Dagur - 12.11.1992, Qupperneq 13
Fimmtudagur 12. nóvember 1992 - DAGUR - 13
Cheerios- og Cocoapuffspakkarnir frá General Mills hafa nú verið færðir í íslenskan búning í tilefni af 50 ára inn
flutningsafmælinu.
Cheerios
Cheerios á Íslandí í 50 ár
- nýir íslenskir pakkar komnir á markaðinn
Um þessar mundir eru liðin 50 ár
frá því Nathan & Olsen hf. hóf
innflutning á Cheerios hringjum
frá General Mills en þá hafði
þetta vinsæla morgunkorn aðeins
verið eitt ár á borðum Banda-
ríkjamanna.
Cheerios hringjunum hefur frá
upphafi verið afar vel tekið af
íslenskum neytendum og í dag er
Cheerios eitt söluhæsta morg-
unkornið á íslenskum markaði.
Af þessu tilefni hafa Cheerios
pakkarnir verið færðir í íslenskan
búning og er lýsing á innihaldi og
næringargildi á íslensku sem og
textar sem eru bæði til fróðleiks
og ánægju. Einnig hafa pakkarnir
fyrir Cocoa Puffs og Honey Nut
Cheerios verið íslenskaðir og er
að finna á þeim myndskreytingar
og leiki fyrir börn á öllum aldri.
Ungir jafnaðarmenn:
Vilja að íslendingar sæki
tafarlaust um aðlld að EB
Ungir jafnaðarmenn telja að
Islendingar eigi nú þegar að
sækja um aðild að Evrópu-
bandalaginu og ísland verði
þannig í samfloti með öðrum
ríkjum í samningaviðræðum
um inngöngu í bandalagið frá
upphafi. Með þeim hætti eigi
Islendingar meiri möguleika á
að ná fram betri samningum
um ýmis mikilvæg málefni, svo
sem í sjávarútvegi. Þetta kem-
ur fram í stjórnmálaályktun
40. þings Sambands ungra
jafnaðarmanna, sem haldið
var um síðustu helgi.
Samband ungra jafnaðar-
manna telur að aldrei hafi verið
jafn brýnt og nú að skera upp
staðnað og úr sér gengið kerfi á
flestum sviðum þjóðlífsins. í því
sambandi benda þeir á hætturnar
Safnahúsið Hvoll, Dalvík.
Opið á sunnudögum frá kl. 14-17.
□ St.: St.: 599211127 VIII MH
Tjarnarkirkja, Svarfaðardal.
Messa sunnudaginn 15. nóvember
kl. 14. Bjarni Guðleifsson predikar.
Allir velkomnir.
Sóknarprestur.
Akureyrarprestakall:
Fyrirbænaguðsþjónusta verður í
dag, fimmtudag, kl. 17.15 í Akur-
eyrarkirkju.
Allir velkomnir.
Sóknarprestur.
sem stafa af auknu atvinnuleysi
er leitt geti til þjóðfélagsböls sem
aldrei megi festa rætur hér á
landi. Því verði að leggja áherslu
á virka atvinnustefnu þar sem
rannsókna- og þróunarstörf sitji
í fyrirrúmi. Þá leggja ungir jafn-
aðarmenn áherslu á skattkerfis-
breytingar þannig að virðisauka-
skattur verði innheimtur af allri
vöru og þjónustu án undanþága
en skattfrelsismörk hækkuð á
móti þannig að í raun verði
aðeins greiddur tekjuskattur af
hátekjum.
Þá bendir 40. þing Sambands
ungra jafnaðarmanna á að fjöl-
hæf menntun sé góð fjárfesting
og vara við niðurskurði í mennta-
málum er muni aðeins leiða til
fábreyttara atvinnulífs og verri
lífskjara. Sambandið ítrekar
stefnu sína í málefnum Lána-
Minningarkort Heilaverndar fást f
Blómahúsinu Glerárgötu 28.
Minningarspjöld Hríseyjarkirkju
fást í Bókabúð Jónasar.
Vinarhöndin, Styrktarsjóður Sól-
borgar, selur minningarspjöld til
stuðnings málefna þroskaheftra.
Spjöldin fást í: Bókvali, Bókabúð
Jónasar, Möppudýrinu í Sunnuhlíð
og Blómahúsinu við Glerárgötu.
Minningarspjöld Zontaklúbbs
Akureyrar (Eyjusjóður), fást hjá
Hannyrðaverslun Önnu Maríu og í
Blómabúðinni Akri.
Minningarspjöld Styrktarsjóðs
Kristnesspítala fást í Bókvali og á
skrifstofu Kristnesspítala.
sjóðs íslenskra námsmanna og
hvetur til breytinga á lögum um
sjóðinn. Þá lýsir 40. þing Sam-
bands ungra jafnaðarmanna van-
þóknun á skoðunum ráðherra
fjármála og menntamála sem
komi fram í tillögum um lagningu
skólagjalda á nemendur fram-
haldsskóla og krefst þess að öll-
um slíkum hugmyndum verði
hafnað nú þegar en þess í stað
lögð áhersla á bætt skipulag
skólamála og ábyrgð einstakra
stofnana aukin hvað varðar nýt-
ingu fjármagns.
Pá fagna ungir jafnaðarmenn
þeim sprungum sem myndast
hafa í stofnanir landbúnaðarins
og benda á að löngu sé kominn
tími til að sú stefna sem Alþýðu-
flokurinn hafi barist fyrir í land-
búnaðarmálum nái fram að
ganga. Ungir jafnaðarmenn
hafna einnig núverandi kvóta-
kerfi í sjávarútvegi og telja að
leiga á veiðileyfum eða aflagjald
eigi að vera sá grundvöllur sem
fiskveiðistjórnunin byggist á.
Auk þess telja ungir jafnaðar-
menn að róa verði öllum árum að
því að skapa aðstæður fyrir full-
vinnslu sjávarafurða, er fari beint
á neytendamarkaði - slíkt muni
skila þjóðinni bættum lífskjörum
á komandi tímum.
Samband ungra jafnaðar-
manna leggur áherslu á tillögur
samstarfsnefndar sveitarfélaga
um sameiningu þeirra og telur
brýnt að þeim tillögum, sem þar
koma fram verði hrint í fram-
kvæmd. Á þinginu var Sigurður
Pétursson endurkjörinn formað-
ur sambandsins og Magnús Árni
Magnússon í Kópavogi kjörinn
varaformaður.
ÞI
WÝJAR bækur
Ritgerðasafn
Þórarins
Þórarinssonar
komið út
Út er komin bókin Svo varstu búinn
til bardaga og fleiri ritgerðir eftir
Þórarin Þórarinsson fyrrverandi
alþingismann og ritstjóra. Er hún að
meginmáli að viðbættum myndum,
heillaóskaskrá og formála eftir
Ingvar Gíslason samtals 280 blað-
síður að stærð.
í ritinu eru 50 greinar og ritgerðir,
þar sem höfundur kemur víða við
um almenn þjóðfélagsmál, bók-
mennta- og sagnfræðileg efni og lýs-
ir persónulegum kynnum af mörg-
um mönnum og málefnum á löngum
ferli sínum sem stjórnmálamaður,
blaðamaður og ritstjóri.
Að útgáfunni hafa unnið ýmsir
vinir Þórarins, en útgefandi er Tím-
inn hf. Prentsmiðjan Oddi hf. sá um
prentun og annan frágang ritsins og
annast útsendingu þess til áskrif-
enda.
Grágás, lagasafn
þjóðveldisins
Mál og menning hefur gefið út bók-
ina Grágás, lagasafn íslenska þjóð-
veldisins. Umsjónarmenn eru
Gunnar Karlsson sagnfræðiprófess-
or, Kristján Sveinsson sagnfræðing-
ur og Mörður Árnason málfræðing-
ur.
* Bókin er fyrsta prentútgáfa Grá-
gásar á íslandi og jafnframt fyrsta
útgáfan fyrir almenning ekki síður
en fræðimenn. Hún kom síðast út í
Kaupmannahöfn á 19. öld í fræði-
legri stafréttri útgáfu.
* Grágás geymir lagasafn þjóðveld-
isins, og er samsteypa tólf Iögþátta
sem voru í gildi þangað til landið
gekk undir Noregskonung á ofan-
verðri 13. öld. Einn af þeim, Víg-
slóði, fjallar um víg og áverka,
hefnd og refsingar, er það elsta sem
vitað er með vissu að fest var á bók
á íslandi. Það var gert veturinn
1117-18 hjá Hafliða Mássyni goða á
Breiðabólstað.
* Grágás lýsir stjórnarháttum
íslendinga og daglegu lífi frá land-
námi til ofanverðrar 13. aldar.
Lagasafnið er eitt helstu undirstöðu-
rita í íslenskri réttarsögu og mikil-
væg heimild til skilnings á þjóðveld-
inu og sígildum íslenskum bók-
menntum. Grágás er ein af upp-
sprettum íslensks ritmáls, skrifuð á
kjarnyrtu máli og svipmiklu, stíllinn
tær og orðfæri sérstætt og athyglis-
vert.
* f útgáfunni er texti aðalhandrit-
anna felldur saman þannig að safnið
myndar eina heild. Grágás fylgir
inngangur um aldur og sögu, skýr-
ingarmyndir og ítarleg atriðisorða-
skrá. Textinn er gefinn út með nú-
tímastafsetningu og orðskýringum.
Grágás er 603 síður, prentuð i
prentsmiðjunni Odda.
Barnadagar í KEA Nettó:
Stórlækkað verð
••
a ymsum vorum
Dagana 8. nóvember til 15.
nóvember eru „Barnadagar“ í
KEA Nettó. Þar gefst fólki kost-
ur á að kaupa á hagstæðu verði
fjölmargar vörur sem börn nota
og neyta. Sem dæmi má nefna að
verð á mjólkurvörum var lækkað
í tilefni „Barnadaganna“ og hið
sama má segja um ost og morg-
unmat af ýmsu tagi.
Á laugardag koma löggurnar
úr Línu í heimsókn kl. 10.30 og
þær verða í versluninni til 12.30.
Löggurnar ætla að spjalla við
krakkana og gefa þeim gott í
munninn. Auk þess verða þær
með aðrar smágjafir sem án efa
koma á Óvart. (Fréttatilkynning)
Jazztónleikar
Bandaríski jazzgítaristinn
Paul Weeden leikur ásamt
hljómsveit á Fiðlaranum,
4. hæð, í kvöld kl. 21.
Innilegar þakkir til ykkar allra sem
glöddu mig á sjötugsafmæli mínu
þann 7. nóvember með
heimsóknum, blómum og gjöfum.
Guð blessi ykkur öll!
RAGNAR GEIRSSON.
iti
Frænka okkar,
GUÐFINNA JÓNSDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
sem lést föstudaginn 6. nóvember, verður jarðsungin frá Akur-
eyrarkirkju föstudaginn 13. nóvember kl. 13.30.
F.h. aðstandenda
Guðný Aðalbjörnsdóttir.