Dagur - 12.11.1992, Blaðsíða 1
75. árgangur Akureyri, fimmtudagur 12. nóvember 1992 216. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Tjörnes og Húsavík:
Allt á kafi í snjó
- snjóruðningstæki Húsavíkurbæjar
ekki viðbúin slíku vetrarveðri
Það fór að snjóa á Húsavík í
fyrradag og í gærmorgun var
orðið illfært um flestar götur
nema fyrir drifmikla bfla.
Sunnan við Húsavíkurbæ var
lítill snjór og fljótgert að
hreinsa af vegum. Lítill snjór
var á Kísilvegi en ófært austur
yfir öræfin. Mikill snjór var á
Tjömesi og vonskuveður. Heffll
fór norður í Auðbjargarstaði
en það j>erði ófært svo til strax
aftur. I Kelduhverfi fór strax
að draga úr snjómagninu og
lítill snjór var þar fyrir austan.
Snjóruðningstæki Húsavíkur-
bæjar voru ekki viðbúin slíku
vetrarveðri og nokkurn tíma tók
að búa þau af stað til moksturs.
Það snjóaði stanslaust á Húsavík
í gær og síðdegis var snjórinn
orðinn talsvert mikill. Nóg var að
gera hjá lögreglu í gærdag við að
aðstoða bifreiðaeigendur, hverra
bílar voru fastir eða straumlausir.
Lögreglunni var síðdegis í gær
ekki kunnugt um að nein óhöpp
hefðu orðið.
„Pað er allt á kafi á Tjörnesi,
veðrið var svo vont og mikill
snjór að ómögulegt þótti að eiga
við moksturinn. Sáralítið þurfti
að moka sunnan við bæinn en
það var fremur fúlt veður. Pað
var ekki mikill snjór á Víkur-
skarði en þar þurfti að hreinsa
öðru hverju og þar var vonsku-
veður.
Það er allt meira og minna
ófært í bænum, snjórinn er svo
blautur að hann treðst og það
verður fljúgandi hálka. Þetta er
andstyggð, það er andstyggileg-
asta sem maður fær að þurfa að
eiga við svona snjó, hann er
algjör viðbjóður, klessist niður
og vont er að ná honum upp
aftur. Sums staðar eru bílar á
kafi,“ sagði Svavar Jónsson hjá
Vegagerðinni. IM
Kvikmyndin „Með allt á hreinu“ var sýnd á vegum Greifans á Togarabryggjunni sl. þriðjudagskvöld. Mynd: Robyn
Auglýst skipulag af Krossaneshaga:
Verður framtíðar atvinnusvæði
Fyrsti snjómokstur vetrarins:
Siglufjarðarvegur aðeins
fær stórum bílum
Ólafsfjarðarvegur frá Hámund-
arstaðahálsi um Ólafsfjarðar-
múla til Ólafsfjarðar var rudd-
ur í gær, en nokkur snjókoma
var á annesjum norðanlands í
gær og fyrrinótt en í dag er
reiknað með að veður lægi og
verði jafnvel léttskýjað. Veg-
urinn um Lágheiði er ófær.
Nokkur snjókoma var á Öxna-
dalsheiði, en sæmilegt færi fyrir
alla bíla en gæti hafa versnað ef
vind hefur hert. Vegna snjókomu
og skafrennings var vegurinn til
Siglufjarðar aðeins orðinn fær
stórum bílum í gær og á Vatns-
skarði og Holtavörðuheiði var
hálka, snjókoma og skafrenning-
ur, en vegna snjókomuspár fyrir
síðustu nótt má búast við að færð
hafi þar verulega spillst fyrir
fólksbíla. GG
Akureyrarbær hefur auglýst
tillögu að deiliskipulagi iðnað-
arhverfis/svæðis fyrir almenna
atvinnustarfsemi í Krossanes-
haga. Annars vegar er auglýst
tiliaga að heildarskipulagi fyrir
allt svæðið og hins vegar til-
laga að deiliskipulagi fyrsta
áfanga þess.
í tengslum við skipulag
Krossaneshaga er auglýst tillaga
að breytingu á legu væntanlegrar
Síðubrautar norðan athafna-
svæðis í Krossaneshaga og Krossa-
nesbrautar austan sama svæðis.
Umrætt skipulagssvæði, sem
nefnt hefur verið Krossaneshagi,
er austan Hörgárbrautar, norðan
Starfslok bæjarstjórans í Ólafsfirði:
Aðilar ekki sammála um
hvaða starfssamnmgur gildir
- stefnir í að málið komi til kasta lögfræðinga
Á bæjarstjórnarfundi í Ólafs-
firði i fyrrakvöld kom skýrt
fram að ekki eru allir aðilar
sammála um hver starfsloka-
kjör Bjarna Grímssonar, frá-
farandi bæjarstjóra, eigi að
vera. Á fundinum krafðist
minnihlutinn svara um hvort
ágreiningur sé innan meirihlut-
ans um þetta mál og hver
kostnaður sé við starfslok
Bjarna. Af svörunum má ráða
að allt stefni í að lögfræðilega
verði tekist á um þetta atriði
en bæjarráðsmenn eru ekki
sammála um hvort drög að
starfssamningi við Bjarna
Grímsson hafi hlotið samþykkt
í bæjarráði eða ekki.
Guðbjörn Arngrímsson, full-
trúi minnihlutans í bæjarráði,
sagði á fundinum að starfssamn-
ingur við Bjarna hafi tvisvar
komið fyrir í bæjarráði síðasta
árið. Hann hafi ekki skilið annað
en sá samningur hefði samþykki
meirihlutamanna enda hefðu
drög að samningnum verið gerð
milli Óskars Þórs Sigurbjörns-
sonar, forseta bæjarstjórnar, og
Bjarna en Óskar Þór sat sem full-
trúi í bæjarráði í fyrra skiptið
sem drögin komu þar fyrir. Þau
voru gerð sumarið 1990 en ekki
lögð fyrir bæjarráð fyrr en í sept-
ember 1991 og aftur í upphafi
þessa árs eftir að Sigurður
Björnsson tók þar sæti Óskars
sem aðalmaður. Þorsteinn Ás-
geirsson, hinn fulltrúi Sjálfstæðis-
flokks í bæjarráði, segir að á
bæjarráðsfundinum í upphafi
þessa árs hafi bæjarráð hafnað
samningnum þar sem meirihlut-
inn hefði ekki getað sætt sig við
þau ákvæði að bæjarstjóri hefði 6
mánaða uppsagnarfrest og 6
mánaða biðlaun. Því sé litið svo á
að fyrri samningur við Bjarna sé í
gildi en hann hljóðaði upp á 3
mánaða uppsagnarfrest og 3
mánaða biðlaun.
Bjarni Grímsson ítrekaði í gær
fyrri ummæli sín í Degi um þetta
mál og sagði skýrt af sinni hálfu
að sá samningur sem gerður var á
þessu kjörtímabili sé í gildi enda
sé fráleitt að fyrri samningurinn
geti verið í gildi nú þar sem hann
hafi átt að renna út við síðustu
kosningar. Bjarni sagðist í gær-
dag ekki enn hafa heyrt frá meiri-
hlutamönnum, honum hafi hvorki
verið sent uppsagnarbréf né upp-
lýsingar um hvernig starfslok sín
verði en hann hafi óskað eftir
þeim upplýsingum. Sé þannig að
meirihlutinn ætli nú ekki að
standa við þann samning sem
Óskar gerði við hann í upphafi
kjörtímabils og ekki fékk athuga-
semd á fundi í bæjarráði fyrir ári
muni hann leita til lögfræðings
síns með það mál. JÓH
Hlíðarbrautar og vestan og sunn-
an við væntanlegu tengibrautirn-
ar Krossanesbraut og Síðubraut.
í greinargerð skipulagshöf-
unda, sem eru Arkitektastofan
Form, Akureyri, Verkfræðistofa
Sigurðar Thoroddsen hf., Akur-
eyri og Teiknistofa Halldórs
Jóhannssonar, Akureyri, kemur
fram að á þessu svæði er gert ráð
fyrir verslunar-, þjónustu- og iðn-
aðarhúsnæði auk bygginga á
svokölluðum lagersvæðum, en
þar er gert ráð fyrir að t.d. bygg-
ingaverktakar geti geymt mót,
krana o.fl. þess háttar.
Krossaneshagi er framtíðar
atvinnusvæði bæjarins og því
segja skipulagshöfundar að þurfi
að bjóða upp á fjölbreytni og
sveigjanleika í lóðaframboði.
Þær lóðir sem áætlað er að verði
á svæðinu eru af stærðinni 2500-
4000 m2, 4000-7000 m2, 7000-
10000 m2 og 10000-15000 m2.
óþh
Skortur á dagvistunar-
rými á Sauðárkróki
- fiöldi barna á biðlista
Talsverð umræða varð um dag-
vistunarmál á bæjarstjórnar-
fundi á Sauðárkróki sl. þriðju-
dag. Kom m.a. fram að 34
börn eldri en tveggja ára eru á
biðlista hjá leikskólunum.
í máli bæjarfulltrúanna kom
fram að fyrir fáum árum hefði
verið nóg pláss á leikskólum, en
börnum fjölgaði jafnt og þétt og
því er svo komið nú að fjöldi
barna er á biðlista eftir dagvist-
un. Varð nokkur umræða um
viðbrögð við þessum upplýsing-
um og hvort hægt hefði verið að
fylgjast betur með þróun mála til
að koma í veg fyrir að slíkt
ástand skapaðist. I athugun er
hvort hægt sé að festa kaup á
eldra húsnæði undir starfsemi
leikskóla, en ljóst að það myndi
einnig kosta mikið fé. Snorri
Björn Sigurðsson bæjarstjóri bað
fulltrúana að hafa í huga heildar-
yfirsýn yfir útgjöld og fram-
kvæmdir bæjarins, ekki væri hægt
að gera allt í einu. Nefndi hann
m.a. óskir um stækkun íþrótta-
húss. Anna Kristín Gunnarsdótt-
ir sagðist þeirrar skoðunar að
málefni barna skyldu hafa for-
gang fram yfir „tómstundagaman
fullorðinna“. Herdís Sæmundar-
dóttir kvaðst einnig hafa áhyggj-
ur af vistun yngstu skólabarna
eftir skóladag, að 6-7 ára börn
væru ein á ferli. Taldi hún brýnt
að leysa úr þeim málum. Einnig
kom fram gagnrýni nokkurra
bæjarfulltrúa á að ekki lægi fyrir
þriggja ára fjárhagsáætlun bæjar-
ins, eins og lög gerðu ráð fyrir.
sþ
Helluvað í Mývatnssveit:
Ær bar tveim lömbum
Sjö vetra ær í eigu Sigurgeirs
Jónassonar, bónda á Helluvaði
í Mývatnssveit, bar tveim
sprækum lömbum sl. fimmtu-
dag, en óhætt er að segja að
þessi burðartími sé óvenjuleg-
ur.
Þessi ær hefur verið geld síð-
ustu tvö ár og ætlunin var að lóga
henni í haust. Hún kom hins veg-
ar ekki fram þegar smalað var til
slátrunar, en skilaði sér þegar
ærnar voru teknar á hús. óþh