Dagur - 16.04.1992, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 16. apríl 1992
Stjörnuspá
Sigfús E. Arnþórsson
W
An ábyrgöar
íí
T
■Hpw+up
21. mars - 19. apríl
Það er mikil spenna í kringum þig í dag og á
morgun. Sleppir þú slysalaust fram á föstu-
daginn langa, siglir þú létt yfir helgina. Á
mánudag og þriðjudag ganga allir hlutir upp.
Á síðasta vetrardag lendir þú í einhverjum
ógöngum og sumardagurinn fyrsti færir þér
lítið sumar. En daginn eftir verður léttara um
að litast og uppgangurinn heldur áfram.
/\)auf
20. apríl - 20. maí
Öll sú magnaða dulúð er einkennir páska-
haldið er að öllu jöfnu langt handan við skyn-
sviö hinna jarðbundnu nauta. Það er helst
maturinn og þá páskaeggin sem höfðatil þín.
Kannski vekur verögildi fermingargjafa
áhuga þinn en að likindum leggstu bara í
rúmið af einskærum leiðindum. A mánudag-
inn fer sólin inn i nautsmerkið og þú ferð að
hressast og á sumardaginn fyrsta hleypur þú
út á tún með halann upp í loftið.
n
Tvíb uf*af*
21. maí - 20. júní
Þá er vorið á næsta leiti og heldur betur far-
ið að lifna yfir tvíburum. Til dæmis verða
dagurinn í dag og dagurinn á morgun alveg
sérlega skemmtilegir dagar. Engu vil ég lofa
en ekki kæmi mér á óvart þótt Amor væri á
sveimi í kvöld. Alténd eru líflegir hlutir að
gerast í ástamálum tvíbura. Farðu varlega
næsta mánu- og þriðjudag. Árangursríkasti
dagur næstu viku verður föstudagurinn.
K^abbi
21. júní - 22. júlí
Þaö verður einhver óþægileg spenna í loftinu í
dag og á morgun en á föstudaginn langa verð-
ur allt oröið eins og þú vilt hafa það og veröur
þannig fram á páskadagskvöld. Fjölskylduboð
eru jú þinn heimavöllur. Þú þarft að fara varlega
síöasta vetrardag og sumardaginn fyrsta. Klæddu
þig vel svo þú frjósir ekki milli sumars og vet-
urs. Þú myndir ekki nást út fyrr en fyrsta vetrardag.
l_jók\
23. júlí - 22. ágúst
Þú verður í sviðsljósinu hvar sem þú ferð í
dag og á morgun. Föstudagurinn langi, laug-
ardagur og páskadagur verða aftur á móti
erfiðari. Eitthvert miðaldamyrkur sem þú
færð ekki alveg höndlað. A mánudaginn
skín sólin að nýju og þú leikur við hvern þinn
fingur og velgengnin heldur áfram á þriðju-
daginn í breyttri mynd. Óvænt ferðalag er
fyrirsjáanlegt.
W
AÁeyja
23. ágúst - 22. september
Þú átt eflaust ótal ókláruð verkefni sem þú
ætlar að vinna í um páskana. Ég get sagt þér
það strax að svo verður ekki. Frá föstudegin-
um langa og fram á páskadagskvöld veröur þú
í lykilhlutverki í páskahátíðarhöldunum. Hrein-
leiki páskadagsins höfðar mjög sterkt til meyj-
arinnar. Á annan vaknar þú til veruleikans en
dugar ekki til. Þú færð á baukinn á þriðjudag. Á
sumardaginn fyrsta færðu að gera þaö sem þér
finnst skemmtilegast að gera í fríum: Vinna.
fyrir dagana 15. til 24. apríl
'og
23. september - 22. október
Kvöldiö í kvöld er þitt, sem og dagurinn á
morgun. Vogir eru yfirleitt ekki mjög trúhneigt
fólk, eða í það minnsta ekki mjög gefið fyrir
seremóníur, svo að föstudagurinn langi, laug-
ar- og páskadagur höfða ekki sérstaklega til
þín en líða hjá í rólegheitum. Þú ferð í gang á
annan og skemmtir þér vel aö kvöldi hans og á
þriðjudag. Eitthvað verður þú miður þín á
sumardaginn fyrsta en heppin(n) á föstudag.
%
Spopðd Peki
23. október-21. nóvember
Föstudagurinn langi, laugardagur og páska-
dagur eru dagar dauða og upprisu og höfða
því sérstaklega til sporðdrekamerkisins en líf
sporðdreka einkennist jú öðru fremur af
dauða, hreinsun og endurfæðingu á öllum
sviðum. Þetta eru þínir dagar, eilífar sálu-
messur og bænagjörðir. Síðasti vetrardagur
og sumardagurinn fyrsti veröa skemmtilegir
en föstudagurinn að þeim loknum afleitur.
13oc)VY\c\chAr-
22. nóvember - 21. desember
Dagurinn í dag, kvöldið í kvöld og dagurinn á
morgun verða að sönnu sérlega skemmti-
legir dagar en „þínir dagar“ þessa páska-
hátíð eru þó mánudagur og þriðjudagur
þegar þú verður í aöalhlutverkinu. Sumar-
dagurinn fyrsti fer framhjá þér að mestu en
föstudagurinn þar á eftir verður sérlega
skemmtilegur þegar þú lendir í aukahlutverki
í óvæntri atburðarás.
VT
5teikA0eif
22. desember- 19. janúar
Það gengur allt á afturfótunum hjá þér í dag
og morgundagurinn verður litlu skárri. Á föstu-
daginn langa snýst svo blaðið alveg við og allt
gengur eins og í sögu fram á páskadags-
kvöld. Síðasti vetrardagur og sumardagurinn
fyrsti verða svo alveg einstaklega skemmti-
legir með óvæntum ævintýrum og uppá-
komum þar sem þú verður í aðalhlutverkinu.
VaMsbePÍ
vSA
20.janúar- 18. febrúar
Hvaö svo sem þú tekur þér fyrir hendur í dag
eða á morgun mun lukkast vel. Raunar er
líklegt að þú takir þér engin ósköp fyrir
hendur en eigir þess í stað ánægjulegar
samræður við áhugavert fólk sem skila þér
tilsettum árangri. Auðvitaö fer helgihald
páskanna í taugarnar á þér, eins og raunar
allt helgihald, en á annan styttir upp og
næsta vika verður ánægjuleg með föstudag-
inn sem hápunkt.
X
Piskar
19. febrúar-20. mars
Föstudagurinn langi, laugardagur og páska-
dagur innihalda þessa passlegu blöndu af
dulúö og súkkulaði sem fiskum er svo kær.
Hvort sem þú unir þér við málshætti og
myndbönd eöa ferð á skíði á Golgata verða
þetta dýrmætir dagar. Á annan syrtir í álinn
og þriðjudagur verður erfiður. Síðasti vetrar-
dagur og sumardagurinn fyrsti verða aftur á
móti ævintýradagar.
Afmæliskveðja:
Krístjana Einarsdóttir
Ólafsfirði
Stjana amma er 90 ára í dag. Ég
hlakka til aö fara í afmælið út í
Ólafsfjörð, hitta hana, skoða
fjölskyldumyndirnar í stofunni
hennar, athuga hvort það hefur
bæst við ný mynd frá því ég var
þar síðast, fá að vita hvaða brúð-
arpar þetta er eða hver eigi þetta
nýja barn. Á þennan hátt hefur
mér tekist að fylgjast með
fjölguninni í risastóru fjölskyld-
unni sem ég á í gegnum ömmu.
Hún amma mín er líka tengsl
mín við uppruna minn. Það er
hún sem hefur sagt mér frá ætt-
ingjum í Grfmsey, úr Svarfaðar-
dal, úr Ljósavatnsskarði. Þegar
ég var lítil stelpa og hún var að
kemba hárið á mér eftir ferðir á
milli Akureyrar og Ólafsfjarðar
með gömlu Ester sagði hún mér
frá Þorgeirsbola og Bakkabræðr-
um og ég veit ekki enn hvort hún
var að stríða mér þegar hún sagði
að þetta væru frændur mínir.
Allavega sagði ég engum frá
þessum hugsanlega skyldleika.
fjallagrasasúpu, en það tókst
ekki - og ég hef ekki reynt það
síðan. Það er bara amma sem býr
til þennan mat eins og á að gera.
Amma Stjana tengist mörgum
stærstu stundum lífs míns. í þeim
minningum er hún oft í kirkju-
fötunum sínum, en það kallaði ég
peysufötin hennar. Þegar ég gifti
mig kom hún inn á Akureyri
uppábúin í peysufötum og rifjaði
upp þegar ég sem lítil stelpa var
að hjálpa henni að klæðast bún-
ingnum og þegar hún lét það eftir
mér að klæða sig upp heima í
stofu, bara fyrir mig. Ég dáði
þennan klæðnað og það urðu mér
mikil vonbrigði þegar ég svo gat
ekki klæðst honum á 1. des. há-
tíðinni í M.A. á sínum tíma.
Hann var alltof stór. En þannig
er amma Stjana, bæði í raunveru-
leikanum og í mínum minning-
um. Stórbrotin og glæsileg kona
og ég er gæfusöm að eiga hana
fyrir ömmu. Það erum við öll,
afkomendur hennar.
Til hamingju með afmælið,
amma mín.
Stefanía Traustadóttir.
Stjórn Varðar: Til hægri er Páll Erland, þá Magnús Jóhannesson, Friðrik
Arnarsson, Magnús Sæmundsson og Ólafur R. Jónsson. Fremst á myndinni
eru Einar Már Guðmundsson og Gísli Símonarson.
Páll Erland kjörrnn formaður
Aðalfundur Varðar, félags ungra
sjálfstæðismanna á Akureyri, var
haldinn fyrir nokkru og var þá
meðal annars kosin ný stjórn.
Kosningin fór þannig að Páll
Erland var kjörinn formaður,
Gísli Símonarson varaformaður,
Magnús Jóhannesson gjaldkeri,
Friðrik Arnarsson ritari, Ólafur
R. Jónsson spjaldskrárritari, Ein-
ar Már Guðmundsson með-
stjórnandi og Magnús Sæmunds-
son meðstjórnandi.
Vörður hefur starfað af krafti í
vetur og meðal annars eru haldn-
ir fundir á hverju mánudags-
kvöldi kl. 20.00 í húsnæði Sjálf-
stæðisflokksins í Kaupangi.
Allt ungt fólk sem hefur áhuga
á að kynna sér þessi mál er hvatt
til að mæta og taka þátt í áhuga-
verðu starfi.
Útflutningsverðlaim forseta íslands 1992
- afhent á sumardaginn fyrsta
Þær eru ófáar minningarnar úr
æsku sem tengjast henni og Gesti
afa og húsinu þeirra við Kirkju-
veg 6 í Ólafsfirði. Þar var mitt
annað heimili, þangað fékk ég að
fara og vera þegar mamma og
pabbi þurftu að fara burt t.d. til
Reykjavíkur í Sjómannaskólann.
Já - ég trúði að mamma væri þar
líka, og amma var ekkert að Ieið-
rétta þann misskilning. Þegar ég
kom aftur inn á Akureyri vildi ég
alltaf hræring einsog ég hafði
fengið hjá ömmu. En hann varð
aldrei eins og hann átti að vera.
Þegar ég fór sjálf að standa í
matargerð vildi ég búa til hræring
og gefa dóttur minni og hafði því
samband við ömmu. Eg fór eftir
því sem hún sagði, reyndi líka við
Á sumardaginn fyrsta, 23. aprfl
næstkomandi kl. 17.00, mun
forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, afhenda Útflutn-
ingsverðlaun forseta Islands
við hátíðlega athöfn á Bessa-
stöðum. Þetta er í fjórða sinn
sem þessi viðurkenning er veitt
en forsetaverðlaunin eru veitt í
samráði og í samvinnu við
Útflutningsráð íslands. í fyrra
hlutu Flugleiðir hf. þessi verð-
laun en einnig hafa Marel hf.
og Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna hreppt hnossið.
Útflutningsverðlaun forseta
íslands eru veitt í viðurkenning-
arskyni fyrir markvert framlag til
eflingar útflutningsverslunar og
gjaldeyrisöflunar íslensku þjóð-
arinnar. Úthlutunarreglur kveða
á um að verðlaunin skuli veitt
fyrirtækjum eða einstaklingum,
íslenskum eða erlendum, fyrir
árangursríkt starf að útflutningi
íslenskrar vöru og þjónustu til
annarra landa. Samkvæmt úthlut-
unarreglum á veiting verðlaun-
anna að taka tillit til verðmætis-
aukningar útflutnings, hlutdeild-
ar útflutnings í heildarsölu, mark-
aðssetningar á nýjum mörkuðum
og fleira.
Sérstök úthlutunarnefnd velur
árlega verðlaunahafa útflutnings-
verðlaunanna en í henni eiga sæti
Brynjólfur Sigurðsson, prófessor
í viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Islands, formaður; Ólaf-
ur B. Thors, frá Landsnefnd
Alþjóða verslunarráðsins; Ragna
Bergmann, frá Alþýðusambandi
íslands; Sveinn Björnsson, frá
embætti forseta íslands; og
Ingjaldur Hannibalsson, fram-
kvæmdastjóri Útflutningsráðs
íslands.