Dagur - 06.11.1992, Blaðsíða 5
Föstudagur 6. nóvember 1992 - DAGUR - 5
Hvað er að gerast?
KFUM og KFUK:
Kaffisala í
Sunnuhlíð á
kristniboðs-
daginn
KFUM og KFUK gengst fyrir kaffi-
sölu í félagsheimili félaganna í
Sunnuhlíð á sunnudaginn kemur.
Kaffisalan er haldin í tilefni af
kristniboðsdeginum sem er þann
dag og hefst að loknum guðsþjón-
ustum í Akuryrar- og Glerár-
Mikið um að
vera í Sunnuhlíð
í dag og á morgun heldur tíu ára
afmælisveisla Sunnhlíðar áfram. í
dag, föstudag, kl. 14.30 skemmtir
Skralli trúður börnunum og kl. 16
syngja og leika Pálmi Gunnarsson
og Níels Ragnarsson. Á morgun kl.
14 verður tískusýning fra verslunum
í Sunnuhlíð.
Afmælisdagana verður afmælis-
afsláttur og sprengitilboð í öllum
verslunum. Þá er þess að geta að í
dag og á morgun verður handverks-
fólk úr Eyjafirði og nágrenni í
Sunnuhlíð og selur framleiðslu sína.
Tónlistarfélag Akureyrar:
Vocis Thulis í
Akureyrarkirkju
ámorgun
Aðrir tónleikar á 49. starfsári Tón-
listarfélags Akureyrar verða haldnir
í Akureyrarkirkju á morgun, 7.
nóvember, kl. 17. Þar mun söng-
hópurinn Vocis Thulis og félagar úr
kammersveitinni Caput flytja verk
eftir eistneska tónskáldið Árvo Part
og einnig trúarleg verk úr íslenskum
handritum frá miðöldum fram á 17.
öld, s.s. gregorianska messukafla,
fjögurra radda- og tvísöngssálma.
Flytjendur á tónleikunum verða
Sverrir Guðjónsson, kontratenór,
Sigurður Haíldórsson, kontratenór
og selló, Guðlaugur Viktorsson,
tenór, Eggert Pálsson, baritón og
slagverk, Ragnar Davíðsson, bassi,
Hildigunnur Halldórsdóttir, fiðla,
Zbignew Dubik, fiðla, Guðmundur
Kristmundsson, lágfiðla og Hilmar
Örn Agnarsson, orgel.
Sniglabandið
og 1000 andlit
í Sjallanum
I kvöld verða góðir gestir á Sjalla-
kránni. Sniglabandið með Skúla
Gautason í broddi fylkingar leikur
fyrir gesti og gangandi og er aðgang-
ur ókeypis. Sniglabandið fékk fyrir
nokkrum mánuðum liðsauka þegar
Pálmi Sigurhjartarson, píanóleikari,
gekk til liðs við hljómsveitina.
Pálma ættu menn að þekkja úr
hljómsveitum eins og Centaur og
íslandsvinum. Annað kvöld leikur
hljómsveitin 1000 andlit í Sjallan-
um.
Veröld Waynes
í Borgarbíói
Borgarbíó sýnir um helgin kl. 21
Veröld Waynes, sem er villt gaman-
mynd. Á sama tíma verður sýnd
myndin Batman snýr aftur 2, en hún
hefur víða slegið aðsóknarmet.
Klukkan 23 verða sýndar myndirnar
Ferðin til Vesturheims, með Tom
Cruise og Nicole Kidman í aðalhlut-
verkum, og Alien 3, sem er spennu-
mynd. Á barnasýningum á sunn-
udag kl. 15 verða sýndar myndirnar
Batman snýr aftur 2 og Prinsessan
og durtarnir.
kirkjum er hefjast kl. 14.00. Allur
ágóði af kaffisölunni rennur til
kristniboðsstarfa. Að kvöldi sama
dags verður samkoma í Sunnuhlíð
þar sem Skúli Svavarsson, kristni-
boði, mun flytja erindi. Bókamark-
aður verður opinn eftir samkomuna
og einnig verða kaffiveitingar á
boðstólum.
Markaður í
Sólgarði í
Ejjaflarðarsveit
ámorgun
Samstarfshópurinn Hagar hendur í
Eyjafjarðarsveit stendur fyrir mark-
aði í Sólgarði í Eyjafjarðarsveit á
morgun, laugardaginn 7. nóvember,
kl. 13.30 til 17. Auk fjölbreytts
varnings verður boðið upp á kaffi-
hlaðborð fyrir 500 krónur.
Radionaust með
sýningu á
morgun og
laugardag
Verslunin Radionaust á Akureyri
verður í dag, föstudag, kl. 16-18, og
á morgun, laugardag, kl. 10-14, með
sýningu á tækjum frá Sanyo,
Philips, Jensen, Sherwood og
Blaupunkt. Tilboðsverð verður á
ýmsum tækjum. Sérfræðingar frá
Gunnari Ásgeirssyni og Heimilis-
tækjum verða á staðnum.
Mánakórinnmeð
tónleika í Ár-
garði í Skagafirði
Mánakórinn heldur tónleika í Ár-
garði í Skagafirði annað kvöld,
laugardaginn 7. nóvember, kl. 21.
Stjórnandi kórsins er Gordon Jack.
Efnisskráin er blanda (slenskrar og
erlendrar tónlistar. Einsöngvarar
með kórnum verða systkinin Ingunn
Aradóttir og Jósavin Arason.
Rokkbandið á
Hótel KEA
Hljómsveitin Rokkbandið leikur
fyrir dansi á Hótel KEA á Akureyri
annað kvöld. Vegna einkasam-
kvæmis verður lokað fyrir matar-
gesti, en eftir kl. 23 verður selt inn á
dansleikinn.
Súlnaberg býður að vanda upp á
sunnudagsveislu. f boði er súpa,
reykt grísalæri með rauðvínssósu og
eða lambalæri Bearnaise og desert á
eftir. Máltíðin kostar 1050 krónur,
frítt fyrir börn 0-6 ára og hálft gjald
fyrir 7-12 ára.
Þrjár sýningar
á Línu langsokk
Leikfélag Akureyrar verður með
þrjár sýningar um helgina á Línu
langsokk, á morgun kl. 14 og sunnu-
dag kl. 14 og 17.30. Miðasala er í
Samkomuhúsinu alla virka daga
nema mánudaga kl. 14-18 og sýning-
ardagana fram að sýningu. Laugar-
daga og sunnudag kl. 13-18.
Kvikmyndaklúbb-
urhmsýnir
Rapsódíu í ágúst
Kvikmyndaklúbbur Akureyrar
stendur fyrir sýningum á stórmynd
Akira Kurosawa, Rapsódía í ágúst,
í Borgarbíói nk. sunnudag kl. 17 og
nk. mánudag kl. 18.30. Miðaverð
kr. 500, en 400 kr. fyrir skólafólk og
klúbbfélaga.
Happdrætti SÁÁ-N:
Til styrktar
starfinu á
Norðurlandi
SÁÁ-N stendur nú fyrir sínu glæsi-
lega happdrætti, eins og undanfarin
ár. Gengið verður í hús á Akureyri
og öðrum þéttbýliskjörnum á
Norðurlandi dagana 7.-15. nóvem-
ber nk. og hvetur stjórn SÁÁ-N alla
að taka vinsamlega á móti sölufólk-
inu.
Vinningar í happdrættinu eru 38
talsins, allt vöruúttektir fyrir alls
eina milljón króna. Aðalvinningur-
inn er 300.000 kr. vöruúttekt frá
Vörubæ.
Góðir gestir hjá
Hjálpræðishemum
á Akureyri
Hjálpræðisherinn á Akureyri fær
góða heimsókn um helgina. Sænsk
hjón, Marie-Helene og Ingemar
Myrin, ásamt Daníel Öskarssyni,
munu hafa hér Biblíuhelgi.
Almennar samkomur verða í kvöld,
föstudag, kl. 20.30, annað kvöld kl.
20 og á sunnudag kl. 11 og 20. Auk
þesss verða Biblíutímar á morgun
kl. 14 og 17 og sunnudag kl. 16.30.
Allir eru hjartanlega velkomnir og
hvetur Hjálpræðisherinn fólk til að
koma og taka þátt í söng og
lofgjörð. Samverustundirnar verða
á Hjálpræðishernum, Hvannavöll-
um 10.
Safnahúsið á Húsavík:
Sýningu Aðalbjargar
lýkur á morgun
Málverkasýningu Aðalbjargar Jóns-
dóttur í Safnahúsinu á Húsavík lýk-
ur laugardaginn 7. nóv. En sýningin
er opin í dag og á morgun kl. 14-19.
Á sýningunni eru 50 myndir og
leitar Aðalbjörg víða fanga hvað
myndefnið varðar. Einnig sýnir
Aðalbjörg nælur og slæðuhringi,
handunnin kort og frammi liggja
albúm með myndum frá sýningum
Aðalbjargar á handprjónuðum kjól-
um úr íslenskri ull, ótrúlegum
eingirnislistaverkum. Aðalbjörg
prjónaði meðal annars brúðarkjóla
með slöri og hélt eftirminnilega sýn-
ingu á Kjarvalsstöðum 1982.
Aðalbjörg er mikil hagleikskona
og virkilega ljúft að líta við á sýn-
ingu hennar. Þar er gestum boðið
upp á kaffi og heimabakaðar smá-
kökur.
„Happdrættið hefur verið ein
þýðingarmesta fjáröflun SÁÁ-N og
vegna þeirra háalvarlegu áforma um
niðurskurð til áfengis- og vímuefna-
meðferðar er enn brýnna að við
stöndum saman hér heima í héraði
og gerum SÁÁ-N kleyft að halda
áfram og efla þá þjónustu við áfeng-
is- og vímuefnaneytendur sem
SÁÁ-N hefur staðið fyrir. Með því
að kaupa miða ert þú fyrst og fremst
að styðja starfið hér á Norður-
landi.“
Félagsvist að
MelumíHörgárdal
Kvenfélagskonur efna til félagsvist-
ar að Melum í Hörgárdal annað
kvöld, laugardagskvöldið 7.
nóvember, kl. 21. Þetta er fyrsta
spilakvöldið af þrem. Kaffiveiting-
ar. Allir eru hjartanlega velkomnir
Námskeið í
gæðastjórnun
á Akureyri í
dagogámorgun
Gæðastjórnunarfélag Norðurlands
og endurmenntunarnefnd Háskól-
ans á Akureyri standa fyrir nám-
skeiði í altækri gæðastjórnun um
helgina að Glerárgötu 36 á Akureyri
og nefnist það „Skipulagning gæða-
stjómunar - vinnunámskeið fyrir
stjórnendur." Fyrirlesari verður
Höskuldur Frímannsson, MBA
rekstrarráðgjafi. Námskeiðið hefst
kl. 15 í dag og lýkur um hádegi á
morgun.
Hvítasunnukirkj an:
Norskur predikari
í Hrísey og
áAkureyri
Um helgina heimsækir norski
predikarinn Kristian Sand Akureyri
og Hrísey, en hann er búsettur í
London og starfar við kristniboð
meðal Indverja sem búsettir eru í
Englandi. Kristian predikar í kvöld,
föstudag, kl. 20 í Sæborg í Hrísey
ásamt hópi úr Hvítasunnukirkjunni
á Akureyri, sem sér um söng og
tónlist. Á morgun, laugardag, kl. 20
og nk. sunnudag kl. 15.30 verður
hann með samkomu í Hvítasunnu-
kirkjunni við Skarðshlíð á Akur-
eyri.
Bólu-markaður
áAkureyriá
morgunogsimnudag
Svokallaður Bólu-markaður að
Eiðsvallagötu 6 n.h. á Akureyri
verður opinn um helgina, á morgun,
laugardag, kl. 11-15 og nk. sunnu-
dag kl. 13-16. Báða dagana verður
boðið upp á t.d. hreinsaðar sviða-
lappir, vettlinga, brosandi brúður,
keramik, lakkrís, kökur, brauð,
brodd, reyktan silung og lax. Haddý
verður á sínum stað. Sérstök athygli
er vakin á kynningu á kryddblönd-
unni Potta-galdrar á morgun, aðeins
þetta eina skipti.
Akureyrarkirkja:
Bjöm Steinar
með hádegis-
tónleika
Björn Steinar Sólbergsson, organisti
Akureyrarkirkju, heldur hádegis-
tónleika í Akureyrarkirkju á
morgun, laugardaginn 7. nóvember,
kl. 12. Á efnisskránni verða verk
eftir Bach og Duruflé. Auk orgel-
tónlistarinnar verður lesið úr Ritn-
ingunni. Að tónleikunum loknum
gefst tónleikagestum kostur á létt-
um veitingum í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju. Aðgangur er
ókeypis og eru allir velkomnir.
Gallerí AllraHanda:
Daði opnar sýningu
á laugardag
Daði Guðbjömsson, listmálari, opn-
ar myndlistarsýningu í Gallerí
Allra Handa í Listagili á morgun
laugardag kl. 15.00. Þar sýnir hann
um 20 olíumálverk sem flest eru
unnin á síðastliðnu sumri og nú í
haust. Daði stundaði nám við
Myndlistaskólann í Reykjavík á
árunum 1969 til 1976, við Mynd-
lista- og handíðaskólann frá 1967 til
1980 og við Rijiksakademi van
Beldende Kunsten í Amsterdam frá
1983 til 1984. Daði hefur haldið á
annan tug einkasýninga auk þátt-
töku í fjölda samsýninga - bæði hér
heima og erlendis. Daði hefur auk
starfa við list sína sinnt kennslu-
störfum við Myndlista- og handíða-
skóla íslands, verið formaður Félags
íslenskra myndlistarmanna um
skeið og átt sæti í safnráði Listasafns
íslands.
Sjá einnig „Hvað er
að gerast“ á bls. 13.
GÚMMÍVINNSLAN HF. • RÉTTARHVAMM11 • S. 96-26776
★ Opið laugardaga frá kl. 10.-15.
HJOLBARÐAR
★ Erum með mikið úrval
af dekkjum fyrir aliar
gerðir ökutækja.
★ Veitum alhliða
hjólbarðaþjónustu.
RAF-
GEYMAR
afcoeiosla * Mælum gamla
rafgeyma.
★ Seljum nýja
rafgeyma.
* /4"./ <
*
★ ísetning
á staðnum
$ o<5> <4