Dagur - 06.11.1992, Síða 3
Föstudagur 6. nóvember 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Ný sundlaug á Dalvík:
UMFS vfll innrétta búningsklefa
Byggingu nýrrar sundlaugar á
Dalvík miðar vel, og er reikn-
að með að lokið verði við að
steypa upp húsið og setja á það
þak um mánaðamótin nóvem-
ber/desember. Áætlaður bygg-
ingakostnaður er rúmar 40
milljónir króna en ekki hefur
Menningarsjóður íslands og Finnlands:
Skautafélagið fær styrk
Menningarsjóður íslands og
Finnlands hefur ákveðið að
veita íshokkídeild Skautafélags
Akureyrar styrk að upphæð
5.000 mörk, eða um 60 þúsund
krónur, „til samstarfs við Finn-
land á sviði íshokkí,“ eins og
segir í skýringu með styrkút-
hlutuninni.
Magnús Finnsson, gjaldkeri
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjarráð hefur samþykkt
beiðni frá Svæðisstjórn um
málefni fatlaðra Norðurlandi
eystra, þar sem leitað er eftir
leigu á húsnæði í eigu Akur-
eyrarbæjar að Bugðusíðu 1, til
loka árs 1993. Bæjarráð sam-
þykkir að leigja umbeðna eign
undir starfshæfingu og vinnu-
þjálfun fyrir fatlaða, frá 15.
nóv. nk. til ársloka 1993.
■ Húsnæðismál Ménntaskól-
ans á Akureyri voru til
umræðu á fundi bæjarráðs
nýlega. Tryggvi Gíslason,
skólameistari, gerði grein fyrir
mikilli þörf skólans fyrir aukið
húsnæði hið fyrsta eigi skólinn
að geta veitt allt að 650
nemendum skólavist en ella
verði óhjákvæmilegt að fækka
nemendum. Hann iagði
áherslu á að bæjarráð ræddi
þessi mál og legði því lið að
byggingaframkvæmdir gætu
hafist við skólann hið fyrsta.
■ Bygginganefnd hefur sam-
þykkt erindi frá Svæðisstjórn
málefna fatlaðra Norðurlandi
eystra, þar sem sótt er um lóð-
ina nr. 16 við Hafnarstræti til
að byggja á sambýli fyrir fjöl-
fatlaða. Bygginganefnd telur
jafnframt í ljósi stöðu lóðar-
innar í gildandi skipulagi, að
vel sé við hæfi að byggja lóð-
ina fyrir viðkomandi starfsemi.
■ Bygginganefnd hefur borist
erindi frá Aðalsteini V. Júlíus-
syni, þar sem hann f.h. Spari-
sjóðs Akureyrar, spyrst fyrir
um hvort leyfi fengist til að
byggja við húsið nr. 1 við
Brekkugötu, þ.e. til norðurs
og austurs og er gert ráð fyrir
að nýbyggingar nái austur fyrir
núverandi lóðamörk. Nefndin
hefur falið byggingafulltrúa,
skipulagsstjóra og slökkviliðs-
stjóra að ræða við umsækj-
anda.
■ Bæjarráði hefur borist bréf
frá Árna Pálssyni hdl., þar
sem hann fyrir hönd Bygg-
ingafélagsins Lindar hf. krefur
Bæjarsjóð um endurgreiðslu á
byggingaleyfisgj aldi og bíla-
stæðagjaldi af Hafnarstræti 97,
sem hann segir hafa verið
greidd með fyrirvara í nóv.
1991. í bréfinu er talið
óheimilt að krefja um greiðslu
byggingaleyfisgjalds (gatná-
gerðargjalds) og innheimta
bílastæðagjalds hafi ekki stoð
í lögum. Bæjarráð getur ekki
fallist á rök bréfritara og hafn-
ar endurgreiðslu gjaldanna.
Hús 15tekmrbí Lögreglan á Húsavík var á ferð með klippur í gær og fyrradag og svifti númerum af bifreiðum sem eigendur höfðu vanrækt að færa til skoðunar eða borga bifreiðagjöld af. Á þriðjudag var átak í gangi hjá lögreglu varðandi bílbelta- avík: Ibeltalausir notkun í bænum og 15 ökumenn sektaðir fyrir að brjóta lög varð- andi bílbeltanotkun. Full ástæða er að hvetja fólk til að nota bíl- beltin, ekki síst þessa dagana þegar aukin hætta er á óhöppum vegna slæmra akstursskilyrða og mikillar hálku á köflum. IM
Æðaræktarfélag Eyja Aðalfundui Aðalfundur Æðaræktarfélags Eyjafjarðar og Skjálfanda verður haldinn í kvöld, föstu- dag, að Sólvangi á Tjörnesi og hefst fundurinn kl. 21. Æðaræktarfélagið er 5 ára og verður þess minnst á fundinum. Árni Snæbjörnsson, æðaræktar- ijarðar og Skjálfanda: r á Tjöraesi ráðunautur og Davíð Gíslason formaður Æðaræktarfélags íslands flytja erindi. Fjallað verð- ur um hagsmunamál æðarrækt- enda, m.a. vargfuglseyðingu. Nýir félagar eru velkomnir á fundinn og einnig þeir sem áhuga hafa á að kynna sér málefni félagsins. IM
Skautafélagsins, segist ánægður
með þessa ákvörðun Menningar-
sjóðsins, en umsókn félagsins var
byggð á annars vegar heimsókn
tveggja íshokkíspilara frá Akur-
eyri til Finnlands og hins vegar
hingaðkomu íshokkíþjálfara frá
Finnlandi, Pekka Santanen, en
hann er á leið til landsins og mun
sjá um þjálfun hjá Skautafélagi
Ákureyrar í vetur og spila með
meistaraflokksliðinu. óþh
enn verið gengið frá endanleg-
um samningum við verktak-
ann, Tréverk hf.
Ungmennafélag Svarfdæla hef-
ur boðist til að innrétta neðri
hæðina svo búningsklefar þar
komi að notum vegna knatt-
spyrnu- og íþróttamóta sem fram
fara á íþróttasvæðinu sem stað-
sett er austan sundlaugarbygging-
arinnar. Ungmennafélagið hefur
óskað eftir því að Þorbergur
Karlsson, verkfræðingur hjá
mannvirkjanefnd Knattspyrnu-
sambands íslands, komi norður
og líti á búningsklefa með tilliti
til aðgangs frá íþróttavelli. Á árs-
þingi KSÍ, sem haldið verður í
lok þessa mánaðar, verður lögð
fram tillaga að reglugerð fyrir
mannvirkjanefnd KSÍ, sem auð-
velda mun öll störf nefndarinnar.
! GG
Atakalítið þing landssam-
bands hestamannafélaga
- Guðmundur Jónsson frá Reykjum kjörinn formaður
Aðabnál þings Landssambands
hestamanna að Flúðum, sem
haldið var nýverið, var reið-
vegamál. Framsögu um þann
málaflokk höfðu Arni Mathie-1
sen frá samgöngunefnd Alþing-
is, Jón B. Jónsson aðstoðar-
vegamálastjóri, Kristján Auð-
unsson fyrir hönd hestamanna
og Bryndís Brynjólfsdóttir fyr-1
ir Samband íslenskra sveitar-
félaga. Ræðumenn voru sam-
mála um nauðsyn þess að
skilja að umferð akandi manna
og ríðandi til að auka öryggi
fyrir alla aðila. Engin tillaga
kom fram hvernig leysa beri
málið, en pallborðsumræður
að loknum erindum voru
fjörugar.
Kári Arnórsson, sem hefur
gegnt embætti formanns undan-
farin fjögur ár, gaf ekki kost á sér
til endurkjörs. Guðmundur Jóns-
son frá Reykjum var kjörinn nýr
formaður á landsþinginu, sem
var hið 43. Áður gegndi Guð-
mundur stöðu varaformanns.
Kjörnir þingfulltrúar voru 122 frá
46 hestamannafélögum. Auk
þess voru á þinginu stjórnarmenn
og gestir.
A þinginu var skipuð fimm
manna nefnd til að fara í saum-
ana á fyrirhuguðum sameiningar-
málum Landssambands hesta-
mannafélaga og Hestaíþrótta-
sambands íslands. Fyrir þinginu
lá sú tillaga, að landsþing yrðu
framvegis haldin annað hvert ár.
Tillagan var felld.
Bætt var inn setningu í reglu-
gerð um gæðingakeppni á þá
vegu að nú er hrossum í eigu
hrossabús heimilað að taka þátt í
gæðingakeppni ef eigandi hrossa-
búsins eða umsjónarmaður er
félagsmaður í Landssambandi
hestamannafélaga. Sem kunnugt
er komu upp deilur í sumar er
hestum Hólabúsins var vísað frá
gæðingakeppni. Héðan í frá eru
stóðhestar og hryssur Hólabúsins
og stóðhestar ræktunarsambanda
gjaldgeng í gæðingakeppnum.
Landsþingið var átakalítið og
stjórn Landssambands hesta-
mannafélaga skipa nú: Guð-
mundur Jónsson formaður,
Guðbrandur Kjartansson vara-
formaður, Sigfús Guðmundsson,
Jón Bergsson, Sigbjörn Björns-
son, Halldór Gunnarsson og
Kristmundur Halldórsson. ój
Ummæli formanns LÍU um íslenskan skipaiðnað:
íslenskur skipaiðnaður er ágæflega sam-
keppnisfær við lang flest erlend fyrirtæki
Málmur - samtök fyrirtækja í
málm- og skipaiðnaði - lýsir
furðu á viðbrögðum forystu-
manna LÍÚ við tillögum
félagsins til þess að treysta
stöðu íslensks skipaiðnaðar. Á
aðalfundi LÍÚ fullyrðir for-
maðurinn að samtök fyritækja
í málm- og skipaiðnaði leggi til
að útvegsmönnum verði alfar-
ið bannað að smíða skip eða
gera við þau erlendis. Hér er
hallað réttu máli, eins og segir
í athugasemd frá Málmi.
Hin sanna í málinu er að
Málmur hefur lagt til að Fisk-
veiðasjóður veiti ekki lán til ný-
smíða eða breytinga ef sú vinna
fer fram erlendis enda er litið svo
á að það standi sjóðnum nær að
stuðla að atvinnuuppbyggingu
hér á landi frekar en erlendis.
Norski Fiskveiðasjóðurinn hefur
komist að sömu niðurstöðu og
því veitir hann enga fyrirgreiðslu
til skipasmíða utan Noregs.
Formaður LÍÚ telur að skipa-
iðnaðinum „væri nær að líta í eig-
in barm og skoða vinnulag og
nýtingu vinnutíma.“ Síðan held-
ur hann áfram með hálfkveðnar
vísur og segir: „Það mun alltaf
verða erfitt að selja öðrum óunn-
inn tíma og á hærra verði en
almennt gerist vegna yfirborg-
ana.“
Málmur getur út af fyrir sig
tekið undir að skipaiðnaðurinn
eigi ávallt eins og aðrar atvinnu-
greinar að líta í eigin barm og
kosta kapps um að gera betur.
Þetta hefur íslenskur skipaiðnað-
ur gert og því er hann í dag ágæt-
lega samkeppnisfær við flest
erlend fyrirtæki jafnvel þótt þau
SkagaQörður:
Bændur vilja sleppa sauðprböðun
- samþykkt að sækja um undanþágu
Á aðalfundi Héraðsnefndar
Skagfirðinga á miðvikudag var
borin fram og samþykkt sú til-
laga að sækja um undanþágu
frá böðun sauðfjár í héraðinu.
Tillagan kom frá Lýtingsstaða-
hreppi og efni hennar var að sótt
yrði um undanþágu til yfirdýra-
læknis fyrir bændur í Skagafirði
frá böðun sauðfjár fyrir veturinn
1992-3. Hinsvegar fengju bændur
fé sitt sprautað gegn kláða. Til-
lagan var samþykkt að sögn
Magnúsar Sigurjónssonar fram-
kvæmdastjóra Héraðsnefndar-
innar. Sagði hann ástæðuna m.a.
þá að bændur teldu böðunina
dýra og hefði einn bóndinn sagt
sinn böðunarkostnað hafa verið
um 70 þúsund krónur í fyrra.
Bændur telja böðun óþarfa þar
sem engin óþrif séu í fé. Ekki
náðist í Elínu Sigurðardóttur
oddvita Lýtingsstaðahrepps. sþ
njóti
styrkja.
einhverra opinberra
Það er því ekki einasta smekk-
laust af formanni LÍÚ heldur líka
rangt að gefa í skyn að óhag-
kvæmni og óljósar kenningar um
óunnin tíma ásamt yfirborgunum
leiði til þess að greinin sé ekki
samkeppnishæf. Auðvitað veit
formaður LÍÚ að ástæður þess að
útvegsmenn eru að fá lægstu verð
erlendis hafa ekkert með hag-
kvæmni og góðan rekstur við-
komandi skipasmíðastöðva að
gera heldur eru fyrst og fremst
afleiðing af styrkjakerfum þess-
ara landa til skipaiðnaðar síns,
eins og segir m.a. í athugasemd
frá Málmi. -KK
Leiðrétting
Fyrirsögn á grein Valdimars
Gunnarssonar, menntaskóla-
kennara, um bókina Saga lands-
móta UFMÍ, í blaðinu í gær, mis-
ritaðist. Hún átti að sjálfsögðu að
vera „íslandi allt“ en ekki fsland
allt. Beðið er velvirðingar á þess-
um mistökum.