Dagur - 29.07.1992, Side 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 29. júlí 1992
Spurning vikunnar
Hvernig líst þér á torgið
eftir breytingarnar?
Spurt á Ráðhústorgi
Aðalsteinn Jósepsson:
„Mér finnst nú þetta ekki alveg
eins og ég vildi hafa það. En ég
vona að þetta venjist."
Baldur Sveinbjörnsson:
„Mér líst mjög vel á þetta því að
þetta er til að fegra bæinn og er
hann þó fagur fyrir. Ég hefði
hins vegar viljað sjá gróðurbelti
hér í kringum torgið."
Michael John Clarke:
„Þetta er tilvalið til útihátíðar-
halda og tónleika. Ég hef ekki
séð teikningar af þessu en ég
vildi hafa hér gosbrunn en ég
hugsa fyrst og fremst um þetta
sem samkomustað."
Margrét Hafliðadóttir:
„Þetta gefur bænum ákveðinn,
skemmtilegan svip. Kannski
mætti vera hér einhver gróður
því ásjónan er svolítið stein-
steypugrá."
Jórunn Sveinsdóttir:
„Þetta er æðislega flott og mér
líst vel á þetta. Eg ætla alla
vegana að vera hér um verslun-
armannahelgina."
Óskar Karlsson og Kristján Kristjánsson: „Munum ekki eina einustu kvennafarssogu.“
Mynd: Golli
Kristján Kristjánsson og Óskar Karlsson:
Raufarhöfn var voðalegt pláss
„Það er ekkert gaman að tala
við okkur, við munum ekki
eina einustu kvennafarssögu,
Opnuð hefur verið myndlistar-
sýning Ingimars Friðgeirssonar
í Blómaskálanum Vín í Eyja-
fjarðarsveit. Á sýningunni,
sem lýkur 4. ágúst nk., eru 12
landslagsmyndir.
Ingimar Friðgeirsson er 83 ára
gamall Þingeyingur, búsettur á
í vor stóð Mjólkurdagsnefnd fyr-
ir „Mjólkurleik“ en þar gafst
fólki færi á að svara spurningunni
„Með hverju finnst þér mjólkin
best?“. Inn bárust fast að 40.000
svarseðlar og var dregið um vinn-
inga þann 30. júní.
Góð verðlaun voru í boði og
meðal vinninga var m.a. ferð til
Karíbahafsins fyrir viðkomandi
og fjölskyldu hans. Þegar dregið
var um þá ferð kom upp nafn
Bergljótar Þorsteinsdóttur, Hlíð-
arhjalla 14, Kópavogi. Hennar
hvað þá meira. Þær eru reynd-
ar margar til, ekki síst frá
Raufarhöfn, en við munum
Akureyri frá árinu 1983. Eina
nám hans í myndlist eru nám-
skeið hjá Kristni G. Jóhannssyni,
myndlistarmanni á Akureyri.
Hann hefur í tvígang sýnt á sam-
sýningum á vegum Félags aldr-
aðra á Akureyri, en sýningin í
Vín er hans fyrsta einkasýning.
óþh
bíður því skemmtisigling um
Karíbahafið ásamt eiginmanni og
2ja ára syni.
Einnig var dregið um 500
aukavinninga - mjólkurglasasett
og innkaupaskjatta. Nöfn vinn-
ingshafanna birtust í auglýsingu í
Morgunblaðinu 19. júlí.
Öllum vinningshöfum hefur
þegar verið sent bréf með upplýs-
ingum um hvar þeir geti nálgast
vinninga sína. Þeir sem af ein-
hverjum ástæðum hafa ekki feng-
ið bréf geta haft samband í síma
91-691600. (Fréttatilkynning)
þær ekki nógu vel,“ sögðu
Kristján Kristjánsson og Óskar
Karlsson, vistmenn á Dalbæ á
Dalvík sem Dagsmenn rákust
á þar sem þeir voru að sóla sig
í blíðviðri á dögunum.
Ekki vildu þeir viðurkenna að
þeir væru frá Raufarhöfn en þeir
þekkja staðinn greinilega vel og
minningarnar þaðan eru blendn-
ar. „Raufarhöfn er ágæt í dag en
það verður að segjast eins og er
að hún var það ekki hér áður
fyrr. Það móðgast sjálfsagt ein-
hver en þetta var voðalegt pláss í
gamla daga. Það var svo mikil
drulla þarna að það var ekki hægt
að stíga niður fæti,“ sagði Krist-
ján og hló dátt. „Það þýddi ekki
einu sinni að fara á almennileg-
um skóm á ball,“ bætti hann við
um leið og hann skammaði ljós-
myndarann ærlega. „Ætlarðu að
fara með þetta upp í mig,
drengur?“
„Kunniði ekki vísurnar um
Raufarhöfn?" spurði Óskar og
þegar viðmælendurnir neituðu
hélt hann áfram. „Þar var eitt
sinn aðkomumaður sem leist ekki
á staðinn og gerði þessa vísu:
Pú ert rassgat Raufarhöfn
rotni fúli drullupollur.
Andskotinn á engin nöfn
yfir mörg þín forarsöfn.
Pú ert versta víti í höfn
viðmót þitt er kuldahrollur.
Farðu í rassgat Raufarhöfn
rotni fúli drullupollur.
Svo var það staðarmaður sem
orti á móti:
Pótt Raufarhöfn eigi engan
andlegan auð
og enginn sé fegurðarstaður
að lasta sitt eigið lifibrauð
er ljótt af þér, aðkomumaður. “
Áfram er rætt um Raufarhöfn
og kvennafar um stund en fljót-
lega berst talið að öðrum málum.
„Ég held að allar þessar breyt-
ingar í dag hljóti að vera öllum
.umhugsunarefni,“ segir Óskar.
„Ég hef unnið á sjó og lent þar í
ýmsu og svo hef ég líka verið
bóndi. í dag er sama hvort litið er
á vinnumarkaðinn eða annað,
það er eins og maður sé í allt öðr-
um heimi. Ég held að það þýddi
ekki í dag að bjóða sjómönnum
upp á það sem þeim var boðið
hér áður fyrr. Og veðurfarið, það
hefur meira að segja breyst.
Vetrarstórhríðarnar, sem voru
svo algengar þegar ég var að alast
upp, eru ekki til í dag. Já, þetta
er orðinn allt annar heimur.“
JHB
Ingimar Friðgeirsson
með myndlistarsýningu
í Blómaskálamim Vín
Óskar H. Gunnarsson, formaður Mjólkurdagsnefndar, afhendir Bergljótu
vinninginn. Við hlið hennar stendur Þorsteinn Bergmann, eiginmaður
hennar, og Hörður Daði, sonur þeirra.
Mjólkurleikurinn:
Fjölskylda úr Kópavogi
fær skemmtísiglingu