Dagur - 12.11.1992, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 12. nóvember 1992
Kynningar- og pröflunarátak
Rauða jcross íslands:
Alheimshreyflng -
Sameinuð gegn þjáningu
Að meðaltali verða stórfelldar
náttúruhamfarir fímmtán sinn-
um á ári í Asíu, tíu sinnum í
Rómönsku Ameríku og Afríku
og einu sinni í Evrópu, Ástralíu
og Norður-Ameríku. Stríðs-
ógnin hefur fylgt mannkyninu
frá alda öðli og nútímahernað-
ur bitnar fyrst og fremst á sak-
lausum almenningi. Allt þetta
veldur þjáningu sem alheims-
hreyfing Rauða krossins hefur
sameinast um að lina eða
koma í veg fyrir. Það er gert
með því að hlúa að fórnar-
lömbunum og ekki síður með
fræðslu og fyrirbyggjandi starfí
þar sem hætta vofir yfir.
Til þess að fræða almenning
um þetta umfangsmikla starf hef-
ur Rauði kross Islands sent inn á
sextíu þúsund heimili í landinu
vandað rit sem mörg landsfélög
Rauða krossins í Evrópu samein-
uðust um að gefa út og ber yfir-
skriftina „Með fólki í neyð“. Rit-
inu fylgja upplýsingar um al-
þjóðastarf Rauða kross íslands
og um skyndihjálp. Jafnframt
fylgir óútfylltur gíróseðill og upp-
lýsingar um hljómplötu,
„Minningar 2“, sem Hljóðsmiðj-
an og Skífan gefa út til styrktar
Hjálparsjóði Rauða kross ís-
lands. Eimskipafélag íslands
kostaði gerð plötunnar.
„Það er stefna Hjálparsjóðs
RKÍ að svara öllum hjálpar-
beiðnum sem berast frá höfuð-
stöðvum hreyfingarinnar í Sviss.
Oftast er það gert með fjárfram-
lagi en einnig með því að senda
þjálfaða sendifulltrúa á vettvang.
Undanfarin tvö ár hafa á fjórða
tug íslenskra sendifulltrúa starfað
á neyðarsvæðum erlendis við
margvísleg störf.
Með því að greiða heimsendan
gíróseðil eða kaupa hljómplöt-
una „Minningar 2“ getur fólk
sameinast með Rauða krossinum
gegn þjáningu undir yfirskrift-
inni: Álheimshreyfing - Samein-
uð gegn þjáningu," segir í frétt
frá Rauða krossi fslands.
Greiðsluáskorun
Öxarfjarðarhreppur skorar hér með á gjaldendur
sem ekki hafa staðið skil á útsvari, aðstöðugjaldi og
fasteignagjaldi álögðum 1992 eða fyrr, auk verðbóta
af útsvari og aðstöðugjaldi ásamt áföllnum dráttar-
vöxtum, sem gjaldfallin voru 1. nóvember 1992 að
gera skil nú þegar og eigi síðar en innan 15 daga frá
birtingu þessarar áskorunar.
Aðfarar verður krafist án frekari fyrirvara fyrir van-
goldnum eftirstöðvum gjaldanna að þeim tíma liðn-
um.
Kópaskeri 10. nóvember 1992.
Sveitarstjóri Öxarfjarðarhrepps.
Bólumarkaðurinn
að Eiðsvallagötu 6
verður opinn laugardaginn 14. nóvember kl.
11 -15 og sunnudaginn 15. nóvember kl. 13-16.
Á laugardag verður boðið upp á keramik, hljómplötur,
skó, reyktan silung og ýmislegt fleira.
Og ekki verður sunnudagurinn síðri.
Meðal annars verður boðið upp á spil fyrir safnara,
fatnað, lukkupakka og laufabrauð.
Ef veður leyfir verða á boðstólum sviðalappirfrá Króknum.
Enn eru örfá borð laus á sunnudag.
Pantanir teknar í síma 26869 (Ásthildur).
AKUREYRARB/ÍR
Bókavörður
Laust er til umsóknar starf bókavarðar (Vz
staða) við Amtsbókasafnið á Akureyri.
Ráðið verður í starfið frá 1. janúar 1993.
Laun samkvæmt Kjarasamningi STAK og Akur-
eyrarbæjar.
Upplýsingar um starfið gefa amtsbókavörður í
síma 24141 og starfsmannastjóri í síma 21000.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akur-
eyrarbæjar, Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til 24. nóvember nk.
Starfsmannastjóri Akureyrarbæjar.
Íþróttir
Halldór Arinbjarnarson
Námskeið fyrir íþróttaþjálfara
- grunnnámskeið á vegum ÍBA
Dagana 27.-29. nóvember nk.
verður efnt til Grunnnám-
skeiðs Í.S.Í. fyrir verðandi
þjálfara og er það íþrótta-
bandalag Akureyrar sem fyrir
því stendur.
Námskeiðið er hluti af fræðslu-
kerfi Í.S.Í. sem íþróttahreyfingin
hefur komið sér upp til að auð-
velda fólki aðgang að menntun á
sviði íþróttaþjálfunar. Byrjenda-
námskeiðin nefnast Grunn- og
A-stig Í.S.Í. Grunnstigið, sem
Í.B.A. býður upp á að þessu
sinni, er ætlað leiðbeinendum
barna og unglinga. Það er að
meginhluta bóklegt og fjallar um
vaxtarþroska, hreyfiþroska, sál-
rænan þroska og félagsþroska.
Ennfremur um þjálffræði,
kennslufræði, næringu, álags-
meiðsl o.fl. Verklegi hlutinn fel-
ur í sér fjölþætta leiki sem stuðla
að hreyfifærni og alhliða líkam-
legum og andlegum þroska.
Leikjunum fylgir sérstök
kennslufræði. A-stigið er aftur
ætlað þeim sem hyggjast þjálfa
íþróttaiðkendur 17 ára og eldri.
Hvort sem menn ljúka Grunn
eða A-stigi, geta menn haldið
áfram náminu á vegum sérsam-
bandanna.
Í.S.Í. leggur á það áherslu að
þjálfarastarfið sé afar áhugavert
og gefandi en einnig ákaflega
vandasamt og því ætti enginn að
taka að sér þjálfun án þess að
hafa áður aflað sér tilhlýðilegrar
menntunar. Þátttöku á námskeið-
ið þarf að tilkynna á skrifstofu
Í.B.A. í síma 12098, fyrir 19.
nóvember. Æskilegt er að fólk
hafi náð 16 ára aldri.
Framhaldsskóla-
Halla Halldorsdóttir og stöllur hennar í KA heimsækja ÍS í 1. umferð bikar-
keppninnar. Þá verða þær að gera betur en þegar liðin áttust við fyrir
skömmu í deiidarkeppninni.
Bikarkeppni Blaksambandsins
Dregið hefur verið í bikar-
keppni Blaksambands íslands,
bæði í karla- og kvennaflokki.
Leikirnir fara fram í kringum
20. janúar 1993, en endanlegar
dagsetningar eru ekki orðnar
ljósar. Aðeins 1 leikur verður í 1.
umferð í karlaflokki. Viðureign
Stjörnunnar og Sindra.
í 8 liða úrslitum mætast:
Völsungur-KA
HK-ÍS
Þróttur R-Sindri/Stjarnan
Bresi, Akran.-Snörtur, Kópask.
I kvennaflokki mætast:
Sindri-Víkingur
Völsungur-HK
ÍS-KA
Þróttur Neskaupstað situr hjá.
mót í knattspymu
Nú styttist í að úrslitin verði
Ijós í framhaldsskólamóti KSÍ.
Verkmenntaskólinn á Akur-
eyri komst í 8 liða úrslit og vann
þar glæsilegan sigur á Tækni-
skólanum, 7:5. í undanúrslitum
öttu VMA-menn síðan kappi við
nemendur úr Menntaskólanum
við Sund. Sunnanmenn höfðu
sigur 3:1. Þeir eru því komnir í
úrslitaleikinn ásamt annað hvort
íþróttakennaraskólanum eða
Kennaraháskólanum, en þau lið
eigast við í dag.
Knattspyrna:
Ólafsfirðingar fá liðsstyrk
- Páll Guðmundsson mun leika með liðinu
Knattspyrnnliði Leifturs frá
Ólafsfirði hefur nú bæst auk-
inn liðstyrkur þar sem Páll
Guðmundsson frá Selfossi hef-
ur gengið til liðs við Ólafsfirð-
inga. Liðið náði góðum árangri
á síðasta sumri og mikill hugur
er í herbúðum félagsins að
gera enn betur í sumar.
Kristinn Hreinsson hjá Leiftri
sagði menn mjög ánægða með að
fá Pál til liðsins og menn hefðu
haft á þessu áhuga nú í nokkurn
tíma. Páll er alhliða leikmaður en
átti við meiðsl að stríða nú í sum-
ar og gat því lítið leikið með Sel-
Pétur Bjöm Jónsson átti gott tímabil
forfallalausu veröur hann i eldlínunni
fyssingum. Kristinn sagðist jafn-
vel hafa heyrt að fleiri gætu verið
á leiðinni. „Það eru auðvitað
ýmsar hreyfingar í gangi á þess-
um árstíma en þetta er það eina
sem er vitað,“ sagði Kristinn.
Liðið hefur nú hafið æfingar sam-
kvæmt leiðbeiningum frá Marteini
Geirssyni þjálfara, sem mun
mæta til Ólafsfjarðar þegar fer að
vora og hefur Rúnar Guðlaugs-
son haft yfirumsjón með því að
menn haldi sig við efnið.
Kristinn sagði vera meiri
spenning fyrir næsta sumar en
með Leiftri síðastliðið sumar. Að öllu
i í sumar.
verið hefur þar sem nú eru 3 lið
af Norðurlandi í 2. deild. Því má
búast við mikilli stemmningu í
innbyrðis viðureignum þessara
liða. Ávallt hefur verið mikil
spenna í viðureignum Tindastóls
og Leifturs og nú leikur KA
einnig í 2. deild. Deildin hefur
sjaldan eða aldrei verið sterkari
og erfitt að spá í hvaða lið gætu
farið upp. Víst er að norðanliðin
ætla ekki að gefa sitt eftir í þeirri
baráttu. Þau hafa sem kunnugt er
öll ráðið þjálfara fyrir næsta
sumar. Njáll Eiðsson þjálfar KA,
Pétur Pétursson Tindastól og
Marteinn Geirsson Leiftur.
Marteinn Geirsson þjálfari.