Dagur - 06.11.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 6. nóvember 1992
Fréttir
Hæstiréttur:
Staðfesti niðurstöðu
bæjarþings Akureyrar
í síðustu viku staðfesti Hæsti-
réttur dóm bæjarþings Akur-
eyrar frá í júlí 1989 vegna
stefnu landeiganda og ábúanda
á jörðinni Grísará í Eyjafjarð-
arsveit gegn bæjarsjóði Akur-
eyrar. Málavextir eru þeir að
við niðurdælingu Hitaveitu
Akureyrar í borholur á vinnslu-
svæði sínu framan Akureyrar
hvarf vatn úr borholu á jörð-
Dómur bæjarþings Akureyrar
Akureyri:
Útgáfuhljómleikar
Bubba 18. nóvember
Bubbi Morthens heimsækir
Akureyri þ. 18. þessa mánaðar
með fríðu föruneyti. Hann
mun halda útgáfuhljómleika í
SjaUanum vegna nýútkomins
geisladisks síns en þetta eru
einu tónleikarnir sem Bubbi
heldur á Norðurlandi að þessu
sinni.
Geisladiskurinn Von var tek-
inn upp á Kúbu og gætir áhrifa á
honum af þarlendri tónlist. Með
Bubba á hljómleikunum á Akur-
eyri, sem og annars staðar á land-
inu, verða meðlimir kúbversku
hljómsveitarinnar Sierra Maestra
sem er ein vinsælasta hljómsveit-
in á Kúbu en hún leikur með
Bubba á nýja diskinum. Einnig
verða þrír íslenskir tónlistar-
menn með í för, þeir Eyþór
Gunnarsson, Gunnlaugur Briem
og Tryggvi Hubner.
Forsala aðgöngumiða á tón-
leika Bubba í Sjallanum verður
hjá versluninni Radíónausti á
Akureyri. JÓH
var á sínum tíma þannig að Hita-
veitu Akureyrar bæri að afhenda
landeigendum á Grísará 0.3 sek-
úndulítra af 43 gráðu heitu vatni
eða annað vatnsmagn með hærra
hitastigi en að tilsvarandi orku-
gildi, svo og greiða stefnendum
75 þúsund krónur í málskostnað.
Niðurstöðunni var áfrýjað til
Hæstaréttar og krafist að stefnend-
um verði afhent án endurgjalds
2,5 sekúndulítrar af 90 heitu
vatni eða samsvarandi vatnsmagn
með öðru hitastigi svo lengi sem
stefndi vinni heitt vatn af núver-
andi vinnslusvæði sunnan Akur-
eyrar. Hæstiréttur komst svo að
þeirri niðurstöðu í síðsutu viku
að dómur bæjarþings Akureyrar
■standi og var málskostnaður
felldur niður. JÓH
Eins og sagt var frá í Degi í gær, hefur báturinn Ásborg EA verið seldur til Keflavíkur. Báturinn lá í gær við bryggju
hjá Siippstöðinni og bíður þess að komast í yfirhalningu. A innfeldu myndinni er nýr bátur Húsvíkinga í slipp en
hann hefur fengið nafnið Aldey ÞH-110 en hét áður Stokksey ÁR-50. Mynd: kk
Tillögur um sameiningu sveitarfélaga:
Mikilvægast að styrkja byggðina en
núverandi hreppamörk eUd heilög
segir Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík
Jóhanna Sigurðardóttir, fé-
lagsmálaráðherra, og fyígdar-
lið hennar hélt fund á Húsavík
sl. þriðjudagskvöld til að
kynna tiUögur um sameiningu
sveitarfélaga. Á fundinn voru
boðaðir sveitarstjórnarmenn á
svæðinu, forstöðumenn heilsu-
gæslustöðvar, sjúkrahúss,
öldrunarþjónustu og skóla-
stjórar grunnskóla. Nefndin
leggur til að þessir málaflokkar
verði þeir sem fyrstir verða
færðir til sveitarfélaganna við
breytta verkaskiptingu ríkis og
bæja.
„Það voru nokkuð skiptar
skoðanir á fundinum. Fram
komu raddir um að fara sér hægt
í þessu máli og skoða það mjög
vandlega, en það kom líka fram
að menn teldu að núverandi
hreppamörk væru alls ekki heilög.
Þau hefðu verið sett á löngu liðn-
um tíma og gengið hefði verið út
frá öðrum forsendum en eru í
dag, það væri ekki óeðlilegt að
menn tækju nýjum tíma með
breyttum tökum og í stærri ein-
ingum,“ sagði Einar Njálsson,
bæjarstjóri á Húsavík, aðspurður
um afstöðu fundarmanna til til-
lagnanna.
Einar sagði að fram hefði kom-
ið að skynsamleg væri sú megin-
regla að skattpeningum fólks
væri ráðstafað í sem mestri
nálægð við fólkið sjálft og það
hefði sem beinust áhrif á í hvað
Lokaspretturinn fram-
undan á þjóðvegi 1
- aðeins eftir að leggja bundið slitlag á
26 km á milli Akureyrar og Reykjavikur
Nú á aðeins eftir að leggja
bundið slitlag á 26 kílómetra á
þjóðvegi 1 á milli Akureyrar og
Reykjavíkur. Hér er um að
ræða þrjá kafla, 5 kílómetra
kafla í Norðurárdal frá Norðurá
að Fornahvammi, sömu vega-
lengd í svokallaðri Bólstaðar-
hlíðarbrekku í Vatnsskarði og
um 16 kílómetra kafla á Öxna-
dalsheiði.
Samvinnuferðum-Landsýn
Veitt helstu ferða-
málaverðlaun írlands
Samvinnuferðir-Landsýn hljóta
verðlaun írska Ferðamála-
ráðsins, The Doyle Tourism
Awards fyrir þetta ár. Verð-
launin eru veitt árlega þeim
erlendum aðilum sem þykja
hafa skarað fram úr við að
skipuleggja ferðir til Irlands.
Helgi Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Samvinnuferða-
Landsýnar, mun taka við verð-
laununum í hádegisverðarboði
Alberts Reynolds, forsætisráð-
herra írlands, í Dublin í dag.
Þáttur Samvinnuferða-Land-
sýnar í skipulagningu ferða til
írlands og þá sérstaklega til
Dublin hefur vakið mikla athygli,
enda hafa um 7500 íslendingar
sótt landið heim á þessu ári.
Munar þar mestu um geysivinsæl-
ar haustferðir sem nú standa yfir
en vikulegar ferðir til írlands sl.
sumar fengu góðar viðtökur.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerð ríkisins er þegar búið að
vinna undirvinnu á 11,5 kíló-
metra. þess kafla á Öxnadalsheiði
sem ætlunin er að leggja á slitlag
næsta sumar. Stefnt erað því að
slitlag verði komið á allanvegar-
kaflann 1994.
í Borgarfirði hefur nýlega verið
boðin út undirvinna í 5 kílómetra
vegarkafla frá brúnni yfir Norðurá
að Fomahvammi og er ætlunin að
þeirri vinnu ljúki á næsta ári.
Bundið slitlag ætti þá að vera í
sjónmáli. Þá verður ráðist í fram-
kvæmdir við breytingar á veg-
stæði vegarins við Bólstaðahlíð í
Austur-Húnavatnssýslu og mun sú
vinna væntanlega hefjast næsta
sumar. Þar er um að ræða 5
kílómretra kafla sem ætlunin er að
leggja varanlegu slitlagi sumarið
1994 ef áætlanir standast.
Ef fram heldur sem horfir
munu vegfarendur því eiga von á
að geta ekið samfellt á bundnu
slitlagi á milli Akureyrar og
Reykjavíkur eftir sumarið 1994.
Ragnheiður Davíðsdóttir.
Höfundur er nemandi í hagnýtri fjölmiðaun við
Háskóla Islands.
peningunum væri ráðstafað. í
ljósi þess væri mikilvægt að auka
sjálfstæði sveitarfélaga og veita
þeim aðgang að fleiri verkefnum
til stjórnunar, því þar með hefði
fólkið beinni áhrif á ráðstöfun
skattteknanna.
Á fundinum kom fram að í dag
er samstarf sveitarfélaga í Þing-
eyjarsýslu víðtækt varðandi
heilsugæslu og öldrunarþjónustu
og í uppsiglingu er samstarf um
sorpeyðingu. Upp kom spurning
um hvort ekki næðist nægileg
hagræðing í samvinnu um fram-
kvæmd þessara mála og hvort
nauðsynlegt væri að sameina sveit-
arfélögin til að ná fram hag-
kvæmninni af samvinnunni.
„Mér persónulega finnst vera
þarna mjög stórt mál á ferðinni.
Landsbyggðin á í sameiginlegri
varnarbaráttu. Með það í huga er
mjög mikilvægt fyrir okkur,
sveitarstjórnarmenn á lands-
byggðinni, að taka með opnum
og jákvæðum huga þátt í allri
umræðu um leiðir til að styrkja
stöðu sveitarfélaganna, og þar
með til að styrkja byggð á lands-
byggðinni.
Ef menn ætla að ganga til
stækkunar sveitarfélaga, þá
verða menn að nota þann undir-
búningstíma sem þeir ætla sér til
þess að huga að veigamiklu máli,
undirstöðu þess að sameining
geti tekist, en hún er sú að sam-
göngur séu greiðar á þeim svæð-
um sem menn ætla að sameina.
Umbótum í samgöngumálum
verður því að sinna mjög
markvisst, samhliða öðrum
undirbúningi," sagði Einar.
Hann sagði að mörg fleiri mál
þyrftu athugunar við og nefndi
orkumálin. Sem dæmi tók hann
að Rafveita Húsavíkur væri eig-
andi dreifikerfisins á Húsavík en
í öðrum sveitarfélögum væru
Rafmagnsveitur ríkisins eigendur
dreifikerfa. Huga þyrfti að með
hvaða hætti þessi mál yrðu leyst,
þannig að stórt sveitarfélag gæti
boðið þegnum sínum upp á eitt
raforkuverð.
„Það er margt að skoða og við
verðum að ganga til umræðunnar
með mjög opinn huga og það eitt
að markmiði að styrkja byggð-
ina, en ekki að sameina vegna
sameiningarinnar. Mér finnst að
þéttbýlisstaðir eigi að fara mjög
varlega í sakirnar varðandi sam-
einingarmálin, en taka því vel ef
minni sveitarfélög óska eftir sam-
einingu. Það er grundvallaratriði
að tryggja réttindi fólksins í hin-
um minni sveitarfélögum," sagði
Einar. IM
Eyjaijarðarsveit:
Menntaskólanemendur gera
könnun á frárennslismálum
Nemendur í fjórða bekk
Menntaskólans á Akureyri
gerðu í síðustu viku könnun á
ástandi frárennslismála í
Eyjafjarðarsveit. Sveitarstjórn
samþykkti síðastliðinn vetur
að gera þessa könnun og var
nemendum Menntaskólans
fengið það verkefni að gera
hana á um helmingi bæja í
sveitinni en ráðinn hefur verið
aðili til að Ijúka upplýsinga-
söfnuninni.
Pétur Þór Jónasson, sveitar-
stjóri, segir að nokkrir nemendur
úr hópnum muni svo vinna úr
þeim upplýsingum sem safnað
verður. Aðspurður segir hann að
áætlun um endurbætur í frá-
rennslismálum verði væntanlega
skoðuð í framhaldi af könnun-
inni.
„Við höfum engar upplýsingar
um hvernig ástandið er yfir
svæðið. Sjálfsagt er það allt frá
því að vera mjög gott og yfir í að
vera mjög slæmt. Ef niðurstaðan
verður þannig þá erum við að
velta fyrir okkur að úrbætur verði
gerðar í sameiginlegu átaki og að
sveitarfélagið gæti þá hugsanlega
komið inn í það, t.d. komið á
sameiginlegum innkaupum eða
eitthvað slíkt,“ sagði Pétur Þór.
JÓH