Dagur - 19.06.1992, Side 6
6 - DAGUR - Föstudagur 19. júní 1992
Hvað er að gerast?
Leikarar í sýningunni ásamt Þórhalli Sigurðssyni, leikstjóra.
Leiklist
Kæra Jelena í
Samkomuhúsinu
um helgina
Hin geysivinsæla sýning Þjóðleik-
hússins Kæra Jelena, sem sýnd hef-
ur verið fyrir fullu húsi á Litla sviði
Þjóðleikhússins síðan í haust, verð-
ur sýnd í kvöld, annað kvöld og á
sunnudagskvöldið kl. 20.30 í Sam-
komuhúsinu á Akureyri. Fimm
leikarar taka þátt í sýningunni,
Anna Kristín Arngrímsdóttir, sem
leikur Jelenu ásamt Halldóru
Björnsdóttur, Baltasar Kormákur,
Ingvar Sigurðsson og Hilmar
Jónsson, sem leika nemendur
hennar, en þau fjögur síðasttöldu
eru meðal yngstu leikara Þjóðleik-
hússins. Leikstjóri er Þórhallur Sig-
urðsson, leikmynd og búninga gerði
Messíana Tómasdóttir en lýsingu
Ásmundur Karlsson og Björn B.
Guðmundsson.
Myndlist
Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju:
Myndlistar-
sýningu að ljúka
Á sunnudag lýkur sýningu átta
myndlistarmanna úr Reykjavík í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju,
sem kalla sig „Trójuhesturinn".
Á sýningunni eru málverk, grafík-
verk og skúlptúr, alls um 40 verk.
Myndlistarmennirnir eru Anna
Eyjólfsdóttir, Borghildur Óskars-
dóttir, Guðrún Kristjánsdóttir,
Kristinn E. Hrafnsson, Ólöf Sigurð-
ardóttir, Sigrid Viltingojer, Sigurð-
ur Örlygsson og Sólveig Eggerts-
dóttir.
Tónlist
Húsavík - Dalvík - Akureyri:
Tónleikaferð
Djassklúbbs
Egilsstaða
Djassklúbbur Egilsstaða verður í
snöggri tónleikaferð um Norðaust-
urland um helgina. í kvöld kl. 21
verða tónleikar á Hótel Húsavík, á
morgun kl. 16 verður Djassklúbbur-
inn í Sæluhúsinu á Dalvík og kl. 21
annað kvöld á Hótel KEA á Akur-
eyri.
Á tónleikunum koma fram Djass-
kórinn Arndís frá Egilsstöðum,
Garðar Halldórsson, blúsari, og
hljóðfæraleikarar úr Djasssmiðju
Austurlands. Gestir á tónleikunum
verða Viðar Alfreðsson, trompet-
leikari og Jón Páll Bjarnason, gítar-
leikari.
Tónleikaferð Djassklúbbs Egils-
staða er farin til þess að hita upp fyr-
ir hina árlegu Djasshátíð á Egils-
stöðum og kynna hana, sem er hin
fimmta í röðinni. Hátíðin hefst 25.
júní og stendur til 28. júní. Á henni
koma fram þeir listamenn, sem eru
með í tónleikaferðinni auk fjölda
annarra.
1000 andlít í
SjaUanum
Um helgina leikur hljómsveitin 1000
andlit í Sjallanum á Akureyri.
Hljómsveitin, sem er nýstofnuð, er
skipuð þeim Sigrúnu Evu Ármanns-
dóttur, sem flestir minnast úr
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva og hljómsveitinni Upplyft-
ingu, Birgi Birgissyni á hljómborð
og Tómasi Tómassyni á gítar (áður í
Rokkabillíbandi Reykjavíkur).
Fleiri hljóðfæraleikarar koma við
sögu og tvær stúlkur syngja bak-
raddir.
Hljómsveitin 1000 andlit á eitt lag
á nýútkominni safnplötu frá Stein-
um hf., en í haust er áætluð útgáfa á
stórri plötu. Hljómsveitin leikur
danstónlist, jafnt íslenska sem
erlenda í hæsta gæðaflokki.
Rúnar Þór og félagar verða í
Kjallaranum í kvöld og annað
kvöld.
Ingimar Eydal
á Hótel KEA
Hljómsveit Ingimars Eydal sér um
fjörið á Hótel KEA annað kvöld,
laugardagskvöld. Arndís djasskórinn
frá Egilsstöðum, Djasssmiðja Aust-
urlands ásamt Garðari Harðarsyni,
blúsara, Viðar Alfreðsson, trompet-
leikari og Jón Páll Bjarnason, gítar-
leikari leika léttan djass og blús fyrir
matargesti.
Tékkneskur
píanóleíkarí
með tónleika á
Húsavík
Næstkomandi sunnudag, 21. júní,
kl. 20.30 heldur tékkneski píanó-
leikarinn Pavol Kovác tónleika f
Safnahúsinu á Húsavík. Á efnis-
skránni eru sónötur eftir Mozart og
Beethoven og polkar og pólónesur
eftir Chopin, Smetana og Liszt.
Pavol Kovác nam píanóleik í
heimalandi sínu, en er nú búsettur í
Þýskalandi. Hann hefur haldið tón-
leika í yfir 30 löndum og kemur til
íslands úr tónleikaferð um Banda-
ríkin. Auk tónleikanna á Húsavík
leikur hann einnig í Listasafni Sig-
urjóns Ólafssonar þriðjudaginn 23.
júní kl. 20.30.
Bubbi með tón-
leika á Akureyri
og Blönduósi
Bubbi Morthens verður með tvenna
tónleika á Norðurlandi um og eftir
helgina. Fyrri tónleikarnir verða í
íþróttahöllinni á Akureyri nk.
sunnudag, 21. júní, kl. 20.30 og þeir
síðari í félagsheimilinu á Blönduósi
nk. mánudag. Tónleikarnir á Akur-
eyri eru skipulagðir f samvinnu við
íþróttafélagið Þór. Rétt er að taka
fram að ókeypis er á tónleikana, en
eins og fram hefur komið var fyrir
skemmstu undirritaður samningur
VISA fsland og Bubba, sem gcrir
Bubba mögulegt að halda tíu tón-
leika víðsvegar um land og bjóða
fólki á þá endurgjaldslaust.
Kvikmyndir
Borgarbíó
Myndirnar Litli Snillingurinn og
Kuffs verða sýndar kl. 21 í Borgar-
bíói um helgina, en klukkan 23
verða sýndar myndirnar Kolstakkur
og Læti í litlu Tokyo. Á barnasýn-
ingum á sunnudag kl. 15 verða sýnd-
ar Fievel Goos West og Leitin
mikla.
Fundir
Málþing um
gigtsjúkdóma
á Húsavík og
Sauðárkróki
í tilefni af norræna gigtarárinu 1992
boðar Gigtarfélag Islands til mál-
þings um gigtsjúkdóma á Norður-
landi á morgun, laugardaginn 21.
júní í Dvalarheimili aldraðra við
Sjúkrahús Skagfirðinga á Sauðár-
króki og í Safnaðarheimilinu á
Húsavík nk. sunnudag. Dagskrá
málþinganna hefst kl. 13.30 á báð-
um stöðum og eru þingslit áætluð kl.
16.30. Fyrirlesarar eru þeir sömu á
báðum stöðum og dagskráin að öllu
leyti eins.
Málþingin hefjast með setningu
Ingibjargar Sveinsdóttur, formanns
Gigtarfélagsins á Norðurlandi
eystra. Að því búnu fjallar Jón Þor-
steinsson, læknir, um slitgigt, Ingvar
Teitsson, læknir, ræðir um lang-
vinna liðagigt og Frosti Jóhannsson,
erindreki norræna gigtarársins á ís-
landi, fjallar um norræna gigtarárið.
Að loknu kaffihléi, kl. 15.20, verður
Jón Þorsteinsson með fyrirlestur um
beinþynningu og Ingvar Teitsson
ræðir um vefjagigt (fibromyalgia).
Gísli Auðunsson, læknir, verður
fundarstjóri. Málþingin eru opin öll-
um sem áhuga hafa á gigtsjúkdóm-
um. Aðgangur og veitingar ókeypis.
Atvhmumálafundur
á Stórutjömum
Næstkomandi sunnudag, 21. júní,
verður efnt til fræðslu- og upplýs-
ingafundar um atvinnumál í Stóru-
tjarnaskóla. Fundurinn hefst kl. 10
árdegis. Fyrir fundinum standa
atvinnumálanefndir Bárðdæla-,
Háls- og Ljósavatnshrepps, Búnað-
arsamband S.-Þingeyinga, Fram-
leiðnisjóður landbúnaðarins og
Samstarfsnefnd um atvinnu í sveit-
um. Á fundinum verða m.a. haldin
erindi um stofnun eigin atvinnu-
reksturs, lán og styrki frá sjóðum,
list- og minjagripi, hlunnindanýt-
ingu og fiskeldi. Skógrækt og land-
bæting verða einnig á döfinni en auk
þess verður lögð áhersla á atvinnu-
þróun f sveitum og aðgerðir til þess
að koma á nýrri atvinnusókn. Að
lokum má nefna kynningu á fram-
tíðarsýn ferðaþjónustu í sveitum.
Þátttöku ber að tilkynna til atvinnu-
málanefnda í hverjum hreppi. Rétt
er að geta þess að Framleiðnisjóður
landbúnaðarins stendur straum af
kostnaði við uppihald.
íþróttir
íþróttamót Léttis:
Deildarmót
um helgina
íþróttadeild Léttis á Akureyri
stendur fyrir deildarmóti á Breið-
holtsvelli um helgina. f dag, föstu-
daginn 19. júní, kl. 18 verður hind-
runarstökk og hlýðnikeppni, á
morgun kl. 9 verður fjórgangur full-
orðinna og síðan fjórgangur ung-
linga og fjórgangur barna. Að loknu
matarhléi verður tölt fullorðinna,
tölt unglinga, tölt barna og fimm-
gangur fullorðinna. Á sunnudag kl.
13 verða síðan úrslit og gæðinga-
skeið.
Hestaíþróttir:
Fyrsta héraðs-
mót UMSE
Fyrsta héraðsmót UMSE í hesta-
íþróttum fer fram helgina 27.-28.
júní n.k. á Flötutungum í Svarfað-
ardal. Skráningu lýkur mánudaginn
22. júní kl. 16.00.
Keppt verður í eftirtöldum grein-
um:
í flokki 13 ára og yngri: tölt og fjór-
angur.
flokki 14-16 ára: tölt og fjórgang-
ur.
í flokki fullorðinna: tölt, fjórgang-
ur, fimmgangur, gæðingaskeið,
hlýðnikeppni og hindrunarstökk.
Eins og áður sagði þarf skráning
að berast skrifstofu UMSE eða
Sportvík fyrir kl. 16.00, mánu-
daginn 22. júní, ásamt skráningar-
gjöldum. Þau eru, 250 kr. fyrir grein
í unglingaflokki og 350 fyrir grein í
fullorðinsflokki. Þátttökurétt hafa
öll aðildarfélög UMSE.
Ýmislegt
Konur í Zontaklúbbi Akureyrar
vilja vekja eftirtekt á að sunnu-
daginn 21. júní verður efnt til kaffi-
og vöfflusölu í húsi klúbbsins í Inn-
bænum. „Upplagt er fyrir Akureyr-
inga og ferðamenn er gista bæinn að
líta við um leið og söfnin í Innbæn-
um eru skoðuð.“
Framsóknarmenn
gróðursetja
að Dlugastöðum
Framsóknarmenn í Norðurlands-
kjördæmi eystra efna til gróðursetn-
ingarferðar um helgina. Farið verð-
ur að Illugastöðum í Fnjóskadal á
morgun, laugardaginn 20. júní, og
stendur gróðursetning þar yfir frá
kl. 14 til 17. Klukkan 17.30 hefst
síðan grillveisla í Vaglaskógi (Hróa-
staðanesi) fyrir þátttakendur.
Kvenréttindadagurinn:
Gleðskapur í dag
í Naustaborgum
í dag, á kvenréttindadaginn 19.
júní, kl. 19 ætla konur á Akureyri
og nágrenni að að koma saman í
Kvennalundi í Naustaborgum og
gera sér glaðan dag. Dagskráin
verður með hefðbundnu sniði,
gróðursetning, grill og fjöldasöngur,
glens og gaman.
Trjáplöntur verða seldar á staðn-
um og kostar hver planta kr. 100.
Grill og kol verða til staðar en kon-
ur þurfa sjálfar að hafa með sér
matföng. Áð sjálfsögðu er pláss á
dagskránni fyrir óvæntar uppákom-
ur og skemmtiatriði. Allar konur
eru hvattar til að koma og taka þátt
í gleðskapnum.
Ólafsfjörður:
Brottfluttir
ætia að gróður-
setja og
skemmta sér
Um helgina hyggjast brottfluttir
Ólafsfirðingar fjölmenna á æsku-
stöðvarnar og gróðursetja plöntur.
Er gert ráð fyrir mætingu við félags-
heimilið Tjamarborg kl. 10.30. Einn-
ig er áætlað að mála húsið Hólkot í
Olafsfirði að utan sem innan. Síðan
verður grillað við Tjarnarborg kl. 17
og um kvöldið verður þar dansleik-
ur. Áhugamenn hvetja alla Ólafs-
firðinga búsetta á Norðurlandi að
mæta þessa helgi í Ólafsfjörð og
taka þátt í þessu skemmtilega starfi.
Jónsmessugleði
í KA-heimilinn
Jónsmessugleði verður haldin í KA-
heimilinu á Akureyri annað kvöld,
laugardaginn 20. júní óg verður hús-
ið opnað kl. 20. Grillað verður og
farið í leiki utan dyra ef veður leyfir.
Miðaverð er kr. 1.500. Þátttaka til-
kynnist í KA-heimilið í síma 23482.
Laufás:
Lummukaffi á
suimudagiim
Sex stúlkur frá Grenivík halda með
unglingalandsliðinu í borðtennis í
æfinga- og keppnisferð til Skotlands
og Wales laugardaginn 27. júní nk.
Það er dýrt að fara í slíka ferð og
því ætla stúlkurnar að vera með
lummukaffi í Laufási á sunnudaginn
kemur frá kl. 14-18 í fjáröflunar-
skyni.
Á þriðjudagskvöld kl. 21.00 verð-
ur síðan spurningakeppni í Greni-
víkurskóla á milli starfsstétta og
rennur ágóði af aðgöngumiðasöl-
unni í ferðasjóð stúlknanna.
Zontaklúbbur Akureyrar:
Kaffi-ogvöfflusala