Dagur


Dagur - 04.04.1992, Qupperneq 4

Dagur - 04.04.1992, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Laugardagur 4. apríl 1992 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639 ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ KR. 110 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON BLAÐAMENN: INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. Listagilið lýsandi dœmi um hvað hœgt er að gera Á málþingi um menningarmál sem haldið var á Akureyri fyrir nokkrum árum var sú hugmynd rædd hvort ekki væri mögulegt að nýta yfirgef- in verksmiðjuhús í Grófargili í þágu lista og menningar. Athafnalíf í Gilinu var þá óðum að slokkna. Kaupfélag Eyfirðinga hafði flutt og var að flytja starfsemi ýmissa deilda í önnur og hentugri húsa- kynni og eftir stóðu draugahús sem störðu brostnum augum á mannlífið í Kaupvangsstræti. Við blasti að voldug húsin myndu grotna niður og verða öllum til ama uns þau yrðu loks jöfnuð við jörðu. Hugmyndin um að gæða Gróf- argil lífi á þennan hátt þótti æði glannaleg en áhugi listamanna og áhrifamanna hjá Akureyrarbæ var vakinn og málið tók að þróast. Með raunsæi að leiðarljósi sáu menn að þetta var gerlegt og hugmyndin fékk æ fleiri fylgismenn. Ekki þarf að rekja þessa sögu nákvæmlega hér en niðurstaðan varð sú að Akureyrarbær keypti húseignirnar af Kaupfélagi Eyfirðinga með það í huga að breyta Grófargili í Listagil. Bærinn seldi einstaklingum hús- rými við sunnanvert Kaupvangs- stræti þar sem áður voru Smjörlík- isgerð KEA og Flóra. Endurbætur á þessum húsum hafa gengið vel í vetur og verða þau að öllum líkind- um orðin bæjarprýði í sumar. Akur- eyrarbær á enn rými í þessum hús- um svo og mikinn húsakost í Sam- lagshúsinu að norðanverðu. Eign- arhluta bæjarins í Kaupvangs- stræti 23 og jarðhæð í Samlaginu, alls um 1100 fermetra rými, hefur Gilfélagið fengið umráðarétt yfir með samningi sem undirritaður var í síðasta mánuði. Samningur Akureyrarbæjar og Gilfélagsins markar tímamót í upp- byggingu Listagils. Gilfélagið mun nú með stuðningi bæjarins ráðast í endurbætur á húsunum sam- kvæmt fyrirliggjandi teikningum og leigja út rými til listamanna, handverksmanna, veitingamanna eða annarra sem sækjast eftir aðstöðu í Listagili. Forsvarsmenn bæjarins og Gilfélagsins lýstu yfir mikilli ánægju með samninginn og sögðu að uppbygging listamið- stöðvar í Grófargili ætti ekki ein- ungis eftir að efla menningu og listir í bænum heldur hefði hún örv- andi áhrif á atvinnulíf og ferða- þjónustu. Hin áður fjarlæga hugmynd um Listagil er þannig að verða að veruleika og á vonandi eftir að verða mikil lyftistöng fyrir bæjarlíf- ið. Auk húsrýmisins sem einstakl- ingar hafa keypt og Gilfélagið hef- ur umráðarétt yfir er stefnt að því að listasafn Akureyrar verði í Sam- lagshúsinu og eftir nokkur ár verð- ur farið að huga að tónlistar- og ráðstefnusal í Ketilhúsinu. Mynd- listaskólinn á Akureyri er kominn í gamla Sjafnarhúsið og vinnustofur listamanna eru þar í bakhúsi. Tón- listarskólinn er á næstu grösum, hótel, veitingastaðir og verslanir. Miðbær Akureyrar hefur alla burði til að verða lífvænlegur staður sem laðar að ferðafólk og eykur hróður bæjarins. Listagilið er lýsandi dæmi um hvað hægt er að gera við hug- myndir sem kvikna og óskandi er að framkvæmdin takist vel og mál- ið í heild verði til þess að örva bæjarbúa til frekari dáða í framtíð- inni. SS tAKÞANKAR Kristinn G. Jóhannsson Yfirbótarskrif og afsökunarbón Nú fór í verra. Haldiði ekki að ég sé farinn að móðga og særa hið besta fólk úti í bæ með þessum pistlum mínum eins og t.d. þessum síðasta. Það var nú ekki meiningin en svona fer stundum þegar ákafinn er meiri en vitsmunirnir þola. Mér finnst samt rétt að ég Ijúki umræðunni með dálítilli samantekt til glöggvunar þeim sem áhuga hafa á þessu sér- staka málefni sem ég hætti mér út í að ræða í síðustu pistlum tveim. Ég þóttist ætla að hafa skoð- un á skólakerfinu, sem ég hefi verið að velkjast í um hálfrar aldar skeið. Mér hefur senni- lega farist þetta heldur óhönd- uglega. [ fyrsta lagi taldi ég að nú kæmi til álita að stytta grunn- skólann um eitt ár og í öðru lagi að nýta skólatímann betur en nú vill verða raunin á. Til þess að slíkt tækist taldi ég að þyrfti að ákvarða nánar hvert ætti að vera hlutverk skól- ans annars vegar og heimilisins hins vegar. Þá verður einnig að kanna hvern hlut stjórnvöld ætla sér í uppbyggingu og skipulagi skólastarfs. Eg læt mér detta I hug að við getum orðið sammála um að sterk fjölskylda sé besti bakhjarl uppeldis. Samstarf skóla og heimilis er undirstaða vel- heppnaðs skóla og uppeldis- starfs. Þegar ég tala um að ákvarða þurfi nánar verkaskipt- inguna á milli þessara aðila á ég beinlínis við aö við horfumst í augu við þann raunveruleika sem við búum við núna og hög- um okkur samkvæmt því og reynum að breyta starfsháttum í samræmi við líf fólksins eins og það er. Breytingin ætti að hafa að markmiði að styrkja bæði skólann og fjölskylduna. Hvað ætli oft hafi verið kvak- að um samfelldan skóladag, skólamáltíðir og einsetna skóla svo nokkur atriði séu nefnd sem að skólunum snúa. Það miðar grátlega hægt. Ég taldi líka í grein minni að bæta þyrfti kjör kennara veru- lega og þar með auka enn kröf- ur til þeirra um uppeldi og kennslu. Um þetta erum við sammála, mín gáfaða þjóð, en ef til vill greinir okkur á um hvar á að byrja og hvernig við eigum að bera okkur til að þoka þessu áleiðis. Mér varð það á síðast að svara dálítið hastarlega grein sem Kristján fréttastjóri skrifaði undir fyrirsögninni „Kennsla fellur niður í dag vegna...! hann leggur þar út af karpi heldur ógæfulegu sem uppi varð milli kennara og menntamálaráð- herra og telur margt af því sem Ólafur Garðar segir sé rétt án þess að tiltaka frekar hvaða atriði það eru nákvæmlega. Það á auðvitað hver rétt á skoð- un sinni í þessu efni sem öðru. Ljóst er þó að hann telur kennara nýta skólatímann illa og leggur þess vegna m.a. til: „Þá er aftur hægt að nota sumarið til undirbúnings skóla- starfsins og jóla- og páskafrí til frekara skipulags, gerist þess þörf.“ Kristján segir svo í síðari grein að um þetta sé margt fólk úti í bæ honum sammála. Þetta er þó altént byrjunin. Þegar nú hópur foreldra er sammála um að svona skuli staðið að fyrstu umbótum á skólakerfinu þá á það auðvitað að vinna að því með tiltækum ráðum. Foreldrar eiga hægan aðgang að skólunum í gegnum foreldrafélög og geta þar komið skoðunum sínum og umbótatil- lögum á framfæri og unnið þeim fylgi. Það á Kristján auðvitað að gera og gerir vafalaust og allir hinir foreldrarnir. Eins og ég hefi áður lýst í þessari grein tel ég aðrar breytingar eins og t.d. samfelldan skóladag og máltíð- ir í skólanum brýnni mál að hefja starfið á en ekki er þar með sagt að nokkur sé mér sammála um það. Ég vil þess vegna leyfa mér að hvetja foreldra til að flykkjast nú til starfa í foreldrafélögunum og vinna þar með skólastjórn- endum og jafnvel kennurum aö bættu starfi skólanna og viðun- andi aðstöðu fyrir þá sem í skólunum vinna, nemendur og starfsfólk. Hver veit nema kenn- arar vinni þá samviskusamlega næstu jól og páska! Ég vil svo að lokum biðjast afsökunar á því ef ég hefi hald- ið því fram að elskuleg konan hans Kristjáns vinni utan heimil- is. Aðrar ítarlegar upplýsingar um heimilishagi Kristjáns sem hann sendi mér til fróðleiks eru svo utan við þetta mál. Ég lét þess getið þegar ég hóf þessi skrif að maður ætti auðvitað aldrei að hafa skoðun á því sem maður þekkir. Ég er enn sannfærðari núna. [ Guðs friði. Kr. G. Jóh.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.