Dagur - 29.07.1992, Side 11
Miðvikudagur 29. júlí 1992 - DAGUR - 11
Rit um Rauða krossinn:
í þágu
þjóðanna
„í þágu þjóðanna" er heiti rits
sem Rauði kross íslands hefur
gefið út og fjallar um sögu og
starf Rauða kross hreyfingarinn-
ar heima og á alþjóðavettvangi. í
ritinu er leitast við að gefa sem
gleggsta mynd af meira en fimm
aldarfjórðunga mannúðarstarfi
Rauða krossins, sem byggist á
Genfarsáttmálunum og grund-
vallarreglum hreyfingarinnar, en
þær eru sjö með eftirfarandi lyk-
ilorðum: Mannúð, óhlutdrægni,
hlutleysi, sjálfstæði, sjálfboða-
hjálp, eining og alheimshreyfing.
Einnig er fjallað um starfsemi
RKÍ frá stofnun 1924.
Það sem gerir Rauða krossinn
einstakan er sú staðreynd að
hann hefur á eigin forsendum
gert að veruleika hugtakið al-
heimshreyfingu, en það hafa
margir reynt en fáum tekist. Það
er ekki létt verk því innan
vébanda hreyfingarinnar þarf að
vera rúm fyrir allar þjóðir, smáar
og stórar, þar sem engin rödd er
annarri rétthærri.
í þágu þjóðanna er til sölu á
skrifstofu RKÍ og jafnframt til
útláns úr bókasafni Fræðslumið-
stöðvar RKÍ.
Fjölskyldu-
hátíð í
Vatnsfirði
Fjölskylduhátíð verður haldin
um verslunarmannahelgina í
Vatnsfirði við ísafjarðardjúp.
Dagskrá mótsins er fjölbrevtt,
m.a. er boðið upp á veiði í Vatns-
fjarðarvatni, leikjadagskrá fyrir
börnin, skoðunarferðir á landi og
sjó með leiðsögn og margt fleira.
Hljómsveitin Rokkvalsinn leikur
fyrir dansi laugardags- og sunnu-
dagskvöld og einnig verður varð-
eldur og kvöldvaka. Einungis 10
mínútna akstur er í sundlaugina í
Reykjanesi, sem verður opin alla
helgina. Bátsferðir með Eyjalín
verða frá ísafirði bæði laugar-
dags- og sunnudagsmorgun kl. 9
árdegis. Verð á hátíðina frá
föstudegi til mánudags er kr.
2.500. (Fréttatilkynning)
ÞRIHJÓL HÆFA BF.TUR ÞROSKA
FORSKÓLABARNA.
SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS
RAUDI KROSS ÍSLANDS
SUNNUHLTÐ
VERSLUNARMIÖSTÖÐ
— SHOPPING CENTER —
oí!'*
Föstudaeurinn 31
Qrillveisla frá
Kjötiðnaðarstöð KEA
Konur í atvinnusköpun
sýna og selja framleiðslu sína
Ath. Kjörbúð er opín til kl. 20.00
Aðrar verslanir til kl. 19.00
Lokað laugardaginn 1. ágúst
Ynja s. 25977 - Slétt og fellt s. 27224 - Ljósmyndabúðin s. 11030 - Samson s. 27044 - Tónabúðin s. 22111
Rafland s. 25010 - Pálína s. 27177 - HABRÓ s. 11119 - Trygging s. 21844 - M. H. Lyngdal s. 26399
Möppudýrið s. 26368 - Brauðbúð Kristjáns s. 25904 - Vaggan s. 27586 - Saumavélaþjónustan s. 11484
Blómabúðin Laufás s. 26250 - Búnaðarbanki íslands s. 27600 - Kjörbúð KEA s. 30387
Velkomín í Svinnuhlíð