Dagur - 06.11.1992, Side 16
Tilboð sem ekki er hægt að sleppa:
Pizzu- og pastahlaðborð
alla virka daga í hádeginu
á aðeins kr. 750
Framkvæmdirvið brimvamargarð á Blönduósi:
Búist við að tilboð
verði opnuð íyrir jól
- einn af átta tilboðsgjöfum er frá Blönduósi
Þess er vænst að hægt verði að
opna tilboð í gerð brimvarn-
argarðs á Blönduósi áður en
fjárlög næsta árs verða sam-
þykkt á Alþingi.
Unnið er að frágangi útboðs-
gagna og segir Ófeigur Gestsson,
bæjarstjóri á Blönduósi, að þau
verði tilbúin innan skamms. „Það
er verið að ljúka gerð útboðs-
gagnanna og málum sem tengjast
þeim, frágangi samninga um
námur, akstursleiðir og fleira. Af
hálfu Hafnamálastofnunar hefur
verið stefnt að því að verktakar
Akureyri:
Maður tekiim
með amfetamín
Aðfaranótt fimmtudags hand-
tók lögreglan á Akureyri 22
ára mann í miðbæ Akureyrar,
sem grunaður var um neyslu
fikniefnis. Maðurinn var flutt-
ur til yfírheyrslu á lögreglu-
stöð.
fái útboðsgögn strax og þau
verða tilbúin. Miðað hefur verið
við að myndin í þessu verði orðin
nokkuð ljós við aðra umræðu um
fjárlög næsta árs,“ sagði Ófeigur.
Að undangengnu forvali munu
átta fyrirtæki bjóða í þetta verk;
ístak hf. í Reykjavík, Hagvirki-
Klettur hf. í Hafnarfirði, Kraft-
tak sf. í Reykjavík, Suðurverk
hf. á Hvolsvelli, Ræktunarsam-
band Flóa og Skeiða, Steypustöð
Blönduóss og fleiri, Viggó
Brynjólfsson Skagaströnd og
Klæðning sf. í Reykjavík.
Á þessu ári setti ríkið 26,6
milljónir króna í brimvarnar-
garðinn og hluta þeirrar upphæð-
ar hefur verið varið til grjótnámu-
rannsókna.
Óvíst er hvenær sjálfar fram-
kvæmdirnar við brimvarnargarð-
inn hefjast, en það fer væntan-
lega eftir tíðarfari. Gert er ráð
fyrir að á milli 85 og 90 þúsund
rúmmetrar af efni fari í garðinn,
en til viðmiðunar er það um
helmingur þess magns sem fer í
nýjan brimvamargarð í Bolungar-
vík. óþh
Hátt í 70 nemendur GA mættu í starfskynningu á FSA í
gær. A innfelldu myndinni eru nemendur að skoða sjúkl-
ing í svonefndum strekk, undir handleiðlu Guðmundu
Óskarsdóttur, deildarstjóra bæklunardeildar. Myndir: kk
Gagnfræðaskóli Akureyrar:
Nemendur 10. bekkja í starfskynningu á FSA
í gær var breytt út af hefö-
bundnu skólastarfi hjá
nemendum í 10. bekk Gagn-
fræðaskóla Akureyrar og hald-
ið í starfskynningu á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri.
Hátt í 70 nemendur mættu til
leiks og var tekið vel á móti
þeim á sjúkrahúsinu.
Þar fengu þau að vita eitt og
annað um rekstur FSA, kynningu
á starfsmenntun og sitthvað
fleira. Þá var hópnum skipt niður
í smærri einingar og hinar fjöl-
mörgu deildir spítalans skoðað-
ar, undir handleiðslu deildar-
stjóra. -KK
Samkvæmt upplýsingum frá
rannsóknarlögreglunni á Akur-
eyri fannst við nánari rannsókn í
bifreið mannsins 1,2 grömm af
amfetamíni ásamt búnaði til að
neyta efnisins. Maðurinn játaði í
gærmorgun að efnið væri í hans
eigu og er laus úr fangageymslu.
Málið fer rétta boðleið til ríkis-
saksóknara. ój
Ekið á hross
viðMelgerðismela
Ekið var á hross á móts við
Melgerðismela í Eyjafjarðar-'
sveit laust eftir miðnættí
aðfaranótt fimmtudags. Eitt
hross drapst og skemmdir urðu
á ökutæki.
Laust eftir miðnætti var bifreið
ekið á hross við Melgerðismela í
Eyjafjarðarsveit. Eitt hross
drapst við áreksturinn og grunur
er um að annað hafi hlotið skaða
af þótt ekki væri vitað hversu
mikill hann væri. Skemmdir urðu
á ökutæki því sem lenti á hross-
unum en ekki var vitað um
meiðsl á fólki. Að sögn lögregl-
unnar á Akureyri vissi eigandi
hrossanna ekki af þeim þarna en
taldi þau enn vera á afrétt. ÞI
VEÐRIÐ
Búist er við allhvassri norðan-
átt norðanlands í dag en held-
ur hægari sunnan til. Gert er
ráð fyrir slyddu eða snjókomu
fyrir norðan en úrkomulausu í
öðrum landshlutum fram eftir
degi. Veður mun fara fremur
kólnandi og gert er ráð fyrir
björtu en svölu veðri á landinu
á laugardag og hiti verði undir
frostmarki.
Atvmnuástand betra en í fyrra
- „ýmislegt jákvætt að gerast,“ segir Aðalsteinn Baldursson, varaformaður
Verkalýðsfélags Húsavíkur
„Astandið er mun betra en við
áætluðum og héldum að yrði.
Atvinnuástandið er betra en á
sama tíma í fyrra og ýmislegt
jákvætt hefur verið að gerast
síðustu dagana,“ sagði Aðal-
steinn Baldursson, varafor-
maður Verkalýðsfélags Húsa-
víkur, aðspurður um atvinnu-
málin í bænum.
Aðalsteinn sagði að t.d. hefðu
tveir bátar verið keyptir til bæjar-
ins á síðustu vikum. Hann á þá
við Stokksey, 100 tonna bát sem
Höfði keypti og bera mun nafnið
Aldey í framtíðinni, og 10 tonna
bát sem Stefán Þórsson keypti til
bæjarins. Kaupfélag Þingeyinga
er að kaupa jógúrtverksmiðjuna
Baulu. Tvær verslanir hafa verið
Skagfirðingur hf.:
Býður hluthöfum
hl ut aíj ár aukningu
- um 50 milljónir til að mæta prfestingum
Útgerðarfélagið Skagfirðingur
hf. á Sauðárkróki býður nú
hluthöfum sínum að kaupa
hlutabréf á u.þ.b. 50 milljónir
að nafnverði. Er þetta gert
vegna kaupa fyrirtækisins á
nýju skipi, að sögn Einars
Svanssonar framkvæmdastjóra
Skagfírðings.
Að sögn Einars er hér um að
ræða hlutafjáraukningu sem
ákveðin var á aðalfundi útgerðar-
félagsins nú í vor. Þegar búið er
að auka hlutafé Skagfirðings hf.
um 50 milljónir með sölu þessara
bréfa verður heildarhlutafé fyrir-
tækisins 300 milljónir á nafnvirði
að sögn Einars. Þetta er gert til
að mæta fjárfestingum, þ.e.
vegna kaupa á nýjum togara,
Skagfirðingi SK-4. sþ
opnaðar á síðustu dögum og
heyrst hefur að fleiri hugsi sér til
hreyfings varðandi verslunar-
rekstur.
„En þó margt jákvætt sé að
gerast og ekki sé eintómt svart-
nætti var verið að loka fyrirtæki
vegna gjaldþrots, Kjarabót hf., og
þar misstu níu starfsmenn vinnu.
Þetta er slæmt mál,“ sagði Aðal-
steinn.
í október 1992 voru atvinnu-
leysisdagar á Húsavík 895 en í
október 1991 voru þeir 1019.
Atvinnuleysi er því minna í ár. 64
einstaklingar komu inn á skrá í
mánuðinum, 33 karlar og 31
kona. Nú í október voru atvinnu-
leysisdagar karla 445 en konur
voru með 450. Síðasta dag mán-
aðarins voru 46 á skrá, 24 karlar
og 22 konur. Á sama tíma í fyrra
voru einnig 46 á skrá, 27 karlar
og 19 konur.
Atvinnuleysið á Húsavík dreif-
ist mjög á starfsstéttir, og er dreif-
ingin heilt yfir. Þó var enginn
byggingamaður á skrá um mán-
aðamótin.
Hvað atvinnuástand í Suður-
Þingeyjarsýslu allri varðar, að
Húsavík meðtalinni, eru skráðir
1633 atvinnuleysisdagar í októ-
ber en á sama tíma í fyrra voru
þeir 1861. í lok október nú voru
87 á atvinnuleysisskrá, 35 karlar
og 52 konur. Þar kemur inn
atvinnuleysi kvenna í Mývatns-
sveit á veturna, utan ferða-
mannatímans, sem orðið er
árlegt vandamál.
Atvinnuleysisdagar karla í
sýslunni í október urðu 629 en
kvenna 1004. Alls komu 117 inn
á skrá í mánuðinum, 48 karlar og
69 konur. IM
Raufarhöfn:
Ljósavélaskipti í Rauðanúpi í desember
Skipt verður um Ijósavél í tog-
aranum Rauðanúp ÞH-160 frá
Raufarhöfn í desembermánuði
nk. af vélaverkstæðinu Grími
hf. á Húsavík, en skipið kemur
til hafnar 8. desember og er
reiknað með að því verði lokið
fyrir jól. Vélaskiptin fara fram
á Raufarhöfn.
Rauðinúpur hefur verið á veið-
um á Glettinganesflakinu en var í
gær komin á miðin við Langanes-
ið, og var aflinn orðinn rúmir 500
kassar af þorski og ýsu. Áætlað
er að skipið komi til löndunar um
miðja næstu viku. Fiskiðja Rauf-
arhafnar hefur haft nægjanlegt
hráefni til vinnslu, enda hefur
togarinn verið að gera ágæta túra
að undanförnu. Einnig hefur
frystihúsið fengið bátafisk til
vinnslu og hefur verið sæmilegur
aflareytingur á þeim. Nýlega var
sendur fiskur frá Raufarhöfn til
Vopnafjarðar til vinnslu þar sem
frystihúsið á Raufarhöfn annaði
ekki öllu því sem á land barst.
Nokkuð er um að afla sé ekið
milli staða fyrir austan og t.d.
kom fiskur frá Vopnafirði til
Raufarhafnar í sumar, en einnig
hefur verið samvinna um afla-
skipti við Þórshöfn og Húsavík.
GG