Dagur - 29.07.1992, Síða 14
14 - DAGUR - Miðvikudagur 29. júlí 1992
Þórshöfn
Kaup á eldri íbúðum
Húsnæðisnefnd Þórshafnarhrepps óskar eftir að
kaupa tvær íbúðir, 3ja og 4ra herbergja til nota sem
félagslegar íbúðir. íbúðirnar skulu vera í par- eða
raðhúsi og ekki eldri en 15 ára.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Þórshafnarhrepps
fyrir 14. ágúst. Þar verða tilboðin opnuð 14. ágúst kl.
13.00 að viðstöddum þeim tilboðsgjöfum sem þess
óska.
Húsnæðisnefnd áskilur sér rétt til að taka hvaða til-
boði sem er eða hafna öllum.
Tilboðum verður svarað eigi síðar en 10. sept.
Húsnæðisnefnd Þórshafnarhrepps.
Svínokjöl
í miklu úrvoli
t.d. fylltor svínokótilettur með skinku og osti,
fylltor svínokótilettur með sveskjum
morineroðor í omorettolíkjör
Dijonlegnar lambasneiðor
Hvítlaukslegnar bógsneiðar
Nautakjöt of nýslótruðu
Fjölbreyttir lambakjötsréttir
ó grillið
€inars þriggja korna brauð
kr. 99
€inars heilhveitibrauð
kr. 99
Matvöru-
markaðurinn
Kaupangi
Opið virka daga kl. 9-22
Laugardag kl. 10-22
Sunnudag kl. 10-22
Mánudag (frídag versl-
unarmanna) kl. 10-22
Hlutverka-
skipti fræga
fólksins
Þeim dettur ýmislegt í hug í
Ameríku og nýlega lék tímaritið
National Enquirer sér svolítið
með myndir af frægu fólki og
mökum þess. Tölvutæknin hefur
opnað ýmsa möguleika á þessu
sviði sem öðru og útkoman úr
leiknum varð ansi skemmtileg.
Blaðið lætur þess getið að Demi
Moore virðist reiðubúin til að
taka að sér hlutverk í „Die Hard
3“ og auðvelt sé að sjá Bruce
Willis fyrir sér kasóléttan, nakinn
á forsíðu tímaritsins Vanity Fair.
Nancy Reagan hefði orðið mynd-
arlegasti forseti en hún hefði
varla orðið öfundsverð af „eig-
inkonunni." Karl Bretaprins
virðist sorgmæddur yfir sínu hlut-
skipti en Díana aftur á móti hin
ánægðasta og George og Barbara
Bush eru ótrúlega lík, sama hvort
andlitið er á hvorum skrokki. En
myndirnar tala sínu máli.
George og Barbara Bush eru hér að
ofan en Bruce Willis og Dcmi
Moore hægra megin við þau. Hér til
hægri eru þau Ronald og Nancy
Reagan en að neðan breski ríkisarf-
inn, Karl prins, með eiginkonu
sinni, Díönu.
Mikil verðlækkun - Komið og gerið góð kaup