Dagur - 12.11.1992, Síða 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 12. nóvember 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON,
ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Óvinsæl ríkisstjóm
í síðustu viku voru kynntar niðurstöður nýrr-
ar skoðanakönnunar DV á fylgi stjórnmála-
flokkanna og afstöðu til ríkisstjórnarinnar.
Það sem vekur athygli öðru fremur í þessum
niðurstöðum er hve ríkisstjórn Davíðs Odds-
sonar nýtur lítils fylgis meðal almennings um
þessar mundir. Ef marka má niðurstöður
könnunarinnar nýtur ríkisstjórnin einungis
stuðnings 30,8 af hundraði en 55,7 af hundr-
aði aðspurðra segjast henni andvígir. 13,5%
eru ýmist óákveðin eða neita að svara. Ef ein-
ungis er litið til þeirra sem afstöðu taka er
ljóst að ríkisstjórnin nýtur aðeins stuðnings
um þriðjungs kjósenda. Tveir af hverjum
þremur eru henni hins vegar andvígir.
Litlar og að því er virðist dvínandi vinsældir
ríkisstjórnarinnar eiga sér eðlilegar skýring-
ar. Hún naut stuðnings meirihluta kjósenda í
upphafi, eins og reyndar allar ríkisstjórnir í
sögu lýðveldisins á hveitibrauðsdögum
sínum. En hveitibrauðsdögunum er greini-
lega löngu lokið. Ríkisstjórnin er enn ráðþrota
í ýmsum mikilverðustu málaflokkunum. Hún
hefur ekki enn kynnt langtímastefnu sína í
málefnum sjávarútvegsins, enda sú stefna
enn í mótun í nefnd á vegum stjórnarinnar.
Þá er enn beðið eftir aðgerðum hennar í efna-
hags- og atvinnumálum, þótt í mesta óefni sé
komið nú þegar á flestum sviðum efnahags-
og atvinnulífs. Ekki má heldur gleyma því að
margar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar til þessa
hafa mælst mjög misjafnlega fyrir meðal
almennings.
Eins og staðan er í dag bendir fátt til þess
að vinsældir ríkisstjórnarinnar eigi eftir að
aukast á næstunni. Að óbreyttu er þess því
skammt að bíða að ríkisstjórn Davíðs Odds-
sonar verði óvinsælasta ríkisstjórn íslands frá
því vinsældamælingar af þessu tagi hófust.
Fylgi einstakra stjórnmálaflokka er sam-
kvæmt niðurstöðum DV könnunarinnar mjög
1 takt við fylgi ríkisstjórnarinnar. Þannig hafa
stjórnarflokkarnir tveir, Sjálfstæðisflokkur og
Alþýðuflokkur, misst verulegt fylgi frá síð-
ustu alþingiskosningum yfir til stjórnarand-
stöðunnar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur tapað
rúmum 8% og Alþýðuflokkurinn rúmum 2%.
Samkvæmt könnuninni ættu þessir flokkar nú
einungis 28 þingsæti af 63 í stað þess 36
þingsæta meirihluta sem þeir hafa nú. Fram-
sóknarflokkurinn hefur hins vegar bætt við
sig fjórum þingsætum frá síðustu kosningum
og Alþýðubandalag og Kvennalisti tveimur
hvor flokkur. Þessar niðurstöður koma fæst-
um á óvart. Bæði stjórnmálaflokkarnir og
ríkisstjórnin uppskera svo sem til er sáð. BB.
Frímerki
Sigurður H. Þorsteinsson
Ástarbréfið frá Djúpavogi
Enn er selt eitt af þeim íslensku
skildingabréfum, sem eru á
markaði fyrir safnara. Að þessu
sinni er um að ræða bréf úr safni
Holger Crawford, sem frímerkt
er með 16 skildingum gulum, fín-
tökkuðum, eða 14xl3!/i. Þetta er
hátt burðargjald, en af innihaldi
bréfsins kemur í ljós af hverju
það stafar. Það er í raun aðeins
bréf með fyrirmælum um hversu
skuli fara með annað bréf sem er
inni í þessu umslagi.
Bréfið er stílað til Alex Becker
tóbaksframleiðanda í Vesturgötu
19 í Kaupmannahöfn. Það er
skrifað á Djúpavogi þann 11.
júní 1874. Síðan er það póstlagt
og stimplað þar þann 19. júní
þetta sama ár. Ennfremur er það
stimplað á bakhlið sem komið til
Kaupmannahafnar.
Verðlagning þess er 300 þús-
und sænskar krónur, eða vel ríf-
lega þrjár milljónir íslenskra
króna, þegar tekið er með í
reikninginn að sölufyrirtækið
tekur prósentur af verði og
kostnað.
í uppboðslistanum er eytt heilli
opnu í þetta eina bréf, auk þess
sem litmynd er af því. Þá er löng
frásögn um möguleikann að
þarna sé ástarbréf á ferðinni, sem
menn geta sér til vegna þess að
„hún“ er nefnd í innihaldi fyrir-
mælanna. En hvert er þá þetta
innihald?
„Höjtærede Hr. Becker.
Vedlagte brev, som er meget
vigtigt beder jeg Dem være saa
god at sende ???aa snarest. Jeg
venter hende nu bestemt með
dampskipets. -1 frygtelig Hast. -
Med mange Hilsener.
Deres forb.
(Ólæsilegt.)
11. juni 1874.
Þannig hljóðar textinn á
dönsku og er það á íslenskunni á
þessa leið:
„Háæruverðugi Hr. Becker.
Hjálagt bréf, sem er mjög
mikilvægt, bið ég yður að senda
???aa eins fljótt og hægt er. Ég
vænti hennar með gufuskipinu
núna. - í miklum flýti. -
Með bestu kveðju.
Yðar þakklátur.
11. júní 1874.
Hver er svo þessi ???aa og
hvað er svona mikilvægt í bréf-
inu. Það getur allt eins verið and-
látstilkynning eða erfðaskrá, eins
og bónorð. Samt segir uppboðs-
haldari í lýsingunni, að nú séu
118 ár síðan svo að þeir voni að
fólk á Djúpavogi hafi bæði
gleymt og fyrirgefið eins og þarna
hafi verið um forboðna ást að
ræða. Staðreyndin er einfaldlega
sú, að ómögulegt er að ráða af
undirskriftinni að hún, og þar
með sendandinn sé íslensk eða
fslenskur.
Hins vegar verður gaman að
sjá hvort menn vilja gefa mikið
fyrir svona tilbúning um skild-
ingabréfið. Þetta minnir mann
óneitanlega á hið svokallaða
Biblíubréf, sem hefir sennilega
aldrei nálægt neinni biblíu
komið. En svona hljóta hlutirnir
nafngiftir.
Sigurður H. Þorsteinsson.
C.
Umslag bréfsins.
Bæjarstjórn Húsavíkur:
Varar við áformum rílásstjómarmnar
- um að leggja niður starfsemi Fræðsludeildar Fiskifélags íslands
Bæjarstjórn Húsavíkur varar
við áformum sem koma fram í
fjárlagafrumvarpi ríkisstjórn-
arinnar fyrir árið 1993, að
leggja niður starfsemi Fræðslu-
deildar Fiskifélags íslands frá
og með næstu áramótum.
í ályktun, sem samþykkt var á
fundi Bæjarstjórnar Húsavíkur
þann 27. október sl. segir:
„Fræðsludeildin hefur m.a. séð
um skipulag sjóvinnunáms í
grunnskólum, haft umsjón með
kennslugögnum, þjálfað kenn-
ara, unnið prófverkefni og gefið
út prófskírteini til 30 tonna skip-
stjórnarréttinda.
Bæjarstjórnin vekur athygli á
þessu þýðingarmikla framlagi
grunnskólanna í landinu til fisk-
veiðanna, og bendir á að vegna
sjóvinnunáms hafa þúsundir
unglinga komið til starfa við
þennan undirstöðu atvinnuveg
þjóðarinnar með verkþekkingu
sem þau hefðu annars ekki haft.
Bæjarstjórn Húsavíkur skorar
á yfirvöld menntamála og stjórn-
endur skóla að beita sér fyrir því
að þessari mikilvægu tengingu
skólakerfisins við atvinnulífið
verði haldið og hún styrkt með
öllum tiltækum ráðum.“