Dagur - 04.04.1992, Page 12
12 - DAGUR - Laugardagur 4. apríl 1992
Krossgáta
108. grein hegningarlaga:
Samrýmist ekki lýðræðiskröfum
um tjáningar- og ritfrelsi
Á stjórnarfundi Rithöfundasam-
bands íslands, sem haldinn var á
skrifstofu sambandsins fyrir
skömmu var samþykkt eftirfar-
andi ályktun:
„Hinn 5. mars síðastliðinn var
kveðinn upp dómur í Hæstarétti í
máli ákæruvaldsins gegn Halli
Magnússyni blaðamanni á grund-
velli 108. greinar hegningarlaga,
sem kveður á um að embættis-
mönnum veitist víðtækari æru-
vernd en öðrum, og gangi ríkis-
saksóknari erinda þeirra í slíkum
málum.
Vegna þess vill stjórn Rit-
höfundasambands íslands minna
á að íslenskir rithöfundar hafa
ítrekað mótmælt og ályktað gegn
þessari lagagrein og telja hana
ekki samrýmast lýðræðiskröfum
um tjáningar- og ritfrelsi.
Stjórnin telur tímabært að allir
sem láta sig tjáningarfrelsi varða
taki höndum saman um að styðja
þá sem verða fyrir þeim gífurlegu
fjárútlátum er sakfelling sam-
kvæmt þessari úreltu og forneskju-
legu lagagrein hefur í för með
sér.“
Stjórnarkjör
í samræmi við lög félagsins og reglugerð ASÍ fer kjör
stjórnar, varastjórnar og trúnaðarmannaráðs, endur-
skoðenda og varamann þeirra, fram að viðhafðri
allsherjaratkvæðagreiðslu.
Hér með er auglýst eftir framboðslistum til ofan-
greindra starfa og skal þeim skilað til skrifstofu
félagsins að Skipagötu 14, Akureyri, eigi síðar en kl.
12.00 á hádegi miðvikudaginn 15. apríl nk.
Á hverjum lista skulu vera nöfn 7 manna í aðalstjórn,
5 í varastjórn, 40 í trúnaðarmannaráð (valdir með til-
liti til búsetu sbr. samþykkt aðalfundar), 2ja endur-
skoðenda og eins til vara.
Þá skulu fylgja hverjum lista meðmæli 100 fullgildra
félagsmanna.
Stjórn Verkalýðsfélagsins Einingar.
jjlfo Bridge
P7 Nýliðamót
Þriðjudaginn 7. apríl hefst þriggja kvölda keppni
fyrir alla sem hafa áhuga á keppnisbridge.
Spilaður verður tvímenningur í Hamri og hefst
spilamennska kl. 19.30 stundvíslega og henni
verður lokið um kl. 11.00.
Skráning fer fram á stabnum (mætiÖ tímanlega
til skráningar).
Bridgefélag Akureyrar.
Frá Alþingi
íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn
skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar
(búð fræðimanns í Kaupmannahöfn skv. reglum um
hús Jóns Sigurðssonar er laus til afnota tímabilið 1.
september 1992 til 31. ágúst 1993. Fræðimenn, sem
hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum
í Kaupmannahöfn, geta sótt um afnotarétt af íbúð-
inni sem er í St. Paulsgade 70 (örskammt frá Jóns-
húsi). Hún er þriggja herbergja (80 ferm.), en auk
þess hefur fræðimaðurinn vinnuherbergi í Jónshúsi.
Ibúðinni fylgir allur nauðsynlegasti heimilisbúnaður
og er hún látin í té endurgjaldslaust. Dvalartími í
íbúðinni er að jafnaði þrír mánuðir en til greina kem-
ur skemmri tími eða lengri eftir atvikum.
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist til skrifstofu
Alþingis eigi síðar en 15. maí nk.
Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi með
dvöl sinni í Kaupmannahöfn, svo og menntun og
fyrri störfum. Ennfremur hvenær og hve lengi óskað
er eftir íbúðinni.
Tekið skai fram að úthlutunarnefnd ætlast til að dval-
argestir nýti úthlutaðan tíma sinn að fullu við störf í
Kaupmannahöfn.
Sérstök eyðublöð er hægt að fá á skrifstofu Alþingis
í Alþingishúsinu í Reykjavík og í sendiráðinu í
Kaupmannahöfn.
Tekið skal fram að skýr greinarmunur er gerður á grönnum og breiðum sérhljóðum.
Þegar þú hefur ráðið gátuna, skaltu skrifa stafina í tölusettu reitunum á lausnarseðilinn hér
að neðan. Klipptu hann síðan út og og sendu til Dags, Strandgötu 31, 600 Akureyri,
merktan: „Helgarkrossgáta nr. 223“
Hildur K. Jakobsdóttir, Hvoli, 530 Hvammstanga, hlaut
verðlaunin fyrir helgarkrossgátu nr. 220. Lausnarorðið var
Trjákrónur. Verðlaunin, skáldsagan „Sylvía“, verða send
vinningshafa.
Verðlaunin fyrir krossgátuna að þessu sinni er spennusagan
„Flóttinn gegnum Finnland“, eftir Colin Forbes.
Útgefandi er Örn og Örlygur.
o «7T IMl uúl F'» 8.«. . ..Wj'
fl.nai f\ u K fl B ú
mi.9 k R 0 F fl T
i Ð N i" . B B
o 1 fej N/mi K fl u N B 0
P»r 1» R A s T A R H ‘j '0 N
h u K N a ’(? Iti.bi- N 0 't A
t> D 5 E V a N E L 1 D
þáOí n r i? 1 .2) fí Bt A H 1
tflaf L A u p V— J-> fl G c. N A M
Fufléf 0 R ‘l? fí H Ýtlo Hiii L r,o N SlrÁt • U
tui. S fí Ht.rU- 'N 1 R a M 1 , .J. 0 Ð
H *TT f\ Fr.lt F A R . f) F L 'fl
fi N c fl N N T A R
R \sst 5«-M L 0 A N A '°R 5 S—M B
L B 0 R 0 é T T J
Helgarkrossgáta nr. 223
Lausnarorðið er ................
Nafn .........................................................
Heimilisfang .................................................
Póstnúmer og staður ..........................................