Dagur - 06.11.1992, Blaðsíða 13
Föstudagur 6. nóvember 1992 - DAGUR - 13
Minning_______________________________
Ásgeir Pétur Siguijónsson
Fæddur 30. desember 1905 - Dáinn 2. september 1992
Fram að 1932 hafði aðeins einn
fastur kennari verið við Barna-
skóla Dalvíkur. En þá var ákveð-
ið að bæta öðrum við. Þessa nýju
stöðu hlaut Ásgeir Pétur Sigur-
jónsson. Ég hafði kennt við skól-
ann í nokkur ár. Sannarlega var
ég ánægður með breytinguna,
hennar var mikil þörf. Um haust-
ið, þegar leið að skólasetningu,
beið ég með óþreyju eftir að sjá
nýja kennarann. Hvernig skyldi
hann líta út? Og hvernig ætli
samstarf okkar verði? Svo hitt-
umst við og ég mætti lágum og
grannvöxnum manni, fríðum og
glaðlegum, sem vakti strax traust
mitt, ekki síst vegna prúðmann-
legrar framkomu.
Ásgeir Pétur Sigjónsson, sem
breytist í Sigurjónsson hér fyrir
norðan, að hans eigin vilja, var
fæddur 30. desember 1905 að
bænum Fornustekkum í Horna-
firði. Hjónin Sigjón Pétursson og
Ingibjörg Gísladóttir voru for-
eldrar hans. Börn þeirra voru
átta. Ásgeir var yngstur. Öll eru
þau látin. Tvær systur Ásgeirs
fluttust til Eyjafjarðar, Ástríður
húsfreyja á Ákureyri og Sólveig
húsmóðir á Þrastarhóli í Möðru-
vallasókn. Henni kynntist ég lítil-
Mýjar bækur_______________
Kynjaber
Út er komin hjá Máli og menningu
skáldsagan Kynjaber eftir enska rit-
höfundinn Jeanette Winterson.
Bókin er gefin út í ritröðinni
Syrtlum.
Söguhetjurnar, Jórdan og Hunda-
konan, eru nokkurs konar mæðgin
og þau skiptast á að segja frá þeim
furðum sem á daga þeirra drífa.
Baksviðið er England 17. aldar.
Borgarastríð geisar og plágur herja
á mannfólkið, en frásögnin bindur
sig hvorki tímabilinu né sagnfræð-
inni því Jórdan og Hundakonan eru
ekki nema að hluta til af þessum
heimi - hún þessi gríðarmikla skessa
ógurlegri en nokkur annar, hann
sæfarinn sem ferðast um ósýnileg
höf til staða sem hvergi eru til nema
í ólmu ímyndunarafli.
Áður hefur komið út á íslensku
skáldsagan Ástríðan eftir sama
höfund.
Silja Aðalsteinsdóttir þýddi bók-
ina sem er 182 blaðsíður.
f kvöld, föstudagskvöld, stendur
Félagsstarf aldraðra á Akureyri fyrir
fyrstu dansskemmtuninni í félags-
miðstöðinni Víðilundi. Að venju
verður lifandi tónlist. Auk dansins
Stórholt sýnir
’93-árgerðina
af Toyotu
Um helgina verður bílasalan Stór-
holt að Óseyri 4 á Akureyri með
sýningu á flestum gerðum af Toyota,
árgerð 1993, bæði fólksbílum og
jeppum. Á sýningunni verður boðið
upp á reynsluakstur á nýju Coroll-
unni og Carinunni. Gestum verður
boðið upp á veitingar frá Coka
Cola, Maarud og Kristjánsbakaríi.
Opið verður bæði á morgun og
sunnudag kl. 13 til 17.
Aktu eins oq þú vilt
cgZ- að aðrir aki!
m IUMFEROAR
IKUM EINS OG MENN' Qp qÁD
lega og tel að þar hafi farið mæt
kona.
Ekkert veit ég um æsku og
uppvöxt Ásgeirs. Tel að hann
hafi átt glaða ungdómsdaga og
uppeldið verið gott og hollt hjá
foreldrunum.
Rúmlega tvítugur sest Ásgeir í
Gagnfræðaskóla Akureyrar og
tekur gagnfræðapróf 1929. Vorið
1932 lýkur hann námi í Kennara-
skóla Islands og um haustið hlaut
hann kennarastöðu á Dalvík,
eins og fyrr er sagt. Þar vann
hann sitt merka ævistarf. í 43 ár
var hann fræðari og félagi barn-
anna á Dalvík, einnig kenndi
hann í unglingaskólanum mörg
ár að hluta.
Á milli veru okkar Ásgeirs í
Kennaraskólanum voru níu ár.
Ásgeir kom því með smávegis
nýjungar, sem skólanum kom að
haldi. Samvinna okkar Ásgeirs
varð strax með ágætum og hélst
svo þau ellefu ár, sem við vorum
samkennarar. Það var ekki síst
lipurð, góðvild og samhug Ás-
geirs að þakka. Það bar aldrei
skugga á okkar samstarf. Ef til
vill hjálpaði það, að ekki var
langt bil á milli skoðana og hugs-
unarháttar okkar í skólamálum.
Ásgeir var góður kennari,
býsna fjölhæfur, söngvinn og
handlaginn. Þá var hann smekk-
vís og vandvirkur. Allur frágang-
ur nemenda hans á störfum
þeirra var með snyrtibrag. Þó að
Ásgeiri tækist kennsla vel hjá öll-
um aldursflokkum, þá held ég að
honum hafi tekist best að kenna
yngri börnum. Hjá þeim var
hann í essinu sínu. Hugsað var
um það eitt að veita leiðbeiningar
og hjálp. Hann var félagi þeirra,
glaður og ljúfur og börnin höfðu
miklar mætur á honum. Ásgeir
var slyngur að fá nemendur til að
vinna ýmiss störf í þágu skólans.
Kom það best í ljós í sambandi
við aðalskemmtun skólans. Þar
sýndu börnin leikþætti, skraut-
sýningar, lásu upp og fleira. Þetta
hafði Ásgeir undirbúið. Og mik-
inn tíma hefur hann lagt þarna
fram. En hann var líka fús til
hjálpar, hvenær sem skólinn
þurfti einhvers með og það var á
valdi Ásgeirs að bæta úr. Ásgeir
var sérstakur vinur æskunnar og
verða ýmsar uppákomur og kaffi-
hlaðborð.
KaffiMaðborð
á Englmýri
á sunnudag
Boðið verður upp á kaffihlaðborð í
Gistiheimilinu Engimýri í Öxnadal
á sunnudag. Verð kr. 500. Forsvars-
menn Gistiheimilisins minna á að
hægt sé að taka á móti fjölskyldu-
samkomum, árshátíðum og fundum
fyrir u.þ.b. 40 manns. Gisting er fyr-
ir allt að 20 manns.
Bridds í
Dynheimum
Svokallað Dynheimabridds verður á
sínum stað í Dynheimum á Akureyri
nk. sunnudagskvöld kl. 19.30. Góð
verðlaun eru í boði og eru gefin
bronsstig. Þá er rétt að minna á
Kvennabridds í Dynheimum nk.
mánudagskvöld, en það er spilað
hálfsmánaðarlega.
vann ýmislegt á hennar vegum
utan skólans. Sannarlega var Ás-
geir æskulýðsleiðtogi Dalvíkinga
langa tíð.
Ásgeir gegndi margskonar
störfum auk kennslunnar.
Snemma gekk hann í Ungmenna-
félag Svarfdæla. Varð hann þar
ágætur liðsmaður og um skeið rit-
ari félagsins. Hann sat lengi í
skattanefnd og síðar umboðsmað-
ur skattstjóra. Þá sat hann í
stjórn Sjúkrasamlags Svarfdæla
og Byggingarfélags verkamanna
á Dalvík. A sumrum vann Ásgeir
við síldarsöltun á meðan hún var
við líði. Þá var byggingarvinna og
margt annað, sem lagt var hönd
á.
Ásgeir var maður gróðurs og
lifandi náttúru. Hann hafði næmt
auga fyrir fegurð landsins og
dásemdum þess, enda hafði hann
alist upp á svæði, sem á yfir að
ráða stórbrotnara og fegurra
landslagi en víða annars staðar
og þangað leitaði hugurinn víst
oft.
Ásgeir var alla tíð hógvær og
hæverskur. Hann ýtti sér aldrei
fram fyrir aðra. Þá var snyrti-
mennska hans áberandi. Hýrleiki
hans og geðgæði voru ljós. Hann
skipti örsjaldan skapi. En kæmi
það fyrir stóð af honum talsverð-
ur gustur, en fljótt lygndi og allt
féll í ljúfa löð. Þó að Ásgeir væri
alvörumaður fór hið broslega
ekki framhjá honum. Hann ræddi
um það og skemmti sér konung-
lega.
Ásgeir kvæntist 1938 Þórgunni
Loftsdóttur frá Böggvisstöðum,
mikilhæfri konu. Hún lifir mann
sinn. Börn þeirra eru tvö, Ingi-
Leiðréttingar
Dúkristuna sem birtist með
Sálnaruski sr. Svavars A. Jóns-
sonar í síðasta helgarblaði Dags
gerði Sigurbjörg Gunnarsdóttir,
nemandi í málunardeild Mynd-
listaskólans á Akureyri, en nafn
hennar misritaðist í blaðinu. Þá
var Gunnar Þór fjallafari sagður
Gunnarsson en hann er og hefur
verið Guðmundsson. Er beðist
velvirðingar á þessum mistökum.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftlrtöldum
eignum verður háð á þeim sjálfum
miðvikudaginn 11. nóvember 1992,
á neðangreindum tímum:
Aðalgata 6, Árskógshreppi, þingl.
eig. Sigurhanna Vilhjálmsdóttir og
Steindór Davíðsson, gerðarbeið-
andi Húsbréfadeild Húsnæðisst.
ríkisins, kl. 10.00.
Eyrarlandsvegur 12, efri hæð, Akur-
eyri, þingl. eig. Karl Sigurðsson,
gerðarbeiðandi Lífeyrissj. trésmiða,
kl. 15.30.
Eyrarlandsvegur 3, efri hæð, Akur-
eyri, þingl. eig. Borghildur Sigurðar-
dóttir, gerðarbeiðandi Hákon
Guðmundsson, kl. 13.30.
Gránufélagsgata 41 a, Akureyri,
þingl eig. Arnar Ingvason og Anna
E. Hreiðarsdóttir, gerðarbeiðandi
Islandsbanki hf., kl. 14.00.
Oddeyrargata 10, suðurhluti, Akur-
eyri, gerðarþoli Álfhildur Pálsdóttir,
gerðarbeiðandi Sparisjóður Akur-
eyrar og Arnarneshrepps, kl. 14.30.
Stekkjargerði 14, Akureyri, þingl.
eig. Þorsteinn Thorlacíus og Guðný
Jónasdóttir, gerðakrbeiðandi inn-
heimtumaður ríkissjóðs, kl. 15.00.
Sýslumaðurinn á Akureyri
3. nóvember 1992.
Hvað ER AÐ GERAST?
Dansskemmtun fyrir
aldraða í Víðilundi
björg, gift Stefáni Jónssyni, skrif-
stofumanni á Dalvfk, þau eiga
fjóra drengi, og Ásgeir Pétur,
héraðsdómari á Akureyri.
Ásgeir andaðist á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri 2. sept-
ember, eftir skamma legu.
Þá er hann horfinn, þessi iðju-
sami, ljúfi og heiðarlegi drengur.
En minningin lifir. Ég þakka
honum af öllu hjarta aðstoð og
samstarf þau ár, sem við vorum
samkennarar og fyrir vináttu,
sem ekki brást.
Ég votta ástvinum hans samúð
mína.
„Þar sem góðir menn fara eru
guðs vegir.“
Helgi Símonarson.
Laugardagskvöldið 7. nóvember.
Vegna einkasamkvæmis
verður lokað fyrir matargesti.
Selt inn á dansleik eftir kl. 23.00.
ROKKBANDIÐ
leikur fyrir dansi.
Sunnudagsveisla á Súlnabergi.
Súpa, reykt grísalæri með rauðvínssósu og/eða
lambalæri Bearnaise.
Þú velur meðlætið, salatið og sósurnar
og endar þetta á glæsilegu deserthlaðborði.
Allt þetta fyrir aðeins kr. 1.050,-
Frítt fyrir börn 0-6 ára, 1A gjald fyrir 7-12 ára.
mi
Aðalfundur
framsóknarfélaga í Eyjafjarðarsveit
verður haldinn sunnudaginn 8. nóv. nk. í Sólgarði kl.
21.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á kjördæmis- og flokksþing.
Sameining félaga.
Önnur mál.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson alþingismaður mætir á
fundinn.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna.
Stjórnin.
it
[ tilefni andláts og jarðarfarar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
HÓLMFRÍÐAR BENEDIKTSDÓTTUR,
frá Braut, Húsavík,
viljum við þakka öllum þeim mörgu, nær og fjær, sem sýndu
okkur hlýhug og henni virðingu með nærveru sinni, blómum
og kveðjum.
Guð blessi ykkur öll.
Aðstandendur.