Dagur - 06.11.1992, Blaðsíða 7
Föstudagur 6. nóvember 1992 - DAGUR - 7
Þegar skurðgoðin voru brennd
- Berisha Hunde, biskup í Konsó, segir frá kristniboðsstarfi íslendinga í Konsó í heimsókn til Akureyrar
Kristniboðsdagurinn er á sunnudaginn 8.
nóvember. Á þeim degi er meðal annars
vakin athygli á kristniboðsstarfl Islendinga í
öðrum heimshlutum. Nýlega var á ferð hér á
landi Berisha Hunde, biskup frá Konsó í
Eþíópíu en hann er einn þeirra sem kynnst
hefur kristindómi vegna kristniboðs Is-
lendinga. Berisha Hunde kom meðal annars
til Akureyrar og talaði á samkomu hjá
KFUM og KFUK. Dagur birtir viðtal við
þennan afríska kirkjumann í tílefni af kristni-
boðsdeginum.
Berisha Hunde ásamt konu sinni í félagsheimili KFUM og KFUK í Sunnu-
hlíð en biskupinn hélt fyrirlestur á samkomu félaganna.
Koma Berisha markar tíma-
mót hér á landi í sögu íslensks
kristniboðsstarfs. Berisha tók
ungur kristna trú í Konsó, stund-
aði framhaldsnám í guðfræði og
hefur jafngildi biskupstignar í
sínu heimalandi. Hann hefur víð-
tæka þekkingu á kristniboðsstarf-
inu og er óþreytandi að segja frá
öllu því góða sem kristniboðs-
starf íslenskra manna hefur kom-
ið til leiðar. Á samkomu KFUM
og K kom fram mikil gleði yfir
árangri kristniboðsstarfsins í
Eþíópíu og Kenýa, ekki síst að
hingað til lands skuli nú koma
innfæddur maður til að boða
kristna trú í sama landinu og
grundvallaði kristniboð fyrir
rúmum þrjátíu árum í heima-
landi hans í Afríku.
- Berisha var spurður hvernig
hann hefði kynnst kristinni trú.
„Það var hjá Felix Ólafssyni,
kristniboða. Á þeim tíma herj-
uðu illir andar mjög á þjóð mína,
margir voru haldnir illum
öndum. Fólkið þekkti ekkert
nema vald illu andanna yfir sér
og vissi ekki að neitt gæti sigrað
þá. Fólkið kom með fórnir til
seiðmanna, sem ætlaðar voru ill-
um öndum. Þannig var það alger-
lega á valdi hinna illu anda. Þeg-
ar Felix Ólafsson kom til Konsó
og byrjaði að segja frá Jesú Kristi
komust fáeinir einstaklingar
fljótlega til trúar,“ segir hann.
Móðir Berisha var seiðkona og
haldin illum öndum oft á tíðum.
Berisha segir hana hafa leitað
hjálpar hjá Felix Ólafssyni, sem
bað fyrir henni. Fyrir mátt bæn-
arinnar komst hún undan illa
valdinu og snerist ásamt eigin-
manni sínum og börnum til krist-
innar trúar. Þannig varð ég krist-
inn maður, segir Berisha.
Framtíð kristninnar
í Eþíópíu ógnað
- Hvernig lítur Berisha á framtíð
kristniboðsstarfsins í sínu heima-
landi, Eþíópíu?
Hann segir erfitt að segja til
um hvernig framtíðin verði en þó
sé hægt að segja að kirkjudeild-
irnar kristnu starfa af miklum
þrótti og fjölmargir geri allt sem
þeir geti til að efla og styrkja
kristindóminn. „Ég reikna með
að kristindómurinn haldi velli.
Þó sjáum við hvernig íslömsk trú
ryðst inn í Eþíópíu. Þeir sem
boða þá trú beita olíuauðnum til
að ná fótfestu og verslunarsam-
böndum. Þeir kaupa fólk til fylgis
við sig og sína trú. Þess vegna er
mikilvægt að íslendingar haldi
áfram að styðja okkur í barátt-
unni, eins og þeir hafa lengi gert
með miklum ágætum. Við verð-
um að ná til sem flestra, áður en
það er orðið of seint,“ segir
Berisha, en hann hefur miklar
áhyggjur af þróun mála hvað
útbreiðslu íslams snertir. Enda
má fullyrða að ekkert eitt atriði
standi kristniboðinu eins fyrir
þrifum og þetta.
Efling menntunar
og manngæsku
- Allir sem þekkja til kristni-
boðsstarfa vita, að starf kristni-
boðanna er ekki síst að efla
menntun, stofna skóla og efla
heilsugæslu, þótt meginstarf
þeirra sé vitanlega að útbreiða
Fagnaðarerindið til heiðinna
karla, kvenna og barna. Berisha
var beðinn að segja lítillega frá
eflingu menntunar sem leiðir af
trúboðsstarfinu.
„Eþíópíska, evangelíska lút-
herska kirkjan, sem ég tilheyri,
er fremst allra kirkjudeilda
í landinu við að þjóna fólkinu
bæði með beinni þróunarhjálp og
kynningu á orði guðs. Unnið er
að hjúkrun, skólamálum, vega-
gerð, umbótum í landbúnaði,
trúvernd og mörgu fleiru á vegum
kirkjunnar. Vegir hafa verið
lagðir til að bæta samgöngur í
stórum stíl. Þegar hungur sverfur
að hefur kirkjan staðið fremst í
flokki að kalla eftir hjálp og
koma matvælum til skila til svelt-
andi fólks. Mörg dæmi eru um
söfnuði sem myndast hafa í
tengslum við hjálparstarfið, og
vöxtur kirkjunnar hefur verið
mikill af þessum sökum. Komm-
únistar voru við völd um skeið í
Eþíópíu, og þá átti trúin og kirkj-
an oft erfitt uppdráttar, svo ekki
sé meira sagt. En kommúnistar
veittust þó ekki nema takmarkað
að kirkjudeild minni vegna þess
að hjálparstarfið í landinu grund-
vallaðist á starfsemi hennar að
miklu leyti. Þetta gerðist á sama
tíma og kommúnistar ráku aðrar
kirkjudeildir burtu eða beittu sér
fyrir að þær voru lagðar niður.
Nýjar bækur
Hafið
Bókaútgafan Forlagið hefur sent frá
sér leikritið Hafið eftir Ólaf Hauk
Símonarson. Ólafur hefur fyrir
löngu getið sér orð sem eitt ágætasta
leikritaskáld á íslensku og eftir hann
liggur hátt á annar tugur leikrita
sem sýnd hafa verið víða.
Hafíð var frumsýnt í Þjóðleikhús-
inu 19. september sl. Þar segir frá
Þórði útgerðarmanni og fjölskyldu
hans, leikritið er sneið úr íslenskum
veruleika þar sem höfundur bregður
ljósi á fólk og tilfinningar á bak við
daglegar fréttir af ástandi mála í
sjávarútvegi.
I kynningu Forlagsins segir: „Hér
eru dramatísk fjölskylduátök
samofin einkar skarplegri samfé-
lagsgagnrýni. Ekkert er dregið
undan, aílt er lagt undir - ástin,
hafið, dauðinn. Persónur leiksins
eru bráðskemmtilegir íslenskir orð-
hákar, en oftar en ekki er fyndnin
og orðheppnin sprottin af sárri
reynslu. Það er sjaldgæft að fá jafn-
leiftrandi átakaverk úr amstri
dagsins, verk sem í senn er mein-
fyndið og dapurlegt, áleitið og satt.“
Hafíð er 85 bls.
Fyrsti Konsómaðurinn
sem tók trú
- Berisha var að lokum beðinn
um að segja frá dæmi um áhrif
kristninnar á dæmigerða fjöl-
skyldu í Eþíópíu. Ilann sagði að
endalaust væri hægt að segja frá
þessu efni, en honum væri e.t.v.
hugstæðast dæmið frá fyrstu fjöl-
skyldunni sem tók trú vegna
starfs Felix Ólafssonar fyrir rúm-
um þremur áratugum.
„Heimilisfaðirinn í þessari
fyrstu, kristnu fjölskyldu í Konsó
heitir Berisha, eins og ég, en ætt-
arnafn hans er Germo. Áður en
þessi maður varð kristinn réði
djöfullinn gersamlega lífi hans.
Berisha þessi var sjálfur seiðmað-
ur, og í hverri viku bruggaði
hann mikið af áfengum drykk. Á
föstudögum komu vinir hans,
sem einnig voru seiðmenn, sam-
an í kofanum. Þeir sátu alla helg-
ina að drykkju og komust í trans,
á vald illu andanna. Þetta leiddi
iðulega til þess að þeir urðu allir
veikir eftir helgarnar, og nafni
minn varð oft hættulega sjúkur.
Einnig gerði þetta að verkum að
nafni minn eyddi öllum launum
sínum og eigum í tengslum við
þessar djöflasamkomur. Smám
saman varð maðurinn haldinn ill-
um anda á virkum dögum, auk
þess sem helgarnar voru eins og
áður sagði. Hann réði ekkert við
athafnir sínar og hafði sjaldnast
hugmynd um hvað hann aðhafð-
ist í þessu ástandi. M.a. hafði
hann mök við karlmenn, sem
hann hafði þó aldrei getað hugs-
að sér. Að lokum fór hann að
langa til að fyrirfara sér.
En hann heyrði um Jesúm
Krist og ákvað að snúa sér til
hans, í neyð sinni. Hann vildi
gefa Jesúm líf sitt eftir að hann
heyrði um veldi hans. Nú hefur
líf þessa manns gjörbreyst fyrir
löngu. Hann er nú vel metinn og
fjárhagslega efnaður maður í
sínu þorpi. Hann hefur öðlast
frið.
Þorpsbúarnir urðu
skelfíngu lostnir
Viðbrögð þorpsbúanna, þegar
þeir heyrðu að Berisha þessi ætl-
aði að gerast kristinn, voru
dæmigerð. Þeir urðu skelfingu
lostnir af ótta við hefnd illu and-
anna. Þeir bjuggust ekki við að
sjá hann á lífi næsta morgun,
hann myndi örugglega deyja um
nóttina. Morguninn eftir kom
hann út í kofadyrnar, fullur gleði
og endurnærður af innri friði.
Kristniboðinn hafði hreinsað allt
illt úr kofanum með fyrirbænum
og ákalli til Drottins. Skurðgoð
voru brennd og áhöld til vín-
bruggunar eyðilögð. En eftir
nokkurn tíma sá þorpsbúar að
maðurinn lifði áfram við frið og
farsæld sem aldrei fyrr. Þá tóku
fleiri trú. Þannig blessaði Drott-
inn starf Felix Ólafssonar og
þeirra mörgu sem komu eftir
hann. Ég vil að lokum þakka
íslensku þjóðinn fyrir styrk þann
sem hún hefur veitt kristniboðinu
í Afríku og skora um leið á lands-
menn að halda áfram að efla
starfið, í Drottins nafni.“
NORÐLENDINGAR!
VELJUM ÍSLENSKT
SKÖPUM ATVINNU
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ EINING