Dagur - 27.11.1991, Qupperneq 16
DACKJ&
Akureyri, miðvikudagur 27. nóvember 1991
^eimsendingarþjónusta
JO JLJL alla daga
Sunnudaga til fim.m.tuciaga. lcl. 12.00-22.30
Föstudaga og laugardaga kl. 12.00-04.30
Hádegistilboð alla daga
VEITINGAHUSIÐ
Glerárgötu 20 • ® 26690
Bindindisdagur
Qölskyldunnar
Bindindisdagur íjölskyldunnar
er í dag, miðvikudaginn 27.
nóvember. Fyrir deginum
standa mörg bindindissinnuð
félagasamtök á landinu undir
forystu Stórstúku Islands.
Eins og fram kemur í ávarpi
frá forseta íslands, landlækni,
biskupi og heilbrigðisráðherra er
megintilgangur dagsins að vekja
foreldra til umhugsunar um
ábyrgt uppeldi barna sinna, vekja
athygli á forvarnarstarfi og hvetja
til þess, styrkja vímulausa ímynd
fjölskyldunnar og vekja fólk til
umhugsunar uin þær hættur sem
eru samfara áfengisneyslu.
í gær birti Dagur greinar í
tengslum við bindindisdaginn og
nánar er fjallað um hann á bls. 4
í dag. SS
Helgi Hall-
grúnsson nýr
vegamálastjóri
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, skipaði í gær að tillögu
Halldórs Blöndal, samgöngur-
áðherra, Helga Hallgrímsson,
aðstoðarvegamálastjóra, í
stöðu vegamálastjóra frá og
með 1. janúar nk. Helgi tekur
við starfinu af Snæbirni Jón-
assyni, sem lætur af störfum
fyrir aldurs sakir um næstu
áramót.
Helgi Hallgrímsson var einn
umsækjenda um stöðu vegamála-
stjóra.
Hann er fæddur árið 1933,
verkfræðingur að mennt, og hóf
störf hjá Vegagerð ríkisins að
loknu námi árið 1958. Eiginkona
hans er Margrét Schram og eiga
þau fjögur börn.
Fráfarandi vegamálastjóri,
Snæbjörn Jónasson, lætur af
störfum fyrir aldurs sakir, en
hann verður sjötugur þann 18.
desember nk. Snæbjörn hefur að
baki 45 ára starf hjá Vegagerð-
inni. Hann hóf þar störf árið 1946
að loknu verkfræðinámi og tók
við stöðu vegamálastjóra árið
1976. óþh
Akureyri:
Stúlka skarst
á höfði eftir
árekstur
Stúlka var flutt á slysadeild
Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri í gær eftir árekstur í
bænum. Hún skarst á höfði, en
meiðsl hennar voru ekki talin
alvarleg.
Slysið varð þegar tveir fólks-
bílar rákust saman á mótum
Bugðusíðu og Austursíðu í tölu-
verðri hálku. Stúlka, sem var
farþegi í öðrum bílnum, var flutt
á sjúkrahús með skurð á höfði,
að sögn lögreglu og sjúkraflutn-
ingamanns. óþh
Konfektinu raðað í Lindu-kassana í
Jólastemmning svífur yfir
vötnum hjá Lindu:
Unnið fram á kvöld
alla daga við
konfektfrainleiðsluna
„Endanlegur frágangur á
jólakonfektinu stendur núna
sem hæst og hér vinnum við
15 tíma vinnudag, alla daga
vikunnar,“ segir Sigurður
Arnórsson, framkvæmda-
stjóri Súkkulaðiverksmiðj-
unnar Lindu, um konfekt-
framleiðsluna fyrir komandi
jól.
Sigurður segir að unnar séu
kvöld- og helgarvaktir í verk-
smiðjunni við að pakka kon-
fekti. „Þetta er mikil handa-
vinna sem þarf að gera á
skömmum tíma. Vélar sem
velja úr og raða í kassana eru
dýrar þannig að mannshöndin
þarf að sjá um þetta og sinna
gæðaeftirliti um leið,“ sagði
Sigurður.
Mesta álagið vegna framleiðsl-
unnar á jólakonfektinu segir
Sigurður að sé í október og
nóvember og síðari mánuðinn
unnið um helgar. Á kvöldvakt-
irnar er ráðið sérstakt starfsfólk
og þá gjarnan fólk sem vinnur í
afleysingum í verksmiðjunni á
sumrin.
„Það er ágæt stemmning
meðan á þessu stendur. Þetta
eru tugir þúsunda konfektkassa
sem hér er sett í á þessum tíma
og nú fer allt jafnóðum út til
verslana. Þegar vika er liðin af
desember þá byrjar jólakon-
fektið að seljast en þetta er fyrst
og fremst vara sem keypt er til
gjafa.“
Sigurður segir að konfektið
fari í allar stórmarkaðsverslanir
landsins auk mikils fjölda ann-
arra verslana.
„í konfektinu er bullandi
samkeppni því mikið er flutt inn
af þessari vöru en landinn hefur
sem betur fer vissa trú á okkar
framleiðslu og við njótum þess.
Konfektframleiðslan hefur alltaf
verið flaggskipið okkar og hvar
sem er í heiminum er slík fram-
leiðsla toppurinn í sælgætis-
framleiðslunni enda er nostrað
við þessa framleiðslu og notuð í
hana bestu hráefnin,“ sagði
Sigurður. JÓH
Framboð á aflakvóta umfram eftirspurn:
„Tökum ekki þátt í leiknum“
- segir Gunnar Ragnars, forstjóri ÚA
Gunnar Ragnars, forstjóri
Útgerðarfélags Akureyringa
hf., telur að kvótaviðskipti
með fisk á íslandi séu út úr
allri mynd um þessar mundir,
að verð sé allt of hátt og full
ástæða sé til að lækka verðið.
Á nýafstöðnu uppboði fór var-
anlegur þorskkvóti á 184 kr/
kg-
Kvótamiðlarar eru farnir að
hasla sér völl í ríkara mæli en
áður. Þannig hafa a.m.k. tvö
fyrirtæki verið stofnuð gagngert
til þess að miðla kvótum, Kvóta-
markaðurinn hf. og Kvótamiðl-
unin. Á fyrsta uppboði Kvóta-
markaðarins, 11. nóvember á
Hótel Sögu, seldust rösklega 100
tonn af kvóta og var meðalverð á
varanlegum þorskkvóta 184 kr/
kg, á ýsukvóta 188 kr/kg og á
ufsakvóta 87 kr/kg. Þá seldust
111 tonn af þorskkvóta til eins árs
afnota á 44-45 kr/kg og leigukvóti
af ufsa á 24-25 kr/kg.
Af ýmsu má ráða að vaxandi
framboðs er farið að gæta á kvóta
og verðið fari lækkandi. Að vísu
eru verðhugmyndir manna nokk-
uð misjafnar enda skiptir máli
hvort kvótinn er greiddur út í
hönd eða ekki, auk þess sem
áhrif hefur hvort fleiri tegundir
en þorskur fylgir með. Á mark-
aðnum eru einkum kvótar af trill-
um undir 6 brl.
„Utgerðarfélag Akureyringa
hf. hefur ekki keypt varanlegan
kvóta þar sem verðhugmyndir
manna eru út úr allri mynd. Ögn
höfum við tekið af leigukvóta, en
ekki á síðustu mánuðum. Kvóta-
sölumálin í dag eru á röngum
grunni. Við hjá ÚA erum íhalds-
samir og tökum ekki þátt í leikn-
um, leik þar sem margir hafa
sprengt sig. Hvort verð hafi lækk-
að skal ég ekkert segja um, en
hinsvegar er full ástæða til að
ætla að svo sé. í dag er erfitt að
segja til um hvort ÚÁ muni vanta
kvóta. Aflabrögð síðustu vikna
benda ekki til þess. Lítið hefur
fiskast. Þetta er mesti ræfill,“
sagði Gunnar Ragnars, forstjóri
Útgerðarfélags Akureyringa hf.
ój
Fasteignasala í Reykjavík biðlar til landsbyggðarinnar:
Kaup á íbúðum í höftiðborginm
er raunhæf byggðastefna
Fasteignasalan Eignamiðlunin
hf. í Reykjavík hefur sent
sveitarstjórnum út um land
bréf með yfirskriftinni „Raun-
hæf byggðastefna“ þar sem
þeim eru boðnar nýjar íbúðir
til kaups í höfuðborginni. í
bréfi sínu segir fastcignasalan
að með fjárfestingu sveitarfé-
laga í íbúðum á höfuðborgar-
svæðinu geti sveitarfélögin
dregið úr fólksflutningunum til
Reykjavíkur.
í bréfinu er rakið að mörg
undanfarin ár hafi einstaklingar,
stéttarfélög og fleiri aðilar af
landsbyggðinni í auknum mæli
fest kaup á íbúðarhúsnæði í
Reykjavík. Einstaklingar eða
hjón sem kaupi íbúð í Reykjavík
án þess að flytjast þangað bú-
ferlum séu í mörgum tilfellum
tilneydd þar sem börnin þurfi að
sækja framhaldsskóla í Reykja-
EIGNAMIÐLUNIN11!
Raunhæf byggðastcíl
Undanfarin ár hafa einstaklingar, siéttarfélög og fleiri ai
nueli fest kaup á íbiiðaihilsnæöi í Reykjavík. Tilgangurt
misiafn. Stéttarfélög og siiikrasjóöir kaupa fbiiöir fyrir M
þurfa að konu til Reykjavíkur til orlofsdvalar, leita sér hj
Einstaklingar eöa hjón sem kaupa (bilð f Reykjavflc, ánB
búferlum, eru í mörgun tilvikum tilneydd til þess, þar ¥
framhaldsskóla í Reykjavflc. Eins og flestir vita er leigii
erfiöur og því miöur fátítt að fótk fii sanngjama leigu í ffl
teknar á leigu að hausti og sleppt úr leigu að vori vegna l|
StaÖreyndin er hins vegar sú að faestir hafa efni á því a" I
Það er þvf oft að fidlskyL ^v.-ur ölH'Wlu^
Bréfíð sem Eignarmiðlunin sendi
sveitarstjórnum um land allt.
vík. Fæstir hafi efni á að eiga og
reka aukaíbúð í borginni og því
fari oft svo að fjölskyldan flytjist
búferlum til Reykjavíkur nauðug
viljug.
„Við viljum með bréfi þessu
vekja athygli sveitarstjórna á
þessu vandamáli og um leið að
benda á leiðir til lausnar þessum
vanda. Til lengri tíma litið hlýtur
það að vera æskilegt að auðvelda
fólki sem það vill að búa áfram í
sinni heimabyggð. Það hlýtur að
vera stefna sveitarstjórna að
draga úr fólksflutningum til
Reykjavíkur. Með hverjum
skattgreiðanda sem flytur burt
minnka tekjur sveitarfélagsins,
en áfram þarf sveitarfélagið að
veita sömu þjónustuna heima
fyrir. Nú gefst sveitastjórnum
raunhæft tækifæri til að draga úr
fólksflóttanum og eyða óöryggi
og óvissu íbúanna um það hvern-
ig eigi að koma börnunum fyrir í
öruggu húsaskjóli meðan á
námsvist stendur í Reykjavík.
Námsfólkið getur að sjálfsögðu
líka leigt íbúðirnar yfir sumarið
en einnig er hægt á þeim tíma að
leigja þær fólki sem þarf til
Reykjavíkur annarra erinda og
annars gisti á hóteli,“ segir í bréfi
fasteignasölunnar til sveitar-
stjórna á landsbyggðinni. JÓH