Dagur - 27.11.1991, Side 15
Miðvikudagur 27. nóvember 1991 - DAGUR - 15
ÍÞRÓTTIR
Jón Haukur Brynjólfsson
Akureyri:
Ishokkýmenn undirbúa Islandsmót
- fyrsti leikurinn á Akureyri á laugardag - erlendur þjálfari væntanlegur
Á laugardaginn lcikur Skauta-
félag Akureyrar fyrsta leik
sinn á Islandsmótinu í íshokký
gegn Skautafélagi Reykjavík-
ur. Akureyringar hafa æft af
kappi upp á síðkastið undir
handleiðslu Magnúsar Finns-
sonar og Héðins Björnssonar
og ætla sér auðvitað sigur á
mótinu. Áhugi á skautaíþrótt-
um virðist vera vaxandi á
Akureyri um þessar mundir og
Magnús Finnsson segir að einn
megintilgangurinn með Islands-
mótinu sem nú er að fara af
stað sé að hefja íshokkýíþrótt-
ina til vegs og virðingar.
,,Það hefur ekki verið sérlega
mikil gróska í starfi íshokký-
deildarinnar síðustu ár, einkum
vegna skorts á mótherjum en nú
stendur þetta til bóta,“ sagði
Magnús þegar Dagur ræddi við
hann nýlega. „í fyrra voru við
með um 60 manns á skrá en hóp-
urinn er nokkuð árgangaskiptur,
við erum með nokkra sterka ár-
ganga en það eru kannski 5-6 ár á
milli þeirra. Skýringarnar á þessu
er að finna í aðstöðunni sem við
höfum búið við. Hún hefur
reyndar lagast en mikið vantar
upp á að hún fullnægi þeim kröf-
um scm eðlilegt er að gera. Pað
vantar nánast allt nema svellið.
Þar má nefna yfirbyggingu yfir
svellið, búningsaðstöðu, leik-
mannabúr, tímavarða- og
straffbúr, klukku, markatöflu og
fleira. Við erum núna með kostn-
aðaráætiun fyrir yfirbyggingu
inni á borði hjá bæjaryfirvöldum
en hofum ekki fengið nein við-
brögð við henni ennþá.
Það er vaxandi áhugi á íþrótt-
inni í bænum en aðstöðuleysið
hefur gert okkur erfitt fyrir. Síð-
astliðinn vetur vorum við t.d.
mjög óheppnir með veður og
gekk illa að halda svellinu. Núna
ætlum við að gera allt sem við
getum til að halda því opnu í all-
an vetur og þá náum við vonandi
að halda uppi aðsókninni og rétta
við reksturinn sem fór illa í
fyrra.“
Svolítil harka
Magnús segir að frá 1968 hafi
verið haldnar bæjakeppnir í
íshokký milli Akureyrar og
Reykjavíkur nokkuð reglulega
en þær hafi síðan lagst af þegar
Reykvíkingar misstu aðstöðuna á
Melavellinum. Síðan hafi íþrótt-
in ekki farið hátt en nú virðist
vera að rætast úr. En út á hvað
gengur leikurinn?
„Hann gengur fyrst og fremst
út á að skora fleiri mörk en and-
stæðingurinn. Tvö lið eigast við
og er hvort skipað 18 leikmönn-
um, þar af tveimur markvörðum.
Aðeins sex leikmenn í hvoru liði
eru þó inni á vellinum í einu,
fimm útispilarar og einn mark-
vörður. Nokkrum mönnum er
skipt inn á í einu og mjög ört,
svona á 40 sekúndna til 2 mfn-
útna fresti. Af þessum sökum fá
menn góða hvíld og geta tekið
verulega á meðan þeir eru á svell-
inu. Menn komast á allt að 40 km
hraða á skautunum og pökkur-
í kvöld:
ÍBV-KA
ÍBV og KA mætast í 1. deild
íslandsmótsins í handknattleik í
kvöld. Leikurinn fer fram í Vest-
mannaeyjum og hefst kl. 20.
inn, sem spilað er með, getur far-
ið á um 200 km hraða í skoti
þannig að íþróttin byggist aug-
ljóslega á hraða, snerpu og góðri
skautakunnáttu."
- Og svolítilli hörku?
„Já, það er nokkur harka í
þessu en hún er mismikil og eins
og í mörgum öðrum íþróttum
getur leikur verið harður án þess
að vera grófur. Það er margt sem
ekki er leyft, t.d. að krækja í
menn með kylfunni og hreinlega
berja þá en líkamleg samstuð eru
leyfileg svo framarlega sem ekki
er farið aftan í menn af ásetningi.
Vissulega fer þetta oft út í svo-
litla hörku en ég held að flestir
hafi svolítið villandi mynd af
þessu. Sennilega stafar það af því
að það litla sem sýnt hefur verið
af íshokký í sjónvarpinu er ein-
mitt frá slagsmálum en ekki
spili.“
- Hvaða möguleika á fullorð-
inn maður sem aldrei hefur stigið
á skauta á að verða sæmifegur í
íshokký?
„Það er auðvitað alveg ljóst að
hann á ekki sömu möguleika og
maður sem hefur verið á skautum
síðan hann var 5 ára. Hann þyrfti
a.m.k. að hafa einstaka hæfileika
til þess. Menn geta hins vegar
orðið alveg slarkfærir, kannski á
svona þremur árum. Þetta fer
auðvitað eftir líkamlegu
ásigkomulagi og fleiru. Þetta er
bara eins og með flestar aðrar
íþróttagreinar, eftir því sem þú
byrjar fyrr því meiri möguleika
hefur þú á að ná árangri. Það má
kannski í þessu sambandi minna
á byrjendatímana okkar á mánu-
dögum og miðvikudögum kl. 18.
Þar geta menn kynnst íshokký
eða hreinlega lært á skautum."
Erlendur þjálfari
væntanlegur
Magnús er sjálfur gamall í hett-
unni, byrjaði sem strákur að
stunda skauta á malarvellinum
fyrir neðan Akureyrarvöll og fór
að spila með íshokkýliðinu 16-17
ára gamall. Hann spilar þó ekki
þessa dagana þar sem hann sleit
hásin í tennis í vor. Þess í stað sér
hann um þjálfun liðsins ásamt
Héðni Björnssyni. Héðinn dvaldi
um tíma út í Svíþjóð og æfði með
liði frá Norköpping og Magnús
æfði um tíma með liði í Dan-
mörku. Þá hafa þeir einnig lesið
sér til um þjálfun.
„Við eigum von á erlendum
þjálfara 16. desembersem verður
lijá okkur fram í janúar og kemur
á uppskeruhátíð Völsungs
Á uppskcruhátíð íþróttafé-
lagsins Völsungs sem haldin
var nýlega á Húsavík hlutu
eftirtaldir aðilar viðurkenning-
ar:
7. flokkur.
Arnór Sigmarsson efnilegasti
leikmaður.
Pálmi Pálmason prúðasti
leikmaður.
Sigmundur Jósteinsson besti
leikmaður.
6. flokkur.
Birkir Vagn Ómarsson efnileg-
asti leikmaður.
Hörður Sigurgeirsson prúðasti
leikmaður.
Gunnar Jónsson besti leikmaður.
5. flokkur.
Ómar Þorgeirsson efnilegasti
leikmaður.
Aðalsteinn Sigurkarlsson prúð-
asti leikmaður.
Baldur Aðalsteinsson besti
leikmaður.
4. flokkur.
Arngrímur Arnarson efnilegasti
leikmaður.
Magnús Þór Þorvaldsson prúð-
asti leikmaður.
Dagur Sveinn Dagbjartsson besti
leikmaður.
Yngri flokkar Völsungs náðu
góðum árangri í sumar og kom-
ust tveir flokkar í úrslit Islands-
mótsins, 6. flokkur og 4. flokkur.
En 5. flokkur vann KÞ-mótið
sem haldið var í fyrsta sinn í sum-
ar á Húsavík, alls tóku 12 lið þátt
í mótinu. IM
Magnús þjálfari útskýrir hér leyndardónia næstu æfingar.
Mvndir: JHB
„íþróttin byggist á hraða, snerpu og góðri skautakunnáttu.“
svo aftur um mánaðamótin
febrúar-mars og verður hjá okk-
ur í þrjár vikur. Þetta er finnskur
þjálfari sem hefur spilað með
ýmsum liðum á Norðurlöndum, í
Austurríki og Ástralíu. Hann var
markahæstur í norsku úrvals-
deildinni fyrir fjórum árum en
spilar núna með íshokkýfélagi í
Danmörku. Það er geysilega
mikilvægt að fá svona mann til
okkar. Við höfum ekki haft þjálf-
ara síðan 1980 en þá fengum við
sænskan þjálfara sem var hérna í
3-4 vikur og lærðum mjög mikið
af honum. Maður getur ekki ver-
ið að kenna sjálfum sér endalaust
og það er ekki spurning um að
þetta er mjög mikilvægt fyrir
okkur. Við vorum á tímabili að
láta okkur dreyma um að hafa
hann hér í allan vetur en sáum
því miður ekki að það væri fjár-
hagslegur grundvöllur fyrir því.“
Ágætir möguleikar á sigri
í mótinu
íslandsmótið sem hefst um helg-
ina verður það fyrsta þar sem
þátttökuliðin eru fleiri en tvö.
Liðin sem leiða saman hesta sína
eru SA, SR og Björninn í
Reykjavík.
„Við vonumst til að mótið
verði lyftistöng fyrir íþróttina og
við náum með því að vekja ein-
hverja athygli. Það er ein höfuð-
ástæðan fyrir því að farið er út í
þetta.
Við teljum okkur eiga ágæta
möguleika á sigri enda höfum við
yfirleitt haft undirtökin þrátt fyrir
að Reykvíkingar hafi oit staðið í
okkur. SR mætir reyndar til leiks
með tvo Rússa úr sendiráðinu í
Reykjavík, annar þeirra hefur
spilað með þeim lengi og er
þokkalegur en nú er þeir búnir að
fá annan sem spilaði með 1.
deildarliði í Moskvu á árum
áður. Björninn er ungt félag sem
hefur tvo Bandaríkjamenn af
„vellinum“ í sínum röðum en við
óttumst þá ekki sérstaklega.
Önnur umferð á íslandsmóti 3.
flokks í handknattleik fór fram
um síðustu helgi. Þórsarar
féllu úr 1. deild en KA-menn
komust hins vegar upp úr 2.
deild.
Þórsarar áttu sæti í 1. deild
ásamt fjórum öðrum liðum. Þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir tókst ekki
að grafa upp úrslit úr leikjum
liðsins en þó er vitað að það gerði
Þessi tvö lið spiluðu æfingaleik
fyrir skömmu og SR vann þann
leik 12:2. Það má því búast við að
baráttan veröi á milli okkar og
SR. Annars getur allt gerst,
menn eru taugaspenntir því leik-
reynslan er af eðlilegum ástæðum
ekki mikil. Þá er ekki nóg að hafa
betri skautakunnáttu því það
verður að skora mörk og það get-
ur vafist fyrir mönnum. En það
þýðir ekkert annað en að vera
bjartsýnn. Við lofum skemmti-
legum leik á laugardaginn og
vonumst til að fylla áhorfenda-
stúkuna okkar sem er nú reyndar
ekki mjög stór.“
jafntefli við Val en tapaði hinum
leikjunum þremur. Þór hlaut því
eitt stig og féll í 2. deild.
KA-menn léku í b-riðli 2.
deildar. Þeir gerðu jafntefli við
Víking, 17:17, en sigruðu Gróttu
21:16, HK 22:16 og Fram 22:15.
Þeir hlutu 7 stig eins og Víkfngar
en voru með mun betra marka-
hlutfall og eiga því sæti í 1. deild
í næstu umferð.
Leikmenn verðlaunaðir
Handknattleikur, 3. ílokkur:
Þór niðnr - KA upp