Dagur - 29.07.1992, Page 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 29. júlí 1992
Fréttir
Akureyri:
Fjölbreytnin í fyrirrúmi á „Halló Akureyri“
Eins og fram hefur komið
verður efnt til hátíðar á Akur-
eyri um verslunarmannahelg-
ina sem hefur fengið nafnið
Halló Akureyri. Hátíðin er
haldin að frumkvæði Þráins
Lárussonar, veitingamanns á
Uppanum og í 1929, en fjöl-
margir aðrir hafa sameinast
um að gera hana að veruleika.
Má þar nefna bæjaryfirvöld á
Akureyri, fyrirtæki í bænum
og ymsa skemmtikrafta
tónlistarmenn.
°g
Klukkan 23 öll kvöldin verða
skemmtistaðir bæjarins opnaðir
og verður þar ýmislegt í boði. í
1929 leika hljómsveitirnar Skrið-
jöklar og Loðin rotta fyrir dansi
og verður bein útsending frá
dansleikjunum í útvarpsstöð
hátíðarinnar, FM 98,7. Ýmislegt
fleira verður um að vera í 1929 og
má þar nefna fegurðarsamkeppni
karla og blautbolskeppni meyja.
leikur hljómsveit
Valtýssonar fyrir
í Sjallanum
Geirmundar
dansi.
Að dansleikjahaldi loknu öll
kvöldin verða haldin svokölluð
„pakkhúspartý" í húsnæði vænt-
anlegrar slökkvistöðvar bæjarins
við Árstíg (norðan við Tryggva-
braut) og standa þau yfir til kl.
5.30. Að sögn forráðamanna
Halló Akureyri er tilgangurinn
með „pakkhúspartýunum“ tví-
þættur, annars vegar að gera
gestum kleift að skemmta sér og
hins vegar er talið æskilegt að
gestir safnist saman á einum stað
að dansleikjum loknum og valdi
þannig síður ónæði um bæinn.
Enn er ónefndur útimarkaður,
sem haldinn verður í Miðbænum
á laugardag. Þar munu verslunar-
eigendur og einstaklingar bjóða
vörur sínar til sölu auk þess sem
skemmtikraftar og tónlistarmenn
munu leggja sitt af mörkum til að
gera mannlífið sem blómlegast.
Að öðru leyti verður ekki skipu-
lögð dagskrá að deginum, enda
telja aðstandendur hátíðarinnar
það einn höfuðkost „hátíðar-
svæðisins" hversu mikla afþrey-
ingarmöguleika það býður upp á.
óþh
Dagskrá Halló Akureyri hefst
með formlegum hætti nk. föstu-
dag kl. 17 þegar hljómsveitin
Skriðjöklar kemur ríðandi inn
göngugötuna og heldur útihljóm-
leika á Ráðhústorgi. Samkvæmt
upplýsingum forráðamanna hátíð-
arinnar verður dagskráin með
svipuðu sniði alla þrjá dagana.
Klukkan 18 verða ókeypis kvik-
myndasýningar í 1929 og verða
sýndar myndirnar Litla hryllings-
búðin, söngleikurinn Hárið og
„Purple rain“ með poppgoðinu
Prince.
Á Ráðhústorgi hefst skemmti-
dagskrá á föstudags-, laugardags-
og sunnudagskvöld kl. 20 og
stendur til kl. 23. Meðal þess sem
þar verður í boði er hljómsveita-
og söngvarakeppni, tónleikar
með hljómsveitinni Svörtu kögg-
unum, jasstónleikar og skemmti-
atriði af ýmsu tagi.
Hápunktur hátíðarinnar verð-
ur risavaxin grillveisla á Ráðhús-
torgi á sunnudagskvöldið með
skipulagðri skemmtidagskrá.
Dagskrá annarra útíhátíða
Auk tveggja hátíða á Norður-
landi telst Degi til að séu átta
skipulagðar útihátíðir á land-
inu. í eftirfarandi samantekt er
þeim stuttlega gerð skil.
Þjóðhátíð
í Vestmannaeyjum
Að vanda verður mikið um dýrð-
ir á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
um verslunarmannahelgina. Af
þekktum hljómsveitum í Eyjum
má nefna Sálina hans Jóns míns,
Todmobile og Prestó. Fram
koma ýmsir skemmtikraftar og
brennan á Fjósakletti verður á
sínum stað og sömuleiðis brekku-
söngur Árna Johnsen. Miðaverð
á þjóðhátíð er óbreytt frá fyrra
ári, 6.500 krónur. Flugleiðir
bjóða upp á „pakka“ frá Akur-
eyri fyrir 15.790 krónur.
Eiðar
Á Eiðum stendur Ungmenna- og
íþróttasamband Austurlands
fyrir útihátíð um verslunar-
mannahelgina. Meðal hljóm-
sveita sem fram koma eru
Stjórnin, GCD og Bubbi
Morthens, Jet Black Joe, Undir
Tunglinu og Ozon frá Nes-
kaupstað. Efnt verður til söngv-
arakeppni og kraftakeppni, sem
kraftakarlinn Magnús Ver Magn-
ússon stjórnar. Miðaverð er kr.
6.000. Frá Norðurlandi eru rútu-
ferðir austur á land. Upplýsingar
um þær er að hafa á umferðar-
miðstöðvum og hjá sérleyfishöf-
um.
Galtalækur
Bindindismótið í Galtalækjar-
skógi verður á sínum stað í ár.
Hljómsveitin Sléttuúlfarnir leika
fyrir dansi á dansleikjum. Ungl-
ingahljómsveitirnar Tess, Bus-
arnir, Blint, Mozart var ýktur
spaði, Mind in Motion og Gott
stíga á stokk. Meðal skemmti-
krafta eru Ómar Ragnarsson,
Sverrir Stormsker, Bjartmar
Guðlaugsson, Raddbandið og
Sildarævintýri á Siglufirði:
SöltunarpaJlur í hjarta bæjarins
- verður e.t.v. nýttur sem bryggja við Roaldsbrakka
Nú fyrlr helgina lauk smíði
upphækkaðs síldarplans í
tilefni Sfldarævintýris á Siglu-
firði um verslunarmannahelg-
ina. Þessa dagana stendur yfir
frágangur pallsins fyrir ævin-
týrið. Að sögn Örlygs Krist-
flnnssonar, forstöðumanns
síldarminjasafnsins, verður
síldarplanið notað sem sölt-
unarpallur á komandi sfldar-
ævintýrum, verði framhald þar
á, auk þess sem pallurinn getur
nýst við hvers konar uppákom-
ur útivið. Annar möguleiki er
að pallurinn verði tekinn í
sundur og timbrið notað í
bryggjugólf fyrir framan
Roaldsbrakka.
„Pallurinn er smíðaður ofan á
steypt plan þannig að síldar-
söltunin sé hækkuð upp. Þá sjá
áhorfendur á síldarævintýri hvað
fram fer,“ sagði Örlygur Krist-
finnsson um tilgang smíðinnar.
„Söltunarpallurinn er 60 cm
hár, 18 m á lengd og 16 m að
breidd. Hann er því um 300 fer-
metrar og kostar nokkuð. Pen-
ingunum er þó ekki kastað á glæ
því þetta er mjög góður pallur í
hjarta bæjarins sem nýtist til úti-
vistar," sagði Örlygur og nefndi
sem dæmi þjóðhátíð, vinabæja-
mót og að sjálfsögðu síldarævin-
týri ef það yrði að reglulegum
viðburði.
„Pallurinn er smíðaður eins og
bryggjur voru í gamla daga nema
hvað hann er ekki í sjó,“ sagði
Örlygur og bætti við að pallurinn
yrði e.t.v. nýttur sem bryggjugólf
við Roaldsbrakka þótt ekki væri
það líklegt. „Þá myndum við
nýta bryggjugólf og bita en stöpl-
arnir yrðu auðvitað 3-4 m á hæð
eins og undir eðlilegri bryggju,"
sagði Örlygur. Örlög pallsins
verða ljós að Ioknu síldarævintýri
en það hefst nk. föstudag. GT
Háðflokkurinn. Verð aðgöngu-
miða á bindindismótið er kr.
5.000 (fyrir fullorðna), en 4.500
kr. fyrir börn 13-15 ára. Börn
yngri en 12 ára fá ókeypis inn.
Vík í Mýrdal
Fjölskylduhátíð hefur verið hald-
in í Vík í Mýrdal á undanförnum
árum og svo verður einnig í ár.
Hljómsveitin Sjöund leikur fyrir
dansi á laugardags- og sunnu-
dagskvöld. Boðið verður upp á
hjólabáta, vélsleðaferðir, söngv-
ara-, dans- og brandarakeppni
fyrir börnin, vatnsfótbolta og tor-
færusýningu Árna Kópssonar og
félaga á Höfðabrekkujökli.
Ókeypis er inn á svæðið, en gestir
greiða fyrir tjaldstæði og það sem
þeir velja af dagskránni.
Bjarkarlundur
í Bjarkarlundi verður einnig fjöl-
skylduhátíð. Hljómsveitin
Herramenn frá Sauðárkróki mun
skemmta á laugardags- og sunnu-
dagskvöld. Boðið verður upp á
fjölda skemmtiatriða og varðeld-
ur verður kveiktur. Við Bjarkar-
lund er starfrækt hesta- og báta-
leiga. Ekki verður innheimt
mótsgjald, en selt verður inn á
tjaldstæðið og að sjálfsögðu á
dansleikina.
Eyjólfsstaðir
Að Eyjólfsstöðum í Vallahreppi
verður fjölskyldumót Ungs fólks
með hlutverk um helgina. Biblíu-
fræðsla verður á morgnana en
samkomur á kvöldin. Boðið
verður upp á skemmtidagskrá og
sérdagskrá fyrir börn og ungl-
inga. Mótið verður öllum opið.
Snæfellsás
Nýaldarfólk flykkist að venju á
Snæfellsnes, nánar tiltekið að
Brekkubæ, þar sem haldið verð-
ur árlegt mannræktarmót. Að
þessu sinni verður það helgað
gleði og heilun. í boði verða
fyrirlestrar, námskeið, heilun,
söngur og tónlist. Harold
Hammond stjórnar svitahofi að
hætti Chukchansi indiána. Heið-
ursgestur verður heilunartónlist-
armeistarinn Dr. Molly Scott.
Aðgöngumiðinn að Snæfellsási
kostar kr. 4.000.
Eldborg ’92
Eldborg ’92 er íþrótta- og fjöl-
skylduhát(ð á Kaldármelum á
vegum Héraðssambands Snæ-
fells- og Hnappadalssýslu. Fram
koma hljómsveitirnar Síðan
skein sól, Júpíters, Ný dönsk,
KK-band, Lipstick Lovers og
Kolrassa krókríðandi. Ómar
Ragnarsson og Hermann Gunn-
arsson annast skemmtidagskrá.
Boðið verður m.a. upp á hæfi-
leikakeppni, aflraunasýningu og
knattspyrnukeppni stjörnuliðs
Ómars Ragnarssonar og rokk-
landsliðsins. Verð aðgöngumiða
fyrir fullorðna er 5.900 krónur,
en 12-16 ára greiða 4.900 krónur.
óþh
Dagskrá Sfldarævintýrisms um verslimarmannahelgina
Síldarævintýrið á Siglufírði
hefst á morgun, flmmtudag,
kl. 17 með myndlistarsýningu
Höllu Haraldsdóttur í Ráðhús-
inu á Siglufiröi. Annað kvöld
kl. 21 verða Fflapenslar með
kvöldskemmtun á Hótel Læk
sem þeir nefna „Enn er lundin
létt“. Á föstudag hefst síðan
síldardagskráin fyrir alvöru.
Hér á cítir verður dagskránni
gerð skil eins og hún lá fyrir í
byrjun vikunnar.
Föstudagur 31. júlí:
Kl. 16 - útiskemmtun á palii við torgið
- Hljómsveitin Miðaldamenn
- Félagar úr Leikfélagi Siglufjarðar
- Barna- og unglingahljómsveit Tónlist-
arskólans
Kl. 20.30 - á pallinum við torgið
- Setning sjóstangaveiðimóts
- SJÓSIGL
- Léttsveit Tónlistarskólans leikur.
Kl. 21 - á Drafnarplani
- Hermann og Steinar Ingi leika gamla
harmonikuslagara
Kl. 21.30
- Kveikt á bálkesti við Sunnuplan
Kl. 22 - Hótel Lækur
- Enn er lundin létt - Fílapenslar láta
gamminn geysa
Kl. 22 - á pallinum við torgið
- Hljómsveitin Max leikur fram eftir
nóttu
Kl. 23 - Alþýðuhúsið
- Karookedansleikur fyrir 16 ára og
eldri
Kl. 24 - Hótel Lækur
- Dansleikur - Miðaldamenn leika fyrir
dansi - aldurstakm. 18 ár
Laugardagur 1. ágúst:
Kl. 13 - á pallinum við torgið
- Barna- og unglingahljómsveit Tónlist-
arskólans hitar upp fyrir útiskemmtun
Kl. 13.30 - útihátíð í miðbænum
- Danshljómsveit Siglufjarðar leikur
gömul síldarlög
- Fílapenslar skemmta
- Gylfi Ægisson treður upp
- Gamlir Gautar rifja upp stemmningu
síldaráranna
- Félagar úr Leikfélagi Siglufjarðar
skemmta
- Og ýmislegt fleira
Kl. 14
- Sjóstangaveiðimenn koma í land eftir
fyrri veiðidag
Kl. 15 - við húsnæði Egilssíldar
- Matvælakynning Þormóðs ramma hf.
Kl. 15 - Drafnarplan
- Hermann og Steinar Ingi leika
Kl. 15-17 - Alþýðuhúsið
- Karookedansleikur fyrir yngstu kyn-
slóðina
Kl. 16 - Ræst í síldarsöltun á Drafnar-
plani
- Síld verður söltuð eins og í gamla daga
á Drafnarplaninu og verður Síldar-
minjasafnið að hluta til á planinu
Kl. 17.30 - pallurinn við torgið
- Tónleikar - Kvennakór Siglufjarðar
og Léttsveit Tónlistarskólans undir
stjórn Elíasar Þorvaldssonar
Kl. 22 - síldarhátíð í miðbænum
- Miðaldamenn halda uppi fjörinu
- Hver veit nema „garnlir" Gautar,
Gylfi og jafnvel fleiri taki lagið
Kl. 23 - Alþýðuhúsið
- Karookedansleikur fyrir 16 ára og
eldri
Kl. 01.00 - Hvanneyrarskál
- Flugeldum skotið upp
Sunnudagur 2. ágúst:
Kl. 11 - guðsþjónusta í Hvanneyrarskál
- Séra Bragi J. Ingibergsson messar
- Hestamenn munu fylgja presti á hest-
um sínum upp í Skál
- Eftir messu verður sagt frá helstu
kennileitum í firðinum
- Sturlaugur mun leika á nikkuna
KI. 14 - íþróttavöllurinn
- Sirkus Arena með sýningu
Kl. 14 - togarabryggja
- Tekið á móti sjóstangaveiðimönnum
- Ýmis skemmtiatriði og óvæntar uppá-
komur
KI. 15 - dorgveiðikeppni við togara-
bryggju
- Keppt í flokkum 10 ára og yngri og 10
ára og eldri
KI. 16 - á pallinum við torgið
- Verðlaunaafhending fyrir dorg-
veiðikeppni
- Heimir Sverrisson leikur nokkur létt
lög á nikkuna
- Iris Elva leikur og syngur eigin lög og
texta
- Barna- og unglingahljómsveit Tónlist-
arskólans
Kl. 17 - síldarsöltun á Drafnarplani
- Endurtekin síldarstemmning frá laug-
ardegi
- Sturlaugur verður með nikkuna
Kl. 17 - íþróttavöllur
- Sirkus Árena með sýningu
Kl. 21 - pallur í miðbæ
- Maxarar sjá um landlegustemmningu
fram eftir nóttu
KI. 23 - Hótel Lækur
- Miðaldamenn leika fyrir dansi
Kl. 23-03 - Alþýðuhúsið
- Karooke fyrir 16 ára og eldri