Dagur - 19.06.1992, Side 4
4 - DAGUR - Föstudagur 19. júní 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200ÁMÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavíkvs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
ÓLIG. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
UÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Alþýðublaðið og
einkavæðingin
í forystugrein Alþýðublaðsins fimmtudaginn 11.
júní sl. var fjallað um eitt helsta hugðarefni blaðsins
um þessar mundir: einkavæðingu ríkisbankanna.
Alþýðublaðið hefur birt margar forystugreinar um
þetta sama mál síðustu misserin og notar raunar
minnsta tilefni sem gefst til að minna á nauðsyn
þess að einkavæða ríkisbankana án frekari tafar. Að
þessu sinni var kveikjan sá ágreiningur sem reis
fyrir skemmstu milli nýs útibússtjóra Búnaðarbank-
ans á Akureyri og nokkurra viðskiptavina bankans.
„Mál útibússtjórans á Akureyri er ágætt dæmi
um fyrirgreiðslupólitík ríkisbankanna, “ segir m.a. í
fyrrnefndri forystugrein Alþýðublaðsins. „Pólitískt
skipað bankaráð með hagsmunapólitíkusa kjör-
dæmisins að baki hvetur til fyrirgreiðslu og útlána
sem oft eru óhagstæð og eiga að fjármagna óarð-
bærar fjárfestingar. Viðskiptalegum hagsmunum er
blandað saman við pólitíska hagsmuni. það er afar
erfitt að reka slíkan banka á viðskiptalegum
grunni," segir ennfremur í forystugreininni.
Leiðarahöfundur Alþýðublaðsins kemst síðan að
þeirri niðurstöðu að „dæmið á Akureyri sýni og
sanni að löngu sé tímabært að breyta rekstrarformi
ríkisbankanna í hlutafélög eins og frumvarp við-
skiptaráðherra segir til um, sem bíður nú afgreiðslu
haustþings."
Við þessi skrif Alþýðublaðsins er margt að
athuga. Það er að vísu rétt að pólitísk hagsmuna-
gæsla og viðskiptasjónarmið fara ekki alls kostar
saman. Hins vegar má ekki gleyma því að þótt ríkis-
bankarnir yrðu seldir, er ekki þar með sagt að póli-
tísk hagsmunagæsla yrði ekki stunduð af nýjum
eigendum þeirra. Nægir að benda á vafasöm við-
skipti Eignarhaldsfélags Verslunarbankans og fyrr-
um eigenda Stöðvar tvö í því sambandi. í annan
stað er mjög langsótt að nota málefni útibús Bún-
aðarbankans á Akureyri sem röksemd fyrir einka-
væðingu ríkisbankanna. Staðreyndin er sú að Bún-
aðarbankinn er mjög vel rekinn banki, sem hefur
mörg undanfarin ár skilað eigendum sínum, ríkis-
sjóði, umtalsverðum hagnaði. Stjórnendum Búnað-
arbankans hefur með mjög góðum árangri tekist að
reka bankann á „viðskiptalegum grunni", svo not-
uð séu orð Alþýðublaðsins, og það þrátt fyrir þá
staðreynd að yfirstjórn bankans er skipuð fulltrúum
stjórnmálaflokkanna.
Leiðarahöfundur Alþýðublaðsins gleymir því að
önnur frumforsendan fyrir einkavæðingu ríkisbank-
anna er sú að hagkvæmt sé að selja þá. Svo er ekki
meðan þeir skila eigendum sínum verulegum arði.
Hin frumforsendan fyrir einkavæðingu ríkisbank-
anna er að sjálfsögðu sú að sett verði löggjöf sem
takmarkar eignaraðild einstakra aðila að bönkun-
um. Slík löggjöf er ekki til ennþá og þess vegna náði
frumvarp viðskiptaráðherra um að breyta rekstrar-
formi ríkisbankanna í hlutafélög ekki fram að ganga
á nýafstöðu þingi. BB.
Frímerki
Skráning OAT. stimpla
O.A.T.
(03) OAXt „
O.A.T
O.AX) ®
íe
OAT.
0*A.T.
17- ie
OAT
le
O.a.T
F. S.
20
ie
O-A.TjI
{O.A.X
ts.
11
O.A.T.
21
22
A T
/ \ 1
ÍS> £»„ a
12
1) Þessi stimpill er þekktur á
pósti um London, á árunum
1940-1947. Hann er sporöskju-
lagaður með einföldum ramma
og ferningslaga punktum á eftir
stöfunum. Ýmsir litir bleks hafa
verið notaðir, eins og svart, rautt
og lillað. Þverskurður rammans
er u.þ.b. 50x32 mm og stafanna
42x11 mm. Upphaflega var álitið
að þessi stimpill hefði verið not-
aður í Shannon á Foynes Air-
port, þar sem fyrstu bréfin sem
fundust með honum komu
þaðan. Þessi sögn hefir fyrir
löngu verið leiðrétt, en ástæða er
til að ítreka þetta.
2) notaður í London frá 1942-
1946. Sama gerð og stimpillinn
hér að framan og þekktur með
sömu bleklitum. Er líður á not-
kunina skemmist stimpiilinn.
Hægri leggur A skemmist, eins
og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Stærð rammans er hér 53x35mm
og letursins 41xllmm.
3) Notaður í London a.m.k. frá
1944-1946. Sama gerð og stimpl-
arnir hér að framan, 1-2. Sömu
litir á bleki og letur allt feitara en
í fyrri stimplum, sérstaklega
þverstrik á T. Stærð rammans er
56x35 mm og letursins 43x12
mm.
4) Notaður í London 1944-1945.
Sama gerð og 3, en mun stærri.
Bleklitir þeir sömu og áður.
Þverstrik T skásett og hærri
hægra megin. Stærð ramma
62x40 mm og leturs 49xl4mm.
5) Notaður í London 1944-1947.
Sama gerð og stimplarnir hér á
undan og sömu litir á bleki, nema
ef til vill sterkari. Stærðir á
stimpli eru 65x42 mm, en á letri
51x14 mm.
6) Notaður í London á árinu
1945. Þetta er síðasti Lundúnar-
stimpillinn af þessari sporöskju-
löguðu gerð, með aðeins bók-
stöfunum O.A.T. í. Er hann svo
illa farinn að grunnurinn kemur
fram í stimpluninni ofan og neð-
an við letrið. Þá er skorið utanaf
leggjum A, eins og í stimpli
No.5. Hér vaknar raunar sú
spurning: Hversu mikið af þessu
eru sérstakir stimplar og hversu
mikið af No. 1-6 eru sömu stimpl-
arnir, misjafnlega illa farnir?
Stærð ramma er 65x45 mm og let-
urs 55x15 mm.
7) Notaður í London 1945-1954.
Mjög illa farinn stimpill með
ferhyrntum ramma, aðeins
þekktur í ljósrauðum lit. Stærð
ramma er u.þ.b. 58x40 mm en
leturs 50x16 mm. Eintak undirrit-
aðs frá 1954 er samt nokkuð
stærra, sem öruggiega stafar af
meira sliti og því að gúmmí
stimpilsins hefir pressast út við
notkun.
8) Notaður í London 1945-1947.
Þetta er sá fyrsti af ferhyrntu
stimplunum frá London, sem til
eru í nokkuð fallegum eintökum.
Samt ber hann eins og allir ensku
stimplarnir með sér að vera gerð-
ur úr mjúku gúmmí, sem ekki
þolir mikla notkun og að standa á
stimpilpúða. Punktar í letri meira
og minna skemmdir. Þekktur í
ljósrauðum lit. Rammastærð
33x18 mm og leturstærð 27x8
mm.
9) Notaður í London á sama
tíma og No. 8 og eins að öllu
leyti, nema punktur eftir T er
mun stærri og skemmdur.
10) Notaður í London á sama
tíma og stimplarnir No. 8 og No.
9 enda eins og þeir að flestu leyti,
nema hvað punktar á eftir letri
eru lítið eitt frábrugðnir.
Hér er best að setja strax fram
þá hugmynd höfundar að stimpl-
ar sem hingað til hafa verið taldir
No. VII til XII eftir skráningu D.
D. Smythe og M. Heifetz, og
skráðir hér No. 8 til 13, geta ver-
ið að miklu leyti sömu stimplarn-
ir, aðeins mismunandi slitnir.
Munar oft 2-3 mm til eða frá á
stærð þeirra, samanber númer 1-
6.
11) Notaöur í London 1945-
1946, og gæti sem best verið önn-
ur útgáfa af stimpli No. 9, sem þá
er orðinn nokkuð skemmdur,
eða hefir verið þrýst þungt á
bréfin. Þarna skal bent á punkt-
inn eftir T, til stuðnings máli
mínu. Sami litur og stærðin á
ramma er u.þ.b. 36x21 mm og á
letri 31x9 mm.
12) Notaður í London 1945-
1946. Allur grennri og minni en
fyrri stimplar, nema stimpill No.
8. Þekktur í rauðum og svörtum
lit. Stærð ramma 32x19 mm og
leturs 26x10 mm.
13) Notaður í London 1946.
Sama gerð og stimplarnir hér að
undan og sömu litir á bleki og í
No. 12. Stærð ramma 38x22 mm
og leturs 31x12 mm.
14) Notaður í Prestwick a.m.k.
frá 1941-1947, mest á færeyskan
og íslenskan póst. Línustimpill
án ramma með tígullaga punkta á
eftir letri. Þekktur í rauðum og
lilla lit af ýmsum styrkleika. Línu-
lengd 37 mm og leturhæð 10 mm.
15) Notaður í London á árunum
1948-1958. Sporöskjulaga, ein-
faldur rammi með letri í tveim
línum, O.A.T. í efri línu og F.S.
í neðri línu. Þekktur í lilluðum
lit. Rammastærð er 29x16 mm,
en leturstærð 18x10 mm.
16) Notaður í Tangier 1946-
1947. Línustimpill í lilla lit án
punkts eftir T. Línulengd 37 mm
og leturhæð 9 mm.
17) Notaður í Tangier 1944-
1957. Sporaskja með tveim línum
í ramma sem umlykur letrið.
Bleklitur lilla. Rammastærð
32x20,5 mm. Leturstærð 21x5
mm.
18) Sama stimpilgerð að því er
virðist notuð í Kaíró þann 9. 4.
1950. Svartur að lit, en eins og
Tangier stimpillinn, að öðru
leyti. Rammastærð er 29x25 mm.
Ekki er hægt að mæla leturstærð
nákvæmlega út frá þekktu bréfi.
19) Notaður í Hong Kong 1941.
Línustimpill með letri að stærð
18x7 mm. Lítið vitað um þennan
stimpil nema hvað Heifetz hefir
séð ljósrit.
20) Notaður í London 1951-
1965. Stafirnir O.A.T. og F.S. í
ferhyrntum ramma. Lillað blek
og rammastærð 26x14 mm. Let-
urstærð 18x10 mm.
21) Notaður í Amman í Jórdan-
íu, 1962. Sporöskjulaga ramrni,
sem skerst af lóðréttri línu
vinstra megin. Letrið sama og í
stimplinum á undan. Blek lilla og
rammastærð 32x20 mm. Letur-
stærðin er 20x11,5 mm.
22) Hvers konar áritanir með
bókstöfunum O.A.T. Þar má
nefna sem dæmi þá sem notuð
var í New York eftir pósthús-
bruna 1967, til að koma öllum
„First Class Mail“ í flugi áfram til
viðtakenda. Línuáritun í ljós-
rauðum daufum lit með O og A
klofið. Lengd 62 mm og hæð 21
mm.