Dagur - 19.06.1992, Page 13
Föstudagur 19. júní 1992 - DAGUR - 13
Condition of mountain tracks
lokaöir allri U/
Tracks in the shaded areas are clc
for all traffic until further notice 0,
Vegir á skyggöum svœöum eru
umferö þar til annaö veröur auglýst
Kort nr. 5
Gofiö út 18. júní 1992
Natta koit varCMjr gellÐ út 23. |únl
Published June 18th, 1992
Nexi map nnli be pubHshed June 25th
Vegagerö rlkisins -‘V
Public Roads Administration gr«m númar iku ueej 9s-63i:
NáttúruverndarráB
ÁSTAND VEGA
Kór Glerárkirkju fer í dag í
tveggja vikna utanlandsferð
Kór Glcrárkirkju ásamt stjórnandanum Jóhanni Baldvinssyni.
í dag, föstudaginn 19. júní,
heldur Kór Glerárkirkju á
Akureyri í tveggja vikna ferða-
lag um meginland Evrópu.
Þetta er fyrsta utanlandsferð
kórsins og er ferðinni heitið til
Þýskalands, en einnig verður far-
ið í gegnum Lúxemborg, Frakk-
land og Holland.
Ferðin hefst á Akureyrarflug-
velli að morgni 19. júní og verður
fyrst flogið til Keflavíkur en það-
an til Lúxemborgar. Frá Lúx-
emborg verður farið með rútu til
Múnsingen, bæjar rétt sunnan
við Stuttgart. Þar verða haldnir
tónleikar seinnipart laugardags-
ins 20. júní. Á efnisskránni eru
nær eingöngu íslensk kórverk og
þjóðlagaútsetningar en að auki
eitt þjóðlag frá hverju Norður-
landanna og tvö þýsk lög. Morg-
uninn eftir, 21. júní, syngur
kórinn, ásamt kór Martinskirkj-
unnar í Múnsingen, við messu í
Martinskirkjunni, en kórinn
dvelur í Múnsingen í boði þess
kórs og gistir stærstur hluti hóps-
ins heima hjá kórfélögum.
Seinnipart sunnudagsins verð-
ur síðan lagt upp í mikið ferðalag
um Þýskaland og Frakkland.
Ekið verður að Bodensee í Suð-
ur-Þýskalandi, um Svartaskóg til
Freiburg, meðfram og yfir Rín til
Strassbourg í Frakklandi, gegn-
um Frakkland til Eifel í Þýska-
landi og að Mósel. Þar verður áð
og farið í skoðunarferðir um
Móseldalinn. Þá liggur leiðin í
Rínardalinn nálægt hinum fræga
kletti Loreley. Farið verður til
Bonn og Köln og loks til Aachen
við landamæri Hollands og Belgíu.
Á leiðinni mun kórinn syngja þar
sem því verður við komið, en í
Aachen verða síðan formlegir
tónleikar þriðjudagskvöldið 30.
júní.
Undirbúningur ferðarinnar
hefur staðið í rúmt ár og hafa
kórfélagar unnið ötullega að því
að safna fé til fararinnar. í ferð-
inni verður stærstur hluti kórsins,
eða 37 félagar, en að auki verða
makar og gestir kórfélaga með
og verða því alls 56 í ferðinni.
Stjórnandi Kórs Glerárkirkju er
Jóhann Baldvinsson, sem jafn-
framt er organisti við Glerár-
kirkju.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta,
á eftirtöldum eignum:
Húseign Léttsteypunnar hf. í
Reykjahlíðarlandi, Skútust.hr.,
þingl. eigandi Léttsteypan hf., fer
fram á eigninni sjálfri, mánudaginn
29. júní 1992, kl. 11.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Þorsteinn Hjaltason lögfr., Stein-
grímur Eiríksson hdl., Iðnjaróunar-
sjóður og innheimtumaður ríkis-
sjóðs.
Tunga, Svalb.str.hreppi, þingl. eig-
andi Ester Laxdal, fer fram á eign-
inni sjálfri, föstudaginn 26. júní
1992, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtumaður ríkissjóðs, Inn-
heimtustofnun sveitarfélaga, Ólafur
B. Árnason hrl., Stofnlánadeild
landbúnaðarins og Bæjarfógetinn á
Akureyri.
Bæjarfógeti Húsavíkur.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu.
Hann sat flötum beinum í göngugötunni framan við pósthúsið og seldi alls
kyns skrautlega steina, bæði sagaða og slípaða og lét vel af því aðspurður um
það hvort verslunin hefði verið blómlcg. Þessi ungi kaupmaður heitir Geir
Sigurðsson og steinasafnið fékk liann eftir afa sinn, Þórð. Mynd: GG
^^"""‘‘^g!^^g^^M"'^^^*'l'^^gB!BBBggB9‘‘ll"^^^^B!^
Glæsilegt úrval
gluggatjaldaefna
Ótrúlegt verð frá kr. 280,-
Sendi í póstkröfu.
Svampur og Bóistrun,
Austursíða 2 (Sjafnarhúsinu), sími 25137.
Aðalfundur
Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga hf
verður haldinn á Hótel Húsavík 4. hæð laugardaginn
27. júní kl. 14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga hf.
KONUR - KONUR
Höldum upp á kvenréttindadaginn 19. júní
í Kvennalundi, Naustaborgum kl. 19.00.
Dagskrá:
★ Gróðursetning - plöntur seldar á staðnum.
★ Grill - það verður heitt í kolunum en þið komið
með kjötið.
★ Fjöldasöngur - glens og gaman.
Konur sýnum samstöðu og flykkjumst
í Kvennalund 7 9. júní.
Nefndin.
Takið eftir!
Islensk hjón með fjögur börn, búsett í úthverfi Wash-
ingtonborgar, óska að ráða til sín heimilishjálp.
Börnin eru 2ja(x2), 4ra og 8 ára, og er starfið einkum
fólgið í umönnun um þau yngstu sem og léttum
húsverkum, en móðirin er einnig heimavinnandi.
Allt umhverfi er mjög öruggt, mjög góð aðstaða er til
hvers kyns íþróttaiðkunar og námskeiða - menntun-
ar. Laun eru bærileg.
Æskilegt er að viðkomandi sé a.m.k. 22ja ára, hafi
bílpróf, sæmilegt vald á ensku og hafi unnið með
börnum.
Reglusemi er algert skilyrði og meðmæli nauðsyn-
leg.
Ráðningartími er frá júlílokum í u.þ.b. eitt ár.
Nánari upplýsingar veitir Kristín S. Árnadóttir í síma
22519.
Sjávarútvegsdeildin á Dalvík - V.M.A.
Framhaldsskólakennarar
Lausar eru kennarastöður veturinn 1992-93.
Kennslugreinar: Enska, danska, raungreinar og fag-
greinar stýrimanna- og fiskiðnaðarnáms.
Umsóknarfrestur er til 25. júní.
Upplýsingar gefnar í símum 96-61380, 96-61381 og
96-61162.
Skólastjóri.
Innilegar þakkir fyrir veitta samúð og hlýhug við andlát og
úttör,
DAGRÚNARJAKOBSDÓTTUR,
frá Hlíð.
Bryndís Alfreðsdóttir, Árni Sigurðsson,
Steingerður Alfreðsdóttir, Ingvar Kárason,
Guðrún Alfreðsdóttir, Arnór Friðbjörnsson,
Ásta Alfreðsdóttir, Benedikt Leósson,
Kristín Alfreðsdóttir, Guðmundur Kristinn Bjarnason,
Kristján Sigurbjarnarson, Pálína Björnsdóttir,
Áslaug Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.