Ókeypis!
Fjölskyldusýning
í Borgarbíói
kl. 18.00 í dag miðvikudaginn 27. nóv. í tilefni
af bindindisdegi fjölskyldunnar.
Sýnd verður myndin „Dansað við Regitze".
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir!
Stúkurnar ísafold og Brynja.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT ÞORBERGSDÓTTIR,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt 24.
nóvember.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 28.
nóvember kl. 14.00.
Eyþór Guðmundsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.