Dagur - 16.04.1992, Blaðsíða 24
Verkfallsboðun mjólkurfræðinga:
Hleypir iflu blóði í
aðilana handan borðsins
- segir formaður Vinnumálasambands
samvinnufélaga
„Þetta hleypir illu blóði í alla
hinum megin við borðið.
Bændur hafa af þessu veruleg-
ar áhyggjur og auðvitað vinnsl-
an líka enda er hagræðing það
sem er númer eitt í dag og
svona uppákomur eru ekki til
hagræðingar fyrir vinnsluna,“
sagði Hjörtur Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Vinnumála-
sambands samvinnufélaga, um
verkfallsboðun Félags mjólk-
urfræðinga hjá félagsmönnum
sínum í Mjólkursamlagi KEA
og Mjólkursamsölunni í
Reykjavík.
Félagið boðaði til verkfalla
skömmu fyrir samningafund hjá
sáttasemjara í fyrradag, þann
fyrsta í langan tíma í deilunni.
Vinnuveitendur aflýstu þá fundi
þar sem þeir töldu þetta sýna lít-
inn samningsvilja hjá mjólkur-
fræðingum. Hjörtur segir það
mikil vonbrigði að málið hafi tek-
ið þessa stefnu nú en fátt bendir
til annars en til verkfallsaðgerða
komi eftir páska.
„Við höfum sagt við mjólkur-
fræðinga alveg frá upphafi að við
værum reiðubúnir að ræða um
hagræðingarsamninga við þá og
koma á sameiginlegu hagræðing-
arátaki í samningum, þæði hjá
ófaglærðum og mjólkurfræðing-
Veðrið:
Fátt um
fína drætti
„Fátt er um fína drætti þegar
litið er til veðurkorta fyrir
Norðurland um páskana. Sólin
lætur ekki sjá sig og vart gefur
tU útivistar til fjalla,“ sagði
talsmaður Veðurstofu íslands.
í dag er lægðardrag yfir land-
inu og austan- eða norðaustanátt.
Slydda eða snjókoma verður um
allt Norðurland. Á föstudaginn
langa verður vaxandi suðaustan-
átt með rigningu og síðar slyddu.
Á laugardag verður komin hæg
norðan átt og farið að snjóa. Á
páskadagsmorgun lagast veðrið
heldur. Norðanáttin verður geng-
in niður. Áttleysa mun ríkja og
sólarlaust með öllu. ój
um. En við höfum jafnframt sagt
að það væri vonlaust mál af þeim
að ætlast til þess að fá eitthvað
umfram aðra. Pað er einfaldlega
ekki neinn sveigjanleiki til þess.
Staða mjólkuriðnaðarins í dag er
ekki nógu góð og miklar hagræð-
ingarkröfur gerðar á hann og ætl-
ast er til að á næstu 5 árum lækki
mjólkurverð til neytenda. Til
þess að svo megi verða þurfa
bændur og mjólkurbúin að ná að
hagræða. Það gengur því ekki að
byrja á að auka kostnaðinn,“
sagði Hjörtur Eiríksson. JÓH
Tilboðin voru opnuð í Húsi aldraðra í gær. Fulltrúar verktakafyrirtækjanna sem buðu í verkið fylgdust spenntir
með, enda hér um að ræða eitt stærsta verk í byggingariðnaði á Akureyri til þessa. Mynd: Goiii
Tilboð opnuð í byggingu íjölbýlishúsa fyrir aldraða við Lindasíðu á Akureyri:
Hagvirki-Klettur með lægsta tílboðið
Það var óneitanlega mikil
spenna í lofti í Húsi aldraðra á
Akureyri í gær þegar tilboð
voru opnuð í byggingu tveggja
tjölbýlishúsa fyrir aldraða við
Lindasíðu á Akureyri. í Ijós
kom þegar tilboðin voru opn-
uð að Hagvirki-Klettur í
Reykjavík var með lægsta til-
boðið, um 82% af kostnaðar-
áætlun.
Fimm tilboð bárust í verkið.
Þrjú þeirra reyndust vera frá
fyrirtækjum á Ákureyri, en tvö
frá fyrirtækjum í Reykjavík.
Kostnaðaráætlun hönnuða hús-
anna hljóðaði upp á 483.108.620
kr. og kom í ljós að þrjú tilboð-
anna voru undir þeirri tölu.
Tilboð Hagvirkis-Kletts var
398.000.000 kr, en næst lægsta til-
boðið átti SS.Byggir hf. á Akur-
eyri 456.305.653 kr. (um 94% af
kostnaðaráætlun), A. Finnsson
hf. á Akureyri bauð 476.125.610
kr. (um 98% af kostnaðarátælun),
Fjölnismenn hf. á Akureyri
484.219.627 kr. og tilboð ístaks
hf. í Reykjavík hljóðaði upp á
494.105.374 kr.
SS. Byggir hf. og A. Finnsson
hf. lögðu einnig fram frávikstil-
boð. Tilboð SS.Byggis hf. var
441.085.653 kr. en tilboð A.
Finnssonar hf. 454.625.610 kr.
Fyrirfram hafði jafnvel verið
búist við fleiri tilboðum en fimm,
en þeir sem til þekkja segja að
skýringin á svo fáum tilboðum sé
einfaldlega sú að hér sé um svo
stórt verk að ræða að ekki sé
mögulegt fyrir hvaða verktaka
sem er að bjóða í það.
Svo mikið er víst að þetta er
gríðarstórt verkefni. Um er að
ræða tvö fjölbýlishús með sam-
tals 70 íbúðum auk alls frágangs
utandyra. Fullyrða má að aldrei
hafi verið boðið út jafn stórt verk
í byggingu íbúða á Akureyri.
Búist er við að framkvæmdir
hefjist strax í næsta mánuði og er
við það miðað að fyrra húsið
verði að fullu frágengið 16 mán-
uðum eftir að framkvæmdir hefj-
ast og síðara húsið 6 mánuðum
síðar.
Að sögn Aðalsteins Óskars-
sonar, formanns Framkvæmda-
nefndar um byggingu aldraðra á
Akureyri, liggur næst fyrir að
setjast niður og yfirfara tilboðin.
Að því loknu verður ákveðið
hvaða tilboði verður tekið. Aðal-
steinn sagðist vænta þess að fljót-
lega eftir páska yrði hægt að
ganga til samninga við væntan-
legan verktaka. óþh
Akureyri:
Könimn á atvmnuhorfum skólafólks
Strax eftir páska verður gerð
könnun á meðal framhalds-
skóianema á Akureyri um
atvinnu þeirra á komandi
sumri. Með könnuninni vilja
bæjaryfirvöld á Akureyri sjá
hversu mörgum unglinguin
hafi ekki tekist að fá vinnu og í
framhaldi af því verði tekin
ákvörðun um hlut bæjarins í
atvinnu fyrir unglinga í sumar.
Heimir Ingimarsson, formaður
atvinnumálanefndar, greindi
frá þessu á bæjarstjórnarfundi
sl. þriðjudag.
Töluverð umræða varð á fund-
inum um atvinnuhorfur unglinga
á Akureyri í sumar og höfðu
bæjarfulltrúar áhyggjur af því að
þyngra yrði með atvinnu fyrir
þennan aldurshóp en oftast áður.
Hótel á Akureyri:
„Páskamir eru ekkí annatímf
- segir Aðalgeir Stefánsson, hótelstjóri Óðals
Akureyri virðist ekki hafa
sama aðdráttarafl um páskana
sem oft áður. Af viðtölum við
hótel- og ferðaskrifstofufólk er
þar um að kenna að skíða-
svæðið í Hlíðarfjalli laðar
ekki. Meginstraumur skíða-
fólks liggur til ísafjarðar.
í gær voru farnar fimm ferðir
milli Akureyrar og Reykjavíkur
og svo er einnig í dag. Þetta er
svipur hjá sjón frá því á árum
áður þegar Ákureyri var áfanga-
staður skíðavikugesta um páska.
Flugleiðir hf. höfðu sett inn þotu-
flug á skírdag til Akureyrar, en
nú er búið að strika það flug út.
Ferðaskrifstofufólk gerir sér þó
vonir um að skíðavikugestir skili
sér norður landleiðina þar sem
færð á vegum er sem á sumar-
degi. En bókanir hjá hótelum á
Akureyri benda eicki til slíks.
Hótel KEA er aðeins bókað að
hálfu og hljóðið var dapurt í
hótelstjóranum á Hótel Norður-
landi. „Hér sést vart gestur“.
Aðalgeir Stefánsson, hótel-
stjóri á Hótel Óðali við Hafnar-
stræti, segir að hjá sér sé sæmi-
lega bókað um páska, en bendir á
að reynsla undangengina ára sé
sú að pásarnir séu ekki annatímí
i hótelum Akureyrar. „Skíða-
vikugestirnir gista frekar í heima-
húsum hjá kunningjum og ætt-
ingjum og þá einnig í íbúðum er
itéttarfélögin eiga. Slíkar íbúðir
eru um áttatíu á Akureyri," sagði
Sigrún Jakobsdóttir, hótelstjóri
Hótel Norðurlands. ój
Bæjarfélagið yrði að gera allt sem
það gæti til að útvega unglingun-
um vinnu. Úlfhildur Rögnvalds-
dóttir (B) sagðist hafa af þessu
verulegar áhyggjur og vitnaði í
því sambandi til atvinnleysistalna
frá febrúar sl. þar sem fram kem-
ur að 105 yngri en 25 ára voru þá
án atvinnu. Úlfhildur sagði að
þessi tala hefði lítið breyst. Hún
lagði fram tillögu um að Vinnu-
miðlunarskrifstofunni á Akureyri
yrði falið að taka upp skráningu
allra eldri en 16 ára sem ekki
hefðu fengið vinnu. Mikilvægt
væri að skráning atvinnulausra
væri á einum stað, í stað þess að
þeir væru á skrá hjá ýmsum
stofnunum bæjarins.
Tillögu Úlfhildar var vísað til
bæjarráðs til frekari umfjöllunar.
óþh
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga:
„Þokkalegt ár hjá félagimf
„Rekstrarafkoman var viðun-
andi og segja má að síðasta ár
hafi verið þokkalegt hjá félag-
inu,“ segir Gunnar V. Sigurðs-
son, kaupfélagsstjóri Kaupfé-
lags Vestur-Húnvetninga, en
endanlegur rekstrarhagnaður
hjá félaginu á síðasta ári var 9
milljónir króna á móti 7 millj-
ónum árið á undan.
Fjármagnskostnaður Kaupfé-
lags Vestur-Húnvetninga hefur
verið jákvæður mörg undanfarin
ár og var það einnig í fyrra þó
vaxtatekjur lækkuðu frá árinu
1990. Heildarvelta kaupfélagsins
var um 996 milljónir króna árið
1991 og jókst um 5,47% milli ára,
en hlutfall eigin fjár breyttist lítið
og var 28,6% í árslok og veltu-
fjárhlutfall 1,48.
Að sögn Gunnars jókst eigið fé
um 20,8 milljónir króna, eða 8%
milli ára og var um áramótin síð-
ustu tæplega 281 milljón króna.
Gunnar segir að nánast allar
greinar kaupfélagsins hafi staðið
undir sér á síðasta ári, en lítur
ekki björtum augum til framtíð-
arinnar. Hann segir að rekstur
verslunarinnar sé farinn að verða
tæpur, sérstaklega í matvöru þar
sem álagning sé orðin mjög lítil.
Aðallega segir hann að aukinn
samdráttur í landbúnaði muni þó
koma niður á félaginu, enda eru
62% af heildarveltu kaupfélags-
ins í sláturhúsi, afurðasölu og
mjólkurstöð. SBG
Næsta blað kemur út miðvikudag-
inn 22. apríl. Frestur til að skila
auglýsingum í blaðið er til kl. 11.00
þriðjudaginn 21. apríl. Fimmtu-
daginn 23. apríl, sumardaginn
fyrsta, kemur út blað með sumar-
kveðjum og fleira efni. Skilafrest-
ur auglýsinga í það blað er til kl.
14.00 þriðjudaginn 21. apríl.