Dagur - 06.11.1992, Síða 15
Föstudagur 6. nóvember 1992 - DAGUR - 15
Iþróttir
Halldór Arinbjarnarson
íþróttir um helgina:
Badmmton, körfubolti
og blak ber hæst
Nóg er um að vera í íþróttalífi
norðanlands um þessa helgi. Á
dagskrá eru bikarleikir í körfu-
bolta, unglingameistaramót
TBA í badminton fer fram í
höllinni og í KA-húsinu verður
blakið allsráðandi.
Pórsarar keppa í kvöld við
Bolvíkinga í bikarkeppni KKÍ.
Bæði liðin keppa í 1. deild en
hafa ekki tekist á í deildinni til
þessa. Þórsarar eru taplausir í
vetur, bæði í deild og bikar og
ætla sér án efa sigur. Bolvíking-
um hefur ekki gengið eins vel en
leikir í bikarkeppni eru ávallt
nokkuð frábrugðnir deildarleikj-
um og því er best að spyrja að
leikslokum. UFA mun á morgun
etja kappi við B-lið Grindvíkinga
og fer leikurinn fram fyrir
sunnan. Hið leikreynda lið UFA
stefnir óhikað á 2. umferð og því
mega Grindvíkingar vara sig.
í KA-húsinu verður mikið um
að vera. Á morgun kl. 13.30 hefst
þar íslandsmót í blaki fyrir 2. og
3. flokk karla og kvenna. AIls
hafa 23 lið skráð sig til keppni og
koma þau víða að. KA teflir fram
sterkum liðum og einnig eiga
flest hin 1. deildar félögin þar
sína fulltrúa. Leiknir verða 55
leikir og munu úrslit skýrast
seinni partinn á sunnudag. í>á má
í lokin minnast á unglinga-
meistaramót TBA í badminton
sem haldið verður í íþróttahöll-
inni á morgun og á sunnudaginn.
Þar verða sýnd glæsileg tilþrif ef
að líkum lætur.
Bíkarkeppnm
í handbolta
Dregið hefur verið í 16 liða
úrslitum bikarkeppni HSÍ.
Lið KA mun halda til Hafnar-
fjarðar og keppa við 2. deildar lið
Iþróttafélags Hafnarfjarðar. KÁ
ætti því að eiga góða möguleika á
að komast áfram í keppninni.
Allir leikirnir verða spilaðir
sunnudaginn 22. nóvember. En
þessi lið munu leika saman:
Fram b-Haukar
Ármann b-Valur
ÍH-KA
UMFA-V íkingur
ÍR-ÍBV
UBK-Fram
Selfoss-HK
ÍR b-Grótta
I/tok Race verður að kljást við
sóknarmenn ÍH 22. nóvember.
Þórsarar keppa í bikarkeppninni í körfubolta í kvöld en UFA heldur suður
yfir lieiðar.
Eurotips:
Enginn fékk þann stóra
Nú eru úrslitin Ijós á síðasta
Eurotipsseðlinum. Eins og
spáð var fór potturinn yfir 30
milljónir. Hins vegar náði eng-
inn 14 leikjum réttum.
Samkvæmt reglunum er því 1.
vinningi skipt í jöfnu hlutfalli á
þá sem voru með 13, 12 og 11
rétta. Er það einungis framlag
íslenskra „tippara" í pottinn
stóra sem deilist niður hérlendis,
en sem kunnugt er var 1. vinning-
ur sameiginlegur hjá íslending-
um, Svíum, Dönum og Austur-
ríkismönnum. Hér á landi komu
fram 3 raðir með 13 réttum og
Fatlað íþróttafólk hefur ó þessu ári náð glæsilegri árangri en nokkru sinni fyr. Á Ólympíumótunum á Spáni stóð
íþróttafólkið sig framar björtustu vonum og var landi og þjóð til miklis sóma. Þessi mynd var tekin við heimkomuna
frá Madrid af Akureyringunum Aðalsteini Friðjónssyni og Stefáni Thorarensen. Á milli þeirra stendur fararstjórinn
Stefán Pálmason.
helgariimar
BADMINTON:
Unglingameistaramót TBA
íþróttahöll 7.-8. nóv.
BLAK:
íslandsmót:
2. og 3.11. karla og kvenna.
KA-hús 7.-8. nóv.
KÖRFUBOLTI:
Bikarkeppni:
Föstudagur:
l'ór-Bolungarvík
Laugardagur:
Grindavík b-UFA
Úrvalsdeild:
Sunnudagur:
KR-Tindastóll
kl. 20.30
kl. 16,00
kl. 20.00
Kærumál í 3. deild:
Grótta mun áfrýja
Enn virðast úrslitin í 3. deild-
inni í knattspyrnu ekki vera
ráðin.
Eins og fram hefur komið
komst Þróttur Neskaupstað upp í
2. deild á kostnað Gróttu þegar
dómstóll KSÍ ákvað að láta úrslit-
in í leik Þróttar og Völsungs
standa. Steinn Jónsson, formað-
ur knattspyrnudeildar Gróttu,
sagði í samtali við Dag að þeir
hefðu í hyggju að áfrýja málinu
til dómstóls ÍSÍ, eða í það
minnsta láta á það reyna hvort
þeir gætu áfrýjað þrátt fyrir að
vera ekki aðilar að málinu.
„Okkur sýnist að verið sé að fara
framhjá reglum en við höfum
staðið í þeirri trú gegnum árin að
leikskýrslan segði til um hverjir
væru þátttakendur í ákveðnum
leik og hverjir ekki,“ sagði
Steinn. Grótta hefur frest fram í
miðja næst viku til að áfrýja mál-
inu verði það niðurstaðan.
gefur hver um sig 354.890. Með
12 rétta voru 49 og fá þeir 21.170
og 415 raðir komu fram með 11
réttum leikjum. Hver röð gefur
2.500. Þátttaka í Eurotips var
ekki eins mikil og vonast var til
en þó tóku menn við sér þegar
stóri potturinn var í veði.
Blak
1. deild karla
Urslit:
HK-Stjaman
Staðan:
HK
ÍS
Stjarnan
Þróttur R
KA
Þróttur N
3:0
6 5 1 306:239 16: 7
5 4 1 275:190 13: 7
5 4 1 226:186 12: 6
5 3 2 277:243 11: 9
5 05 259:333 9:15
6 0 6 131:133 1:18
Stigahæstir:
Bjarni Þórhallsson, KA 42
Þorvarður Sigfússon, ÍS 42
Stefán Sigurðsson, HK 36
Magnús Aðalsteinsson, KA 35
Gottskálk Gissurarson, Stjörnunni 33
Karl Sigurðsson, HK 33
Stefán Magnússon, KA 33
1. deild kvenna
Staðan:
ÍS 4 3 1 154:131 10: 5
Vfldngur 3 3 0 196:143 9: 5
HK 4 2 2 177:175 7: 8
KA 312 154:131 5: 6
Þróttur N 4 0 4 114:137 5:12
Stigahæstar:
Oddný Erlendsdóttir, Vfldngi 33
Jóhanna Kristjánsd., Vfldngi 28
Eva Helgadóttir, HK 23
Helga Gísladóttir, HK 22
Særún Jóhannsdóttir, Víkingi 21
Jasna Popovic, KA 13
2. deild kvenna
Staðan:
Völsungur 3 3 0 135: 54 9:0
Þróttur R 3 2 1133:119 6:5
Sindri 3 1 2 135:158 5:7
Þróttur N 3 03 76:148 1:9
Sambandsþing íþróttasambands fatlaðra:
Starfsemm verður
sífellt umfangsmeiri
Dagana 30. október til 1.
nóvember var 6. sambands-
þing íþróttasambands fatlaðra
haldið á Hótel Örk í Hvera-
gerði.
Þingið var fjölmennt og sótt af
aðildarfélögum ÍF víða að af
landinu. Áhersla hefur verið lögð
á að halda sambandsþing ÍF utan
höfuðborgarsvæðisins. Frá síð-
asta sambandsþingi hafa 3 ný
íþróttafélög fatlaðra bæst í
hópinn. Gróska á Sauðárkróki,
Nes í Keflavík og Fjörður í Hafn-
arfirði. Auk þess sóttu fulltrúar
bocciadeildar Völsungs þing ÍF í
fyrsta skipti. Starfsemi íþrótta-
sambands fatlaðra verður sífellt
umfangsmeiri. Mörg mál voru í
brennidepli á þinginu og m.a. hin
mikla fjárþörf sem skapast hefur
vegna fjölgunar iðkenda og
hraðrar þróunar á málefnum
varðandi íþróttir fatlaðra. í
kvöldverðarhófi var Jóhanna Sig-
urðardóttir félagsmálaráðherra
sæmd gullmerki ÍF fyrir áralang-
an stuðning við starfsemi ÍF og
málefni fatlaðra á íslandi.
Körfubolti
Bikarkeppni
Þór-Bolungarvík
í Höllinni í kvöld,
föstudaginn 6. nóvember kl. 20.30.
Áfram Þór!
Athugið! Engin skírteini gilda á bikarleiki.