Dagur - 12.11.1992, Blaðsíða 16
mam
■ ■ ■
ÆÆ
IREGNÍÖGA
'framköllun
Akureyri, fímmtudagur 12. nóvember 1992
Nauðgunarmálið á Akureyri:
Maður handtekinn
í Reykjavík
- blóðsýni sent í DNA-rannsókn
Hafnarstræti 106 • Sími 27422
<ft ín\a
fi)Í0tr
Tuttugu og sex ára maður af
Stór-Reykjavíkursvæðinu hef-
ur sætt yfírheyrslum hjá rann-
sóknarlögreglu ríkisins vegna
nauðgunarmálsins á Akureyri
fyrr í sumar, sem enn er óupp-
lýst. Blóð úr manninum er nú
til DNA rannsóknar erlendis.
Að sögn rannsóknarlögregl-
unnar á Akureyri beindist grunur
að manninum fyrir margt löngu,
en ekki hefur náðst til mannsins
þar sem hann hefur verið á sjó.
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
fór þess á leit við rannsóknarlög-
reglu ríkisins að hún veitti
aðstoð.
Umræddur maður er góðkunn-
ingi lögreglunnar og fyrir
skemmstu var hann handtekinn á
Hótel íslandi vegna vopnaðs ráns
á sólbaðsstofu í Reykjavík. Við
yfirheyrslu neitaði maðurinn sak-
argiftum um nauðgun á Akur-
eyri. Nú er beðið niðurstöðu
DNA rannsóknarinnar en mað-
urinn er í haldi vegna ránsins í
Reykjavík. ój/GG
Nýr framkvæmdastjóri HÓ:
Karl Guömundsson ráðinn
Á fundi stjómar Hraðfrysti-
húss Ólafsfjarðar á þriðjudag
var gengið frá ráðningu nýs
framkvæmdastjóra, en Jóhann
Guðmundsson sem gegnt hef-
ur því embætti sl. tvö ár hefur
hafíð störf hjá Islenskum mat-
vælum hf. í Hafnarfírði. 18
umsóknir bárust um starfíð.
Nýr framkvæmdastjóri HÓ
heitir Karl Guðmundsson, 39 ára
gamall viðskiptafræðingur ættað-
ur frá Skagaströnd, og tekur
hann við störfum eftir næstu
helgi. Karl hefur búið í Kópavogi
og hefur verið framkvæmdastjóri
Heilsugæslustöðvar Suðurnesja í
Keflavík. Árin 1980 til 1982 var
Karl bæjarritari á Dalvík, en
flutti þaðan til Hveragerðis þar
sem hann var bæjarritari og síðan
bæjarstjóri um tíma. GG
Lögreglan á Akurpyri:
Klippumar á lofti
Á næstu dögum verður lög-
reglan á Akureyri með klipp-
urnar á lofti. Því er rétt að eig-
endur bifreiða, sem ekki hafa
fært bifreið sína til skoðunar,
geri slíkt hið snarasta til að
forðast óþægindi sem af hlýst
er skráningarnúmer eru
íjarlægö.
Að sögn Ólafs Ásgeirssonar,
aðstoðaryfirlögregluþjóns, mun
lögreglan á Akureyri gera mikla
herför að þeim bifreiðaeigendum
sem trassað hafa að færa bifreið
sína til skoðunar. Á skrá lögregl-
unnar eru ætíð nokkuð margar
bifreiðar sem svo er ástatt um.
Jafnframt ætlar lögreglan að líta
sérstaklega grannt eftir ljósabún-
aði bifreiða, en töluvert ber á að
bifreiðar séu eineygðar nú í byrj-
un vetrar. ój
Starfsmenn Odda á „kafi“ í vinnu við frystibúnaðinn sem fer í Sléttanes ÍS.
Mynd: Robyn
Vélsmiðjan Oddi hf. smíðar frystibúnað:
Smíði í Sléttanes ÍS að ljúka
- fleiri verk í undirbúningi
Vélsmiðjan Oddi hf. er þessa
dagana að Ijúka smíði á frysti-
búnaði í ísfísktogarann Slétta-
nes ÍS-808 frá Þingeyri. Slétta-
nes er 471 brl. að stærð, smíð-
aður í Slippstöðinni á Akureyri
1983.
Frystibúnaðurinn sem saman-
stendur af lausfrysti og stórum
frystigeymi fyrir frystivökvann
verður sendur suður til Reykja-
víkur um næstu mánaðamót þar
sem búnaðurinn verður tekinn um
borð í skipið. Sléttanesið heldur
síðan áleiðis til Póllands þar sem
frystibúnaðurinn verður settur í
skipið en auk þess verður skipið
lengt þar um 10,45 metra og önn-
ur smíðavinna unnin sem nauð-
synleg er til að koma fullvinnslu-
búnaði fyrir í skipinu. Kristján
Eiríksson, útgerðarstjóri Fáfnis
hf. á Þingeyri, eiganda skipsins,
reiknar með að breytingin á skip-
inu taki þrjá mánuði ef austur-
evrópskar vetrarhörkur tefja
ekki framkvæmdir. Auk þess
mun Vélsmiðjan Oddi hf. sjá um
að frá Kaupmannahöfn verði
sendar frystipressur og frysti-
búnt til Póllands.
Auk þessarar smíði fyrir Dýr-
firðinga er í undirbúningi smíði
fyrir fleiri útgerðir hjá Odda hf.,
en að sögn Torfa Guðmundsson-
ar framkvæmdastjóra hafa engir
endanlegir samningar verið
undirritaðir varðandi þau verk.
GG
Blönduós:
Nýja kirkjan verður
tekin í notkun á næsta ári
Vonir höfðu verið bundnar við
að unnt yrði að taka nýja
kirkju á Blönduósi I notkun
Sauðárkrókur:
„Hrókeringar“ meírihlutans óviðunandi
- segir Stefán Logi Haraldsson, bæjarfulltrúi
Stefán Logi Haraldsson lagði
fram bókun á bæjarstjórnar-
fundi á Sauðárkróki sl. þriðju-
dag, þar sem hann mótmælti
vinnubrögðum meirihlutans.
Eftir nokkrar umræður um
málið sagði forseti bæjar-
stjórnar að því yrði vísað til
úrskurðar Félagsmálaráðu-
neytisins.
í bókun Stefáns Loga er mót-
VEÐRIÐ
Léttir til með sunnan kalda á
Norðvesturlandi en síðdegis
fer aftur að snjóa. Á Norður-
landi eystra var gert ráð fyrir
norðan hvassviðri og síðan
norðvestan stormi í nótt, en
siðan fer að létta til með
morgninum og síðdegis verð-
ur hægviðri og léttskýjað.
mælt „hrókeringum“ meirihlut-
ans á fulltrúum sínum í bæjar-
ráði, þegar kallaður var inn vara-
maður í stað Björns Sigurbjörns-
sonar. Krefst Stefán Logi þess að
farið verði eftir 48. gr. sam-
þykkta um stjórn Sauðárkróks-
kaupstaðar, en þar kemur fram
að meirihlutaflokkarnir eigi ekki
rétt á að hafa áheyrnarfulltrúa
auk kjörinna fulltrúa í bæjarráði.
Kvaðst Stefán Logi vilja að farið
verði eftir samþykktinni, eða
henni breytt, ella yrði málinu vís-
að til Félagsmálaráðuneytis til
úrskurðar. Forseti bæjarstjórnar
Knútur Aadnegard sagði að best
væri að láta ráðuneytið skera úr
um þetta mál.
í bæjarráði eiga sæti tveir
kjörnir fulltrúar meirihlutans,
þ.e. A- og D-Iista svo og fulltrúi
B-lista, og varamenn þeirra og
skulu þeir allir vera aðalmenn í
bæjarstjórn. Öðrum flokkum er
heimilt að eiga áheymarfulltrúa í
bæjarráði. K-listinn, listi óháðra,
hefur að sögn Stefáns Loga ekki
rétt á að eiga áheyrnarfulltrúa í
bæjarráði þar sem þeir styðja
meirihlutann og Hilmir Jóhannes-
son K-lista er varamaður Björns
Sigurbjörnssonar í bæjarráði.
Þrátt fyrir það hefur K-listi átt
áheyrnarfulltrúa í bæjarráði og er
það Björgvin Guðmundsson,
varamaður Hilmis í bæjarstjórn.
Petta er Stefán Logi óánægður
með, en þó sérstaklega þær
„hrókeringar“ sem áttu sér stað í
fjarveru Björns Sigurbjörnsson-
ar, formanns bæjarráðs og full-
trúa A-listans. Þá kom Hilmir inn
í bæjarráð sem varamaður
Björns og Pétur Valdimarsson,
A-lista sem áheyrnarfulltrúi.
Pétur er jafnframt varamaður
Bjöms í bæjarstjóm. Teiur Stefán
Logi þetta hafa verið gert til að
allir flokkar ættu sinn fulltrúa.
Hann kvaðst út af fyrir sig ekki
mótfallinn því, en hrókeringar af
þessu tagi séu af og frá, K-listinn
hafi þverbrotið allar reglur og við
slíkt verði ekki unað.
Stefán Logi sagði í samtali við
blaðið að þriggja manna nefnd,
skipuð honum, Snorri Birni Sig-
urðssyni bæjarstjóra og Birni
Björnssyni hefðu farið ofan í
samþykktir bæjarins og skilað
breytingartillögum á þeim fyrir
rúmu ári síðan. Því hefði verið
vísað til bæjarráðs, en meirihlut-
inn hefði enn ekki treyst sér til að
afgreiða þær. Að mati Stefáns
Loga eiga menn annað hvort að
fara eftir samþykktinni eða
breyta henni þannig að fulltrúar
allra flokka eigi fulltrúa í bæjar-
ráði. „Fyrr eiga menn ekki að
hringla með þetta“, sagði Stefán
Logi. Hann kvaðst þó hafa átt
von á því að málið yrði leyst á
annan hátt en að vísa því til ráðu-
neytisins, en það væri ágætt ef
bæjarstjórnin vilji hafa það
þannig. sþ
fyrir lok þessa árs, en að sögn
Torfa Jónssonar, framkvæmda-
stjóra byggingarnefndar kirkj-
unnar, er nú ljóst að af því get-
ur ekki orðið. Hann segir að
kirkjan verði tekin í notkun á
næsta ári, en ekki sé hægt á
þessu stigi að tímasetja það
frekar.
Framkvæmdir hófust við bygg-
ingu Blönduóskirkju fyrir tíu
árum. Torfi sagði að síðustu tvö
ár hafi kraftur verið settur í þær,
en lokaspretturinn væri drýgri en
menn hefðu kannski gert ráð
fyrir.
Frágangur kirkjunnar jafnt að
innan sem utan er á lokastigi.
Nýlega var lagt parket á gólf, lýs-
ingu komið fyrir og hurðir settar
upp. Nú er unnið að því að setja
upp lýsingu utanhúss. Eftir er að
setja upp sæti í kirkjunni, en gert
er ráð fyrir að hún rúmi um 200
manns í bekki og að viðbættum
stólum rúmi hún að hámarki um
300 manns.
Sérstök nefnd vinnur að því að
fá hentugt orgel í kirkjuna, en
gert er ráð fyrir að fyrst í stað
verði notast við bráðabirgða-
hljóðfæri. Torfi segir að menn
hafi ástæðu til að ætla að hljóm-
burður í kirkjunni verði góður.
Gamla kirkjan á Blönduósi er
komin til ára sinna, tæplega 100
ára gömul. Hún er fyrir löngu
orðin of lítil fyrir söfnuðinn og
því verður nýja kirkjan kærkom-
in. óþh