Dagur - 29.07.1992, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 29. júlí 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25689
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Mengun og
umhverfisvemd
Um fátt er nú rætt af meiri alvöruþunga í heiminum
en spjöll á náttúrulegu umhverfi mannsins. Mengun
ógnar víða lífríki jarðar og jafnvægi lífkeðjunnar er í
alvarlegri hættu vegna mengunar frá iðnvæddum
þjóðfélögum. Þótt íslendingar geti státað af hreinna
og fegurra landi og ómengaðra andrúmslofti en flest
önnur lönd í veröldinni er hið góða ástand ekki nema
að litlu leyti sjálfum okkur að þakka. Sannleikurinn er
sá að ástæðnanna fyrir tiltölulega ómenguðu and-
rúmslofti og lítt spilltu umhverfi hér á landi er fremur
að leita í stærð landsins og fámenni þjóðarinnar en
góðri umgengni og markvissum aðgerðum í umhverf-
ismálum.
Því hefur stundum verið haldið fram að íslendingar
séu mörgum árum á eftir öðrum þjóðum í flestu því er
lítur að umhverfisvernd og má það vissulega til sanns
vegar færa. Til marks um það má nefna að það var
ekki fyrr en á síðasta kjörtímabili sem ríkisstjórn
landsins lét verða af því að stofna sérstakt ráðuneyti
umhverfismála. Það gerði hún í óþökk þáverandi
stjórnarandstöðu og hluta þjóðarinnar, sem töldu
ráðuneytið hinn mesta óþarfa sem einungis myndi
hafa í för með sér frekari sóun á almannafé. Nágranna-
þjóðirnar stigu þetta mikilvæga skref mörgum árum á
undan okkur, enda er stofnun sérstaks umhverfis-
ráðuneytis staðfesting þess að viðkomandi þjóð
hyggist taka verndun umhverfisins fastari tökum en
áður.
Hér heima fyrir eru ótal verk óunnin á sviði
umhverfismála. Á síðustu árum hafa íslendingar loks
áttað sig á því að það er ekki nóg að reisa dælistöðvar
til að koma skolpinu út í sjó og reisa böggunar- og
urðunarstöðvar til að koma sorpinu niður í jörðina.
Lengst af höfum við verið að fást við úreltar lausnir á
þessum sviðum mengunar. Flokkun sorps er enn-
fremur mjög skammt á veg komin hér á landi og þar
með möguleikarnir á því að skilja hættuleg efni frá
hinum sem eru hættulaus og endurvinnanleg efni frá
hinum sem má urða eða brenna. Þannig mætti lengi
telja því verkefnalistinn er óþrjótandi.
Én fátt er svo með öllu illt að ekki boði gott. Skiln-
ingur fólks á mikilvægi umhverfisverndar hefur smám
saman verið að aukast og endurvinnsla er í dag ekki
eins framandi hugtak og það var fyrir fáum árum.
Dagur greindi frá því í síðustu viku að þrír fram-
kvæmdamenn á Akureyri ynnu nú að stofnun endur-
vinnslufyrirtækis í bænum. Fyrirhugað starfssvið hins
nýja fyrirtækis er einkum framleiðsla úr endurunnum
plastefnum, pappír og timbri. Ástæða er til að fagna
þeirri hugmynd að stofna slíkt þjóðþrifafyrirtæki á
Akureyri. Ef vel tekst til mun endurvinnslufyrirtæki af
þessu tagi ekki einungis veita mörgu fólki kærkomna
atvinnu, heldur mun það jafnframt færa íslendinga
nokkur skref fram á við á þróunarbrautinni. BB.
Feijuflutningar til og frá Hrísey:
„Það verður að koma
þessum rekstri út af
borði hjá hreppnum“
- segir Smári Thorarensen, skipstjóri á Sævari
Rekstur Eyjafjarðarferjanna
Sæfara og Sævars gengur erfið-
lega enda hefur núverandi
ríkisstjórn ekki staðið við fyrir-
heit hinnar fyrri um að styrkja
reksturinn að sögn Smára
Thorarensen, skipstjóra á
Sævari. Reksturinn er þungur
baggi á Hríseyjarhreppi og
seinagangurinn við stofnun
eignarhaldsfélags hvílir á eyjar-
Smári Thorarensen.
skeggjum eins og mara. Fyrir
skömmu kom Halldór Blöndal
samgönguráðherra ásamt
aðstoðarvegamálastjóra, Jóni
Birgi Jónssyni, til Hríseyjar til
að kynna sér málið þar sem
Vegagerð ríkisins mun annast
reksturinn ef að líkum lætur.
Smári Thorarensen hefur starf-
að við Sævar í um sex ár og að
aðalstarfi síðan um áramót.
Mynd: GT
Hann segir að rekstur ferjanna
hafi gengið örðuglega síðan
Sæfari var keyptur vorið 1990.
„Rekstur Sæfara getur ekki geng-
ið styrkjalaust. Ríkið hefur ekki
styrkt okkur nóg eins og lofað var
þegar Sæfari var keyptur enda
urðu stjórnarskipti rétt eftir
kaupin - þá var allt svikið,“ segir
Smári.
Að sögn Smára eru Hríseyjar-
ferjurnar þær einu sem eiga í
vanda með að fá styrki frá ríkinu.
„Við getum séð hvað
Vestmannaeyingar hafa komist
langt; þar virðast engin vandræði
vera þótt einn og hálfur milljarð-
ur sé þar á ferðinni,“ segir Smári
og á við hlut ríkisins í Herjólfi.
„Það verður að koma þessum
rekstri út af borði hjá hreppnum
því hver einasta króna rennur í
Sæfara. Hér hafa engar fram-
kvæmdir verið síðan 1990,“ segir
Smári.
„Það ætti að styrkja allar ferju-
leiðir rétt eins og þjóðvegakerf-
ið,“ segir Smári og bendir á að
ferðir séu mun fleiri eftir að Sæ-
fari kom til sögunnar. í fyrra
flutti Sævar 56 þúsund farþega en
farþegar eru nú 2500 fleiri en á
sama tíma í fyrra. „Það stefnir í
að við flytjum heldur fleiri í júlí-
mánuði en í júlí í fyrra. Betri
þjónusta kostar hins vegar
meira,“ segir Smári.
Að sögn Jónasar Vigfússonar,
sveitarstjóra í Hrísey, hélt sam-
gönguráðherra á fimmtudaginn
fund með allri hreppsnefndinni
og aðstoðarvegamálastjóra.
„Innan mánaðar á að vera komið
álit frá Vegagerð ríkisins um það
hvernig þeir vilja að rekstrinum
verði háttað en ég veit ekki hvers
er að vænta - það eru alltaf ein-
hverjar tafir,“ sagði Jónas og
bætti við að brýnt væri að tryggja
ferjusamgöngurnar. „Okkar
sjónarmið er að hreppurinn þurfi
ekki að bera fjárhagslegar byrðar
af rekstrinum aðrar en þær að við
borgum fyrir flutninga á vörum
og farþegum,“ sagði Jónas Vig-
fússon. GT
Minmsstæð ferð SjáJfsbjargar-
félaga úr Reykjavík til Hofsóss
„Fyrir skömmu fóru Sjálfsbjarg-
arfélagar úr Reykjavík og ná-
grenni í minnisstæða ferð til
Hofsóss. Um var að ræða árlega
sumarferð Sjálfsbjargar og höfðu
heimamenn á Hofsósi undirbúið
móttökur. Veg og vanda að þeim
undirbúningi höfðu þeir Valgeir
Þorvaldsson, bóndi, Vatni og
Sigmundur Franz Kristjánsson.
Kvöldvaka í pakkhúsinu
og Drangeyjarsigling
Hópurinn gisti í félagsheimili
Hofsósinga og naut ómældrar
gestrisni heimamanna. Haldin
var kvöldvaka í gamla pakkhús-
inu í kvosinni en það hús er frá
árinu 1777 og hefur nýlega verið
endurbyggt sem minjasafn. Þar
var glens og söngur að sönnum,
skagfirskum sið. Er áreiðanlegt
að fáir hafa skemmt sér í svo
gömlu timburhúsi fyrr.
Fyrir flesta var hápunktur
heimsóknarinnar þó sigling út að
Drangey en siglt var í glaðasól-
skini og góðu skyggni á slóðir
Grettis. Við eyna gat mann-
skapurinn notið blíðunnar og sin-
fóníunnar úr bjarginu allt um
kring. Þetta þótti flestum sann-
kölluð upplifun og er óhætt að
mæla með slíkri siglingu þegar
Skagafjörður er skoðaður.
Mikil uppbygging
í ferðaþjónustu
Sjálfsbjargarhópurinn naut í rík-
um mæli þeirrar miklu uppbygg-
ingar sem unnið hefur verið að í
ferðaþjónustu á Hofsósi. Auk
siglinga getur fólk stundað margs
konar útiveru. Hægt er að fara í
veiði og á hestbak svo eitthvað sé
nefnt. Svo getur fólk fengið sér
hressingu í gömlu húsi, sem áður
stóð til að rífa en er nú orðið að
hlýlegu kaffihúsi.
Ferðahópurinn úr Reykjavík,
samtals 40 manns, fór ánægður
heim eftir tveggja daga veru á
Hofsósi. Er víst að margir hafa
hug á að fara aftur er tækifæri
gefst. Möguleikarnir sem Hofsós
og nágrenni bjóða upp á eru fleiri
en margur hyggur. Það er greini-
legt að uppbygging ferðaþjón-
ustu á Hofsósi og að Vatni geng-
ur vel og vonandi verður fram-
hald þar á.“
Sigurður Björnsson, formaður,
Sigríöur Kristinsdóttir, fararstjóri.