Dagur - 12.11.1992, Page 11
Fimmtudagur 12. nóvember 1992 - DAGUR - 11
Stórskemmtun í „GryfjimnT
suimudagiim 22. nóvember
Margir tónlistarmenn, kórar,
hljóðfæraflokkar og einstak-
lingar leggja Kammerhljóm-
sveit Akureyrar lið er efnt
verður til skemmtunar í nýjum
og rúmgóðum sal Verk-
menntaskólans á Akureyri,
„Gryfjunni“, sunnudaginn 22.
nóvember kl. 16.
Leitast verður við að höfða til
breiðs áheyrendahóps, enda
verður slegið á glaðværa og lit-
ríka strengi. Auk Kammerhljóm-
sveitarinnar sjálfrar verða á með-
al flytjenda: Christopher A.
Thornton, sópransaxófónn,
Helga Bryndís Magnúsdóttir,
píanó, Hólmfríður Benedikts-
Hvítasunnukirkjan á Akureyri:
Helga Zidermanis
predikar um helgina
Um helgina, frá fímmtudags-
kvöldi til sunnudags, heimsæk-
ir predikarinn og kennarinn,
Helga Zidermanis, Hvíta-
sunnukirkjuna á Akureyri.
Helga Zidermanis er fædd í
Lettlandi, en býr nú í Bandaríkj-
unum. í lok síðari heimsstyrjald-
ar, eftir að maður hennar hafði
verið kallaður í herinn, flúði hún
ásamt börnum sínum undan nas-
istum, en síðan Rauða hernum
og komst til Pýskalands og þaðan
til Bandaríkjanna. Til eigin-
manns hennar spurðist aldrei. í
Bandaríkjunum varð hún fljótt
virk í kirkjulegu starfi. Hún hef-
ur komið til íslands oft áður, en
er nú í fyrsta skipti á Akureyri.
Helga mun hafa Biblíukennslu
Bændaklúbbs-
fundur á
Hótel KEA
nk. mánu-
dagskvöld
Bændaklúbbsfundur verður á
Hótel KEA á Akureyri nk.
mánudag, 16. nóvember og
hefst kl. 21.
Framsögumenn verða Ólafur
G. Vagnsson, ráðunautur hjá
Búnaðarsambandi Eyjafjarðar
og Jóhannes Ríkharðsson, ráðu-
nautur hjá Búnaðarsambandi
Skagfirðinga.
Rætt verður um starfsemi
Sauðfjársæðingastöðvarinnar á
Möðruvöllum og kynntur hrúta-
stofn hennar. Auk þess munu
þeir segja frá ferð sauðfjárrækt-
armanna til Englands í síðasta
mánuði.
Eru allir áhugamenn um sauð-
fjárrækt hvattir til að mæta.
(Fréttatilkynning)
Skák:
10 mín. mót
10 mínútna skákmót hefst í
skákheimilinu, Þingvallastræti
18 í kvöld kl. 20 og er öllum
heimil þátttaka. Um næstu
helgi munu skákmenn frá
Akureyri sem af Eyjafjarðar-
svæðinu fjölmenna til Dalvik-
ur á Sveinsmótið.
Áriega heldur Sparisjóður
Svarfdæla svokallað Sveinsmót,
sem haldið er til minningar um
Svein Jónsson, fyrrverandi spari-
sjóðsstjóra, sem var mikill áhuga-
maður um skák. Keppt er um far-
andbikar, og er núverandi hand-
hafi hans Akureyringurinn Rún-
ar Sigurpálsson. GG
í Hvítasunnukirkjunni í kvöld-
og annað kvöld kl. 20 svo og
laugardag kl. 10.30. Vakninga-
samkomur verða með henni á
laugardagskvöld kl. 20 og sunnu-
dag kl. 15.30. Allir eru hjartan-
lega velkomnir á þessar samkom-
ur meðan húsrúm leyfir.
(Úr fréttatilkynningu)
dóttir, sópran, Jacqueline F.
Simm, óbó og Tom Higgerson,
píanó, Jennifer Spear, gítar og
Moira Lang, sópran, Kór Akur-
eyrarkirkju, Kór Glerárkirkju,
óbókvartett Tónlistarskólans á
Akureyri, Óskar Pétursson,
tenór, Pálmi Gunnarsson, söngv-
ari og bassaleikari, Stórsveit
Lúðrasveitar Akureyrar og tvö-
falt djasstríó.
Kynnir og upplesari verður
Sigurður Hallmarsson, leikarinn
góðkunni frá Húsavík.
Kammerhljómsveit Akureyrar
hefur átt auknum vinsældum að
fagna á undanförnum árum og
hefur efnt til margra metnaðar-
fullra tónleika með 40-50 hljóð-
færaleikurum ásamt mörgum ein-
söngvurum og einleikurum. Með
þessari skemmtun hefst 7. starfs-
ár Kammerhljómsveitarinnar og
er það von forráðamanna hennar
að sem flestir komi í Verk-
menntaskólann 22. nóvember og
njóti góðrar tónlistar með lista-
mönnum sem fram koma.
(Fréttatilkynning)
IHI
KFNE
37. kjördæmisþing framsóknarfélag-
anna í Norðurlandskjördæmi eystra,
verður haldið á lllugastöðum í Fnjóskadal dag-
ana 13. og 14. nóvember 1992.
Dagskrá
Föstudagur 13. nóvember
kl. 20.30
1.
2.
3.
4.
5.
Setning þingsins.
Kosning starfsmanna þingsins.
Skýrsla stjórnar og reikningar.
Umræöur um skýrslur stjórnar og afgreiðsla reikninga.
Framlagning mála
- Guðmundur Bjarnason, drögð að stjórnmálaályktun.
- Halldór Ásgrímsson, ályktun atvinnumálahóps,
- Guðmundur Stefánsson, ályktun byggðamálahóps,
- Daníel Árnason, ályktun umhverfismálahóps,
Ávarp Steingríms Hermannsonar,
Umræður.
Laugardagur 14. nóvember
kl.8
kl. 9 til 12
kl. 12 til 13
kl. 13 til 16
kl. 16 til 16.30
kl. 16.30
kl. 17
kl. 17.15
kl. 18
morgunverður,
nefndarstörf,
matarhlé,
afgreiðsla mála,
kaffihlé,
kosningar,
ákvörðun um gjald til KFNE,
önnurmál,
þingslit.
/
/
/
é
/
/
J
r/j
/
/
Fimmtudagur
Sprengitilbað
/ Föstudagur
kl. 16.30
laugardagur
kl. 10.30
6(?
Löggurnar úr Línu longsokk
kama í heimsókn og gefa
20 heppnum krökkum miða
á Línu langsokk, Kodak
mgndaválar, Cnca Cnla,
útvarpstæki og fleira
Sprengitilbað
föstudag, laugar-
dag og sunnudag
%Ur
^<9
i/A
Öta/
ð//Q atony
Nettó allra hagur - Ddýr mkaður
Opið mánudaga til föstudaga 12.00-18.30
Laugardaga kl. 10.00-16.00 - Sunnudaga kl. 13.00-17.00