Dagur - 29.07.1992, Page 3
Miðvikudagur 29. júlí 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi:
Tilboði Eimskips í áburðar-
flutninga út á land tekið
- stjórnin hafnaði beiðni KEA um að fá áburðinn afhentan í Gufunesi
Austurdalur
„ í Skagafirði:
Arleg messa
í Ábæjarkirkju
Næstkomandi sunnudag, 2.
ágúst kl. 15, verður árleg
messa í Ábæjarkirkju í
Austurdal í Skagafirði. Sú
hefð hefur skapast að messa
í Ábæjarkirkju sunnudag
um verslunarmannahclgi og
er þetta eina messa ársins
þar.
Messan á sunnudaginn
verður um margt töluvert
sérstök. Minnst verður 70 ára
afmælis kirkjunnar og mun
Björn Egilsson frá Sveinsstöð-
um rekja sögu hennar og rifja
upp vígsludaginn fyrir 70
árum. Séra Ólafur Hallgríms-
son á Mælifelli predikar og
þjónar fyrir altari og organisti
verður Ánna Guðmundsdóttir
frá Egilsá.
Sr. Ólafur Hallgrímsson
sagði í samtali við Dag að
horfur væru á að barn yrði
skírt við messuna á sunnudag-
inn, sem þætti nokkrum tíð-
indum sæta. Sr. Ólafur sagði
að í fyrra heföu um lOO manns
komið til messunnar í Ábæjar-
kirkju og búast mætti ekki síð-
ur við mörgum kirkjugestum í
ár, Hann lét þess getið að veg-
urinn heim að kirkjunni væri í
óvenju góðu ásigkomulagi í
ár.
Að messu lokinni býður
Helgi Jónsson, eina sóknar-
barn Ábæjarkirkju, öllum
kirkjugestum til kaffidrykkju
á Merkigili. óþh
Kvennaathvarfið:
Þriðjungur
skjólstæðinga af
landsbyggðiimi
Um 30% kvenna sem leita
til Kvennaathvarfsins í
Reykjavtk eru búsettar utan
Stór-Reykavíkursvæðisins
en ekki liggja fyrir frekari
upplýsingar um hvaðan af
landinu þær koma. Guðrún
Sigurðardóttir, deildarstjóri
hjá Félagsmálastofnun
Akureyrar, segir alltaf
eitthvað um að konur sem
hafi orðið fyrir ofbeldi á
heimilum sínum leiti til
stofnunarinnar.
í nýlegu fréttabréfi
Soroptimistasambands íslands
er sagt frá 10 ára afmæli
Kvennaathvarfsins sem haldið
var upp á í síöasta mánuði.
Þar kemur fram að á síðasta
ári dvöldu 217 konur f athvarf-
inu um lengri eða skemmri
tíma og í síðasta mánuði
höfðu 114 konur komið í
athvarfið frá áramótum, þar af
30% utan Stór-Reykavíkur-
svæðisins. Á sama tíma höfðu
78 börn komið í athvarfið en
þau voru 116 á síðasta ári.
Guðrún Sigurðardóttir segir
alltaf eitthvað um að konur
sem hafi orðið fyrir ofbeldi á
heimilum leiti til Félagsmála-
stofnunar Akureyrar og sé
þeim stundum bent á að snúa
sér til Kvennaathvarfsins.
Ekki vildi hún þó meina að
þetta væri algengt. Hún sagð-
ist einnig hafa frétt af konum í
bænum sem hafi snúið sér
beint til Kvennaathvarfsins án
þess að leita til hjálparaðila
hér fyrst. „Það leikur enginn
vafi á að þetta vandamál er til
staðar hér í einhverjum mæli,“
sagði Guðrún. JHB
Á fundi stjórnar Áburðarverk-
smiðjunnar í fyrradag var
ákveðið að taka tilboði Eim-
skips í flutninga á áburði út á
land. Samskip gerði einnig til-
boð í flutningana en tilboð
fyrirtækisins var 30% hærra en
Eimskips. Fyrir fundinum Iá
ósk Kaupfélags Eyfirðinga um
að fá áburð fyrir félagssvæðið
afhentan í Gufunesi og ætlaði
félagið að semja sjálft um
flutninga á áburðinum norður.
Þessari ósk hafnaði stjórn
verksmiðjunnar á þeirri for-
sendu að þar með væri verið að
kljúfa frá verulegan hluta af
flutningunum og þar með væru
forsendur fyrir útboðinu
brostnar. Flutningur á áburði
er verðjafnaður og segja for-
svarsmenn verksmiðjunnar að
yrði farið að beiðni KEA yrði
áburður á öðrum svæðum dýr-
ari.
Hákon Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Áburðarverksmiðj-
unnar í Gufunesi, sagði í sam-
tali við blaðið að rætt hafi verið
við forsvarsmenn KEA og reynt
að ná niðurstöðu sem báðir geti
fallist á en hún hafi ekki fundist.
Allt stefni því í að samið verði
við Eimskip um alla flutningana
og hefjist þeir væntanlega í næsta
mánuði.
Tilkynning um niðurstöðu
fundar stjórnar Áburðarverk-
smiðjunnar barst KEA í gær.
Magnús Gauti Gautason, kaup-
félagsstjóri, segir að fram að
þessu hafi verið afar lítil álagning
á áburði en Áburðarverksmiðjan
hafi bent á að kaupfélögin út um
land hafi haft tekjur af uppskipun
á móti. Núna eigi að taka þessar
tekjur af kaupfélögunum en
verksmiðjan liafi boðist til að
bæta það tekjutap að hluta til.
„Við vorum búnir að komast að
samkomulagi við Samskip um
flutning frá Gufunesi til Akureyr-
ar og það kom hagkvæmar út
fyrir okkur en tilboð áburðar-
verksmiðjunnar. Því vildum við
fara þá leið en þeir hafa nú skrif-
að okkur og segjast ekki geta
þetta þar sem þá væru forsendur
útboðsins brostnar og þá muni
flutningskostnaður til annarra
hækka. Út af fyrir sig kann það
að vera rétt en spurningin er
hvort við eigum að gjalda þess. í
þessu tilfelli er verið að gera okk-
ur sem áburðarkaupendum þetta
heldur dýrara en eftir þeirri leið
sem við völdum,“ sagði Magnús
Gauti. JÓH
Einingabréf
Skammtímabréf
Tveir góðir kostir til að ávaxta fé
Einingabref henta þeim sem vilja ávaxta sitt fé til lengri tíma, en
vilja jafnframt geta losaö þaö með skömmum fyrirvara.
Skammtímabréf henta þeim sem eru meö laust fé í skamman
tíma, 1 -6 mánuði og þau eru einnig laus með skömmum fyrirvara.
Ávöxtun sl. 3 mánuði
Nafnvextir Raunvextir
Einingabréf 1 11,99% 7,9%
Einingabréf2 15,88% 11,6%
Einingabréf3 11,85% 7,8%
Skammtímabréf 11,59% 7,5%
Áf V l<AUPÞING___________
NÖRÐURLANDS HF
Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri, sími 96-24700, fax 96-11235.