Dagur - 12.11.1992, Page 3
Fimmtudagur 12. nóvember 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Vöruskiptajöfnuðurinn fyrstu 9 manuði arsins:
Hagstæður rnn 2,8 milljarða
í septembermánuði voru flutt-
ar út vörur fyrir 7.600 millj. kr.
og inn fyrir tæpar 7.400 millj.
kr. fob. Með innflutningstöl-
um septembermánaðar er að
auki talið verðmæti þriggja
skipa, alls tæpar 2.200 millj.
kr. sem komu til landsins í
sumar og upplýsingar hefur
vantað um og dregist hefur að
tollafgreiða
Innflutningsverðmætið í sept-
ember er því alls talið 9.500 millj.
kr. og vöruskiptajöfnuðurinn
óhagstæður um tæpar 2.000 millj.
kr., samanborið við 800 millj. kr.
hagstæðan jöfnuð á sama tíma í
fyrra.
Fyrstu níu mánuði þessa árs
voru fluttar út vörur fyrir 65,7
milljarða kr. en inn fyrir 63 millj-
arða kr. fob. Vöruskiptajöfnuð-
urinn á þessum tíma var því hag-
stæður um 2,8 milljarða en á
sama tíma í fyrra var hann óhag-
stæður um 2,1 milljarð á sama
gengi.
Byggingamannafélagið Árvakur:
Vill höftiðstöðvar lífeyris-
sjóðsins til Húsavíkur
Fyrri samþykktir félagsins um
stofnun á einum lífeyrissjóði
fyrir allt Norðurland voru ítrek-
aðar á aðalfundi Bygginga-
mannafélagsins Arvakurs sem
haldinn var á Húsavík nýlega.
í ályktun sem samþykkt var á
fundinum segir: „Fundurinn telur
að lífeyrisréttindi sjóðfélaga á
Norðurlandi verði betur tryggð í
einum sameiginlegum sjóði, en í
mörgum smáum sjóðum.
Fundurinn samþykkir jafn-
framt aðild félagsins að nýjum
sjóði.
Aðalfundur Byggingamanna-
félagsins Árvakurs leggur áherslu
á, að höfuðstöðvar Lífeyrissjóðs
Norðurlands verði á Húsavík."
IM
Sjávarútvegsráðuneytið og Útflutningsráð:
Ráðsteftia um ný
tækifæri vegna EES
Sjávarútvegsráðuneytið og
Utflutningsráðs halda ráð-
stefnu föstudaginn 13.
nóvember í Viðey um ný tæki-
færi sem samningurinn um
EES mun opna fyrir útflytj-
endur sjávarafurða. Að sögn
Ingjalds Hannibalssonar, fram-
kvæmdastjóra Útflutnings-
ráðs, er tilgangur ráðstefnunn-
ar að benda á þá möguleika
sem samningurinn opnar fyrir
íslenska útflytjendur.
„Pað eru einungis um tveir
mánuðir þar til samningurinn
tekur gildi, ef hann fæst sam-
þykktur. Margar spurningar hafa
vaknað hjá íslenskum aðilum
varðandi þennan samning og hef-
ur verið mikið leitað til okkar og
sjávarútvegsráðuneytisins vegna
þessa máls. Með þessari ráð-
stefnu ætla ráðuneytið og
Útflutningsráð að kynna samn-
inginn og ásamt fulltrúum fyrir-
tækjanna að spá í spilin varðandi
þróun útflutnings íslendinga á
sjávarafurðum á komandi árum,“
sagði framkvæmdastjórinn.
Ráðstefnan er öllum opin en
skráning fer fram í sjávarútvegs-
ráðuneytinu og hjá Útflutnings-
ráði. -KK
Dalvíkingur landsmeistari í karaokesöng:
Ylfa Mist Helgadóttir
sönglagið „True colours“
Fimmtudaginn 5. nóvember sl.
fóru fram úrslit í landskeppni
fyrirtækja í karaokesöng. Það
voru fyrirtæki víðs vegar um
landið sem sendu keppendur í
undanrásir sem haldnar voru
vítt og dreift um landið. Sigur-
vegarnir í undanrásum leiddu
svo saman hesta sína á skemmti-
staðnum „Tveir vinir og annar
í fríi“ í Reykjavík og voru það
25 söngvarar sem þar reyndu
með sér.
Sigurvegari varð Dalvíkingur-
inn Ylfa Mist Helgadóttir sem
keppti fyrir Söltunarfélag Dal-
víkur hf. og söng Ylfa lagið:
„True colours".
Verðlaunin voru 40 þúsund
krónur í peningum, mjög glæsi-
legur eignarbikar og armbands-
úr, en auk þess fékk sigurvegar-
inn bjórkippu og blómvönd. Ylfu
Mist hafa þegar borist tvö
atvinnutilboð í kjölfar sigursins.
Annað er söngur með hljómsveit
en hitt er vinna og hljómplötu-
upptaka í hljómveri sem frarn
færi á næsta ári. GG
Nemendur Framhaldsskólans á Húsavík æfa stíft vegna uppsetningar á leikriti Ludvig Holbergs „Jeppi á Fjalli“.
Mynd: IM
Leikklúbbur Framhaldsskólans á Húsavík:
„Geram enga vitleysu á meðan,“
- segja unglingarnir - og setja upp Jeppa á Fjalli með
Sigurð Hallmarsson í titilhlutverki
Leikklúbbur Framhaldsskól-
ans á Húsavík, Piramus og
Þispa, æfir Jeppa á Fjalli eftir
Ludvig Holberg og stefnir á
frumsýningu næsta fimmtu-
dag, 19. nóv. Sigurður Hall-
marsson leikstýrir og fer með
titilhlutverkið.
Leikklúbburinn hefur árlega
sett upp sýningar síðustu veturna
og aldeilis ekki ráðist á garðinn
Minnihluti bæjarstjórnar
Ólafsfjarðar lagði fram bókun
á bæjarstjórnarfundi í fyrra-
kvöld um starfslok Bjarna
Grímssonar. Bókunin er svo-
hljóðandi:
„Minnihlutinn mótmælir þeim
málatilbúnaði sem meirihlutinn
hefur haft uppi varðandi uppsögn
Bjarna Kr. Grímssonar, bæjar-
stjóra. Bjarni hefur verið borinn
þungum sökum af bæjarstjórn-
armönnum sjálfstæðismanna,
þar sem hann er lægstur, Shake-
speareverk hafa jafnvel verið
sviðsett á hans vegum.
Blaðamaður Dags kíkti inn á
æfingu í vikunni og hlakkar svo
sannarlega til að mæta á sýningu.
Vonandi fær unga fólkið góða
aðsókn, og eflaust hika margir
ekki við að bregða sér bæjarleið
til að sjá Sigurð sem Jeppa.
Hilda Kristjánsdóttir, Rúnar
svo þungum að telja mætti að um
skipulegar ærumeiðingar væri að
ræða. Við mótmælum þeim mála-
tilbúningi harðlega og hörmum
hvernig starfslok hans ber að.
Það hefur verið sjálfstæðismönn-
um í Ólafsfirði til skammar.
Bjarni hefur ekki að okkar mati á
nein hátt verðskuldað þá með-
ferð sem meirihlutinn hefur veitt
honum og hans störf hafa ekki á
nokkurn hátt gefið tilefni til
þeirra meiðinga sem hann hefur
orðið fyrir af þeirra hálfu. “ JÓH
Hrafn Sigmundsson og Pórný
Birgisdóttir eru í stjórn Píramus-
ar og Þispu ásamt fleirum, og á
æfingunni hitti blaðamaður þau
að máli. Rúnar sagði að verkið
væri „magnað'*. „Mér finnst það
mjög skemmtilegt. Ég sá upp-
færslu hjá danska leikhópnum í
september og fannst það mjög
skemmtilegt þar, en þá vorum
við búin að ákveða að taka verk-
ið til sýninga,“ sagði Þórný.
„Sýningafjöldinn fer eftir
aðsókninni,“ sagði Hilda. „Við
gerum þetta til að hafa gaman af
því,“ sagði Rúnar. „Þetta gefur
manni margt og við gerum enga
vitleysu á meðan. Þetta er skap-
andi og áhugavert,“ sagði Þórný,
aðspurð hvað þátttaka í uppsetn-
ingunni gæfi unglingunum. Milli
20-30 ungmenni starfa við upp-
setningu sýngarinnar auk Sigurð-
ar. Þar af eru 17 leikendur en síð-
an þarf að huga að ljósum, bún-
ingum, sviðsmynd og ótal þáttum
öðrum. Vel hefur gengið að fá
fólk til starfa en nokkur ung-
mennanna eru komin með mikla
reynslu, auk þess að taka árlega
þátt í uppsetningum hjá leik-
klúbbnum hefur Leikfélag Húsa-
víkur leitað liðsinnis unga fólks-
ins úr kúbbnum við uppsetningu
verka, t.d. Lands míns föður.
IM
Bókun minnihluta bæjarstjórnar
ÓlafsQarðar um starfslok bæjarstjóra:
Mótmælum málatilbúnaði
meiríhlutans harðlega