Dagur - 19.06.1992, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Föstudagur 19. júní 1992
Katrín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri unglingalandsmótsins, á skrífstofu sinni í Gimli. „Þetta er rosalega
skemmtilegt, draumastarf.“ Mynd: jhb
Framkvæmdastjóri unglingalandsmótsins á Dalvík:
SvoMtið álag en engu
að síður draumastarf
í sumar, nánar tiltekið 10.-12.
júlí, verður fyrsta unglinga-
landsmót UMFÍ haldið á Dal-
vík og í nágrenni. Það er
UMSE sem sér um fram-
kvæmd mótsins en sambandið
lagði fram tillögu um að slík
mót yrðu haldin og var falið að
halda eitt slíkt. Takist það vel
má allt eins búast við að ung-
lingalandsmót verði fastur lið-
ur í framtíðinni. Katrín Sigur-
jónsdóttir er framkvæmda-
stjóri unglingalandsmótsins og
útsendari Dags leit við á skrif-
stofu hennar í Gimli á dögun-
um.
„Það er í býsna mörg horn að
líta en undirbúningurinn hefur
bara gengið vel. Stærsta áhyggju-
efnið er hvort nýi íþróttavöllur-
inn verður tilbúinn en við vonum
auðvitað að svo verði. Ef ekki er
Árskógsvöllurinn varastaður fyr-
ir frjálsu íþróttirnar en þá verð-
um við að leita að nýjum stað fyr-
ir knattspyrnuna. Þetta myndi
bjargast en óneitanlega yrði það
þægilegra fyrir alla aðila ef nýi
völlurinn yrði tilbúinn,“ sagði
Katrín.
Katrín kemur upphaflega úr
Borgarfirðinum en er búin að
búa á Árskógsströnd og Dalvík
síðan 1986. Hún var í stjórn
UMSE í tvö ár og hefur starfað
töluvert fyrir Ungmennafélagið
Reyni auk þess sem hún hefur
haldið félagsmálanámskeið og
unnið að fleiri skyldum málum.
Hún hóf störf við undirbúning
landsmótsins í apríl, þá í hálfu
starfi en í fullu starfi frá byrjun
maí. „Það veitir ekki af, maður
er alveg á hvolfi þessa dagana og
verður það fram eflaust fram að
móti. Síðan verð ég í hálfu starfi
áfram út júlí. Þetta er rosalega
skemmtilegt, draumastarf. Eg
gæti vel hugsað mér að vinna við
þetta allt árið. En þetta er dálítið
mikið álag og ég gæti trúað að
taugarnar verði orðnar þandar
þegar nær dregur."
Reiknað með um 3000
manns í tengslum við mótið
Forskráningu lauk í byrjun júní
og samkvæmt henni verða þátt-
takendur tæplega 1500 talsins,
um 1250 víðs vegar að af landinu
og 200-250 frá UMSE. En það
koma fleiri á mótið en keppend-
ur, t.d. þjálfarar, fararstjórar,
foreldrar og fleiri. Katrín segist
reikna með að tvöfalda megi
þátttakendafjöldann þannig að
búast megi við um 3000 manns til
Dalvíkur í tengslum við mótið.
„Okkur finnst útlitið bara gott og
kvíðum því ekkert að taka á móti
öllum þessum fjölda. Það verður
auðvitað bara að koma í ljós
hvernig þetta gengur en fólkið
gistir í tjaldbúðum og það eru
engin augljós vandamál sem
blasa við. Við gætum lent í vand-
ræðum og þurft að koma fólkinu
einhvers staðar fyrir ef veðrið
verður leiðinlegt en maður sér
þetta alltaf fyrir sér í sól og
blíðu,“ sagði Katrín og hló.
Geysileg vinna liggur í undir-
búningi slíks móts, ekki síst þar
sem þetta er í fyrsta sinn sem
slíkt mót er haldið. „Það er ekki
hægt að fletta upp í neinum blöð-
um og sjá hvað á að gera næst.
Maður er oft að rekast á ýmislegt
sem þyrfti að vera búið að gera
en þetta hefst allt saman. Fyrir
nokkrum árum voru haldnir
Norðurlandsleikar æskunnar á
Sauðárkróki og við höfum það til
viðmiðunar og einnig Landsmót
UMFÍ sem er á margan hátt
svipað. Ég er eini launaði starfs-
maðurinn sem vinn við undirbún-
inginn en fleiri leggja hönd á
plóginn, m.a. stjórn UMSE,
stjórn unglingalandsmótsins og
svo sérstakir greinastjórar sem
sjá um að undirbúa hverja grein.
Þetta fólk vinnur gífurlega mikið
starf.“
Meira en bara íþróttamót
Katrín segir unglingalandsmótið
verða miklu meira en bara
íþróttamót, lögð sé mikil áhersla
á að gera þetta að fjölskyldu-
skemmtun. Ýmislegt er á dag-
skránni auk íþrótta, svo sem
dansleikir, leikir af ýmsu tagi,
tívolí, hestaleiga, veiðiferðir og
margt fleira. Frír aðgangur er að
keppnisstöðum fyrir foreldra og
áhorfendur.
Lokaskráningarfrestur rennur
út 1. júlí. „Ég vil endilega koma
því á framfæri til félaganna að
þau skrái ekki bara þau bestu.
Þetta er mjög almennt mót, eng-
in lágmörk, og það er um að gera
að gefa þeim tækifæri sem eiga
kannski ekki möguleika á að
komast á íslandsmót og önnur
stærri mót. Það er um að gera að
reyna að hafa gaman af þessu,“
sagði Katrín Sigurjónsdóttir.
JHB
Framkvæmdir við nvja íþróttavöliiim
- þökulagt um helgina - framkvæmdir við sundlaugin
Séð yfir íþróttavöllinn sem þökulagður verður um helgina. Alls verða lagðar þökur á 11-12000 fermetra en völlurinn sjálfur er um 8000 fermetrar.
Framkvæmdir eru nú langt
komnar við nýjan íþróttavöll á
Dalvík. Hafíst verður handa
við þökulagningu um helgina
en stefnt er að því að völlurinn
verði tilbúinn fyrir unglinga-
landsmót UMFI sem haldið
verður í júlí. Þá eru að hefjast
framkvæmdir við nýja sund-
laug fyrir ofan völlinn en þar
verður búnings- og geymslu-
aðstaða fyrir íþróttavöllinn.
Framkvæmdir við íþróttavöll-
inn hófust fyrir 4 árum en þá var
landinu bylt. Síðan lágu fram-
kvæmdir niðri þar til veturinn
1990-1991 en þá var keyrt efni í
völlinn. Sl. haust var byrjað að
vinna í áhorfendabrekkum og
þær þökulagðar að hluta og vinna
hófst síðan af fullum krafti í vor.
Lokið var við að þökuleggja
áhorfendabrekkurnar og búið er
að keyra möl í völlinn og jafna
hana út. Ofan á það kemur þunnt
sandlag sem þökurnar verða síð-
an lagðar á. Völlurinn sjálfur
verður um 8000 fermetrar en í
heild verða lagðar þökur á 11-
12000 fermetra.
Grasvöllurinn sjálfur verður
vitanlega ekki notaður í sumar en
Dalvíkingar vonast til að geta
spilað á honum að ári. Hins vegar
er keppikeflið að hafa frjáls-
íþróttaaðstöðuna tilbúna þegar
unglingalandsmótið hefst, þann
10. júlí. Lagt verður gerviefni á
atrennubrautir fyrir hástökk,