Dagur - 29.07.1992, Síða 1
75. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 29. júlí 1992
141. tölublað
ÚTSALA • ÚTSALA • UTSAUA
rSALA • ÚTSALA • ÚTSALA • U
vLA • ÚTSALA • ÚTSALA • UTS
||errabödin
I I HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397
Leyft verður að veiða 205 þúsund tonn af þorski á næsta fiskveiðiári:
Höggið verði mildað með Hagræðingasjóði
- segir Sverrir Leósson, formaður Útvegsmannafélags Norðurlands og stjórnarformaður ÚA
Á næsta fiskveiðiári, sem hefst
1. september nk., verður leyft
að veiða 205 þúsund tonn af
þorski. Þetta var niðurstaða
maraþon-ríkisstjórnarfundar í
gær. Á móti kemur að leyft
verður að veiða meira af öðr-
um tegundum, en Hafrann-
sóknastofnun hafði áður gert
tillögu um, 65 þúsund tonn af
ýsu, 92 þúsund tonn af ufsa og
104 þúsund tonn af karfa.
Samkvæmt samþykkt ríkis-
stjórnarinnar verður aflaheim-
ildum Hagræðingasjóðs ekki
^ Húsbréf:
Ávöxtunar-
krafan
hækkað
Ávöxtunarkrafa húsbréfa hef-
ur farið stighækkandi að
undanförnu og hækkaði síðast
í gærmorgun í 7,45%. Síðla á
síðasta ári var ávöxtunarkrafan
komin í um 9% en í vetur
lækkaði hún jafnt og þétt og
fór lægst í 6,95% í lok apríl.
Síðan þá hefur hún farið hækk-
andi. Þetta þýðir að í dag eru
afföll af húsbréfum að nafn-
virði ein milljón króna 132.000
kr. en afföllin af sömu upphæð
voru 107.000 kr. fyrir rúmum
mánuði.
Jón Hallur Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Kaupþings Norður-
lands, sagði í gær að fyrir einum
mánuði hafi ávöxtunarkrafa
húsbréfa verið 7,15% og það sýn-
ir hve hratt ávöxtunarkrafan hef-
ur hækkað að undanförnu. „í
reynd hafa afföllin því aukist á
þessum tíma um 20 þúsund af
hverri milljón,“ sagði Jón Hallur.
Hann segir að hækkuninni
þessa dagana valdi minni eftir-
spurn eftir húsbréfum. „Stórir
kaupendur eins og lífeyrissjóðir
hafa líka haft aðra pappíra til að
kaupa. Mér finnst aukningin á
framboði húsbréfa óveruleg
þannig að það er fremur minni
eftirspurn sem ræður hækkun
ávöxtunarkröfunnar heldur en
aukið framboð bréfa,“ sagði Jón
Hallur og benti jafnframt á að
hvað varðar stóru fjárfestana á
markaðnum þá hafi síðustu til-
boð lífeyrissjóðanna í húsnæðis-
bréf Húsnæðisstofnunar gefið
tilefni til að ætla að sjóðirnir hafi
minna lausafé um þessar mundir
en oft áður. Þar geti verið komin
skýring á minni sókn þeirra í
húsbréfin.
Um framhaldið í húsbréfunum
segir Jón Hallur erfitt að spá.
Fátt bendi til að framboð hús-
bréfa aukist þar sem dregið hafi
úr viðskiptum á fasteignamarkaði
og eftirspurnin eftir bréfum komi
því til með að ráða mestu um
hvort ávöxtunarkrafan hækkar,
lækkar eða stendur í stað næstu
misseri. JÓH
beitt til jöfnunar fyrir þau
byggöarlög sem verða illa fyrir
barðinu á skertum þorskveiði-
hcimildum.
Þorsteinn Pálsson, sjávarút-
vegsráðherra, sagði að 205 þús-
und tonna þorskafli á næsta ári
hefði verið málamiðlunarniður-
staða ríkisstjórnarinnar, en áður
hafði hann lagt áherslu á að leyft
yrði að veiða 190 þúsund tonn af
Gunnar Kr. Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Handknattleiks-
sambands íslands, segir að
telja verði öruggt að einn riðill
í Heimsmeistarakeppninni í
handbolta, sem haldin verður
hér á landi vorið 1995, verði á
Akureyri. I riðlinum verða 6
lið og segir Gunnar að þetta
þýði að samtals telji keppnis-
fólk, dómarar og aðstandend-
!ur liðanna um 150 manns en
auk þess megi búast við áhang-
1 endum liðanna og blaðamönn-
um. Gunnar segir að strax og
Ólympíuleikunum á Spáni lýk-
ur verði hafíst handa á nýjan
leik við undirbúning HM 95 en
hann var í biðstöðu þar til í lok
síðustu viku þegar endanleg
staðfesting Álþjóða hand-
knattleikssambandsins á að
keppnin færi fram hérlendis lá
fyrir.
„Við munum væntanlega setja
þorski í samræmi við tillögu
Hafrannsóknastofnunar. Davíð
Oddsson, forsætisráðherra, hafði
hins vegar hallast að 220 þúsund
tonna hámarksafla af þorski og
undir það sjónarmið tóku margir
af þingmönnum beggja stjórnar-
flokka. En málamiðlunin varð
sem sagt 205 þúsund tonn. Þor-
steinn Pálsson sagðist í gær telja
að þrátt fyrir að leyft yrði að
veiða 15 þúsund tonnum meira af
okkur fljótlega í samband við
félögin fyrir norðan og óska
aðstoðar frá þeim við undirbún-
ing en væntanlega munum við
einnig hafa samband við bæjaryf-
irvöld enda er þetta mikið mál
fyrir bæjarfélagið. Við viljum
þess vegna vinna þetta í sem
bestu samráði við bæjaryfirvöld,“
sagði Gunnar.
Samkvæmt reglugerð á að
halda mótið á tímabilinu 15.
febrúar til 15. mars en HSÍ k.em-
ur til með að þrýsta á að mótið
verði haldið síðar á vorinu.
Hvaða riðill verður fyrir norðan,
og þá hvaða lið spila þar, kemur
ekki í ljós fyrr en vorið 1994 þeg-
ar undankeppnum verður lokið
en reglur eru þannig við niður-
röðun að sterkustu liðin dreifast
á riðlana. „Þið fáið því handbolta
í toppklassa,“ sagði Gunnar.
„Þessi keppni er kjörið tæki-
færi til kynningar á landinu og við
vorum byrjaðir að vinna með
þorski en Hafrannsóknastofnun
hefði gert tillögu um, þá væri
þetta ásættanleg niðurstaða.
Sverrir Leósson, formaður
Útvegsmannafélags Norðurlands
og stjórnarformaður Útgerðar-
félags Akureyringa, segir þetta
vissulega gífurlegt áfall fyrir bæði
útgerð og fiskvinnslu í landinu.
„Eg er út af fyrir sig ekki ósáttur
við þá ákvörðun að fara svokall-
Ferðamálaráði og svæðisbundn-
um félögum vegna kynningar-
starfs. Við höfum líka kynnt
þetta fyrir ferðaskrifstofunum og
þessi undirbúningur heldur
áfram,“ sagði Gunnar.
Ljóst er að íþróttahöllin á
Akureyri kemur til með að verða
aðal keppnisvöllurinn norðan
heiða. Einnig kemur til greina að
spila leiki í íþróttahúsi KA og
fara með einhverja leiki til Húsa-
víkur og jafnvel Ólafsfjarðar en
keppnishúsin verða ákveðin þeg-
ar sendimenn tækninefndar
Alþjóða handknattleikssam-
bandsins hafa tekiö út þau hús
sem HSÍ verður með í huga. „En
við vitum hvaða hús eru örugg-
lega í lagi,“ sagði Gunnar og
bætti við að bæði íþróttahöllin á
Akureyri og íþróttahús KA
standist allar megin kröfur og þar
verði fyrirsjáanlega ekki beðið
um nema smávægilegar lagfær-
ingar, komi á artnað borð fram
óskir í þeim dúr. JÓH
aða uppbyggingaleið. En varð-
andi Hagræðingasjóð, þá tel ég
það mjög mikilvægt að 12 þúsund
ígildistonn sjóðsins verði notuð
endurgjaldslaust til þess að milda
höggið hjá þeim sem verða fyrir
mestu skerðingunni. Skipting
þessara tonna er aðeins einn þátt-
ur sem ríkisvaldið verður að
grípa til til þess að undirstöðuat-
vinnuvegur þjóðarinnar geti
gengið,“ sagði Sverrir. óþh
Fullvinnsla sjávar-
afurða á Dalvík:
Jón Þór
ráðinn
Jón Þór Gunnarsson mun
vinna að athugun á mögu-
leikum á frekari fulivinnslu
sjávarafurða en Dalvíkur-
bær og Kaupfélag Eyfirð-
inga munu kosta sameigin-
lega þessa athugun. Jón Þór
er starfsmaður KEA og
vinnur að ýmsum verkefn-
um fyrir félagið en hann var
áður frainkvæmdastjóri K.
Jónssonar hf. á Akureyri.
Að sögn Magnúsar Gauta
Gautasonar, kaupfélagsstjóra
KEA, mun Jón Þór hefja störf
við þetta verkefni í næstu viku
en aðilar hafa gert sér vonir
um að innan næstu þriggja
mánaða liggi fyrir niðurstaða.
Að henni fenginni verður tek-
in ákvörðun um hvort ráðist
verður í byggingu verksmiðju
fyrir framleiðsluna. JÓH
Lögreglan
á Akureyri:
Eftirlit
á hálendinu
Um verslunarinannahelgina
hyggst lögreglan á Akureyri
fara til eftirlits á hálendinu
inn af Eyjafirði og reyndar
er ætlunin að fara fleiri slík-
ar eftirlitsferðir síðar í
sumar.
Um síðustu helgi fóru lög-
reglumenn á Akureyri til eftir-
lits á hálendinu inn af Eyja-
firði. Tveir lögreglumenn fóru
á jeppa lögreglunnar. Ekið var
sem leið liggur fram Eyjafjörð
og upp á Nýjabæjarfjall og
síðan ekið að Laugarfelli. Þar
var rætt við landverði og gesti.
Ólafur Ásgeirsson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn, segir að
fólk hafi látið í ljós ánægju
með að sjá lögreglumenn á
þessum slóðum og vonast hafi
verið eftir að þeir kæmu fljótt
aftur. Eftir að hafa ekið um
nálægar slóðir Laugarfells óku
lögreglumennirnir niður í
Bárðardal og til Akureyrar.
óþh
Framkvæmdir við byggingu fjölbýlishúsa fyrir aldraða við Lindasíðu á Akureyri eru í fullum gangi og þessa dagana
er verið að steypa upp veggi fyrstu hæðar húsanna. Þessi mynd var tekin á byggingarstað í gær. Mynd: Goiii
Einn riðill í HM í handbolta ‘95 verður á Akureyri:
„Þetta er mikið mál
fyrir bæjarfélagið“
- segir Gunnar Kr. Gunnarsson, framkvæmdastjóri HSÍ