Dagur - 04.04.1992, Page 19

Dagur - 04.04.1992, Page 19
Laugardagur 4. apríl 1992 - DAGUR - 19 Popp Magnús Geir Guðmundsson Úr ýmsum áttum Pearl Jam hefur slegið í gegn með plötunni Ten. Gítarrokk af ýmsu tagi, en þó aðallega í kraftmeiri kantin- um, virðist nú vera að ná æ meiri vinsældum á alheimsvísu. Er þar auðvitað gleggst dæmið æðið í kringum Seattlesveitina Nirvana, sem ekki sér fyrir endann á. Nú siglir svo önnur hljómsveit frá Seattle, Pearl Jam, í kjölfarið, sem virðist ekki síður líkleg til afreka með plötunni sinni Ten. (Hún kom reyndar út í Bandaríkj- unum í fyrra, en er nú fyrst að slá í gegn eftir að hún var gefin út í Evrópu.) Ótalin er svo þriðja sveitin frá Seattle, Soundgarden, sem stendur hinum tveimur lítt eða ekkert að baki. Bretar eiga líka rísandi sveitir í gítarrokkinu, sem til alls eru lík- legar, eins og Manic Street Preachers, Wonder Stuff og Ride. Fór sú síðastnefnda ein- mitt beint í fimmta sæti breska sölulistans með sína aðra plötu Going blank again fyrir hálfum mánuði. in af þeim rokkhátíðum sem setur sterkan svip á breskt tónlistarlíf í sumar er Glastonbury- hátíðin, sem haldin er dagana 26. til 28. júní. Verður þar að venju mikiö um dýrðir og tónlist- armennirnir hver öðrum betri. Má þar nefna meðal annara, Billy Bragg, New Model Army, Ride, Buddy Guy, Manu Dibango (sem gladdi íslendinga með heimsókn í fyrra), Richard Thompson, Runrig, Curve, Shakspears Sister, Primnal Scream o.fl. o.fl. Þá má einnig nefna að ekki er einungis um tónlist að ræða á Glastonbury, heldur líka ýmsar aðrar uppákomur á borð við leik- list og fjölleikahús. adness, sú fræga Ska sveit, hefur nú enn einu sinni verið endurreist samhliða útgáfunni á safnplötunni Diving Madness. (Hún situr nú í efsta sæti breska plötulistans.) Mun ekki loku fyrir það skotið að hljómsveitin komi fram á Read- ing tónlistarhátíðinni í lok ágúst. eðal þeirra sem fram munu koma á minningartón- leikunum um Freddy Mercury 20. apríl (annan I páskum) eru Guns N’Roses, Rod Stewart, David Bowie, Elton John og Exstreme auk eftirlifandi meðlima Queen. Eins og áður hefur komið fram mun ágóðinn af tónleikunum renna til baráttunnar gegn eyðni. Ijómsveitin fornfræga, Troggs, sem gerði garðinn heldur betur frægan með laginu Wild thing árið 1966, er enn að störfum og hefur raunar aldrei hætt, þótt ekki hafi það hátt farið. Þeir félagar Reg Presley söngv- ari og Chris Briton gítarleikari eru þó þeir einu sem eftir eru af upp- runalegum meðlimum hljóm- sveitarinnar, á nýrri plötu Athens Andover, sem út kom fyrir stuttu. Þar hafa þeir hins vegar fengið til liðs við sig ekki minni menn en Peta Beck, Mike Mills og Bill Berry úr REM auk annarra. Það er því hér um að ræða hinn for- vitnilegasta grip. Þess má svo geta aö REM þremenningarnir léku svipaðan leik með söngvar- anum Warren Zevon árið 1990 undir nafninu Hindu love gods. Þótti samnefnd plata þeirra hinn besti gripur. ick karlinn Cave, sem hvílt hafði sína rámu rödd frá hljómverum í tvö ár, sendi frá sér nýja tvöfalda A-hliðarsmáskífu nú um mánaðamótin með lögun- um Straight to you og Jack the Ripper. Er hún undanfari stóru plötunnar Henry’s dream, sem kom út 27. apríl. ú um mánaðamótin kom út geisladiskakassi með afreks- verkum Lou Reed síðustu 15 árin. Kallast hann Between thought and expression og inni- heldur m.a. áður óútgefið efni af ýmsu tagi. Eru lögin samtals 45. Poppkóngurinn Michael Jack- son hefur bókað Wembley- leikvanginn í Lundúnum í fimm kvöld til tónleikahalds í sumar. Er búið að staðfesta að hann muni koma fram þar 30. og 31. júlí, en hin kvöldin þrjú eru ennþá óákveðin. Verður mikið um dýrðir hjá Jackson á þessum tónleikum og ekkert til sparað. Meðal ann- ars er um gríðarlegan sviðsbún- að að ræða, sem inniheldur alls- kyns tæknibrellur. Uppákoma í formi hljóm- sveitaspils verður haldin í Dynheimum nú í kvöld. Eru það hljómsveitirnar Exit og Skurður frá Akureyri og Rosebid frá Reykjavík, sem þar munu stíga á stokk og fremja rokkgerninga. Er sú síðastnefnda vaxandi nafn í reykvísku rokklífi og mun ætla að senda frá sér plötu innan tíðar. Ekki þarf að kynna Exit fyrir akur- eyrskum rokkunnendum, en Skurður mun vera nýstofnuð og kemur nú fram í fyrsta sinn. Hefj- ast tónleikarnir kl. 9 og er aðgangseyrir krónur 500. Auk hljómsveitanna verða fleiri atriði á dagskrá. ær öruggt þykir að söngvari að nafni John Corabi verði eftirmaður Vince Neil í Mötley Crue. Hefur hann að undanförnu verið að semja nýtt efni með meðlimum Crue og hefur það að sögn gegnið vel. Er Corabi söngvari með efnilegri rokksveit sem kallast Scream. tórrokkararnir, David Cover- dale og Jimmy Page, sem óvænt hófu samstarf í fyrra, hafa valið sér nafnið Legends (Goð- sagnir) fyrir samstarfið. Eru þeir í rólegheitum að vinna að plötu sem væntanleg er í október. tjórnin, sem nú býr sig af kappi undir Eurovision ásamt Sigrúnu Evu og fleirum, (m.a. hefur staðiö yfir upptaka á Nei og já bæði á ensku og íslensku) er einnig komin vel á veg með nýju plötuna sína sem koma á út í maí. Hefur hljómsveitin nú lokið við að taka upp ein sjö lög sem verða á plötunni. hrashsveitin Anthrax hefur látið söngvara sinn, Joey Belladonna, flakka vegna „tón- listarlegs ágreinings" að hermt er. I hans stað er liklegt að komi Mark Osegueda, sem var söngv- ari í Death Angel. Það er þó ekki staðfest ennþá. Nick Cave sendir frá sér nýja plötu 27. apríl. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA Á NORÐURLANDI EYSTRA Hlutastaöa ritara á skrifstofu Svæðisstjórnar málefna fatlaðra á Norðurlandi eystra er laus til umsóknar. Vinnutími er fyrir hádegi. Reynsla í ritvinnslu og góð íslenskukunnátta er nauðsynleg. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Svæðis- stjórnar, Stórholti 1, sími 26960. HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á ÍSAFIRÐI Hjúkrunarfræðingar! Óskum að ráða nú þegar heilsugæsluhjúkrunar- fræðinga eða hjúkrunarfræðinga við Heilsu- gæslustöðvarnar á: ísafirði - Tvo í fastar stöður (100% stöðuhlutfall). Suðureyri v/Súgandafjörð - Einn í fasta stöðu (100% stöðuhlutfall). I boði er húsnæðishlunnindi, staðaruppbætur á laun, flutningsstyrkur. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri og/eða fram- kvæmdastjóri, alla virka daga frá kl. 08.00-16.00 í síma 94-4500. y iíiTjTiTl L. iL. JnulBi OliiiliiiliiilliliiiTiiíllíiiíii^lísiÍiiiliilllii'.linrsilipj Frá Menntaskólanum á Akureyri Kennara vantar í dönsku næsta skólaár vegna námsleyfis fastráðins dönskukennara. Við skólann starfar annar kennari í dönsku og er um að ræða samstarf með þessum tveimur. Umsóknir skal senda skólameistara fyrir 25. þ.m. sem veitir allar frekari upplýsingar. Menntaskólanum á Akureyri í apríl 1992, Tryggvi Gíslason skólameistari MA. Blaðamaður á Sauðárkróki Dagur óskar eftir að ráða blaðamann til starfa á Sauðárkróki frá og með 1. júní næst- komandi. Um er að ræða fullt starf og mun viðkomandi jafn- framt verða umboðsmaður blaðsins á Sauðárkróki. Góð íslensku- og vélritunarkunnátta áskilin. Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist ritstjóra Dags, Strand- götu 31, 600 Akureyri, fyrir 20. apríl nk., merkt: „Blaðamaður“. Dagblaðið á landsbyggðinni. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, FRIÐJÓNS ÓLAFSSONAR, Hafnarstræti 71, Akureyri. Brynhildur Stefánsdóttir, Ingibjörg Friðjónsdóttir, Sigvaldi Kristjánsson, Magni Friðjónsson, Óla Kallý Þorsteinsdóttir og aðrir aðstandendur.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.