Dagur - 16.04.1992, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 16. apríl 1992 - DAGUR - 9
9*
, Smásagnasamkeppni Dags og MENOR:
A það tö að setjast niður og skrifa“
Höfundur sögunnar Grámann,
sem fékk verðlaun í smásagna-
samkeppni Dags og MENOR,
er Valgeir Skagfjörð. Valgeir
kom inn í menningarlífið á
Akureyri á síðasta leikári
Leikfélags Akureyrar þegar
hann lék stórt hlutverk í Ætt-
armótinu. Siðan hefur hann
látið til sín taka í leiklist og
tónlist, ekki síst með því að
semja söngleikinn Tjútt &
trega og leikstýra honum. Og
nú var komið að ritlistinni.
„Þetta er í rauninni einn kafli
úr skáldsögu sem ég byrjaði á fyr-
ir tveimur árum,“ sagði Valgeir
um verðlaunasöguna Grámann.
„Aðalpersónan í sögunni, tónlist-
arkennarinn, er í vondum
málum. Konan er búin að henda
honum út og hann rambar inn á
bar og hittir þar fyrir Grím,
æskufélaga sinn. Ég notaði þenn-
an kafla, breytti upphafinu og
lokaði sögunni. Þannig fannst
mér þetta ganga upp sem sjálf-
stæð smásaga. En það kom mér
mjög á óvart að hún skyldi vinna
til verðlauna."
- segir Valgeir Skagfjörð, sem fékk verðlaun fyrir söguna Grámann
Hann kvaðst vera mjög ánægð-
ur með að fá öll leikrit Shake-
speares á einu bretti svo og
Heimskringlu Snorra Sturluson-
ar.
„Samsamar sjálfan sig
persónunni“
Valgeir sagðist hafa grafið þessa
sögu upp, sem hann átti í tölv-
unni hjá sér, og fínpússað kafl-
ann fyrir smásagnasamkeppnina.
- Hefurðu fengist eitthvað við
að skrifa sögur?
„Já, ég hef alltaf verið að
skrifa. Eftir að ég lauk leiklistar-
námi hef ég skrifað leikrit og það
form hefur hentað mér vel en ég
fiktaði við að skrifa sögur sem
krakki. Mér finnst smásagna-
formið líka mjög skemmtilegt og
þegar eitthvað gerist í lífinu á ég
það til að setjast niður og skrifa."
- Nú er aðalpersónan í sög-
unni píanóleikari og tónlistar-
kennari. Er eitthvað af sjálfum
þér í þessari persónu?
„f>að er yfirleitt alltaf eitthvað
af sjálfum mér í þessum sögum.
Valgeir Skagfjörð.
Maður samsamar sjálfan sig per-
sónunni og hefur líka ákveðnar
fyrirmyndir að öðrum persónum.
Maður hefur hitt Grím alls
staðar, þessi persóna er á flestum
Smásagnasamkeppni Dags og MENOR:
„Sagan kom í iimblæstri“
- segir Rósa Jóhannsdóttir um viðurkenningarsögu sína
Rósa Jóhannsdóttir fékk
viðurkenningu fyrir smásögu
sína Orðin í rykinu. Dóm-
nefndin komst að þeirri niður-
stöðu að sagan væri heilsteypt,
stílhrein og Ijóðræn og vel að
viðurkenningu komin. Rósa er
til heimilis að Hleiðargarði í
Eyjafjarðarsveit en starfar fyr-
ir sunnan við rannsóknir að
Keldum. Dagur spjallaði við
Rósu og fyrsta spurningin
snerist um hver hún væri.
„Veit maður nokkuð alveg
hver maður er? Er maður ekki
alltaf að leita að sjálfum sér? Ég
varð stúdent frá Menntaskólan-
um á Akureyri 1983 og fór síðán
til Bandaríkjanna og bjó þar í
fimm ár. Ég lærði örverufræði
vestra og er að vinna við það fag
núna á Keldum. Hins vegar hefur
áhuginn snúist hundrað og átta-
tíu gráður og ég hugsa að ég fari
í eitthvert listnám frekar en að
halda áfram í líffræðinni," sagði
Rósa.
Mörkin milli Ijóðs og
sögu þurrkuð út
Systir Rósu, Dóra Bjork, tók á
móti viðurkenningu hennar í
Gamla Lundi sl. sunnudag. Það
var einmitt hún sem sendi smá-
sögu Rósu í samkeppnina, en
Orðin í rykinu er saga sem Rósa
átti í fórum sínum og hún var því
ekki samin sérstaklega fyrir
smásagnasamkeppnina.
- Þú ert greinilega ekki byrj-
andi á ritvellinum. Hefurðu sam-
ið margar sögur?
„Ég er alltaf að semja. Þetta
kemur ósjálfrátt og ég kemst eig-
inlega ekki hjá því að skrifa.
Þetta er eins og árátta. Ég fæ
hugmyndir og losna ekki við þær
fyrr en ég set þær á blað. Ég sem
aðallega ljóð, eins og sagan ber
kannski með sér. Hún er í raun-
inni ljóð, enda er oft stutt á milli
ljóðs og sögu. Ég hef mjög gam-
an af því að taka mörkin milli
sögu og ljóðs og þurrka þau út.
Þessi saga er samin þannig og
líka fleiri sögur sem ég hef samið.
Þær eru frekar stuttar og ljóðræn-
ar. Það er mjög gaman að kljást
við orðið.“
Rósa Jóhannsdóttir.
- Hefurðu tekið þátt í smá-
sagnasamkeppni áður?
„Já, ég tók þátt í henni síðast
þegar Dagur og Menningarsam-
tökin voru með samkeppni. Þá
sendi ég inn mjög vonda sögu.
Hún var alveg hörmung.“
„Orðið tók völdin“
- Hvaða gildi hefur þessi viður-
kenning fyrir þig?
„Hún er mér mikil hvatning.
Ég finn að það sem ég er að gera
er einhvers virði. Mér finnst
þetta mjög skemmtileg keppni og
vil endilega að þið haldið þessu
áfram. Eg lield að það séu
afskaplega margir að skrifa hér á
íslandi, bæði ljóð og sögur, og
svona samkeppni er þrælsniðugur
vettvangur.“
Rósa sagðist ekki hafa farið út
í útgáfu á hugverkum sfnum og
ekkert hefur birst eftir hana á
prenti nema tvö ljóð í Lesbók
Morgunblaðsins.
„Ég er komin með alveg nóg
efni í bók en ég veit ekki hvað ég
geri, enda veit ég aldrei hvað ég
ætla að gera við það sem ég
skrifa. Þetta verður bara til.“
- Hvernig varð sagan Orðin í
rykinu til?
„Ég man ekki betur en hún
hafi bara byrjað með orðinu. í
upphafi var orðið og orðið var
orð. Ég var að bögglast með þessi
orð lengi og ætlaði að gera ljóð úr
þessu en ég ræð því sjaldnast sjálf
hvað verður úr og sagan kom í
innblæstri. Orðið tók völdin, eins
og það gerir oftast. Sagan fjallar
ekki um neinn sérstakan atburð í
mínu lífi, hún er í rauninni
spunnin í kringum fáeinar setn-
ingar. Síðan hellti ég einhverjum
tilfinningum í þetta og hrærði í
og þetta var útkoman,“ sagði
Rósa. SS
börum. Reyndar má segja að
þessi hugmynd sé stolin úr Glæp
og refsingu Dostojevskís.“
- Já, Grímur minnist líka á
Glæp og refsingu. En stíllinn,
sem minnir mig dálítið á Einar
Kárason, hvaðan kemur hann?
„Ég held að hann komi úr
leikhúsinu. Þegar persónurnar
tala eru þær oft að hugsa allt ann-
að en þær segja, eins og stundum
kemur fram í undirtextum í
leikritum.“
„Hvatning til frekari
afreka“
- Hvaða skoðanir hefurðu á
bókmenntasamkeppni af þessu
tagi?
„Allar slíkar samkeppnir eru
af hinu góða og mér finnst að
leikhúsin ættu að gera meira af
þessu. Einnig væri sniðugt að
efna til samkeppni um kvik-
myndahandrit. Þetta hvetur fólk
til dáða.“
- Ertu farinn að huga eitthvað
að útgáfumálum? Verðurðu
kannski með í næsta jólabóka-
flóði?
„Ég hef verið að gæla við þessa
tilhugsun en ég er mikill áhlaupa-
maður og er mun fljótari að
skrifa leikrit. Skáldsagan vex mér
dálítið í augum. Kannski maður
dundi við skriftir í ellinni þegar
maður er búinn að kaupa sér jörð
einhvers staðar. Ég býst hins veg-
ar við að skoða aftur söguna af
tónlistarkennaranum fyrst kafli
úr henni vann til verðlauna. Ég
lít á það sem hvatningu til frekari
afreka.“
Valgeir er Reykvíkingur en
fastráðinn leikari hjá Leikfélagi
Akureyrar. Hann hefur sett mark
sitt á listalífið í bænum og nú enn
frekar með smásögu sinni.
„Ég var að velta því fyrir mér
hvort fólk væri ekki farið að
hugsa hvað þessi flatlendingur
vildi upp á dekk hérna fyrir
norðan. Hversu lengi þarf maður
að búa hér til að aðkomumanns-
stimpillinn fari af manni?“ spurði
Valgeir og þegar blaðamaður
svaraði að reynslutíminn fyrir
aðkomumenn á Akureyri væri 25
ár þá féllust honum hendur, enda
er hann aðeins búinn að vera á
Akureyri síðan haustið 1990. SS
þjónusta
í Veganesti við Hörgárbraut
Bjóðurm úr kœliborði úrval af kjötvörum, áleggsvörum,
mjólk, mjólkurvörum. Nýlenduvörur á hagkvœmu verði.
Nýtt brauð kl. 9 alla morgna.
Tilboð vikunnar — Ótrúlegt verd:
Lambahamborgarhryggur............. 832 kr.
Londonlamb........................ 987 kr.
Hangilœri úrbeinað................ 1.338 kr.
kg
kg
kg
R.C. Cola í gleri......................... 19 kr. flaskan
Nú er hagkvœmt að versla allar vörur til
heimilisins í Veganesti.
Opið virka daga frá kl. 08.00-23.30. Helgar frá kl. 09.00-04.00.
Veganesti við Hörgárbraut, sími 22880