Dagur - 19.06.1992, Side 15
Föstudagur 19. júní 1992 - DAGUR - 15
IÞRÓTTIR
Jón Haukur Brynjólfsson
Samskipadeildin:
Þór og Vfldngur á
Aknreyri í kvöld
KA mætir IA á Skaganum
Þór, efsta lið deildarinnar, tek-
ur á móti Víkingum, íslands-
meisturunum frá því í fyrra, í
kvöld á Akureyrarvellinum.
KA fer á Skagann og spilar við
ÍA. Norðanliðin hafa enn ekki
tapað leik og verður spennandi
að sjá hvað gerist í kvöld.
Þórsarar ætla að hafa forsölu
aðgöngumiða í Hamri í dag frá
10-20.
í kvöld fá Þórsarar Vfkinga í
heimsókn á Akureyrarvöllinn.
Þórsarar hafa enn ekki tapað
leik, unnið þrjá og gert eitt jafn-
tefli. Víkingum hefur hins vegar
vegnað frekar illa það sem af er.
Hlynur Birgisson, einn af mátt-
íþróttir
KNATTSPYRNA Föstudagur 1. deild karla: Þór-Víkingur ÍA-KA 2-deild karla: Leiftur-Fylkir 3. dcild: Völsungur-Tindastóll 4. deild C: MS-HSÞb 2. Ilokkur kvenna: kl. 20.00 kl. 20.00 kl. 20.00 kl. 20.00 ki. 20.00
KA-Þór kl. 18.00
3. flokkur karla:
Þór-Hvöt/Kormákur kl. 18.00
Laugardagur
3. deild karla:
Haukar-Magni kl. 14.00
Skallagrímur-KS kl. 14.00
Dalvík-Þróttur N. kl. 14.00
4. deild C karlu:
Hvöt-Þrymur kl. 14.00
Korm.-Ungm.f. Neisti kl: 14.00
2. flokkur karla:
Valur-Þór kl. 14.00
Selfoss-KA 16.00
Sunnudugur
2. flokkur karla:
Stjarnan-Þór 14.00
FH-KA 14.00
4. flokkur karla:
Leiftur/Dalvík-
Hvöt/Kormákur 15.30
KA-KS 15.30
5. flokkur karla:
KA-KS 14.00
Dalvík/Leiftur-Tíndastóll 14.00
Þór-Magni i i 00
3. flokkur karla:
Tindastóll-KA 20.00
Dalvík/Leiftur-Þór 20.00
KS-Völsungur 20.00
4. flokkur karla:
Völsungur-Þór 20.00
GOLF
Föstudagur
Dalvik:
RC mót, opið mót, 18 holur.
Mývatnssvcit:
Kísiliðjumótið, 36 holur án forgj. kl.
15.00
Blönduós:
Jónsmessumót.
Laugardagur
Akureyn:
Jóhannsbikar, 50 ára og eldri m/án
forgj., 18 holur.
Húsavík:
Bæjarkeppni GE/GH.
Ólafsfjörður:
Sparisjóðsmótið, 36 holur m/án forgj.
Sauðárkrókur:
K.S. mótið, 18 holur.
Skaguströnd;
Jónsmessumót, 9 holur.
Sunnudagur:
Akureyri:
LEK, Landssamband eldri kylfinga,
18. holur.
Blönduós:
Firmakeppni, m/án forgj. 18 holur.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
Blönduósi
I.augurdug og sunnudag:
Héraðsmót USAH
arstólpum Þórsliðsins, sagði að
leikurinn legðist vel í þá. „Menn
eru staðráðnir í að standa sig og
gefa toppsætið ekki eftir fyrr en í
fulla hnefana,“ sagði Hlynur.
Aðspurður hvort máli skipti að
hér eru íslandsmeistararnir á
ferð, sagði Hlynur að eflaust
gerði það það. „Hvað mig varðar
þá er undirbúningurinn fyrir leik-
ina yfirleitt sá sami. Ég er þó ekki
frá því að maður stilli sig sérstak-
lega inn á leiki gegn íslandsmeist-
urum hvers tíma. Það er alltaf
meira gaman að leggja þá að
velli,“ sagði Hlynur.
Kvennaknattspyrna:
Landsleíkur
Landslið íslands í kvenna-
knattspyrnu mætir Skotuni í
Evrópukeppni kvennalands-
liða á mánudag. Um er að
ræða seinni leik liðanna í riðl-
inum, fyrri leikurinn sem fór
fram í Skotlandi í maí, endaði
0:0. Leikurinn fer fram á
Akranesi og hefst kl. 20.00.
Liðið sem valið hefur verið er
skipað eftirtöldum leikmönn-
um:
Markverðir:
Steindóra Steinsdóttir, ÍA og Sig-
ríður Pálsdóttir, KR.
Aðrir leikmenn:
Auður Skúladóttir og Ragna Lóa
Stefánsdóttir, Stjörnunni, Arney
Magnúsdóttir, Val, Ásta B.
Gunnlaugsdóttir, Sigrún S. Ótt-
arsdóttir, og Vanda Sigurgeirs-
dóttir, UBK, Guðrún Jóna Sæm-
undsdóttir, KR, Halldóra Gylfa-
dóttir, Helena Ólafsdóttir, íris
Steinsdóttir, Jónína Víglunds-
dóttir, Karítas Jónsdóttir, Sigur-
lína Jónsdóttir og Magnea Guð-
laugsdóttir, allar frá ÍA.
KA menn fara upp á Skaga í
kvöld og má búast við hörkuleik.
Þeir eru, líkt og Þórsarar, tap-
lausir í deildinni, en hafa gert
jafntefli í þremur leikjum. „Eg á
von á hörkuleik á Skaganum,"
sagði Steingrímur Birgisson,
varnarjaxl hjá KA. „Við höfum
reyndar ekki sótt mjög mörg stig
til ÍA síðustu ár, ef ég man rétt,
en það er kominn tími til að
breyta því. Auðvitað má segja að
eitt stig væri viðunandi út úr
leiknum, en okkur er farið að
þyrsta í annan sigurleik eftir þrjú
jafntefli í röð,“ sagði Steingrím-
ur.
Báðir hefjast leikirnir klukkan
20 og rétt er að ítreka það að for-
sala aðgöngumiða á Ákureyrar-
völlinn verður í Hamri í dag frá
kl. 10 og fram að leik. SV
Þríþraut
á Akureyri
Þríþrautarkeppni verður hald-
in á Akureyri um helgina, s.k.
Miðnæturþríþraut. Keppnin
hefst á sunnudagskvöld kl.
22.00.
Að sögn Cees van de Ven er
keppt í ólympískum vegalengd-
um, 1500 m sundi, 40 km hjól-
reiðum og 10 km sundi. Núver-
andi íslandsmeistara í greininni,
Einar Jóhannsson er væntanleg-
ur til keppni og er reiknað með
að keppendur verði um tíu
talsins. Rétt er að vekja athygli á
því að þeir sem ekki treysta sér í
þær vegalengdir sem hér um
ræðir, geta farið helming vega-
lengdanna og látið það duga. All-
ar upplýsingar gefur Cees í síma
27541. SV
Hlynur Birgisson hefur leikið vel fyrir Þór í sumar.
Kvennaknattspyrna:
Sigur hjá KA
og Tindastóli
Tveir leikir fór fram í 2. deild
kvenna B á mánudagskvöld.
Dalvíkurstúlkur sóttu stöllur
sínar hjá KA heim og máttu
þola 4:0 tap. Staðan í leikhléi
var 1:0. Leiftur og Tindastóll
spiluðu og unnu þær síðar-
nefndu með sex mörkum gegn
tveimur
„Þetta var nú ekkert til þess að
hrópa húrra yfir,“ sagði Gunn-
laugur Björnsson, þjálfari KA.
„Það er auðvitað gott að fá stigin
en flestar léku stelpurnar undir
getu.“
Leikurinn var ójafn og fór nán-
ast allur fram á vallarhelmingi
Dalvíkinga. Helga Hannesdóttir
byrjaði á því að skora fyrir KA í
fyrri hálfleik en Ingibjörg Ólafs-
dóttir skoraði tvö og Arndís
Ólafsdóttir eitt í síðar hálfleik.
Leikur Leifturs og Tindastóls
fór 2:6. Stólarnir voru mun betri
allan leikinn og var staðan 1:3 í
leikhléi. Mörk Tindastóls skor-
uðu Inga Dóra Magnúsdóttir og
Rósa Viðarsdóttir, þrjú mörk
hvor, en mörk Leifturs skoruðu
Rósa Jónsdóttir, 1, og Díana
Guðmundsdóttir, 1.
Frjálsar íþróttir:
Akureyrarmót um aðra helgi
Akureyrarmót í frjálsum
íþróttum verður haldið laugar-
daginn 27. júní á Akureyrar-
velli. Mótið hefst kl. 12.00.
Keppt verður í eftirtöldum
greinum og flokkum:
10 ára og yngri:
60 og 600 m hlaup, boltakast og
langstökk.
11-12 ára:
60 og 800 m hlaup, kúlvarp, lang-
stökk og hástökk.
Knattspyrna 2. flokkur:
KA sigraði Val
Strákarnir í 2.
á móti Val
flokki KA tóku
Islandsmótinu í
knattspyrnu á mánudagskvöld.
KA menn voru mun sterkari í
byrjun og skoruðu tvö mörk á
fyrstu 15 mínútunum. Staðan í
hálileik var 2:1. Seinni hálfleik-
urinn var algerlega eign KA-
manna og bættu þeir tveimur
mörkum við fyrir leikslok.
Að sögn Hinriks Þórhallsson-
ar, þjálfara KA, var aldrei spurn-
ing hvort liðið færi með sigur af
hólmi. „Við slökuðum svolítið á
eftir að við komumst í 2:0, og
þeir náðu að minnka muninn rétt
fyrir leikhlé. Baráttan var svo aft-
ur í lagi í seinni hálfleik og það
var bara spurning um það hversu
stór sigurinn yrði.“
ívar Bjarklind byrjaði á því að
skora fyrir KA á 10. mínútu og
fimm mínútum síðar bætti Bjarki
Bragason öðru marki við fyrir
KA. Þórhallur Hinriksson og
Gísli Guðmundsson skoruðu síð-
an mörk KA í síðari hálfleik.
Þór átti að spila við Selfoss í
sama aldursflokki en Selfyssingar
fengu leiknum frestað til þess að
geta leikið við bæði Akureyrar-
liðin í sömu ferð. SV
55
Knattspyrna helgarinnar:
Dagskipunin er sigur
Öll norðanliðin verða á fullri
ferð í knattspyrnunni um helg-
ina. í neðri deildunum er helst
að geta leiks Leifturs og Fylkis í
2. deild í kvöld. Völsungur og
Tindastóll mætast á Húsavík í
3. deildinni og SM og HSÞb
spila í 4. deild. Á morgun spila
Dalvík-Þróttur, Haukar-
segir Marteinn Geirsson, þjálfari Leifturs
3.
og
Magni og Skallagrímur-KS í
deild og Hvöt-Þrymur
Kormákur-Neisti í 4. deild.
Stórleikur verður á Ólafsfirði í
kvöld þegar Fylkismenn sækja
Leiftursmenn heim. Að sögn
Marteins Geirssonar, þjálfara
Leifturs, gera menn sér grein fyr-
ir því að leikurinn verður rosa-
lega erfiður. „Menn er komnir
með fiðring í magann. en dag-
skipunin er sigur og ekkert
annað. Við megum ekki sleppa
þeim of langt á undan okkur,“
sagði Marteinn. Óhætt er að full-
yrða að Ólafsfirðingar láta sig
ekki vanta til þess að styðja við
bakið á sínum mönnum.
13-14 ára:
100 og 800 m hlaup, spjótkast,
kúluvarp, langstökk og hástökk.
15-16 ára:
100, 200 og 800 m hlaup,
spjótkast, kúluvarp, langstökk og
hástökk.
Konur/Karlar:
100, 200 og 800 m hlaup,
spjótkast, kúluvarp, langstökk og
hástökk.
Öllum Akureyringum er heim-
il þátttaka, þótt þeir séu ekki
skráðir félagar í Ungmannafélag-
inu. Skráning er í símum 26111
(Sigurður) milli kl. 8.00 og 11.00,
virka daga, og 27791 (Sigurður)
milli kl. 20.00 og 22.00, um
helgar. Síðast skráningardagur er
22. júní. Verðlaun verða veitt
fyrir þrjú efstu sætin.
fréttatilkynning
Kveunahlaup 1992
íþróttasamband íslands hefur
samþykkt að kvennahlaup
kuli fara fram, sem víðast á
andinu, laugardaginn 20. júnl
n.k. Á Akureyri verður hlaup-
ið I Kjarnaskógi og hefst
skráning kl. 13.30.
Markmiðið með kvennahlaup-
inu er sem fyrr að leggja áherslu
á íþróttaiðkun kvenna og holla
lífshætti sem konur fá með þátt-
töku í íþróttum.
Lifandi tónlist verður á staðn-
um auk þess sem boðið verður
upp á sameiginlega upphitun. Að
trimminu loknu verður boðið
uod á hressingu.
Ékkert aldurstakmark er í
hlaupinu og er áhersla lögð á að
hver og einn velji sér sinn eigin
hraða í göngu eða skokki. Hlaup-
ið fer fram í Kjarnaskógi og er
þátttökugjald 500 krónur.
Fréttatilkynning