Dagur - 29.07.1992, Blaðsíða 16
DAðUF
Akureyri, miðvikudagur 29. júlí 1992
Greífinn í sumarskapí
Opið virka daga frá kl. 11.30-23.30 - Um helgar frá kl. 12.00-23.30
Nxturherimsending tíl hl. 02.00
föstudags- og laugardagshveld
Mýílug í Mývatnssveit:
Farþegum hefiir fækkað
- segir Leifur Hallgrímsson,
framkvæmdastj óri
Á Reykjahlíðarflugvelli í
Mývatnssveit starfar flugfélag-
ið Mýflug, sem heldur uppi
áætlunarflugi í sumar milli
Mývatnssveitar og Reykjavík-
ur. Einnig býður flugfélagið
upp á útsýnisflug og flug-
Norðmenn landa loðrnr.
2500 tonn úr
tveimur bátuni
Norska nótaveiðiskipið m/s
Bömmelöy kom til Raufar-
hafnar í gærmorgun með um
1500 tonn af loðnu til löndunar
hjá Sfldarverksmiðjum ríkis-
ins. Rétt á eftir norska skipinu
kom svo Þórshamar til Raufar-
hafnar með 570 tonn. Hjá
Hraðfrystistöð Þórshafnar
landaði norska loðnuskipið
Liegrön 900 tonnum í gær-
morgun og taldi verksmiðju-
stjórinn góðar líkur á að um
frekari landanir yrði að ræða á
Þórshöfn.
kennslu. Þrír flugmenn starfa
hjá félaginu.
Leifur Hallgrímsson er fram-
kvæmdastjóri Mýflugs og hann
segir, að níu sæta flugvél sinni
áætlunarlluginu. Flogið er hvern
morgun frá Reykjavík til
Mývatnssveitar og að kvöldi er
flogið til baka til Reykjavíkur.
„Farþegum í áætlunarfluginu
hefur fækkað mikið það sem af er
sumri sé litið til sumarsins í fyrra.
Snar þáttur í starfsemi Mýflugs er
útsýnisflug. Til flugsins er notuð
fimm sæta vél auk þeirrar sem
sinnir áætlunarfluginu. Þokkalegt
er að gera þegar veðrið plagar
ekki. Veðurguðirnir hafa reynst
erfiðir síðustu tvær vikur. Nær
allir sem leita til okkar með
útsýnisflug eru útlendingar. Vin-
sælast er að fara hringinn yfir
Mývatn, að Öskju og Kverkfjöll-
um, yfir Herðubreið og Kröflu-
svæðið og heim. Flugið tekur um
eina og hálfa klukkustund.
Nýverðið endurnýjuðum við
kennsluréttindi en lítið er um
fyrirspurnir vegna flugnáms,"
sagði framkvæmdastjórinn. ój
Mynd: ÁS á Siglufirði.
Strákagöng:
Ágætur gangur í byggingu vegskála
„Við erum farnir að hanga í áætluninni,“ sagði
Birgir Guðlaugsson hjá byggingafélaginu Bergi
hf. á Siglufirði, þegar hann var inntur eftir gangi
framkvæmda við byggingu vegskála við Stráka-
göng.
Birgir sagði að til að byrja með hefði verkið geng-
ið hægar en gert var ráð fyrir vegna meiri spreng-
inga, en nú væri verkhraðinn samkvæmt áætlun.
Samkvæmt verksamningi á að skila verkinu 1.
september nk. og sagðist Birgir bjartsýnn á að það
tækist. Vegskálinn er 29,5 metrar að lengd. óþh
Kaupgeta almennings minnkar stöðugt:
Norðmenn hafa nú veitt norður
við miðlínu um 42 þúsund tonn af
loðnu og eru 11 skip á miðunum
nú þegar og bíða leyfis til að hefja
veiðar. Þau skip sem losa full-
fermi á íslandi verða að sigla tóm
heim til Noregs. íslensku loðnu-
verksmiðjurnar greiða Norð-
mönnunum 420 NKR fyrir tonnið
sem eru um 4000 ísl. krónur.
Undanfarna daga hafa Síldar-
verksmiðjur ríkisins skipað út um
5 þúsund tonnum af loðnumjöli
að verðmæti um 185 milljónir
króna. GG
Innkoma í verslun um fimmtungi minni
„Mér sýnist að það sé um 20%
minni innkoma í verslunum
sem sýnir áþreifanlega minni
kaupgetu almennings nú. Fólk
kaupir nú orðið aðeins það
nauðsynlegasta en lætur ekki
eftir sér „Iúxus“ nema að vel
athuguðu máli,“ segir Guðjón
Steindórsson útibússtjóri
íslandsbanka á Akureyri.
Bæjarfógetinn á Akureyri:
Nítján gjaldþrotabeiðnir
á fviTÍ hebnmgi ársrns
Frá áramótum til síðustu mán-
aðamóta bárust bæjarfógetan-
um á Akureyri 19 beiðnir um
gjaldþrotaúrskurði. Af þessum
beiðnum vörðuðu 7 þeirra
fyrirtæki en 12 voru vegna ein-
staklinga. Fimm fyrirtækjanna
voru úrskurðuð gjaldþrota og
tveir einstaklinganna.
Erlingur Sigtryggsson, fulltrúi,
VEÐRIÐ
Búist er við að hlýindin sem
Norðlendingar urðu aðnjót-
andi í gær hverfi á braut í
dag og aftur snúist til norð-
lægrar áttar. Gert er ráð fyrir
norðan kalda í dag með
nokkrum skúrum um allt
norðanvert landið og að
hitastig fari lækkandi og geti
orðið á bilinu sjö til tíu gráð-
ur yfir daginn.
segir að á samsvarandi tímabili í
fyrra hafi embættinu borist 72
beiðnir um gjaldþrotaúrskurði.
Skýring á því hve beiðnirnar eru.
mun færri í ár segir Erlingur
kunna að vera þær að í ár var
byrjað að krefjast mun hærri
trygginga fyrir skiptakostnaði en
áður.
„Einnig hafa menn væntanlega
haldið að sér höndum vegna þess
að ný gjalþrotalög tóku gildi 1.
júlí sl. og þeir sem hafa verið í
startholunum með gjaldþrota-
beiðnir kunna að hafa beðið til
að málin færu alfarið eftir nýju
lögunum. Það ætti að sjást fljót-
lega hvort nýjar reglur fækka
gjaldþrotabeiðnunum en það var
m.a. tilgangur laganna," sagði
Erlingur.
Á fyrrnefndu tímabili á þessu
ári var eitt fyrirtæki úrskurðað í
greiðslustöðvun og fjórir ein-
staklingar. Miðað við fyrra ár er
þetta fjölgun greiðslustöðvunar-
mála. JÓH
Verulega hefur dregið úr því
að almenningur leggi fyrir af
sparifé til hlutafjárkaupa eins og
var t.d. á árinu 1990 þegar hluta-
fjárkaup gátu veitt mönnum
ákveðinn skattafslátt. Innlegg á
bundna reikninga hefur verið
mjög svipað hjá íslandsbanka
það sem af er árinu eða heldur
minnkað ef eitthvað er en fá
dæmi eru þess að slíkum reikn-
ingum hafi verið sagt upp og inni-
stæðan leyst út. Þessa dagana er
verið að póstleggja álagningar-
seðla og bíða margir eftir því að
sjá hvort þeir fái greiddar út ein-
hverjar vaxtabætur og margir
munu væntanlega eyða því fé til
að fara í sumarfrí að mati Guð-
jóns Steindórssonar.
„Ég hef ekki getað merkt það
að almenningur hafi mikið
minnkað við sig í neyslu en
sparnaður er áþreifanlega minni
því fólk hefur minni tekjuafgang
til slíkra hluta. Sparnaður
almennings hefur fyrst og fremst
verið á bundum reikningum og
ekki auðvelt að taka peningana
út með litlum fyrirvara," segir
Sigurður Kristjánsson útibús-
stjóri Búnaðarbankans á Blöndu-
ósi og Skagaströnd.
Innlánsaukning er fyrst og
fremst fólgin í vöxtum og verð-
bótum og lítið utan þess, en á
undanförnum árum hefur bank-
inn verið með góða innláns-
aukningu umfram verðhækkun.
Að mati Sigurðar má fyrst og
fremst merkja aukna erfiðleika
fólks í því að vanskil hafa aukist
nokkuð og það má reyndar einnig
segja um fyrirtæki.
Nokkur húnvetnsk fyrirtæki
hafa lent í erfiðri greiðslustöðu
vegna verktaka við Blönduvirkj-
un, en urn ár er síðan fram-
kvæmdum lauk þar en enn er ver-
ið að ná inn fé af verktökunum.
Fossvirki hefur staðið mjög vel
við alla samninga við heimamenn
en Hagvirki og SÁÁ-verktakar
hafa reynst erfiðir.
„Húnvetningar hafa alltaf
reynst skilamenn, en það má
merkja aukin vandkvæði á því að
notkun greiðslukorta hefur farið
mjög vaxandi," sagði Sigurður
Kristjánsson. GG
Blönduós:
Hillebrandtshúsið rannsakað
S.l. mánudag kom fólk frá
Árbæjarsafni og Húsafriðun-
arnefnd rflrisins til Blönduóss
að skoða Hiliebrandtshúsið
sem svo er nefnt. Tók bæjar-
stjórinn á Blönduósi og hér-
aðsskjalavörðurinn á móti
þeim. Skoðuðu þau húsið
ásamt Leifi Blumenstein
tæknifræðingi og grúskuðu í
skjölum. Ekkert er enn komið
í Ijós sem óyggjandi sannar að
um sé að ræða húsið sem byggt
var á Skagaströnd 1733, en all-
ar líkur benda til þess. Hins
vegar kom I Ijós að hleðslan
undir húsinu er byggð af fyrsta
íslenska steinsmiðnum, Sverri
Runólfssyni.
Þau Hrefna Róbertsdóttir og
Úlfar Másson frá Árbæjarsafni
komu norður á mánudag ásamt
Júlíönu Gottskálksdóttur frá
Húsafriðunarnefnd. Skoðuðu
þau Hillebrandtshúsið ásamt
Leifi Blumenstein tæknifræðingi,
en hann gerði einmitt úttekt á
húsinu 1990 að ósk Valgarðs
Ásgeirssonar múrarameistara á
Blönduósi. Valgarð hafði áhyggj-
ur af örlögum hússins, en hann
hafði í æsku heyrt sagnir um
flutning hússins og að það væri
gamalt og merkilegt.
Hrefna Róbertsdóttir safn-
vörður á Árbæjarsafni sagði í
samtali við blaðið að margt benti
til þess að um þetta hús væri að
ræða, þ.e. verslunarhús sem ein-
okunarkaupmenn byggðu á
Skagaströnd 1733. Hins vegar
hefðu enn ekki fundist skjöl sem
tækju af tvímæli um að það hús
hefði verið flutt til Blönduóss.
Enn er verið að rannsaka skjöl að
norðan og tekur það nokkra daga
að öllum líkindum.
Ófeigur Gestsson bæjarstjóri á
Blönduósi segir að húsið verði
varðveitt, hvort sem um sé að
ræða húsið frá Skagaströnd eða
ekki. „Það er alveg ótvírætt, hver
sem niðurstaðan verður með
ártalið, þá er húsið merkilegt."
Það væri bæði vegna byggingar-
stíls og þess að hleðslan undir
húsinu væri mjög merkileg. Sagði
Ófeigur ýmsar hugmyndir uppi
um endurbyggingu og nýtingu og
málið væri á athugunarstigi.
Nánari umfjöllun um Hille-
brandtshúsið verður í blaðinu á
morgun. sþ