Dagur - 19.06.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 19. júní 1992
Fréttir
Landverðir í Ásbyrgi, Fjóla Þórarinsdóttir, Þorvarður Árnason, Einar Sig-
urðsson og Sigurður Jónsson.
Akureyri:
Ráðstefna
um atvinmi-
sköpun kvenna
Fjóla Þórarinsdóttir,
landvörður í Ásbyrgi:
Metsumar
í fyrra
- hvað ferðamanna-
strauminn varðar
Landverðirnir voru mættir á
stöðvar sínar í þjóðgarðinum
við Jökulsárgljúfur er blaða-
maður Dags var á ferð um
Kelduhverfi í lok síðustu viku.
Væntanlegir ferðalangar höfðu
ekki frétt með nægum fyrir-
vara hve brjáluð sumarblíða
mundi skella á norðaustan-
lands snemmsumars og var því
fátt um ferðamenn enn, þó
hafði verið gist í sex tjöldum í
Ásbyrgi um nóttina.
Fjórir landverðir eru í Ásbyrgi
og tveir í Vesturdal. í Ásbyrgi er
Fjóla Þórarinsdóttir, yfirland-
vörður, og var hún spurð um
ferðamannastrauminn og fleira:
„Ferðamannastraumurinn er
aðeins að byrja. Hér var svolítið
af fólki um hvítasunnuhelgina en
svo er rólegra núna. Útlendingar
byrja að koma strax í byrjun júní
en íslendingar koma svo frekar
þegar gott er veður og helst um
helgar."
Þetta er fjórða sumarið sem
Fjóla starfar sem landvörður og
segir hún að yfirleitt sé mjög
gaman í þessari vinnu. En er satt
að það sé alltaf sól?
„Ekki alveg alltaf, en það er
búið að vera mjög gott veður
undanfarna daga.“
- Hvaða þjónustu veitið þið
ferðafólki á staðnum?
„Við veitum upplýsingar og
skrifstofan er opin hjá okkur all-
an daginn. Fólk spyr um ástand
vega, skoðunarstaði, gönguleiðir
og ýmislegt. Um 20. júní byrjum
við að bjóða upp á gönguferðir
með leiðsögn, bæði hér í Asbyrgi
og í Vesturdal. Hér hefur ferða-
mannastraumur aukist á hverju
sumri síðustu árin og í fyrra var
metsumar. Ég hef heyrt að ekki
sé eins mikið bókað hjá ferða-
skrifstofum í sumar í ferðir fyrir
útlendinga og innlendi ferða-
mannastraumurinn fer mikið eft-
ir veðri.“
- Er eitthvað sérstakt sem þú
vildir brýna fyrir ferðafólki?
„Að ganga vel um Iandið sitt.
Annars finnst mér fólk yfirleitt
ganga vel um og að umgengni sé
alltaf að batna. Fólk þyrfti samt
að passa betur upp á einnota grill,
þau vilja skemma dálítið illa því
það kemur brunablettur undan
þeim. Það þarf að passa að hafa
undirstöður undir grillunum."
I dag hefst í Alþýðuhúsinu á
Akureyri ráðstefna um atvinnu-
sköpun kvenna. U.þ.b. hundr-
að konur frá öllum landshlut-
um munu hittast þar og ræða
framtíð atvinnusköpunar
kvenna á íslandi. Ráðstefnan
er sú fyrsta sinnar tegundar á
Islandi en henni lýkur á
morgun. í dag milli kl. 16 og 18
verður sett upp sérstakt mark-
aðstorg í Alþýðuhúsinu þar
sem þátttakendur á ráðstefn-
unni kynna vörur sínar og
þjónustu og aðgerðir sem verið
er að vinna að.
Á ráðstefnunni munu konur í
atvinnusköpun, konur sem vinna
að því að skapa sjálfum sér og
öðrum atvinnu til bæja og sveita,
koma saman til að fjalla sérstak-
lega um sín mál, framtíðarhorfur
og áform. I tilkynningu frá
aðstendendum ráðstefnunnar
segir að hún sé þó aðeins einn lið-
ur í vakningu kvenna um allt land
í þá átt að taka atvinnumálin í
sínar hendur.
Að ráðstefnunni stendur áhuga-
hópur kvenna á Norðurlandi
eystra, konur úr flestum héruð-
um umdæmisins. Jafnréttis-
nefnd Akureyrar, Iðnþróunarfé-
lag Eyjafjarðar, Byggðastofnun
og Atvinnuþróunarfélag Þingey-
inga hafa unnið að undirbúningi
en sveitárfélög á svæðinu hafa
mörg stutt myndarlega við ráð-
stefnuna auk þess sem hún nýtur
stuðnings frá félagsmálaráðu-
neytinu.
Af dagskrárþáttum má nefna
að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
Stefanía Traustadóttir, Lynn
Ludlam, atvinnurekandi í
Bandaríkjunum, og fleiri flytja
erindi. í hópum verða flutt stutt
erindi, síðan rætt og unnið að
mótun stefnu í hinum ýmsu þátt-
um er lúta að atvinnusköpun
kvenna. í dag verður svo mark-
aðstorgið fyrrnefnda og í kvöld
verður farið í Kjarnaskóg, plant-
að og slegið á létta strengi með
fleiri konum í tilefni 77 ára
afmælis kosningaréttar kvenna.
„Það sem við gerum okkur
vonir um að komi út úr þessu er
að þetta verði upplýsandi fyrir
konur sem eru að skapa sér og
öðrum atvinnu. Þetta eykur víð-
sýni og virkar hvetjandi fyrir
okkur og ekki síst konur í sveit-
um sem eru oft talsvert einangr-
aðar,“ sagði Elín Antonsdóttir
hjá Iðnþróunarfélagi Eyjafjarð-
ar. JHB
IM
Kjörmannafundur eyfirskra bænda:
Ekki vonlaust að framleiða kindakjöt til útflutnings
- segir Hákon Sigurgrímsson
Þessa dagana funda bændur
um allt land um stööu land-
búnaðarins. Á kjörmanna-
fundi Búnaöarsambands Eyja-
fjarðar sem haldinn var á
Hótel KEA á fimmtudag hafði
Hákon Sigurgrímsson fram-
kvæmdastjóri Stéttarsambands
bænda framsögu. Kjörmanna-
fundir eru liður í kosningum til
Gefla hf. á Kópaskeri
í nýtt húsnæði:
„Stöðugri vinnsla
og auldn aMst“
- segir Hómsteinn
Björnsson, stjórnarform.
Rekstur Geflu hf. rækjuverk-
smiðjunnar á Kópaskeri hefst
að nýju strax upp úr helgi í
nýuppgerðu húsi á Kópaskeri
þar sem Utnes hf. var áður
starfrækt. Húsið sem er 360
fermetrar að grunnfleti var
keypt af Fiskveiðisjóði.
„Síðastliðna þrjá mánuði hafa
breytingar og flutningur staðið
yfir og aukinn vélakostur er feng-
inn úr rækjuverksmiðju í Ólafs-
firði er þar starfaði. Nýja verk-
smiðjuhúsið verður opnað með
viðhöfn á laugardaginn. Með
bættri aðstöðu verður vinnslan
stöðugri þar sem einnig verður
hægt að vinna úr frosinni rækju.
Afköst ættu jafnframt að aukast.
Gefla hf. rækjuverksmiðja er í
eigu Jökuls hf., Öxafjarðar-
hrepps og einstaklinga á Kópa-
skeri og í nærsveitum. Fram-
kvæmdastjóri til fyrirtækisins
verður ráðinn á næstu vikum,“
sagði Hólmsteinn Björnsson,
stjórnarformaður Geflu hf. ój
trúnaðarstarfa innan félags-
kerfis landbúnaðarins og vett-
vangur umræðu um hagsmuna-
mál landbúnaðarins og kjara-
mál bænda. Kjörmannafundir
eru einnig undirbúningur að
aðalfundi Stéttarsambands
bænda sem haldinn verður í
lok ágústmánaðar. Á fundin-
um mættu 27 bændur en
nokkru fleiri áttu rétt til fund-
arsetu.
Bændur búa við mjög óvenju-
lega stöðu þessi misserin þar sem
þeir eru staddir í miðri aðlögun
búvörusamnings vegna sauðfjár-
framleiðslu og verið er að vinna
að búvörusamningi vegna mjólk-
urframleiðslu. Breytingarnar
leiða til nýs rekstrarumhverfis og
eftirleiðis verða bændur að leita
meira beint til markaðarins og
um leið hættir ríkið að bera
ábyrgð á sölu afurðanna og þar
með afkomu bænda.
Sala á kindakjöti hefur minnk-
að um 400 tonn sl. tólf mánuði og
ekkert bendir til þess að breyt-
ingar verða á því á verðlagsárinu.
Nú er sala á kindakjöti í fyrsta
skipti undir 50% af allri kjötsölu
eða 49,5%. Á sama tíma hefur
sala nautakjöts aukist um 11% en
sala svínakjöts og alifuglakjöts
hefur litlum breytingum tekið.
Sala á hrossakjöti hefur minnkað
en heildarneysla kjöts er um 62
kg á mann sem fer í gegnum sölu-
kerfið en líklega nær 70 kg ef vill-
ibráð og sala utan sölukerfis er
tekin með.
Mjólkurframleiðendur voru
árið 1980 á öllu landinu um 2300
en eru nú 1490 en innlegg hvers
bónda hefur aukist á þessum
tíma upp í 70 þúsund lítra en
ljóst er að þessari þróun er hvergi
lokið. Mjólkurneysla hefur
minnkað um 1% á ári á hvern
íbúa sl. 10 ár sem er um 12 millj-
ónir lítra og sú þróun veldur
bændum nokkrum áhyggjum.
Um gagnrýni á þunglamalegt
og mannfrekt sölukerfi landbún-
aðarins sagði Hákon: „Kerfið er
of dýrt og ekki nægilega skilvirkt
og draga þarf það saman að vissu
marki en ég vil þó benda á það að
hjá Stéttarsambandinu starfa
fjórir menn í fullu starfi og engin
breyting hefur verið á því frá því
1984 þrátt fyrir margföldun á
fjölda verkefna."
Á fundinum voru auk þess
rædd verðlags- og kjaramál land-
búnaðarins, kvótamál og ekki
síst horfur í framleiðslu og sölu-
málum. GG
ASÍ:
Hrefiiu-oghval-
veiðar hefjist
á þessu ári
Miðstjórn Alþýðusambands
íslands samþykkti í gær eftir-
farandi ályktun samhljóða.
„Fundur Miðstjórnar ASÍ
haldinn 18. júní 1992 skorar á
ríkisstjórn íslands að leyfa nú
þegar á þessu ári hrefnu- og hval-
veiðar. - Allt virðist nú stefna í
minnkandi þjóðartekjur íslend-
inga vegna samdráttar í þorsk-
veiðum á næsta ári og því óverj-
andi að nýta ekki þessar auðlind-
ir hafsins.“ ój
Tillögur Hafrannsóknastofnunar um veiði á næsta fiskveiðiári:
Ekki bara svartnætti í tölögunum
Hafrannsóknastofnun leggur
til að á næsta fiskveiðiári verði
Ieyft að veiða 190 þúsund tonn
af þorski. Gert er ráð fyrir að á
yfirstandandi ári verði þorsk-
aflinn 250 þúsund tonn. Á
árinu 1991 var þorskaflinn 313
þúsund tonn, en 335 þúsund
tonn árið 1990.
Á síðasta ári var ýsuaflinn 54
þúsund tonn. Framreikningar á
stærð ýsustofnsins bendir til þess
að veiðistofninn muni stækka
mikið strax á árinu 1993 og
hrygningarstofninn í takt við það
fram til 1995. í ljósi þess að á
árinu 1993 mun stór hluti veiði-
stofnsins verða ungur fiskur,
leggur Hafrannsóknastofnun til
að á næsta fiskveiðiári fari ýsuafl-
inn ekki yfir 60 þúsund tonn.
Hafrannsóknastofnun leggur
til að ufsaaflinn fari ekki yfir 60
þúsund tonn. Ufsaafli árið 1991
var tæplega 120 þúsund tonn, en
var um 98 þúsund tonn árið 1990.
í nýrri úttekt er veiðistofn ufsa
áætlaður um 95 þúsund tonnum
stærri í ársbyrjun 1992 en fram
kom í síðustu skýrslu Hafrann-
sóknastofnunar. Munurinn felst
samkvæmt upplýsingum stofnun-
arinnar í því að árgangarnir frá
1984-1986 er nú metnir sterkari
heldur en fyrir ári síðan. Þetta
virðist mega rekja að hluta til
ufsagangna frá Noregi.
Á næsta fiskveiðiári leggur
Hafrannsóknastofnun til að
samanlögð veiði á gull- og djúp-
karfa verði 90 þúsund tonn, sem
er svipuð tala og karfaaflinn a
undanförnum árum.
Á árinu 1991 veiddust rúmlega
40 þúsund tonn af grálúðu við
ísland. Hafrannsóknastofnun
leggur til að á næsta fiskveiðiári
verði leyft að veiða 30 þúsund
tonn af grálúðu.
Á næsta fiskveiðiári er lagt til
að steinbítsaflinn fari ekki yfir 16
þúsund tonn, en s.l. þrjú ár hefur
hann verið á bilinu 14.100 til
14.600 tonn.
Skarkolaaflinn árið 1991 var
tæp 11 þúsund tonn, en á næsta
fiskveiðiári er lagt til að leyfileg-
ur hámarksafli af skarkola verði
10 þúsund tonn.
Hvað síldina varðar leggur
Hafrannsóknastofnun til að leyft
verði að veiða 90 þúsund tonn á
næsta fiskveiðiári og 110 þúsund
tonn fiskveiðiárið 1993-1994.
Eins og þegar hefur komið
fram hefur Hafrannsóknastofnun
lagt til 500 þúsund tonna byrjun-
arloðnukvóta. Lagt er til að leyfi-
legur hámarksafli verði fyrst
ákveðinn þegar búið verður að
mæla stærð veiðistofnsins haustið
1992 og veturinn 1993.
Rækjuafli á djúpslóð jókst úr
um 25 þúsund tonnum árið 1990 í
rúm 31 þúsund tonn árið 1991.
Samkvæmt stofnmælingum er út-
hafsrækjustofninn sterkur og f
því ljósi er lagt til að leyft verði
að veiða 35 þúsund tonn af út-
hafsrækju á næsta fiskveiðiári.
óþh