Dagur - 19.06.1992, Side 11
Föstudagur 19. júní 1992 - DAGUR - 11
HÉR & ÞAR
Fæðingarlæknirinn Cliff Huxtable ...syninum Theo...
með eiginkonunni Clair...
Pættirnir um Huxtable-ijölskylduna:
Cosby kvedur sjón-
varpsfjölskyldu sína
Eftir átta ára sigurgöngu hafa
þættirnir um Huxtable-fjölskyld-
una runnið sitt skeið á enda.
Síðasti þátturinn var sýndur í
Bandaríkjunum í lok aprílmán-
aðar og megin uppistaða hans var
útskrift sonarins Theo úr háskóla
en skólagangan hafði gengið upp
og ofan, eins og aðdáendum fjöl-
skyldunnar er vel kunnugt.
Bill Cosby lét hafa eftir sér í
viðtali að hann vonaðist til að sú
rögg sem Theo tók á sig til að
ljúka háskólanáminu verði til
þess að hvetja unglingana til að
feta sömu braut.
„Þetta hafa verið góð ár með
sjónvarpsfjölskyldunni minni. Ég
vildi að endirinn yrði veglegur og
það var við hæfi að enda þetta á
útskrift Theo. Með þessu komum
við þeim skilaboðum til unga
fólksins að ef það vill komast
áfram í lífinu þá verður það að
standa sig í skólanum,“ sagði Bill
Cosby.
Ein af stærri persónum í
Cosby-þáttunum að undanförnu
hefur verið litla stúlkan Olivia og
í lokaþættinum kemst hún lokst
til foreldra sinna sem þá eru í
austurlöndum. Lisa Bonet sem
leikið hefur Denise í þáttunum
sést ekki í lokaþættinum. Cosby
rak hana á síðasta ári og hefur
ekki alltaf verið hlýtt á milli
þeirra tveggja.
Bill Cosby segist geyma
minningar um þessa þætti um
ókomna framtíð. „Ég mun sakna
sérstaklega „sjónvarpseiginkon-
unnar minnar" hennar Phyliciu
Rashad,“ viðurkennir hann.
„Við höfum átt margar stórgóðar
stundir í þessari vinnu og þessu
„hjónabandi“. Pað entist lengur
en mörg hjónabönd í raunveru-
leikanum en ég naut hverrar
mínútu af þessu hjónabandi.“
...og stjúpdóttur dóttur sinnar,
Olivíu.
„Er ég ekki
alveg
gasalega
hugguleg?“
Þessi birna sem býr í
dýragarðinum í Kolmar-
den í Svíþjóð reyndi
nýlega að halda sér til
fyrir vini sínum af gagn-
stæðu kyni með því að
troða þessu dekki um
hálsinn á sér og fá þann-
ig úrvals hálsfesti. Það
fer hins vegar engum
sögum af því hvernig til
gekk í tilhugalífinu eða
hvort þessi tilraun birn-
unnar bar tilætlaðan
árangur. Alltaf samur
við sig, kvenpeningur-
mn!
Konur eru fljótar að mæla karlmenn út
Það tekur konu ekki nema 45
sekúndur að gera það upp við sig
hvort karlmaðurinn sem stendur
fyrir framan hana er Hinn Eini
Rétti. Þetta er niðurstaða rann-
sóknar sem danskir sálfræðingar
hafa gert. Og þeir bæta því við að
ákvörðun konunnar byggist á
athugun á sex atriðum í fari karl-
mannsins.
Fyrst lítur konan í augu
mannsins, en því næst rennir hún
augunum yfir klæðaburðinn og
athugar um leið hvort hann er
með giftingarhring. Að því loknu
fær hárið þriggja sekúndna skoð-
un en augun staldra í tíu sekúnd-
ur við hendurnar.
Fimmta atriðið sem konan
skoðar eru af einhverjum ástæð-
um skórnir (munið að bursta,
félagar). Þessari skoðun lýkur
svo með fimmtán sekúndna
athugun á heildarmyndinni, þ.e.
fasi mannsins og göngulagi.
Meira þarf meðaljónan ekki til
þess að geta ákveðið hvort hún
hefur áhuga á að kynnast við-
komandi nánar.
Blóma- og
plöntusala
Laugardaginn 20. júní verðum við með
blóma- og plöntusölu í Lystigarðinum
frá kl. 10.00-14.00.
★
Ágóðanum verður varið til bættrar aðstöðu
gesta í garðinum.
Garðyrkjufélag Akureyrar.
Ólafsfirðingar!
Gróðursetningarferð
- Dansleikur
Helgina 20.-21. júní nk. veröur fariö í gróðursetning-
arferð til Ólafsfjaröar. Það hefur verið gert sl. 3 ár og
í því hefur verið góð þátttaka og mikið fjör. Gróður-
setning hefst laugardaginn 20. júní með mætingu
við Tjarnarborg kl. 10.30 og einnig er áætlað að
mála húsið Hólkot að utan sem innan. Síðan verður
grillað við Tjarnarborg kl. 17.00 og um kvöldið verður
dansleikur í Tjarnarborg.
Viljum við hvetja alla þá Ólafsfirðinga búsetta á
Norðurlandi að mæta þessa helgi í Olafsfjörðinn
og taka þátt í þessu skemmtilega starfi með
okkur.
SPORTSKÓLIKA
SUMARIÐ '92
★ Línuskautar ★ Körfubolti ★Fimleikar
★ Hokkí ★ Blak ★ Hjólreiðar
★ Sund ★ Sport-leikir ★ Borðtennis
★ Knattspyrna o.fl. o.fl.
fyrir hressa krakka á aldrinum 8-13 ára.
Fjögur vikunámskeið - hálfan daginn frá kl.
9.00-11.00 á morgnana annars vegar eða hins
vegarfrá kl. 13.00-15.30. Námskeiðsgjald er kr.
2.500.-
Skráning í KA-heimilinu
og í síma 23482.
Leiðbeinandi er
Gunnar Már Másson,
íþróttafræðinemi í VSA.