Dagur - 16.04.1992, Qupperneq 3
Fréttir
Fimmtudagur 16. apríl 1992 - DAGUR - 3
Kaup Laxár hf. á eignum þrotabús ístess:
Kaupverð 95
milljónir króna
- 40 milljónir hafa safnast í bindandi
hlutafjárloforðum
Laxá hf. þarf að greiða um 95
milljónir króna fyrir eignir
þrotabús ístess, en kaup-
samningur var undirritaður sl.
þriðjudag. Hér er um að ræða
verksmiðjuhúsnæði og fram-
leiðslutæki, skrifstofuhúsnæði,
lýsistanka, tjaldskemmur og
aðra lausafjármuni í Krossa-
nesi þar sem fóðurverksmiðjan
er starfrækt.
Að sögn Guðmundar Stefáns-
sonar, framkvæmdastjóra Laxár,
verða kaupin fjármögnuð með
auknu hlutafé og lánum frá
Landsbanka og Iðnlánasjóði.
Hann sagði að skuldsetning fyrir-
tækisins yrði viðunandi. Heimild
er fyrir að auka hlutafé um 50
milljónir króna, úr 8 milljónum í
58, og hafa þegar safnast um 40
milljónir í bindandi hlutafjárlof-
orðum.
„Þetta hefur tekið langan tíma
og við erum ánægðir að samning-
urinn er í höfn. Vegna óvissu-
ástandsins hafa viðskiptavinir
okkar verið á varðbergi og við
höfum átt erfitt með að gera
langtímaáætlanir. En framleiðsla
hefur alltaf verið í gangi hjá Laxá
og í rauninni mun ekkert breyt-
ast. Hér vinna áfram átta starfs-
menn og við höldum okkar
striki,“ sagði Guðmundur.
Þrátt fyrir skakkaföll í fiskeld-
inu hér á landi kvaðst Guðmund-
ur vera viss um að markaður fyrir
fóður yrði áfram til staðar þótt
sennilega yrði ekki feitan gölt að
flá í fóðurframleiðslu næstu
misserin. Hann var hins vegar
bjartsýnn þegar til lengri tíma er
litið.
„Framundan er gífurlegur
vöxtur í fiskeldinu og menn
verða að ná tökum á því hér á
landi til að geta nýtt sér þennan
möguleika þegar veiðarnar drag-
ast saman. Við verðum að vera
með í fiskeldinu í framtíðinni og
þá ekki síður í fóðurframleiðsl-
unni. íslendingar hafa ekki efni á
því að missa af þessu tækifæri og
sem betur fer sýnist mér að menn
séu að ná betri tökum á fiskeld-
inu þótt ástandið sé erfitt í
augnablikinu,“ sagði Guðmund-
ur. SS
Rekstrarlánasjóður
landbúnaðarráðuneytisins:
Fjórar umsóknir
af Norðurlandi
Fyrir skömmu var ákveðið að
158 milljónum króna yrði veitt
úr Rekstrarlánasjóði landbún-
aðarráðuneytisins til fiskeldis-
fyrirtækja í ár. Byggðastofnun
sér um úthlutun á fénu og
fímmtán fyrirtæki hafa sótt um
að fá úthlutað, þar af fjögur á
Norðurlandi.
Norðlensku fiskeldisfyrirtækin
sem sótt hafa um að fá úthlutað
eru: Straumfiskur á Svalbarðs-
eyri, Fiskeldisfyrirtæki Gunnars
Blöndals í Eyjafirði, Silfurstjarn-
an hf. í Öxarfirði og Svarthamar
á Húsavík.
Að sögn Ingimars Jóhannsson-
ar, hjá Byggðastofnun, verður
farið yfir umsóknirnar næsta
mánuðinn og ákvarðanir teknar
varðandi úthlutunina. Hann segir
að helstu skilyrðin fyrir að fá út-
hlutað úr sjóðnum, séu að fyrir-
tækin hafi jákvæða eiginfjárstöðu
og menn hafi trú á að þau fari
ekki á hausinn um leið og úthlut-
að hefur verið. SBG
Landsbanki íslands:
Finnur Friðriks-
son fékk styrk
Finnur Friðriksson, nemandi í
Menntaskólanum á Akureyri,
var einn sjö nemenda sem fékk
sl. mánudag úthlutað styrk úr
„Námu“ Landsbanka íslands.
Tæplega 400 styrkumsóknir
bárust, en allir félagar í „Nám-
unni“, námsmannaþjónustu
Landsbankans, eiga rétt á að
sækja um þessa styrki.
Finnur Friðriksson er lands-
mönnum að góðu kunnur úr
„Gettu betur“ - spurningakeppni
framhaldsskólanna, en hann hef-
ur verið í sigurliði Menntaskól-
ans á Akureyri undanfarna tvo
vetur. Finnur lýkur stúdentsprófi
í vor.
í frétt frá Landsbankanum seg-
ir að við val á styrkþegum hafi
verið tekið tillit til námsárangurs,
framtíðaráforma og persónulegra
aðstæðna. í úthlutunarnefnd
voru dr. Gylfi Þ. Gíslason,
Bjarni Ingólfsson, framkvæmda-
stjóri BÍSN, Sverrir Hermanns-
Finnur Friðriksson.
son, bankastjóri, Kjartan Gunn-
arsson, starfandi formaður
bankaráðs Landsbankans og
Kristín Rafnar, forstöðumaður á
markaðssviði bankans. óþh
Vikuáætlun Norröna 1992
Norröna Staðartimi Siglingarvikur og dagar 14. atgUDgarvika'
Mal/júni Jiill/ágúat Ágúst Agúat/aeptember
Áfangastaöir Vikudagar koma brottf 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 Vikudagar koma brottf dags.
Hanstholm Laugard. - 20.00 30 6 13 20 27 4 ii 18 25 1 8 15 22 Laugardag - 20.00 29.08
Þórshöfn Mánud. 06.00 09.00 1 8 15 22 29 6 13 20 27 3 10 17 24 Mánudag 07.00 12.00 31.08
Leirvík Mánud. 22.00 23.00 1 8 15 22 29 6 13 20 27 3 10 17 24 *) Athugið að i aiðuatu aigliogarviku er akld komið við 1 Lelrvik og Bergan.
Bergen Priðjud. 12.00 15.00 2 9 16 23 30 7 14 21 28 4 11 18 25
Leirvik Miðvikud. 01.30 02.00 3 10 17 24 1 8 15 22 29 5 12 19 26
Pórshöfn Miövikud. 15.00 17.00 3 10 17 24 1 8 15 22 29 5 12 19 26
Seyðisfjörður Fimmtud. 08.00 12.00 4 11 18 25 2 9 16 23 30 6 13 20 27 Priðjudag 08.00 12.00 02.09
Pórshöfn Föstud. 06.00 09.00 5 12 19 26 3 10 17 24 31 7 14 21 28 Miðvikudag 06.00 09.00 02.09
Hanstholm Laugard. 16.00 - 6 13 20 27 4 11 18 25 1 8 15 22 29 Fimmtudag - - 03.09
Vikuáætlun Smyrils 1992
Smyril Staðartiml Sigllngardagar og mánuðir
Áfangastaðir Vikudagar koma brottf Júli Ágúit
Pórshöfn Mánud. - 19.00 - 6 13 20 2 - 3 10 17 24
Scrabster, Caithness Priðjud. 09.00 19.30 - 7 14 21 28 - 4 11 18 25
Pórshöfn Miövikud 09.30 17.00 1 8 15 22 29 - 5 12 19 26
Seyðisfjörður Fimmtud. 12.00 14.00 2 9 16 23 30 - 6 13 20 27
Pórshöfn Föstud 10.00 15.00 3 10 17 24 31 - 7 14 21 28
Aberdeen Laugard. 13.00 19.00 4 11 18 25 - 1 8 15 22 29
Pórhöfn Sunndu. 17.00 - 5 12 19 26 - 2 9 16 23 30
Rútuferb til Noregs
W ---------------------------------- -------------------------------------------- --------------
| Rútuferð til Noregs í þrjár vikur.
| Brottför 18. júní. Upplifið strórbrotna fegurð Noregs á Sogn, og Harðangurssvæðinu.
§ Bergen - Osló - Guðbrandsdalur - Geirangursfjörður, ásamt fjölda annarra viðkomustaða.
g Meðal annars innifalið í verði, Hótel með morgunverði allan tímann og 5 kvöldverðir.
| Verð kr. 119.200,- fyrir einstakling.
| Leitið upplýsinga hjá Benna og Svenna, sími 97-61399 og Austfari hf. sími 97-21111
Sigling til Bergen og til baka.
Hótel í Færeyjum innifalið í verði.
Ferðatilboð sumarsins Hver býður betur?
Fjórir i bíl og gisting á Hótel Föroyar í þrjár nætur í tveggja manna herbergi meö baöi og morgunverði 22.885,- |
Þrír í bíl og gisting á Hótel Föroyar í þrjár nætur í einu tveggja- ^8 405 - 1 manna herbergi og einu einsmanns herbergi með baði og morgunverði
Þrír í bfl og gisting á Hótel Föroyar í þrjár nætur í þriggja manna herbergi með baði og morgunverði 22.830,- 1
Tveir í bíl og gisting á Hótel Föroyar í þrjár nætur í tveggja manna herbergi með baði og morgunverði 28.405,- |
Fjórir í bíl og gisting á farfuglaheimilinu í Þórshöfn í þrjár nætur 14.540,-1
Þrír í bfl og gisting á farfuglaheimilinu í Þórshöfn 16.380,-1
Tveir í bíl og gisting á farfuglaheimilinu í Þórshöfn 20.060,-1
FÆREYJATILBOÐ
Fjórir í bíl með gistingu á Hótel Föroyar í fimm nætur 25.817,-
Fjórir í bíl með gistingu á farfuglaheimilinu í Þórshöfn í fimm nætur 11.902,-
Öli verð eru miðuð við emstakliug og háð gengisbreytingum. Greiða þarf helming ferðar til staðfestingar fyrir 1. mai.
AUSTFAR NORRÆNA FERDASKRIFSTOFAN
710 SEYDISFIRÐI - ©97-21111 - FAX 97-21105 ©91-62 63 62