Dagur - 06.11.1992, Blaðsíða 1
Komnir vel á veg með
að laga fjárhagsstöðuna
- segir kaupfélagsstjóri Kaupfélags Húnvetninga
„Miðað við þessa niðurstöðu
bæjarstjórnar Blönduóss, þá
verður staða kaupfélagsins
þegar upp verður staðið alveg
bærileg,“ segir Guðsteinn Ein-
Grímsey:
Góður afli
á línu
arsson, kaupfélagsstjóri Kaup-
félags Húnvetninga.
Eins og fram hefur komið sam-
þykkti meirihluti bæjarstjórnar
Blönduóss á fundi sl. þriðjudag
að Blönduósbær keypti sam-
vinnuhlutabréf í B-stofnsjóði
Kaupfélags Húnvetninga fyrir 12
milljónir króna, „enda komi þær
til viðbótar þeim 90 milljónum,
sem þegar hafa verið tryggðar af
Sölufélagi Austur-Húnvetninga,“
eins og segir orðrétt í samþykkt
bæjarstjórnarinnar.
- smokkfiski beitt
Afli Grímseyjarbáta er á bilinu
10 til 15 tonn á dag er gefur á
sjóinn. Þorsteinn Orri verk-
stjóri hjá Fiskverkun KEA í
Grímsey segir að aflinn sé að
mestu þorskur, veiddur á línu.
„Bátarnir eru á línu og þeir
sem hafa verið í öðrum veiðiskap
eru að gera klárt fyrir línufiskirí-
ið. Nú ætla menn að auka veið-
ina, fá tonn á móti tonni hjá
Kaupfélaginu. Menn eru ánægðir
og fiskhúsið er yfirfullt. 20 tonn
bárust á land á miðvikudag. í
fyrra var ufsi um allan sjó, en í ár
ekki. Nú er það þorskurinn sem
bátarnir eru eftir. Eitt og hálft
tonn á 12 bala þykir ekki svo
slæmt. Menn beita smokkfiski
sem gefur góða raun. Tilgangs-
laust er með öllu að beita síld, sá
gu!i lítur ekki við silfri hafsins.
Já, við gefum allvel fyrir aflann.
Við leggjum til beituna og karl-
arnir fá kr. 67,50 á kílóið fyrir
óslægðan þorsk. Undirmálið er á
45 krónur og ufsinn á 30 krónur.
Aflinn fer til Hríseyjar sem fyrr í
frystingu. Ekkert er saltað. Salt-
fiskmarkaðurinn er dapur og við
verðum að gera sem mest úr hrá-
efninu,“ sagði Þorsteinn Orri. ój
„Við fórum af stað með
aðgerðir til bjargar kaupfélaginu
vegna þess að við sáum fram á að
félagið stóð á hengifluginu. Með
hliðsjón af því að búið var að
gera allar þær breytingar á rekstri
fyrirtækisins sem hægt var, þá var
lokapunkturinn að koma fjár-
hagsstöðunni í lag og ég held að í
ljósi þessarar afgreiðslu bæjar-
stjórnarinnar séum við komnir
mjög vel á veg með það. Við
gerðum upphaflega ráð fyrir að
B-stofnsjóðurinn yrði 90 milljón-
ir, en gangi þetta allt eftir þá er
verið að tala um að hann verði
102-103 milljónir. Ef áætlanir
standast verða skuldirnar vel inn-
an við 300 milljónir króna, sem
við höfðum miðað við að væri
skuldaþakið. En ég ítreka það að
við erum ekki farnir að vinna
framhaldið, höfum á þessu stigi
vilyrði fyrir þeim peningum sem
við þurfum og erum með sam-
komulag við Búnaðarbankann og
aðra stóra lánardrottna um lausn-
ir,“ sagði Guðsteinn.
Um afkomu kaupfélagsins það
sem af er þessu ári sagði Guð-
steinn að hún væri erfið. „En
afkoman fyrir fjármagnsliði er
talsvert betri en á síðasta ári,“
sagði Guðsteinn. óþh
Lokið er við að reka niður stálþilið við nýja kantinn á Tangabryggju á Akureyri en þar verður í framtíðinni 70 m
viðlegukantur. Þessa dagana er verið að dýpka höfnina við kantinn og er reiknað með að þeim framkvæmdum verði
lokið fyrir áramót. Að öðru Ieyti hefur framkvæmdum þar verið frestað fram á næsta ár en eftir er að steypa þekju
og kant og koma fyrir lögnum og lýsingu. Mynd: kk
Norðlensk fyrirtæki á sjávarútvegssýningu, EXP0-PESCA, í Chile:
Sæplast hf. að helja sölu
á plastkörum tQ Uruquay
Útflutningsráð hefur á þessu
ári verið að skipuleggja ferð 12
íslenskra fyrirtækja sem eru í
þjónustu við sjávarútveginn, á
sjávarútvegssýningu í Santiago
í Chile sem heitir EXPO-
PESCA ’92. Sýningin stendur
dagana 5. til 12. desember nk.
Tvö norðlensk fyrirtæki eru í
þessum hóp, Sæplast hf. á Dal-
vík og Vélsmiðjan Oddi hf. á
Akureyri.
Auk þeirra sýna eftirtalin
íslensk fyrirtæki framleiðslu sína:
Hampiðjan hf.; Ráðgjafafyrir-
tækið Icecon; Icemac, sem m.a.
selur notaðar fiskvinnsluvélar; J.
Hinriksson hf. með toghlera;
Kassagerð Reykjavíkur með
umbúðir; Kvikk með fiskvinnslu-
vélar; Marel með skipavogir og
flokkara; Verkfræðifyrirtækið
Meka með fiskvinnsluvélar;
Traust hf. sem er með stórar
heildarlausnir á fiskvinnsluvélum
og Vaki sem kynna mun fiskeld-
iskerfi.
Jón Þorvaldsson kynningar-
stjóri Utflutningsráðs segir að
þessi sýning sé fyrsta alþjóðlega
sjávarútvegssýningin sem haldin
er í Suður-Ameríku og mjög
áhugavert að taka þátt í henni
því mikill uppgangur hefur verið
að undanförnu í efnahagslífi
Chile og einnig munu koma á
þessa sýningu ýmsir framámenn í
Sameining hafna við utanverðan Eyjafjörð í burðarliðnum:
Ahersla verður lögð á sérhæfingu ha&anna
Viðræður hafa staðið að
undanförnu milli forráða-
manna Dalvíkur og Ólafsfjarð-
ar um sameiningu eða sameig-
inlega yfirstjórn hafnanna.
Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri á Dalvík segir að umræð-
urnar séu komnar það vel
áleiðis að farið sé að ræða um
að í framtíðinni verði aðeins
um einn hafnarsjóð að ræða á
þessu svæði.
Rætt hefur veriö um að
Árskógshreppur kæmi inn í þessa
umræðu en þá þarf að yfirfara
alla þætti málsins frá grunni.
Árskógshreppur hefur óskað
formlega eftir viðræðum við
Ólafsfirðinga og Dalvíkinga um
framtíðarskipan þessara mála.
Sameining þessara hafna mun
sérhæfa nokkuð notkun einstakra
hafna á svæðinu, þ.e. lögð verður
áhersla á að t.d. verði Ólafsfjarð-
arhöfn fiskihöfn en Dalvíkurhöfn
fraktskipahöfn en það mun hins
vegar ekki útiloka að fiskiskip
landi á Dalvík.
Við upphaf þessara sameining-
arumræðna var rætt um að sam-
eining hafnanna tæki gildi 1.
janúar 1993, og er enn stefnt að
því.
Sveinn Jónsson oddviti Ár-
skógshrepps segir að Árskógs-
hreppingar hafi fundað með Dal-
víkingum og Ólafsfirðingum um
hafnaáætlun næstu 4ra ára og
tengja það uppbyggingu og fjár-
mögnun hafnanna og reka þær
sameiginlega. En hvaða hag hef-
ur Árskógshreppur af þessari
sameiningu?
„Hér myndast aldrei neinar
tekjur af inn- og útflutningi og
allur útflutningur á fiski fer gegn-
um Dalvíkurhöfn. Tekjur hafn-
arinnar eru nær eingöngu afla-
gjöld og fastagjöld bátanna. Hér
er hins vegar að ljúka 45 milljón
króna framkvæmd vegna innri
mannvirkja hafnarinnar á
Árskógssandi sem er 60 metra
lenging á hafnargarði með stál-
þili, þekja á garðinn og frágang-
ur,“ segir Sveinn Jónsson.
í næstu viku munu fulltrúar
áðurnefndra hafna halda suður á
fund samgönguráðuneytisins til
skrafs og ráðagerða un hafna-
áætlun næstu fjögurra ára með
sameiningu hafnanna að leiðar-
ljósi. GG
Þjóðaratkvæði um EES:
TÖlagan felld
TiIIaga um að samningurinn
um Evrópska efnahagssvæðið
verði borinn undir þjóðarat-
kvæði var felld á Alþingi síð-
degis í gær með 31 atkvæði
gegn 28. Tveir þingmenn
stjórnarflokkanna gengu til Iiðs
við stjórnarandstöðuna í mál-
inu.
Þeir Eyjólfur Konráð Jónsson
og Ingi Björn Albertsson, þing-
menn Sjálfstæðisflokksins, gengu
til liðs við stjórnarandstöðuna á
Alþingi í gær þegar atkvæða-
greiðsla um að vísa samningnum
um Evrópska efnahagssvæðið til
þjóðaratkvæðagreiðslu var
afgreidd. Eggert Haukdal kaus
að sitja hjá en Egill Jónsson, sem
einnig hafði lýst efasemdum um
samninginn greiddi atkvæði á
móti tillögunni. Matthías Bjarna-
son var fjarverandi og einnig
Össur Skarphéðinsson frá
Alþýðuflokki. pj
sjávarútvegi frá öðrum löndum
Suður-Ameríku. Jón segir að
þarna sé að opnast nýir markaðir
til að markaðssetja ný tæki og
vélar fyrir sjávarútveginn og
undanfarið hefur Sverrir Guð-
mundsson viðskiptafulltrúi
Útflutningsráðs dvalið í Chile og
undirbúið jarðveginn fyrir mark-
aðsstarf íslenskra fyrirtækja og
hafa þau í auknum mæli nýtt sér
það. í bígerð er að stofna fyrir-
tæki þarna ytra í samstarfi við
þarlenda aðila til að greiða fyrir
markaðssetningu á vélum og
búnaði fyrir sjávarútveg.
Vélsmiðjan Oddi hf. mun ekki
senda sérstakan fulltrúa á sýning-
una en hins vegar mun fulltrúi
Útflutningsráðs vera þar með
bæklinga og myndir af fram-
leiðslu Odda hf., en sérstök
áhersla verður lögð á kynningu á
kassaklóm og kassalosurum fyrir
fiskikassa.
Oddi hf. hefur á undanförnum
árum selt í litlum mæli til Chile
gegnum erlenda söluaðila en öll
markaðssetning þar er mjög dýr
vegna fjarlægðar, en að sögn
Torfa Guðmundssonar fram-
kvæmdastjóra opnast nýir mögu-
leikar með samstarfi íslenskra
útflutningsfyrirtækja í þessari
heimsálfu.
Þórir Matthíasson sölustjóri
Sæplasts hf. segir að fyrirtækið
muni kynna á vörusýningunni
trollkúlur og plastbretti auk
plastkaranna. Þarna er um
algjörlega nýtt markaðssvæði að
ræða en mikil uppsveifla á sér
stað í öllu atvinnulífi í Chile og
svæðið því mjög áhugavert. Um
næstu helgi verður einum 20 feta
gámi með 40 körum ásamt lokum
afskipað áleiðis til Montevideo í
Uruquay en samningar tókust við
hina suður-amerísku kaupendur
á World-Fishing sýningunni í
Kaupmannahöfn sl. vor. Körin
verða notuð til saltfiskverkunar
við La-Plataflóann. GG