Dagur - 19.06.1992, Page 1
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
75. árgangur
Akureyri, föstudagur 19. júní 1992
113. tölublaö
Húnavatnssýslur:
268 ökumenn teknlr
vegna hraðaksturs
Akureyri:
Piltur féll
í Glerá
Ölvun á almannafæri á þjóð-
hátíðardaginn var ekki mikil á
Akureyri að sögn lögreglu. Þó
þurfti lögreglan að hafa
afskipti af fólki.
Aðfaranótt 17. júní hýsti lög-
reglan á Akureyri tvo menn
vegna ofurölvunar. Tilkynnt var
um rúðubrot í miðbæ Akureyrar
og tveir voru teknir vegna meints
ölvunaraksturs.
„Þann 16. júní fengum við til-
kynningu um að piltur hefði fallið
í Glerá. Er lögreglan kom á stað-
in hafði pilturinn náð landi og var
á braut. Síðar kom hann á stöð-
ina til okkar og var undir áhrifum
áfengis. Hann hafði reynt að fara
yfir hitaveitustokkinn í gljúfrun-
um, en fallið í ána. Litlu munaði
að illa færi og pilturinn slapp með
skrekkinn,“ sagði talsmaður lög-
reglunnar. ój
Hvasst í dag og
kólnandi veður
Spákort Veðurstofu íslands
gerir ráð fyrir hvassri vestan-
eða suðvestanátt um allt
Norðurland í dag. Veður fer
kólnandi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu íslands má búast við
allt að níu vindstigum á Norður-
landi í dag. Hitastig fer lækkandi
þótt hlýtt verði og úrkomu verð-
ur vart á ystu nesjum. í nótt
gengur hvassviðrið niður og hita-
stig verður á bilinu 10 til 13 gráð-
ur á morgun. Á sunnudag fer enn
kólnandi og á mánudag verður
komin norðanátt með kulda og
skít. ój
af er árinu. Á sama tíma í fyrra
var talan 106.
106 á sama tíma fyrir ári
Samkvæmt upplýsingum Krist-
jáns Þorbjörnssonar, yfirlög-
regluþjóns á Blönduósi, hafa
268 ökumenn verið teknir
vegna hraðaksturs á þjóðveg-
um Húnavatnssýslna það sem
Betri vegir valda því að öku-
menn freistast til að aka mun
hraðar en góðu hófi gegnir. Pjóð-
vegur 1 um Húnavatnssýslurnar
báðar er sem hraðbraut og öku-
menn eru þungstígir á bensíngjöf
bíla sinna sem tölur sanna. Níu-
tíu og níu ökumenn voru stöðv-
aðir vegna hraðaksturs í maí er
leið og það sem af er júní er talan
komin upp í 52 ökumenn. Af
þeim 268 sem teknir hafa verið á
árinu hafa fjórir verið sviftir öku-
leyfi á staðnum. ój
Akureyringar fjölmenntu í miðbæinn á 17. júní. „Spræku pollarnir“ kiifu húsveggi til að hafa betra útsýni yfir
mannfagnaðinn. Mynd: Goiu.
Viðbrögð við tillögum Hafrannsóknastofnunar:
„Ég held að menn muní ekki
kúldrast niður í volæði“
segir bæjarstjórinn í Ólafsfirði
Bjarni Kr. Grímsson, bæjar-
stjóri í Ólafsfirði, segir að þrátt
fyrir tillögur Hafrannsókna-
stofnunar um hámarksafla á
næsta ári, þá sé engin ástæða
til óendanlegrar svartsýni og
reynslan sýni að þjóðin sýni
virkilega hvað í henni búi þeg-
ar þrengi að.
Ljóst er að um 30% skerðing
þorskafla mun hafa gríðarleg
áhrif á efnahagslífið og verulega
mun harðna á dalnum í sjávarút-
veginum, bæði í útgerð og fisk-
vinnslu. Þrengingar í sjávarút-
veginum hafa síðan keðjuverk-
andi áhrif og sveitarfélög í land-
inu munu vitaskuld verða fyrir
miklum tekjumissi. Bjarni Kr.
Grímsson segist auðvitað gera
sér grein fyrir því að þetta sé
alvarlegt högg fyrir sveitarfélögin
og ljóst sé að sveitarstjórnar-
menn verði að bregðast við
þessu. Hins vegar sé heimsendir
ekki í nánd. „Auðvitað er þetta
áfall fyrir alla þá sem tengjast
sjávarútvegi og þá er kannski erf-
itt að undanskilja marga á ís-
landi. Hins vegar hefur verið
bent á að það eru að koma upp
aðrar tegundir, sem hafa verið í
lægð. Það er líka bent á veiðar á
tegundum utan kvóta og ýmislegt
fleira. Við hljótum að reyna að
finna aðrar fisktegundir og reyna
okkar besta. Niðurstaða mín er
sú að þetta er áfall, en ekki áfall
sem ekki hefur komið á einhvern
hátt svipað áður. Menn þurfa
bara að taka á honum stóra sín-
um og takast á við vandann,“
sagði Bjarni.
Hann sagði að slíkt efnahags-
legt áfall væri ekki alslæmt fyrir
íslensku þjóðina. „íslendingar
hafa aldrei verið verri við sjálfa
sig en í góðæri, þeir hafa aldrei
kunnað að fara með góðæri. Um
leið og fer að kreppa að íslend-
ingum, þá kemur í Ijós hvað í
þeim býr. Ég held því að menn
muni ekki kúldrast niður í
volæði. Ég tel þvert á móti að
Atvinnuástandið á Norðurlandi:
294 karlar og 251 kona á
atvmnuleysisskrá í maímánuði
í maímánuði sl. voru skráðir
atvinnuleysisdagar á Norður-
landi vestra 3531 og 162 voru
skráðir atvinnulausir; 94 karlar
og 68 konur. I aprflmánuði
voru 225 á atvinnuleysisskrá í
umdæminu en í maímánuði
1991 voru atvinnuleysisdagar
285 og 13 á atvinnuleysisskrá,
3 karlar og 10 konur.
Flestir voru skráðir atvinnu-
lausir á Siglufirði eða 44, á Sauð-
árkróki voru 41, á Blönduósi 30,
á Hvammstanga 17 en annars
staðar voru færri skráningar.
Á Norðurlandi eystra voru 383
skráðir atvinnulausir í maímán-
uði, 200 karlar og 183 konur og
skráðir atvinnuleysisdagar alls
8285. í aprílmánuði sl. voru
skráðir atvinnuleysisdagar 10697
og skráðir atvinnulausir 493 en í
maímánuði 1991 voru skráðir
atvinnulausir 68 karlar og 65 kon-
ur og atvinnuleysisdagar alls
2885.
Á Akureyri voru 244 á
atvinnuleysisskrá, 98 á Húsavík,
20 á Dalvík og 8 í Ólafsfirði en
annars staðar færri, jafnvel enginn
eins og í Árskógshreppi. GG
menn muni mæta þessu með því
að rísa upp tvíefldir," sagði
Bjarni.
Magnús B. Jónsson, sveitar-
stjóri á Skagaströnd, segist efast
um að það fáist staðist að skerð-
ing á þorskkvóta niður í 150 þús-
und tonn leiði til þess að 83 missi-
atvinnuna á Skagaströnd, eins og
gert er ráð fyrir í úttekt Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga.
„Það vinna ekki nema 50 manns í
frystihúsi Hólaness,“ benti
Magnús á og sagði að ótrúlegt
væri að skerðingin myndi leiða til
þess að því yrði lokað og gott
betur. „Við höfum auðvitað
miklar áhyggjur af skerðingunni,
en við getum ekki gert okkur
nógu vel grein fyrir hvað hún
táknar fyrir sveitarfélagið,“ sagði
Magnús. óþhi
Fjögurra milljóna
króna tap á rekstri
FN á síðasta ári
- „vongóðir um að sumarið verði gott“
Rúmlega fjögurra milljóna kr.
tap varð á rekstri Flugfélags
Norðurlands á síðasta ári.
Meginskýringarnar á tapinu er
að finna í kostnaði við tvær
nýjar flugleiðir auk þess sem
leiguflug í tengslum við gullleit
á Grænlandi féll nánast fyrir-
varalanst niður og olli það
félaginu verulegu óhagræði.
Heildarvelta FN á síðasta ári
var 222.172.000 kr. en rekstrar-
tap nam 4.071.000 kr. Eigið fé
félagsins nam 88.900.000 kr í árs-
lok 1991.
Hjá félaginu störfuðu að með-
altali 28 starfsmenn á sl. ári og
námu launagreiðslur til þeirra
73,4 milljónum kr.
FN hóf á sl. ári að fljúga á
tveimur nýjum flugleiðum, milli
Húsavíkur og Reykjavíkur ann-
ars vegar og Akureyrar og Kefla-
víkur hins vegar. Slíkum nýjung-
um fylgir talsverður kostnaður
sem ekki skilar sér fyrr en að
nokkrum tíma liðnum að sögn
Sigurðar Aðalsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra FN. „Keflavík er
enn á tilraunastigi hjá okkur, vet-
urinn var keyrður með um 30%
nýtingu en við erum vongóðir um
að sumarið verði gott. Húsavík-
Reykjavík gæti líka orðið góð en
nýtingin á þeirri leið hefur verið
dræm hingað til.“
í mars átti að hefjast leiguflug í
tengslum við gullleit á Grænlandi
en það féll niður með skömmum
fyrirvara. Sigurður segir það hafa
komið sér afar illa fyrir félagið,
það hafi m.a. verið búið að neita
leigu á vél til útlanda vegna
þessa. Þetta sé úr sögunni í dag.
Sigurður segir ljóst að útkom-
an í ár verði nálægt núllinu. „Það
er ekki reiknað með rekstarhagn-
aði í ár en við reynum allt sem
við getum til að það vérði ekki
tap,“ sagði Sigurður Aðalsteins-
son. JHB