Dagur - 06.11.1992, Qupperneq 11
Föstudagur 6. nóvember 1992 - DAGUR - 11
HÉR & ÞAR
Eldheitt atriði úr myndinni „Basic
Instinct“ með Michael Douglas og
Sharon Stone. Eitthvað þessu líkt sá
Diandra þegar hún greip Michaei
glóðvolgan á hótelherberginu.
Allt upp í
loft vegna
framhjáhalds
leikarans
Michael
Douglas
Douglas gripinn glóðvolgur
með ljósku á hótelherbergi
Maipa^
Skapti hf. auglýsir
10% afsláttur af málningu og
málningarvörum firam að jólum
Einnig tilboð á MAK3TA 6095 9,6v raf-
hlöðuborvél með aukarafhlöðu.
Verð áður kr. 31.492. Nú kr. 22.500.
Komið og skoðið ótrúlegt úrval af verk-
færum, málningarvörum, búsáhöldum
o.fl.
Ferskar
fréttir með
morgunkaffinu
Askriftar‘23- 96-24222
Diandra, eiginkona Michael
Douglas greip hann glóðvolgan á
hótelherbergi í byrjun septem-
bermánaðar þar sem hann var í
ástaratlotum við ljósku eina, sem
reyndar var ein af bestu vinkon-
um Diöndru. Uppi varð fótur og
fit í hótelsvítunni, Diandra henti
lauslegum munum um allt en
ljóskan lagði á flótta og læsti sig
inni á baðherbergi. Verðir á
hótelinu komu til að skakka leik-
inn en Michael Douglas bað þá
að láta þetta afskiptalaus, þau
hjónin væru að útkljá smávægi-
legan misskilning.
Diandra yfirgaf hótelið og fór
niðurbrotinn heim til tengdafor-
eldra sinna. Hún var ákveðin í
að skilja við Douglas enda hafi
hann í þetta sinn komið verr fram
við hana en nokkru sinni áður.
Kirk Douglas og Ann, konu
hans, tókst að telja Diöndru af
þeirri ákvörðun og hún ákvað að
gefa Michael eitt tækifæri. Ekki
endilega hjónabandsins vegna
heldur ekki síst vegna þrettán ára
sonar þeirra, Cameron.
Kunnugir segja að Michael
Douglas sé mikið upp á kven-
höndina og það hafi Diandra allt-
af vitað. Mælirinn hafi samt
fyllst þegar hún kom að honum í
miðju kafi með bestu vinkonu
sinni.
Hótelið þar sem þetta gerðist,
The Regent Beverly Wilshire Hot-
el, er þekkt fyrir stranga öryggis-
vörslu og því treysti Douglas á að
enginn gæti ruðst inn í herbergið
fyrirvaralaust. Leikarinn hafði
bókað sig inn á hótelið undir
nafninu Michael Luker og hálf-
tíma síðar sást til Ijóshærðu
stúlkunnar sem kom að heim-
sækja hann. Diandra vissi að
Michael ætlaði að dvelja á hótel-
inu og hún ákvað að heimsækja
hann og bað því um lykil í
afgreiðslunni, Douglas hafði beð-
ið um að fá aö vera í friði og það
var Diöndru sagt en þá sagði hún
hótelvörðunum að þeir þyrftu
ekkert að óttast, hún væri eigin-
kona hans. Þeir létu til leiðast og
því fór sem fór. En þessa dagana
hamast leikarinn við að bæta fyrir
syndina og búast má við að þau
hjónakorn hangi saman lengur,
ekki síst vegna þess að innst inni
getur Diandra ekki hugsað sér að
segja skilið við sómatitilinn „Frú,
Michael Douglas“.
Toyota bílasýning
laugardaginn 7. og sunnudaginn 8. nóvember
Verðum með flestar gerðir af 93 línunni í Toyota
fólksbílum og jeppum til sýnis.
Miklar nýjungar hafa litið dagsins Ijós á árinu hjá
Toyota.
Nýja Corollan og nýja Carinan hafa fengið frábærar
viðtökur hjá (slendingum eins og annars staðar í
heiminum.
Á sýningunni verður reynsluakstur í þessum tveim
tegundum.
Komið og njótið þess að skoða og reyna glæsilega
bíla og bragða á veitingum frá Coka cola, Maruud
og Kristjánsbakaríi.
Opið báða dagana frá kl. 13-17 vfiy
Bílasalan Stórholt