Dagur - 29.07.1992, Qupperneq 15
Miðvikudagur 29. júlí 1992 - DAGUR - 15
ÍÞRÓTTIR
Knattspyrna:
Alvarleg agavandamál?
- varamenn, þjálfarar og aðstandendur liða
haga sér illa að mati KSÍ
Á fundi stjórnar KSÍ í síðustu
viku lýstu stjórnarmenn yfír
þungum áhyggjum á fram-
komu og hegðun leikmanna og
forsvarsmanna félaga í sumar.
Sérstaklega var tekið til þeirra
sem skipa varamannaskýli.
Hér er átt við varamenn, þjálf-
ara og aðstoðarmenn þeirra.
Á þessum sama fundi var
ákveðið að reyna allt sem hægt er
til þess að breyta þessu ástandi.
Sem dæmi um aðgerðir má nefna
að heimilað hefur verið að í
nokkrum leikjum í sumar verður
dómari með hljónema á sér til
þess að menn geti áttað sig betur
á því sem fram fer á vellinum. En
er málið á alvarlegu stigi?
Formenn Þórs og KA voru
sammála um að að erfitt væri fyr-
ir þá að tjá sig um málið í heild
en vildu meina að ástandið hér í
bæ væri hvorki betra né verra en
undanfarin ár.
Guðmundur Haraldsson, for-
maður Dómaranefndar KSÍ,
sagði að dómarar hefðu miklar
áhyggjur af því ástandi sem ríkti
og hefði ríkt lengi. „Það er þessi
óróleiki sem virðist fylgja vara-
mannabekknum. Þjálfarar og
aðstandendur liðanna gera sig oft
á tíðum seka um slæma fram-
komu og alltaf er það dómarinn
sem er bitbeinið. Að sögn Guð-
mundar er ástandið ekkert verra
en það hefur verið undanfarin ár
en það sé búið að vera slæmt.
„Það verður að segja það eins
og er að sum lið hafa mjög góða
framkomu og þeir taka þetta
bara til sín sem eiga,“ sagði Guð-
mundur og bætti við að mál dóm-
ara þyrfti að fara að taka fastari
tökum og búa þyrfti að þeim á
allt annan og miklu betri hátt en
gert hefur verið. „Við verðum að
gera okkur grein fyrir því að
dómarinn er hluti af knattspyrnu-
fjölskyldunni og það þarf að hlúa
að honum sem slíkum,“ sagði
Guðmundur Haraldsson. SV
Sigurvegarar í Ferðamóti Flugleiða og GÁ
Mjólkurbikarinn:
Prír Skagamenn í banni gegn KA
- tveir með íjögur gul spjöld, einn með rautt
Eins og kunnugt er leika KA-
menn við Skagamenn í Mjólk-
urbikarkeppninni finuntu-
daginn 6. ágúst. Þrír Skaga-
menn hafa verið úrskurðaðir í
bann sem tekur gildi í leikn-
um gegn KA.
Leikur Skagamanna við Val
um síðustu helgi gæti reynst
þeim fyrrnefndu dýr. Alexander
Högnason og Ólafur Adolfsson
fengu báðir sitt fjórða gula
spjald í sumar og þýðir það eins
leiks bann hjá hvorum. Bannið
tekur gildi frá og með föstudegi
og þeir verða því í banni í
bikarleiknum gegn KA.
Sigurður Jónsson, fyrirliði
f A, fékk að líta sitt annað rauða
spjald í sumar og er þ.a.l.
dæmdur í a.m.k. tveggja leikja
bann.
Á fimmtudag verður stórleikur í Samskipadeildinni, en þá mætast KA og
Þór í síðari leik liðanna. Ekki er víst að þeir Örn Viðar Árnason og Halldór
Áskelsson taki upp þráðinn og haldi áfram að dansa, en hver veit?
Golf:
Fór holu
íhöggi
Sá merki atburður átti sér stað
á golfvellinum á Akureyrir nú
á dögunum að ungur Akureyr-
ingur, Jónatan Magnússon að
nafni, fór „holu í höggi“ á
elleftu holu vallarins.
„Ég er mjög rnikið á golfvellin-
um, fer þangað á morgnana, er
þar fram að hádegi og fer þá á
fótboltaæfingu til tvö og þá er
það aftur golfvöllurinn,“ sagði
golfarinn ungi. „Ég hef mjög
gaman af því að spila golf og er
ákveðinn í því að halda áfram að
spila. Ég tek það þó aldrei fram
yfir fótboltann," sagði Jónatan.
Á golfvellinum fékkst það upp-
gefið að stundum líði nokkur ár
án þess að nokkur leiki þennan
leik en stundum fari tveir og þrír
á ári. SV
Hér eru engin agavandamál og ailir standa prúðir í röð. Mynd: Goiií
Golf:
Ferðamót Flugleiða
og Golfldúbbs Akureyrar
Ferðamót Flugleiða og Golf-
klúbbs Akureyrar var haldið
um síðustu helgi. Keppt var í
flokkum kvenna, unglinga og
karla með og án forgjafar og
voru lciknar 18 holur. Flug-
leiðir gáfu verðlaun til
mótsins. Úrslit flmm efstu eru
eftirfarandi:
Karlar - án forgjafar: Högg
1. Jón S. Árnason, GA 74
2. Þorleifur Karlsson, GA 75
3. Egill 0. Hólmsteins., GA 79
4. Sigurður H. Ringsted, GA 80
5. Skúli Ágústsson, GA 80
Karlar - með forgjöf: Nettóhöggafj.
1. Hallgrímur Arason, GA 67
2. Jón S. Árnason, GA 67
3. Guðbjörn Garðarsson, GA 68
4. Friðbjörn Hólnt, GK 70
5. Friðrik E. Sigþórsson, GA 70
Konur - án forgjafar: Högg
1. Jónína Pálsdóttir, GA 86
2. Erla Adólfsdóttir, GA 89
3. Fjóla í>. Stefánsd., GA 90
4. Bergljót Borg, GA 92
5. Aðalheiður Alfreðsd., GA 97
Konur - með forgjöf: Nettóhöggafj.
1. Fjóla Þ. Stefánsd., GA 65
2. Halla S. Svavarsd., GA 69
3. Jónína Pálsdóttir, GA 72
4. Aðalheiður Alfreðsd., GA 74
5. Bergljót Borg, GA 74
Unglingar - án forgjafar:
1. Birgir Haraldsson, GA 73
2. Axel Árnason, GA 82
3. Bjarni G. Bjarnason, GA 84
4. Ingvar R. Guðmunds., GA 86
5. Ómar Halldórsson, GA 86
JUnglingar - með forgjöf: Nettóhöggafj.
I. Áxel Árnson, GA 61
■ 2. Bjarni G. Bjarnason, GA 63
3. Birgir Haraldsson, GA 64
4. Gunnlaugur B. Ólafsson, GA 71
5. Ingvar R. Guðmundsson, GA 71
Knattspyrna:
Leiftursmenn kæra ÍR
- tveir voru á skýrslu sem voru í banni
Knattspyrnudeild Leifturs hef-
ur ákveðið að kæra leik liðsins
gegn ÍR um síðustu helgi. Tveir
leikinenn ÍR sem úrskurðaðir
höfðu verið í leikbann, af Aga-
nefnd KSÍ, voru á leikskýrslu
og á þeirri forsendu er kært.
„Það er alveg ljóst að þeir leik-
menn sem eru í banni mega ekki
og eiga ekki að vera á leik-
skýrslu," sagði Kristinn Hreins-
son, stjórnarmaður hjá Leiftri.
„Við höfum ákveðið að leggja
frarn kæru og höfum fulla trú að
því að málið vinnist."
Leiftur hefur fjórtán daga til
þess að kæra brotið til Dómstóls
Knattspyrnuráðs Reykjavíkur og
þaðan er ntálið sent áfrant til
Dómstóls KSÍ. SV
Jónatan Magnússon, fyrir miðju, er ekki einasta góður golfari. Hér tekur
hann, ásamt félögum sínum í Þór, á móti verðlaunum fyrir innanhússknatt-
spyrnu á Essó-mótinu í sumar. Mynd: sv