Dagur - 19.06.1992, Qupperneq 9
Föstudagur 19. júní 1992 - DAGUR - 9
Nýtt Edduhótel
á Þelamörk
6. júní sl. var opnað nýtt
Edduhótel á Norðurlandi,
nánar tiltekið á Þelamörk. A
hótelinu, sem er í um 10 km
fjarlægð frá Akureyri, eru alls
32 herbergi. Búið er að gera
gagngerar endurbætur á hús-
næði skólans sem hótelið er í,
m.a. hefur veitingasalur verið
endurnýjaður í hólf og gólf og
sett hafa verið ný rúm í öll her-
bergin. Hótelstjóri á Þelamörk
er Hafdís Ólafsdóttir en hún
hefur starfað sem hótelstjóri á
Edduhótelum og víðar um
margra ára skeið.
Auk gistingar býður Hótel
Edda upp á alhliða veitingaþjón-
ustu frá morgni til kvölds. Á
hótelinu er að finna setustofu,
sjónvarpsstofu og leikstofu fyrir
börn þar sem finna má margvís-
lega leiki, spil og föndurvörur
ásamt aðstöðu fyrir brúðu-
leikhús. Þá eru útileiktæki á
staðnum og við hótelið er úti-
sundlaug, heitur pottur og eim-
bað.
Verðlag á gistingu á Hótel
Eddu verður að teljast lágt. Nótt-
in í eins manns herbergi kostar
3.000 kr. og tveggja manna 4.000
kr. Ef börn eru með í för er hægt
að láta þau sofa á dýnum í her-
bergjunum endurgjaldslaust
þannig að 4-5 manna fjölskylda
getur fengið næturgistinguna fyr-
ir 4.000 kr. Þá munu Edduhótelin
í sumar bjóða þeim gestum sem
gista fleiri en fjórar nætur fimmtu
nóttina án endurgjalds.
í sumar eru liðin 30 ár frá því
fyrsta Edduhótelið hóf starfsemi
sína á Laugarvatni. Kveikjan að
rekstrinum varð hins vegar á
Akureyri þegar hótelstjóri Hótel
I stað hefðbundinna hlaðborða mun nýja hótelið leggja áherslu á veglegar tertur af ýmsu tagi með kaffinu í sumar
auk fjölbreyttra ísrétta. Hér standa þau Tryggvi Guðmundsson, umsjónarmaður Edduhótelanna, Hafdís Ólafsdótt-
ir, hótelstjóri, Kjartan Lárusson, framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu íslands, og Hrafnhildur Pálsdóttir, fjármála-
stjóri, við borð hlaðið sýnishornum af því sem upp á verður boðið.
KEA fékk inni fyrir hóp á heima-
vist MA. Nú eru hótelin 16 tals-
ins hringinn í kringum landið og
starfa þar um 240 manns. Reikn-
að er með að 70-80.000 gistinætur
seljist í sumar, í herbergjum og
svefnpokaplássum, en talið er að
hótelin hafi frá upphafi selt yfir
milljón gistinætur. JHB
Hótel Edda, Þelamörk.
í setustofu hótelsins.
Myndir: JHB
! v
á Dalvík langt koinnar
a að hefjast
langstökk og spjótkast en á
hlaupabrautina kemur blanda af
hrauni, leir og mold sem að
stærstum hluta kemur úr Aðal-
dalnum.
í fyrra var framkvæmt fyrir
fjóra og hálfa milljón króna og
sjö milljónir eru til ráðstöfunar í
ár. Ekki er ljóst hvað það dugar
en stefnt er að því að gera úttekt
á fjármálunum um helgina.
Framkvæmdir af þessu tagi eru
dýrar og sem dæmi má nefna að
aðeins gerviefnið á atrennubraut-
irnar kostar á aðra milljón króna.
Bylting fyrir félagið
Nú eru hafnar framkvæmdir við
bílastæði við sundlaugina og
vinna við sundlaugina sjálfa ætti
að hefjast á næstu dögum. Hún
kemur til með að standa vestan
við íþróttavöllinn og þar verður
búnings- og geymsluaðstaða fyrir
íþróttasvæðið og einnig verður
nkvæmdir eru hafnar vio bílastæði við nýju sundlaugina en fyrsta hæð sundlaugarhússins
s verður steypt upp í ár.
þar gert ráð fyrir félagsaðstöðu
fyrir Ungmennafélag Svarfdæla.
Ekki er Ijóst hvenær sundlaugin
verður tilbúin en fyrsta hæðin
verður steypt upp í sumar.
Björn Friðþjófsson, formaður
Ungmennafélags Svarfdæla, segir
að nýi íþróttavöllurinn komi til
með að breyta gríðarlega miklu
fyrir félagið. Við hlið hans stend-
ur æfingasvæði á grasi sem hefur
verið breikkað í sumar og norðan
við svæðið stendur svo malar-
völlurinn. Þá hefur félagið afnot
af keppnisvelli og æfingavelli
Ungmennafélagsins Reynis á
Árskógsströnd og þar hefur
knattspyrnulið Dalvíkinga æft og
spilað í sumar en lið Dalvíkinga
og Reynis voru sameinuð í vor.
Ef félögin verða áfram undir
sama hatti verða ekki mörg
íþróttafélög á landinu sem hafa
yfir jafngóðri aðstöðu og Dalvík-
ingar að ráða þegar nýi völlurinn
verður tilbúinn.
Sjálfboðaliðar óskast
Eins og fyrr segir verður byrjað
að þökuleggja um helgina, nánar
tiltekið á morgun. Björn Frið-
þjófsson óskar eftir sjálfboðalið-
um og segir afar mikilvægt að
sem flestir mæti. „Það hefur
gengið ágætlega að fá sjálfboða-
liða hingað til og ég vona að það
verði engin breyting á því. Við
Björn Friöþjófsson, formaður Ungmennafélags Svarfdæla. Myndir: jhb
• . . ,
erum í miklu kapphlaupi við tím-
ann og það er ljóst að það má
ekkert út af bregða til að völlur-
inn geti orðið tilbúinn 10. júlí.
Það er hins vegar mikilvægt að
það takmark náist og því vil ég
beina því til fólks að mæta og
leggja hönd á plóginn.“ JHB